Tíminn - 23.03.1973, Blaðsíða 9

Tíminn - 23.03.1973, Blaðsíða 9
Föstudagur 23. marz. 1973 TÍMINN 9 Útgefandi: Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þór- arinn Þórarinsson (ábm.), Jón Helgason, Tómas Karlsson, Andrés Kristjánsson (ritstjóri Sunnudagsblaös Timans). Auglýsingastjóri: Steingrimur Gisiason. Ritstjórnarskrif- stofur i Edduhúsinu við Lindargötu, simar 18300-18306. Skrif- stofur I Bankastræti 7 — afgreiðslusimi 12323 — auglýsinga- simi 19523. Aðrar skrifstofur: simi 18300. Askriftagjald 300 kr. á mánuði innan lands, i lausasöiu 18 kr. eintakið. Blaðaprent h.f. ____________________ Lausn togaradeilunnar Eftir tveggja mánaða vinnustöðvun á togaraflotanum, þegar ljóst var að óbrúanlegt bil hafði myndazt milli yfirmanna á togurunum og útgerðarmanna, ákvað rikis- stjórnin að leggja til við Alþingi, að þessi vinnudeila yrði leyst með löggjöf. Ríkisstjórnin lagði fram frumvarp til lausnar deilunni á Alþingi i fyrradag. Fól frumvarpið i sér lögfestingu á lokatilboði yfir- manna, sem þeir höfðu undirritað. Mismuninn á þessu boði og siðasta tilboði útgerðarmanna á rikissjóður að greiða. Þessi deila var komin i slikan hnút, að þjóðarnauðsyn krafði, að á hann yrði höggvið. En stjórnarandstaðan núverandi er söm við sig. Hún viðurkenndi i orði kveðnu að þjóðar- hagur byði, að þessi deila yrði leyst með lög- gjöf, en bar siðan fram ýmsar breytingatil- lögur við frumvarpið, vitandi það, að breytingar á frumvarpinu gátu þýtt, að yfir- menn sættu sig ekki við löggjöfina og segðu upp störfum sinum og togaraflotinn héldí þar með áfram að liggja við bryggjur, vegna þess að hér var um að ræða algert lokaboð yfirmanna, sem sáttasemjarar lögðu fast að þeim að gera. Þegar rikisstjórnin vildi ekki taka þessa áhættu með breytingum á frumvarpinu, vildi stjórnarandstaðan ekki styðja frumvarpið, sem hún hafði þó viðurkennt að þjóðarnauðsyn byði að lögfesta. Til að kóróna þessa afstöðu lýsti Gylfi Þ. Gislason, þvi svo yfir i um- ræðunum, að i þau 25 ár, sem hann hefði setið á þingi, hefði hann aldrei skipt um skoðun i nokkru máli!!! Þannig vildu þeir, sem tóku verulegan skerf af umsömdum aflahlut sjómanna með lögum, er þeir voru i stjórn, ekki standa að lögfestingu kjarabóta til yfirmanna á togaraflotanum og báru við, að það væri grundvallarstefna þeirra, að stuðla ekki að auknum launamun i þjóð- félaginu. Trúi þvi hver sem trúa vill. Þannig sáu þeir ofsjónum yfir þvi kaupi, sem togarasjómenn áttu að fá skv. frumvarpinu. Eru þeir þó sannarlega ekki of haldnir, en lifs- nauðsyn þjóðarinnar að gera þessi störf eftir- sóknarverð með góðum kjörum. Það segir sina sögu um þróun mála, að Stýri- mannaskólinn er nú aðeins hálfsetinn og vand- ræðaástand rikjandi, en um sjálfan grund- völlinn að islenzku efnahagslifi að ræða, að nægt framboð sé harðduglegra manna til áð manna fiskiskip okkar. Enn furðulegri verður að teljast afstaða sumra togaraútgerðarmanna, sem lögðust gegn þvi, að þessi deila yrði leyst á þann hátt að rikissjóður greiddi það af kaupi yfirmanna, sem þeir treystu sér ekki til að greiða. Þeir höfðu við orð að hætta að gera út nema rikis- sjóður ábyrgðist fyrirfram með bindandi lof- orðum að þjóðnýta allt tap, bæði gamalt og nýtt og ókomið, en auðvitað ætla þeir svo að hirða hagnaðinn, þegar aflabrögð batna! -TK Roy Jenkins: Verkamannaflokkurinn getur öðlazt tiltrú kjósenda á ný Roy Jenkins þingmabur Verkamannaflokksins flutti ræðu á fundi flokks- manna sinna i Oxford nokkru eftir að kunn voru úrslit aukakosninganna i Chester-le-Street, Lincoln og Dundee East. Fer útdráttur hennar hér á eftir: ÉG vil nota tækifærið til þessað lýsa skoðunum mínum á stjórnmáiaástandinu eftir úrslit aukakosninganna i vikunni sem leið. Nokkur orð- rómur hefir verið á kreiki um myndun nýs miðflokks. Sumir hafa jafnvel verið svo hugul- samir