Tíminn - 07.04.1973, Blaðsíða 11
Laugardagur 7. apríl 1973.
TÍMINN
11
ADAX
rafmagnsþllofnarnir
hafa fenglS æðstu
verðlaun, sem veltt
eru Innan norsks
Iðnaðar
,,Bjórinn er okkar
stóra vandamól"
Klp-Reykjavik. — Um þessa helgi
halda heildarsamtök ung-
templara á tslandi, IUT, svo og
ungtemplarafélagið Hrönn i
Reykjavik sameiginlega upp á 15
ára afmæli sitt. t því tilefni
verður haldin afmælishátið og
afm ælisdansleikur auk ráð-
stefnu aðildarfélaganna og
annarra æskulýðsfélaga hér á
landi.
Flóa-
markaður
í dag laugardag, gengst
Pólyfðnkórinn fyrir Flóamarkaði
að Hallveigarstöðum og hefs'i
hann kl. 14.
Flóamarkaðurinn er til ágóða
fyrir fyrirhugaða plötuútgáfu
kórsins, en ætlunin er að gefa út
12 laga plötu með kórnum og
verður hún tekin upp út i Sviþjóð i
vor.
Það var á Sumardaginn fyrsta
árið 1958, sem þá bar upp á 24.
april, sem samtökin íslenzkir
ungtemplarar voru stofnuð, og
stóðu að þvi átta ungmenna-
stúkur. 16 dögum áður hafði verið
stofnað félag i Reykjavik, sem
hlaut nafnið Hrönn, en það félag
er nú einn aðalburðarásinn i IUT.
Forráðamönnum þessara
tveggja félaga þótti þvi rétt, að
slá saman þessum tveim 15 ára
afmælishátiðum, og gera þær vel
úr garði.
IUT er aðili að norræna ung-
templarasambandinu og i tilefni
afmælisins komu hingað nokkrir
fulltrúar frá hinum Norðurlönd-
unum, m.a. frá Færeyjum, og
munu þeir taka þátt i hátiðinni og
jafnframtflytja erindi á ráðstefn-
unni, sem haldin verður i dag.
Sú ráðstefna verður haldin á
Hótel Esju og hefst kl. 13,30. Þar
verða flutt stutt erindi um þau
vandamál, sem ung æska á við að
glima i dag. Tala þar hinir er-
lendu gestir svo og aðrir, sem
boðið hefur verið á þessa ráð-
stefnu. Um kvöldið verður haldið
afmælishóf Hrannar i Templara-
höllinni. Verður þar margt til
skemmtunar og dans stiginn
fram á rauða morgun.
A sunnudeginum kl. 14.30
verður svo sett afmælishátið UIT
i Templarahöllinni. Þar verða
ræður fluttar og minnzt kafla úr
15 ára sögu samtakanna. 1 sam-
bandi við hátiðina verður haldin
heimildarsýning á vegum
Hrannar i kjallara Templara-
hallarinnar. Þá gefa bæði félögin
út blöð i tilefni dagsins. IUT
blaðið Sumarmál, þar sem er að
finna margar greinar og myndir
og Hrönn gefur út blaðið Þerri-
pappifinn, þar sem eru m.a.
myndir og viðtöl við félagsmenn.
Formaður IUT er Gunnar Þorl-
áksson. Formaður Hrannar er
Höskuldur Frimannsson.
Húsbyggjendur!
— segir formaður sænsku
ungtemplarahreyfingarinnar
Steinþór Eiríksson
i Hamragörðum
— Ég hef aldrei séð málara halda
á pensli, en samt hef ég málað frá
1926, sagði Steinþór Eiriksson á
Egilsstöðum við blaðamann Tim-
ans á föstudaginn, en Steinþór
var þá önnum kafinn við að
hengja upp 23 oliumálverk i
Hamragörðum.
Steinþór opnar sýningu i
Hamragörðum i dag, laugardag,
en Hamragarðar er félagsheimili
samvinnumanna að Hávallagötu
24, þar sem Jónas Jónsson frá
Hriflu bjó i mörg ár.
— Þótt ég hafi málað meira og
minna frá ellefu ára aldri, hef ég
sýnir
aldrei sýnt fyrr, sagði Steinþór
sem nú er 57 ára gamall. Steinþór
þekkja áreiðanlega margir, þvi
hann rak bilaverkstæði á Egils-
stöðum um árabil.
Málverkin eru flest frá Austur-
landi, og bregður Dyrfjöllum oft
fyrir. Myndirnar eru málaðar
meðoliulitum á masonitplötur, og
eru frá þrem siðustu árum.
