Tíminn - 07.04.1973, Blaðsíða 19

Tíminn - 07.04.1973, Blaðsíða 19
Laugardagur 7. apríl 1973. TÍMINN 19 Umsjón: Alfreð Þorsteinsson Liðin mætast á heimavígstöðvum d mánudagskvöldið ÍSLANDSMÓTINU i handknatt- leik er nú að ljúka. Aðeins eru eftir sjö leikir i 1. deild karla. Á morgun leika Vikingur — Ármann og Fram — KR i Laugar- dalshöilinni. Þá verður einn leikur leikinn i iþróttahúsinu i Hafnarfirði á mánudagskvöldið. Þar mætast erki fjendurnir úr Firðinum Haukar og FH. Undan- farin ár hafa leikir liðanna verið æsispennandi og tvisýnir. Það má reikna með þvi, að svo verði einnig á mánudaginn. Stðan i 1. deild er nú þessi: Valur 12 10 9 2 243:176 20 FH 12 9 1 2 241:214 19 Fram 11 7 1 3 209:195 15 1R 12 6 1 5 236:219 13 Vikingur 13 5 2 6 278:278 12 Haukar 13 4 2 7 218:235 10 Armann 12 3 2 7 203:232 8 KR 13 0 1 12 208:290 1 Markhæstu menn: Einar Magnússon, Viking.......91 Geir Hallsteinsson, FH ........82 Brynjólfur Markússon, 1R......69 Bergur Guðnason, Val........67 Haukur Ottesen, KR..........64 Eftir að leiknum um helgina er lokið, þá eru eftir fjórir leikir i 1. deildinni. Miðvikudagur 11. april: tR — Fram Valur — Armann. Sunnudagur 15. april: Valur — IR Fram — FH Ekki allt fengið með dýrum útbúnaði Skiðafólk horfir vonglatt til páskanna, sem eru á næsta leiti, en skiðaiðkanir tslendinga hafa löngum verið tengdar þessum helgidögum. Um mest allt land er gott skiðafæri um þessar mundir, og er óskandi, að það haldist fram yfir páska. Það hefur stundum heyrzt, að skiðaiþróttin sé ,,dýrt sport” Ástæðan er fyrst og fremst sú, að almenningur hefur keypt allt of dýran skiðaútbúnað, m.ö.o. fyrsta flokks búnað fyrir alpa- greinar, sem kostað hefur of- fjár. En sem betur fer, virðist um einhverja hugarfars- breytingu að ræða i þessum efnum upp á síðkastið, ma. hafa sumir sportvöru- kaupmenn iagt áherzlu á að flytja inn ódýrari skiðavörur og gert sér far um að leiðbeina almenningi meira úm kaup á þessum vörum en áður. Er. það góðra gjalda vert. Það eru ekki aðeins tslendingar, sem glimt hafa við þetta vandamál. Kunnur alpaskiðamaður i Noregi sagði nýlega i viðtali, að þetta sé áberandi vandamál i Nor- egi, að það séu fyrst og fremst framleiðendur skiðavarnings og sportvörukaupmenn, sem eigi sök á þróuninni. Vék hann sérstaklega að þeirri öfugþró- un, sem á sér stað i sambandi við skiðaútbúnað barna og unglinga. Framleiðendur gera sér far um að setja á markað- inn rándýr skiði og skiðaskó handa þessum aldursflokkum, vitandi það, að unglingar eru mjög áhrifgjarnir og kröfu- harðir i þessum efnum sem öðrum. Ef einn fær slfkan út- búnað, litur sá næstu ekki við öðru. Kostnaðurinn getur farið upp i 30-40 þús. (fsl. króna), þegar allt er talið. Norski skiðamaðurinn, sem gagnrýndi þetta, benti á, að þetta væri óheyrilegur kostnaður, ekki sizt, þegar á það er litið, að unglignarnir vaxa tiltölulega fljótt upp úr þessum búnaði og þyrfti þá að kaúpá annan. Enn fremur benti hann á, að i mörgum til- fellum væri hinn dýri út- búnaður beinlinis skaðlegur börnum og unglingum. Benti hann