að stinga upp á, að ég veitti honum forustu. Mér finnst það ógeðfelld tilhugsun af fjórum ástæðum: i fyrsta lagi held ég ekki að slikur flokkur hefði neina samræmda stefnu á að byggja. Það er þvaður eitt, að skoðanir minar standi nær skoðunum frambjóðanda Frjálsly ndaflokksins i Chester -1 e-Street en skoðunum Giles Radine. Þær eiga heldur ekkert skylt við kenningar skoskra þjóðernis- sinna i Dundee. Flokkur, sem myndaður væri á slikum grunni, hefði ekkert jákvætt fram að færa. Hann notfærði sér óánægjuna en tvistraðist þegar laga ætti óánægjuefnin. Ég vil fara allt örðu visi að og tel leiðtogum skylt að sam- ræma vonir manna og reyna að láta þær rætast, en ekki að aðskilja og leggja rækt við ágreining og óánægju. í OÐRU lagi hygg ég að jafn illa undirbyggð samtök minnkuðu likurnar á virkri rikisstjórn i andstöðu við Ihaldsflokkinn. Trúlega væri það að skapi margra þeirra, sem með slikri flokksmyndum mæla en ég er á öðru máli Fáum þarf að koma á óvart, þó að við, sem stefnum að grundvallarbreytingum tök- um boðskap þeirra af nokkurri tortryggni. En þetta á ekki við um alla. Sumir óska i einlægni eftir nýjum, öflugum flokki ihalds- andstæðinga. En þeir ættu að láta sér skiljast, að eitt er að vona slikt og annað að koma þvi fram. Sennilegasta af- leiðing þeirrar viðleitni yrði alger ringlureiö til vinstri og ótrufluð forusta thalds- flokksins i nokkra áratugi. Viðlika óheppileg og skaðleg og hún reyndist á þriðja og fjórða tug aldarinnar. t þriðja lagi er ég ekki sam- mála þeim, sem vilja stjaka vinstri armi Verkamanna- flokksins og fylgjendum hans út úr meginstraumi brezkra stjórnmSla. Sú framvinda gæti aðeins ýtt undir eins- trenging og deilur, sem eru höfuðmein okkar nú. Hún stendi beinlinis að þvi að firra verulegan hluta þjóðarinnar bæði þeim aga og ábata, sem fylgir aðild að stjórnarflokki. Hún yki, en minnkaði ekki sundrungina i samfélaginu. í FJÓRÐA lagi get ég ekki sjálfur látið lönd og leið þá stjórnmálahefð, sem ég er alinn upp við og hefi þjónað með þátttöku minni i stjórn- málum. Stjórnmál eru ekki trúarbrögð i minum augum, en Verkamannaflokkurinn er og hefir ávallt verið snar þáttur i lifi minu. Engin ræða hefir haft jafn djúp áhrif á mig og ræða Hugh Gaitskell þegar hann sagðist „aldrei, aldrei láta af að berjast til að bjarga flokknum, sem við elskum.” Þetta var sönn og rétt boðun árið 1960 og ég held að hún sé Roy Jenkins. það enn. Ég hefi þvi enga löngun til þess að reyna nýjar leiðir. En ég hygg hins vegar, að við blasi erfið en nauðsynleg barátta. Hver og einn, sem er ánægður með ástand og horfur Verkamannaflokksins nú (og sama á við um Ihalds- flokkinn, þó að okkur komi það ekki við) er blátt áfram á villi- götum. Þegar á feril rikis- stjórnarinnar er litið ættum við að hafa yfirburðaaðstöðu og vera fullir sjálfstrausts og áhuga. I þess stað fáum við að meðaltali 38% atkvæða i þremur kjördæmum, sem Verkamannaflokkurinn hefir haldið siðan 1945. Ef Lincoln er undanskilið hefir fylgi okkar i hinum tveimur kjör- dænunum minnkað úr 60 i 43% siðan 1970. VERKAMENN eru ekki margir i þessum kjördæmum og áhuginn var siður en svo mikill. Þeirri stjórnarandx stöðu er alvarlega ábótavant, sem nær ei betri árangri en þetta á miðju kjörtimabiii, þegar óánægja með rikis- stjórnina er hvað mest. Þessu verður að gjörbreyta til batnaðar og það getur tekizt. Ég held ekki að gengið verði til almennra kosninga fyrir en eftir hálft annað ár. Við megum vera fegnir að stjórnarflokkurinn er siður en svo betur á vegi staddur en okkar flokkur. Verkamanna- flokkurinn getur náð sér á strik á þeim tima, sem til stefnu er, en þó þvi aðeins að hann láti sér að kenningu verða ófarirnar undangengin tvö ár. Leitin að sökudólgum undanfarið hefir verið niður- lægjandi. Þeir, sem hafa ná- lega öllu ráðið i flokknum meðan hann hefir