Tíminn - 07.04.1973, Side 14

Tíminn - 07.04.1973, Side 14
14 TÍMINN Laugardagur 7. apríl 1973. Laugardagur 7. aprfl 1973. TÍMINN _______________________15 HEIMSATBURÐIR í LJÓSI LIÐINS TÍMA ,,Þeir þoröu ekki aö drepa hann.....” „Aldrei vissi ég til, aö hann léti skjóta nokkurn mann....” „Evlta var sannkallaöur þjóöardýrölingur. Hún starfaöi mjög I þágu verkalýösins, og var meö athafanasömustu konum heimsins á þessum tlma. Og hún var lika meö þeim fegurstu...... „Peron leysti verkalýöinn úr hálfgeröum þrælafjötrum, — aö vlsu meö einræöi. Má segja að hann hafi veriö fyrsti stjórn- andinn I S-Amcriku, sem reyndi að gera eitthvaö fyrir þá snauðu.” (Timamyndir GE)' ÞEIR, SEM EITTHVAÐ hafa fylgzt með heims- fréttunum undanfarna daga og vikur, hafa vafalaust veitt athygli hinum fjölmörgu kosn- ingum, er fram hafa far- ið viðs vegar um heim. Slik mál, jafnvel þótt er- lend séu, vekja jafnan athygli manna. Um svipað leyti fóru fram þingkosningar i Frakk- landi og Chile, kosning- ar i írska lýðveldinu, kosningar i Bangla Desh, þjóðaratkvæða- greiðsla á Norður-ír- landi og vafalaust enn fleiri kosningar ef betur er að gáð. Ein er sú álfa, er blóðheitt fólk hýsir og titt er i fréttum vegna valdaskipta i einstökum löndum hennar, blóð- ugra byltinga, byltinga- tilrauna og uppreisna hvers konar . Hér er að sjálfsögðu átt við Suður-Ameríku. Sunnudaginn 11. marz s.l. fóru fram kosningar i Argentinu.Fóru fram þrennar kosningar samtim- is, forsetakjör, kjör til fylkisþinga og þjóðþingskosningar. Eru þetta allmjög sögulegar kosningar, þó að ekki væri fyrir annað en það, að þær eru hinar fyrstu i landinu i heilan áratug. Hernaðareinræði hefur verið rikjandi frá 1966, og siðustu tvö árin hefur hershöfð- inginn Lanousse verið forseti landsins. En fleira er athyglisvert við þessar kosning- ar. Ber þar fyrst að nefna, að þetta var i fyrsta sinn i 17 ár, eða frá 1955, sem flokkur Peronista, Justisialistaflokkurinn, fékk að taka þátt i kosningunum á jafn- ræðisgrundvelli. Flestum mun minnistætt, er Peron kom á siðasta ári aftur til Argentinu eftir 17 ára útlegð. Við heimkomuna var honum fagnað af hinum fjölmörgu stuðnings- mönnum sinum, Peronistum. Vildu þeir ólmir fá hann til for- setaframboðs fyrir sinn flokk við nýliðnar kosningar, en til þess var hann ófáanlegur og valdi þess i stað Hector nokkurn Campora til þess hlutverks. Úrslit kosning- anna eru nú kunn, en i þeim hlaut Campora brautargengi til for- setaembættis, hlaut tæp 50% at- kvæða. A kjörskrá voru um 10 milljónir. Helzti keppinautur Campora um forsetaembættið, frambjóðandi róttæka flokksins, Richardo Balbin, hlaut nær helm- ingi færri atkvæði. Peron hefur lýst þvi yfir, að hann beri fullt traust til Campora og má þvi vænta að andi Perons svifi yfir vötnunum næstu árin, en kjörtimabil forseta i Argentinu er sex ár. Argentina lýsti sig hlutlaust riki i fyrri heimstyrjöldinni og lýsti fyrst yfir striði á hendur Þjóðverjum i siðari heimstyrjöld- inni i marz 1945. Juan Peron hers- höfðingi varð verkalýðsmálaráð- herra i Argentinu árið 1943, og vann sér i þvi embætti brátt óbil- andi traust og hylli verkamanna, — einkum og sér f lagi. Arið 1946 varð hann forseti landsins og hélt þvi embætti til 9. september 1955, er honum var steypt af stóli i átakalitilli byltingu. Við forseta- embætti tók þá Pedro Eugenio Aramburu. 