Sýningin verður opin frá tvö til
átta á virkum dögum en til tiu um
helgar, fram til 23. april.
Steinþór Eiriksson við verk sln, sem nú eru til sýnis I Hamragöröum
(Timamynd G.E.)
að Espilundi 3
í Garðahreppi er
hitað upp með
_ zrrjx
rafmagnsþilofnum
Það eru stórar upphæðir, sem þér sparið með
ADAX RAFHITUN
• Lágur stofnkostnaður
• Enginn kyndiklefi, enginn skorsteinn
• Engin hætta á vatnsskemmdum
• Sáralítill viðhaldskostnaður
• Ódýr, innlend orka — Örugg orka
• Og þá ekki sízt: Létt og auðveld þrif, termostat á
hverjum ofni — Þægilegur hiti og.
þriggja ára ábyrgð
Leitið nánari upplýsinga um þessa norsku ofna
Einar Farestveit & Co hf
Bergstaðastræti 10 A — Simí 2-15-65
Klp-Reykjavik. — t sambandi við
15 ára afmælishátið íslenzkra
ungtemplara og Ungtemplara-
félagsins Hrönn, sem haldin er
um þessa helgi, eru staddir hér á
landi nokkrir forráðamenn
ungtemplara á honum Norður-
löndunum.
Við náðum tali af einum þeirra,
Kalle Gustafson frá Sviþjóð, sem
er formaður samtakanna þar, en
það eru jafnframt stærstu sam-
tökin á Norðurlöndum. Hann
sagði okkur, að á Norðurlöndum
væruum lOOþúsund félagsmenn i
ungtemplarafélögunum. Öll ynnu
þau að sama takmarkinu, að
fræða unglinga um skaðsemi
áfengis og eiturlyfja. Starfs-
aðstaða væri misjöfn i hinum
ýmsu löndum og vandamálin
einnig.
Tvöföld hótíð hjó
ungtemplurum
„Hjá okkur er það bjórinn, sem
er mesti skaðvaldurinn fyrir
unglingana” sagði Kalle. „Þar
komast þau á bragðið og siðan
koma sterkari drykkir og eitur-
lyfin á eftir. Þetta sama er upp á
teningnum hjá Dönum, Finnum
og Norðmönnum. En mér skilst
að hér sé engan bjór að hafa
a.m.k. ekki opinberlega, og þar
eruð þið heppin.
Hjá okkur og einnig hjá hinum
nágrönnum okkar, hefur notkum
eiturlyfja meðal unglinga
minnkað mikið á undanförnum
mánuðum. Astæðan fyrir þvi er
sú, að verðið á þessu hefur stigið
svo, að þeir hafa ekki efni á að
kaupa það. 1 stað þess hafa þeir
snúið sér í auknum mæli að
sterku áfengi og bjór, sem er litið
Formenn Hrannar og IUT ásamt erlendum gestum, sem sækja afmælishátfðina um helgina. Talið frá
vinstri: Gunnar Þorláksson fonnaður IUT, Kalle Gustafson Svíþjóð, Jörn I. Christensen Danmörku,
Jeggvan A. Skale Færeyjum, Heðin Michalsen Færeyjum og Höskuldur Frlmannsson formaður
Hrannar. (Tímamynd: Róbert)
betra. Vandamálin eru þvi áfram
hin sömu, en við teljum okkur
samt hafa orðið mikið ágengt
með upplýsingastarfsemi i
skólum.
Það var komið svo i Sviþjóð, að
ekki var hægt að halda skóladan-
sleiki án þess, að hafa til taks
fileflda karlmenn til að halda
aftur af drukknum unglingum.
Þetta er nú eitthvað á batavegi
enda er eins og ég sagði áðan,
mikil áherzla lögð á að fræða
skólabörn á skaðsemi áfengis”.
Við spurðum Kalle Gustafson að
þvi hvort hann hefði séð nokkuð
til islenzkra ungmenna þá daga,
sem hann hefði dvalið hér. Hann
kvaðzt hafa farið með nokkrum
tslendingum á Þórskaffé og
Röðul og þar séð nokkuð til
þeirra. Sér hefði komið mikið á
óvart að sjá þau draga flösku af
áfengi upp úr buxnastrengnum
eða töskunum þegar þau komu
inn á dansstaðinn. En sjálfsagt
væri sinn siðurinn i hverju landi.
Annars hefði sér fundizt
unglingarnir vera bæði prúðir og
kurteisir og fæstir ofurölvi. Þetta
væri mikið verra i Sviþjóð, en
hann hefði nú sjálfsagt ekki séð
allt, þóhann hefði skroppið þarna
út eina kvöldstund.