sérstaklega á skiðaskóna i þvi sambandi, en þeir eru fyrst og fremst sniðnir fyrir keppnisfólk með stælta vöðva en ekki fyrir óharðnaða ungl- inga. Þessi norski skiðamaður veit vel hvað hann er að segja. Hann talar af reynslu um þessi mál, bæði sem skiðamaður og læknir, en hann starfar i sjúkrahúsi i Osló. Þvi er vakin athygli á þessum málum nú, að i hönd fara páskar, hátið skiðafólks, og margir munu kaupa sér skfðaútbúnað. Er sjálfsagt að ihuga vel kaup á skfðavörum. Það er ekki allt fengið með dýrum útbúnaði. — alf. Skiðafólkið vonar, að skiðafærið haidist gott fram yfir páska. Malcolm MacDonald, einn marksæknasti leikmaður enskrar knattspyrnu. Arsenal kemst ekki til íslands, en möguleiki á Ips- wich eða Newcastle íslenzkir knattspyrnudhugamenn fd því e.t.v. að sjd marga 70 þátt- takendurí unglinga- móti í badminton UM sjötiu þátttakendur eru i unglingameistaramóti Reykja- vikur í badminton, sem hefst i KR-húsinu i dag klukkan 13.30. Þeir eru frá KR, TBR og Val. Mótinu verður haldið fram á morgun, sunnudag, kl. 14 á sama stað, en þá fara úrslitaleikir fram. þekkta enska knattspyrnumenn d Laugardalsvelli EINS og skýrt var frá á iþróttasiðunni nýlega, hafa knattspyrnudeildir Fram og Ármanns, sem rétt eiga á vorheimsókn erlends liðs í ár, gert til- raun til að fá Arsenal hingað um mánaða- mótin maí-júni. M.a ræddi Gunnar Eggerts- son, formaður Ármanns, við forráðamenn Arsenal nýlega, þegar hann var á ferð i London. Nú mun hins vegar útséð með það, að Arsenal getur ekki komið hingað á þessum tima. Verður félagið á ferðalagi með lið sitt i Suður-Ameriku á sama tima. Hins vegar er e.t.v. von til þess, að annað hvort Ipswich eða New- castle, sem eru mjög ofarlega i 1. deildar keppninni á Englandi um þessar mundir — i 4. og 5. sæti — komi hingað i staðinn. Fæst mjög fljótlega úr þvi skorið. Meðal þekktra leikmanna Ipswich má nefna Mick Mills, en hann hefur leikið með enska landsliðinu og er talinn sterklega koma til greina í HM-lið Eng- lands. Einnig má nefna sóknar- manninn Trevor Whymark og tengiliðinn Mike Lambert, en þeir hafa leikið með unglingalandsliði. Lið Ipswich er eitt skemmtileg- asta knattspyrnulið Englands og er talið eiga mikla framtið fyrir sér á næstu árum. Þekktasti leikmaður Newcastle er án efa Malcolm MacDonald, en hann er einn skæðasti sóknar- maður enskrar knattspyrnu i dag og skorar jafnan mörg mörk á hverju keppnistimabili. Þá má nefna Tony Green, Terry Hibbet og John Tudor. Sömuleiðis Bobby Moncur, fyrirliða skozka lands- liðsins. Þess má að lokum geta, að Newcastle bar sigur úr býtum i UEFA-keppninni 1968-69. Mick Mills, einn efnilegasti bakvörður Englands. Litla bikar- keppnin í dag TVEIR leikir verða háðir i Litlu bikarkeppninni i dag. A Akranesi mæta heimamenn Keflvikingum kl. 15 og verður án efa um mjög spennandi keppni á ræða, en Kefl- vikingar eru þó taldir sigur- stranglegri. Á sama tima leika i Kópavogi lið Breiðabliks og FH, sem keppir fyrir hönd Hafnar- fjarðar. Hvað gera Haukar gegn FH?

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.