1 stjórnartið sinni tók Peron sér i rauninni einræðisvöld i hendur. Naut hann fyrst og fremst stuðnings verkalýðshreyf- ingarinnar og Peronistaflokksins. Og ekki má gleyma konu hans, Evu Peron, sem varð nánast að þjóðardýrðlingi meðal verkafólks Argentinu og er enn. Vinsældir þeirra hjóna voru geysilegar, sem sést ekki hvað sizt á þvi, að samherji og vinur Perons hefur nú verið kjörinn forseti, 17 árum eftir að hann fór sjálfur frá völd- um. Hann var á staðnum Þetta er orðinn alllangur inn- gangur að þvi efni, sem hér var ætlunin að birta. Og enda þótt hann sé næsta ónógur, hvað upp- lýsingar snertir, gefur hann þó nokkra punkta, sem nota má til stuðnings og viðmiðunar við það, er hér kemur á eftir. Svo er mál með vexti, að við komumst að þvi nýlega, að hér i bæ býr maður nokkur, er búsettur var i Argentinu, i höfuðborginni Buenos Aires, um nokkurra ára skeið eftir siðari heimstyrjöld, og raunar einmitt i stjórnartið Juan Peron. Umræddur maður heitir Jón Alexandersson. Frá öndverðu hafa tslendingar litið þá menn i mistri ævintýraljóma, sem „lent hafa i ferðalögum”, og löngum unað við^ð hlýða á litríkar frá- sagnir þeirra. Fleira kom til i þessu tilfelli. Kosningaúrslitin i Argentinu kunna að hafa i för nýj- an og stormasaman kafla i sögu landsins, ef til vill mjög litað- an Peronismanum gamla. Og ekki er óliklegt, að Peron gamli, sjálfur snúi heim til föðurlandsins fyrir fullt og allt, ef allt fer, sem horfir. Vænta má, að á næstu mánuðum og árum verði Argen- tina oftar en einu sinni á forsiðum heimsblaðanna. Við höfðum þvi mikinn hug á þviað hitta Jón Alexandersson að máli og fræðast af honum um ástandið eins og það var i raun á þessum árum i Argentinu. Ekki þótti okkur það spilla fyrir, að Jón þekkti forsetahjónin, Juan Peron og Evu Peron (eða Evitu, eins og hún var almennt kölluð, en Evita merkir eiginlega „Eva litla”, gæluorð), nokkuð persónulega. Það liggur i augum uppi, að ef gera ætti efninu fullnægjandi skil, myndi það vafalaust fylla bók og bækur. Brátt varð ljóst, að Jón hafði frá geysimörgu fróðlegu að segja, og ef til vill fá lesendur að lesa eitthvað nánar um það seinna. — Ég kom út til Argentinu árið 1949. Þá hafði Peron um nokkurn tima setið i forsetastóli. Skömmu áður en hann varð forseti, hafði honum verið varpað i fangelsi, vegna ákveðins máls. Var sagt að Evita, kornung og nokkuð þekkt leikkona i Argen- tinu (þau Peron voru þá ekki enn gift) heföi ásamt mönnum úr verkalýöshreyfingunni náð Peron úr fangelsi, sem lyktaði með þvi, að Peron varö forseti. Evita hafði verið mjög ötull stuðningsmaður Peronista, og nokkru eftir að Peron varð forseti, giftust þau. Svo við höldum áfram að ræða vitt og breitt um þetta timabil, þá lauk stjórnartið Perons með þvi, aö hann var tekinn til fanga af andstæðingum sinum haustið 1955. En þeir þorðu ekki að drepa hann af ótta við, að hinir fjöl- mörgu stuðningsmenn hans gerðu allt brjálað. Og Peron sjálfur kom i veg fyrir blóðuga byltingu með áskorun til stuðningsmanna sinna. Eins og kunnugt er, var hann siöan gerður útlægur. Stefna Perons og ííokks hans var sambland af kommúnisma og nazisma. En maður var þó mjög litið var við kommúnista i Argen- tinu á þessum árum, kommú- nistaflokkurinn taldi vart meira en nokkur hundruð manns. En Peron byggði allt sitt á verka- lýðnum og verkalýðshreyfing- unni. Peron og kona hans Evita, sem var hans aðalmáttarstólpi og mest áberandi, gerðu hreina bylt- ingu i verkalýðsmáium á þessum tima, það held ég að sé óhætt að fullyrða. Svo eitthvað sé nefnt, þá sáu þau til þess, að byggðir voru allgóðir verkamannabústaðir, sem verkafólkið fékk mjög ódýrt og borgaði af með hagkvæmum skilmálum. Slika bústaði hafði aldrei verið um að ræða áður og þetta fólk hafði búið i verstu hreysum. t þessu sambandi má og nefna, að Peron setti löggjöf um, að ekki mætti hækka hús- leigu, og það stóðst alla hans stjórnartið. Þetta er aðeins eitt dæmi. Það yrði of langt mál að fara að telja upp öll þau stór- virki, sem þau hjónin gerðu i þágu verkalýðsins. Evita Peron var mjög elskuð og dáð af