verið á niðurleið, hafa jafnvel sagt allar ófarir sök okkar hinna, sem höfum ávallt viljað aðra ábyrgari og samræmdari stefnu. Þetta er að snúa sann- leikanum viö. Sök er einnig rakin til blaðanna. Vitanlega hafa blöðin sina galla, en undan þeim verður ekki komizt. Og kvörtunin ein sýnir vorkunn- semi við sjálfan sig og undan- hald. Haldi Verkamanna- flokkurinn vel á sinu máli fær hann sum blöðin til fylgis við sig og getur sent hinum langt nef. Roosevelt vann hvern sigurinn af öðrum, þrátt fyrir öflugri andstöðu dagblaða en við búum við hér. VERSTA afsökunin er þó ennótalin.en hún er sú af- staða, að Verkamanna- flokkurinn hafi unnið til stuðn- ings kjósenda og ef þeir láti hann ekki i té — meira að segja þrátt fyrir vonbrigðin með ihaldsflokkinn — sé sökin þeirra en ekki flokksins. Kjósendur hafa óskoraðan rétt til þess að gera það eitt,sem þeim sýnist, en. það er hins vegar skylda okkar aö vinna til stuðnings. Okkur er einnig skylt að reyna að vera fulltrúar allra, sem standa vinstra megin i stjórnmálunum, og gefa kost á aðgengilegri rikisstjórn i stað þeirra, sem að völdum situr — Verði afstaða okkar of takmörkuð erum við að fram- lengja völd ihaldsins og van- rækja skyldu okkar. Þeir, sem ekki vilja viðurkenna þetta, og hrópa „svik” eða „samsæri” ávallt þegar eitthvaö gerist, sem þeim geðjast ekki, og halda að þeir geti rutt kjósendum aftur i raöir okkar, eru ekki sigurstrangllgir. HVERS vegna hafa báðir stóru flokkarnir valdið jafn miklum vonbrigðum og raun ber vitni? Ég held að ástæðurnar séu einkum þrjár: I fyrsta lagi geðjast fólki ekki að skammahrinunum i stjórnmálunum og lætur sér fátt um finnast, þegar það heyrir öfgafullar ásakanir á andstæðingana fyrir það eitt, sem það hefir lúmskan grun um að ásakandinn sjálfur gerði ef hann færi með völd. t öðru lagi hefir það illan bifur á loforðum, sem það heldur að ekki verði staðið við Og i þriðja lagi grunar það, að þeir, sem taldir eru sann- gjarnir i sinu dagfari, noti annars konar orðbragð og hafi aðra afstöðu i stjórnmálum. Stjórnmál eru aðeins litill þáttur i daglegu lifi flestra. Fólk hefir tiðast meiri hug á öðru, sem þvi stendur hvers- dagslega nær, og er siður en svo illa farið. Þegar fólk kynnist stjórnmálaheimi, þar sem farið er að á allt annan hátt en það á að venjast i sinu dagfari, fyllist það ógeði og andúð. Haldi fólk að stjórn- málin geri okkur alla að leik- brúðum breikkar af sjálfu sér biliö milli flokksvélanna og kjósenda. ÚT frá þessum hug- leiðingum vil ég setja fram þrjár reglur, sem ég held að Verkamannaflokkurinn eigi að fylgja i stefnumörkun og túlkun: I fyrsta lagi þarf að athuga vel um hvað eina, hvort það sé nauðsynlegt eða æskilegt til þess að bæta samfélagið eöa þjóna hagsmunum þess fjöl- menna hluta þjóðarinnar, sem við erum fulltrúar fyrir. I öðru lagi þarf að athuga, hvort sæmilegir möguleikar séu á að framkvæma stefnu- skrána með góðum árangri, bæði með hliösjón af fyrri reynslu og vonum okkar um framtiðina. I þriðja lagi þarf að hafa i huga, hvort tillögur okkar séu liklegri til að afla Verka- mannaflokknum fylgis en að draga úr hylli hans, og gefi okkur þvi tækifæri til að komast eitthvað áleiðis, en leiði ekki til vanmáttar. Ekki er ávallt unnt að fullnægja öllum þremur kröfunum. Stundum geta fyrsta og þriðja skilyrðið rekizt á, og þvi geta meðal annars valdið skuldbindingar okkar um kynþáttajafnrétti, en frá þeim má aldrei hvika. Komi til slikra árekstra verður fyrsta skilyrðið að ráða. Við megum ekki berjast fyrirþeim málum einum, sem efla vinsældir. Of mikið hefir verið að þvi gert hvarvetna á vettvangi stjórnmálanna undangengin ár. EKKERT ætti að leggja til, sem ekki getur samrýmzt að minnsta kosti tveimur ofan- greindra skilyrða, og flest ætti Framhald á bls. 19

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.