Tíminn - 07.04.1973, Blaðsíða 4

Tíminn - 07.04.1973, Blaðsíða 4
4 TÍMINN Laugardagur 7. apríl 1973. Þátttakendur í megrunarsýningu bessi grannvaxni maður, Graham Claringbold, er að undirbúa mikla megrunar- sýningu, sem opnuð verður i júni i London. Konurnar sem hjá honum standa og mættu sannarlega missa eitt eða tvö kiló, já, og jafnvel meira, ætla að aðstoða hann i sambandi við sýninguna. Sýningin mun heita Slimmex 73, og takist konunum að auglýsa vel þær vörur, sem þarna veröa sýndar, með þvi að geta sjálfar sýnt einhvern árangur eftir megrunarkiir og neyzlu þess, sem þarna verður sýnt af megrunarfæði og notkun þeirra hluta, sem mælt verður með i sambandi við megrun, þá er áreiðanlegt, að sýningin á eftir að borga sig. bað segir Claringbold að minnsta kosti, og óttast ekki framtiöina, enda hlær hann innilega. Verðlaunavonin sprakk í loft upp Nýlega fékk eðlisfræði- stUdentinn Otto Czarvic, 21 árs aö aldri, verðlaun fyrir það, sem hann hafði gert siðasta námstimabil, en hann stundar eðlisfræðinám i Budapest i Ung- verjalandi. Honum var boðiö að framkvæma einhverja af til- raunum sinum fyrir framan hóp ungverskra visindamanna. bvi miður gekk Otto ekki eins vel i þessari tilraun, eins og honum hafði gengið allan veturinn i skólanum. Tilraunastofan sprakk i loft upp, og koslaði hUn hvorki meira ne rhinna en 12 þUsund pund. Auðvitað kom engin verðlaunaveiting til greina eftir þetta óttalega slys, og sennilega verður Otto ekki tekinn til greina við fleiri verðlauna veitingar i fram- tiðinni. Komst í skjalatöskuna Flugvallareftirlitsmanninum Ernest Morals á Kennedyflug- velli i New York var sannar- lega skemmt, þegar hann opnaði tösku Kenneths Feld, varaforseta Hingling Brothers Circus, þegar hann var að leggja upp i flugferð til Washington. I töskunni var minnsti maður i heimi, Michu eins og hann er kallaður i sirkusnum, en i rauninni heitir hann Mihaly Meszaros. Hann réði sig til sirkussins i vikunni, strax eftir að hann kom til Bandarikjanna frá Budapest i Ungverjalandi, þar sem hann er fæddur og uppalinn. bað er sirkustjórinn, sem stendur til vinstri á myndinni, en hinn er flugvallarstarfsmaðurinn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.