fátæklingunum. Þegar hún kom fram meðal fólks, sem hún gerði oft, voru fagnaðarlætin slik, að maður hafði aldrei heyrt ann- að eins. Hún beitti sér eins og áð- ur segir fyrir fjölmörgum málum i þágu verkalýðsins og stofnaði meðal annars öflugan sjóð i þeim tilgangi. Þær aðferðir, sem hún beitti til aðkoma upp þessum sjóði, skulum við hins vegar láta liggja milli hluta, en þar notfærði hún sér m.a. stórfelld skattsvik auðjöfranna til að þvinga þá til fjárútláta. Hún var kölluð Evita Peron — Var Peron harður og óvæg- inn sem einræðisherra? — Það held ég, að sé alls ekki hægt að segja. En engu að siður var hann einræðisherra i eigin- legri merkingu. Aldrei vissi ég til þess, að hann léti skjóta nokkurn mann. Hann lét jú varpa mönnum i fangelsi, og einnig veitti hann mönnum leyfi til að yfirgefa land, ef þeir kusu það. Er Peron var varpað i fangelsi, eins og ég minntist á áðan, þarna rétt áður en hann tók völdin, var það einkum vegna skoðana hans sem ráðherra á Bandarikja- mönnum. A þessum árum höfðu Bandarikjamenn mjög mikil itök viðast i S-Ameriku. Peron var mjög andvigur Bandarikjamönn- um, og eftir að hann settist i for- setastól, tók hann fyrirtæki þeirra i Argentinu og þjóðn. þau allan sinn valdatima. Englendingai áttu járnbrautakerfið i landinu, og það þjóðnýtti Peron einnig. Ég kom til Argentinu haustið 1949 og þá var Evita Peron þegar orðin mjög sterk i stjórnun lands- ins. Hún hafði þá stofnað hjálpar- stofnunina, „Evita Peron”, sem ég er búinn að minnast á, en sú stofnun var geysiöflug um alla S-Ameriku. Ef slys bar að hönd- um eða náttúrhamfarir, stóð aldrei á Evitu að veita fé úr sjóði hjálparstofnunarinnar. Það er óhættaðsegja, að hún var þegar i lifanda llfi hálfgerður dýrðlingur I augum Argentinumanna, — og er það enn. Hún dó kornung, að- eins þritug að aldri, árið 1954. Er fréttist um lát hennar, þyrptist fólk út á götur Buenos Aires með logandi kerti og bað fyrir henni og Peron. Það var áhrifamikil sjón. — Átti hún í raun meira fylgi meðal almennings en Peron? — Já, hún átti i rauninni aðal- fylgið. Hinu verður aldrei neitað, að Peron gerði geysimikið fyrir verkalýðinn á þessum árum. Það sést glögglega i dag, að verkalýð- ur Argentinu minnist hans sem sins frelsara, ef svo má segja. Fólkið er ekki blindað af ljóman- um yfir þeim hjónum, heldur voru lifskjör þess raunverulega betri en nokkru sinni á þessum tima, — og fólkið minnist þess enn. Annars hefði það ekki kosið Peronistaflokkinn nú fyrir skömmu. Peron leysti verkalýð- inn úr hálfgerðum þrælafjötrum, — að visu með einræði. Þeir vildu koma honum á kné Ef til vill voru mistök Perons fólgin i þvi, að hann iðnvæddi Argentinu einum of fljótt á sinum stutta valdatima. Argentina var öflugt landbúnaðarriki á þessum tima, Peron vildi gera það að öflugu iðnaðarriki. Einnig verður að taka með i reikninginn, að á þessum tima (eftir striðið) var allur heimurinn andvigur ein- ræðisherrum, þannig að hvert rikið af öðru hætti viðskiptum sinum við Argentinu. Siðan voru það Rússar, sem héldu upp við- skiptum við „Perons Argentinu” I lengstu lög. En það var sam- komulag allra i heiminum, og þá sérstaklega Bandarikjamanna, Rætt við Jón Alexandersson um Argentínu ó dögum Perons, en Jón dvaldi þar í landi ó órunum 1949 — 1954. Peron var við völd ó órunum 1946 — 1955 Juan Peron og Evlta (Eva) Peron. Myndin er tekin einhverntlma á forsetaárum (einræöisherraárum) Perons 1947-1955. Og sýnilega leikur hér allt I lyndi. Buenos Aires er fögur borg. Hér sést Avenido 9 de Julio, sem er eitthvert breiðasta stræti i heimi. að koma þessum manni á kné. Og það tókst að lokum. Þegar Peron var tekinn fastur haustið 1955, voru fylgismenn hans á leiðinni til að frelsa hann, komu i stórum hópum t.d. frá Cordoba og Rosario. Þeir hefðu hæglega getað frelsað hann, með miklum átökum þó, en Peron vildi koma i veg fyrir allar blóðs- úthellingar og ekki sizt vildi hann hlifa gömlu borginni sem honum var svo kær, Buenos Aires, frá eyðileggingu. Hann gafst þvi upp, og flúði land. — Voru ekki vinsældir Perons eitthvað farnar að dvina, er kom- ið var fram á árið 1955? Kona hans, Evita, var þá látin og má þvi ætla að hann hafi ekki átt eins sterk itök i fólkinu. — Það má segja, að eftir i? Evita lézt, hafi Peron ekki haft eins góð tök á stj.taumunum. Fram að þessu hafði hann beitt sér mest fyrir vinstri mennina og verkalýðinn, en nú vildi hann fara að gera eitthvað fyrir hægri mennina lika. Hann fór að gerast meira „liberal” og gaf verzlunar mönnum og öðrum lausari taum- inn, en áður hafði verið. Þessi ráðabreytni hefur að likindum stuðlað að falli hans. Fylgi hans hefur vafalaust minnkað eitthvað og jafnframt efldust andstæðing- ar hans — að minu áliti fyrir til- stilli Norður-Amerikumanna. Skömmu áður en hann missti völdin, var hann settur i bann af páfanum. Aðdragandinn var þessi: 1 Argentinu er eins og kunnugterrómversk-kaþólsk trú, enda megnið af ibúunum innflytj- endur frá Spáni og Italiu. Kaþólska kirkjan var afar sterk þarna i Argentinu og réð mjög yf- ir fólki, allt frá barnæsku til full- orðinsára. Það er ef til vill erfitt fyrir Islendinga að skilja þetta ástand, en þetta er samt stað- reyndin. Meðal annars réð kirkj- an lögum og lofum I skólum landsins. Alitið var að spilling væri mikil innan skólakerfisins, og * jafnframt var skólaganga ekki almenn. Peron vildi breyta til og láta rikið taka við stjórn skóla- kerfisins. Og þar með var hann kominn i ónáð hjá páfanum og kaþólsku kirkjunni almennt. En þetta hefur að líkindum fallið i góðan jarðveg meðal almennings, fólk hefur séð, að hverju stefndi. Og ef til vill minnist fólk þessara breytinga enn i dag. Eitt af afrekum Perons,sem féll i mjög góðan jarðveg, var það, að hann kom á ókeypis lækna- þjónustu fyrir almenning. Slik þjónusta hafði verið geypidýr i Argentinu, en eftir hinum nýju lögum Perons gátu menn nú gengið inn á ríkisspitalana og fengið bót meina sinna án nokk- urs gjalds. Frægir skurðlæknar voru skyldaðir til að veita ókeypis þjónustu, en áður hafði kostað tugi þúsunda aðeins að tala við þá. Ég hef hér minnzt á nokkrar umbætur af mörgum sem Peron kom á I þágu almennings. Má segja, að Peron hafi verið fyrsti stjórnandinn I S-Ameriku, sem reyndi að gera eitthvað fyrir þá snauðu. Sambland af nasjónal sósialisma og kommú- nisma — Þú sagðir hér áðan, að stjórnmálastefna Perons hefði verið sambland af nazisma („national socialism”) og kommúnisma. Vitað er, að Argentina var hæli fjölmargra flóttamanna úr rfkjum nazis- mans. Væri þvi ekki úr vegi, að þú segir okkur eitthvað frá kynnum þinum af þessum málum þar syðra eftir striðið. —. Peron var i herforingjaskóla i Þýzkalandi á árunum fyrir heimstyrjöldina (siðari) og e.t.v. var hann þar eitthvað, eftir að striðið var skollið á. Hann hefur orðið hrifinn af nazistahreyfing- unni i Þýzkalandi og ætlað sér að koma henni á i einhverri mynd i Argentinu. Eftir að hann tók Framhald á bls. 23 Þessi mynd var tckin fyrir rúmu ári, nánar tiltekið 12. janúar 1972, er Juan Peron kom til Argentlnu eftir 17 ára útlegö. Slöustu árin dvaldi hann á Spáni og þar dvelur hann enn. Þingkosningar i Argentinu 14. marz 1965. Mikill órói var meöal Peronista aö kvöldi þessa kosningadags sem olli truflunum I mörgum hinna stærri borga landsins. Juan Domingo Peron ásamt þriöju konu sinni tsabel. Myndin var tekin áriö 1966 i Madrid á Spáni.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.