Tíminn - 07.04.1973, Qupperneq 21
Laugardagur 7. apríl 1973. TÍMINN ___________21
Enska bikakeppnin:
LEIKA ARSENAL
OG WOLVES
TIL ÚRSLITA
Á WEMBLEY?
Undanúrslitin leikin í dag d hlutlausum völlum.
Situr Birmingham strik í reikninginn í 1. deild?
UNDANCHSLITIN I ensku bikar-
keppninni veröa leikinn I dag og
þá fæst skorið úr, hvaða lið leika
til úrslita á Wembley laugar-
daginn 5. maf. Leikirnir fara
fram á hlutlausum völlum.
Arsenal og Sunderland mætast á
Maine Itoad, heimavelli Manc-
hester City, Leeds og Wolves
mætast á Hillsborough, heima-
velli Sheffield Wednesday.
Leikirnir verða örugglega miklir
baráttuleikir, því að það eru
draumur enskra kanttspyrnu-
mannan að fá að leika á
Wembley. Flestir spá þvi, að það
verði Arsenal og Leeds, sem leika
annað árið i röð, til úrslita I
bikarkeppninni og ef Arsenal
vinnur í dag, er það þriðja árið i
röð sem liðið leikur á Wembley i
bikarkeppninni. Arsenal hefur
leikið fjörum sinnum s.l. fimm ár
á hinum fræga Wembley-leik-
vangi. Tvisvar i deildarbikarnum
19G8 og 1969, og tvisvar I bikar-
keppninni 1971 og 1972.
Leikurinn á Maine Road verður
örugglega mjög spennandi. Leik-
Sunderland, sem hafa komið
mjög á óvart i bikarkeppninni,
hafa mikinn hug á að komast á
Wembley. Ef Sunderland vinnur i
dag, er það i annað skiptir sem
liðið leikur til úrslita i bikar-
keppninni. Sunderland lék til úr-
slita 1913, þá tapaði liðið fyrir.
Aston Villa 1:0. Hvort að leik-
menn 2. deildarliðsins takist að
vinna, læt ég ósvarað. Eitt er vist,
að Arsenal sem er búið að endur-
heimta þá Jeff Bockley og John
Rafdord, eftir meiðslin, leikur
örugglega stift upp á vinning.
Leikur bikarmeistara Leeds og
Wolves verður einnig tvisýnn og
skemmtilegur. Spurningin er,
tekst Derek Dougan og Co. að
brjótast i gegnum hina sterku
Leeds-vörn? Ef þeim tekst það,
þá spái ég Wolves öruggum sigri.
Lið með framlinuspilara, eins
og Dougan, markaskorarana
Richards, Hibbit og Kindon, er
ekkert lamb að leika sér við. En
þess má geta, að Leeds með
varnarleikmenn eins og Reaney,
Madeley, Bremmer, Cherry og
Hunter, kallar ekki allt ömmu
sina. rslit leiksins verða liklega
ráðiná markvörzlu. Úlfarnir léku
siðast til úrslita á Wembey 1960.
Þá sigruðu þeir Blachburn 3:0
Dougan lék þá með Blackburn.
Þegar Arsenal og Leeds eru að
spreyta sig i bikarkeppninni, fer
toppliðið i 1. deild Liverpool i
heimsókn til Birmingham. Birm-
ingham er erfitt heim að sækja og
spá ég þeim sigri yfir Liverpool,
sigri sem kemur geysilegri
spennu i baráttuna um Eng-
landsmeistaratitilinn.
Jeff Blockley kemur nú aftur inn I lið Arsenal eftir meiðsli, sem hann
átti i striði við, og tekur við stöðu fyrirliðans McLintock, sem meiddist
á laugardaginn i leik gegn Derby.
fellur úr 1. deild?
Úr því fæst skorið á morgun
ÞRÍR þýðingamiklir leikir verða
leiknir á morgun i 1. deild kvenna
i handknattleik. Liðin fjögur sem
eru i fallbaráttunni leika og það
verður örugglega hart barizt.
Fyrsti leikurinn hefst kl. 14.30 og
þá mætast Breiðablik og Valur.
Þá mætast Vikingur og KR. En
Breiðablik verður að vinna Val,
þvi að lcikurinn er siðasti leikur
liðsins i mótinu. KR-liðið sem er I
neðsta sætinu verður einnig að
vinna. Siðasti leikurinn á morgun
verður á milli Armanns og Fram,
en Armann er einnig i fallhættu.
Jón Hjaltalín Magnússon til
vinstri á myndinni ásamt
sænska lands liðsmanninum
Sten-Ake Skoglund.
Hann er nú staddur hér á landi. KR-liðið kveður 1. deildina
með leik gegn íslandsmeisturum Fram
JÓN HJALTALIN,
hinn kunni handknatt-
ieiksmaður úr Víking,
sem hefur leikið með
sænska 1. deildarliðinu
Lugi undanfarin ár, er
nú staddur hér á landi.
Miklar líkureru á því, að
hann leiki með Vfkings-
liðinu annað kvöld.
þegar það mætir Ar-
mann í 1. deildarkeppn-
inni. Það er alltaf
gaman að sjá Jón leika
handknattleik, því að
það er ekki á hverjum
degi sem maður fær að
sjá eins skotfasta leik-
menn og hann er.
Víkingsliðið leikur sinn
siðasta leik i íslands-
mótinu á morgun. Einar
Magnússon, markhæsti
leikmaöur 1. deildar um
þessar mundir verður
einnig í sviðsljósinu, þvi
að hann veröur að skora
að minnsta kosti 7-8
mörk ef hann ætlar að
halda toppsætinu yfir
markaskorara. Nú
munar aðeins níu
mörkum á honum og
Geir Hallsteinssyni, en
Geir á eftir að leika tvo
leiki.
KR-liðið kveður 1. deildina á
morgun, þvi að liðið er fallið
og mun leika i 2. deild um
tima, eða að minnsta kosti
næsta keppnistimabil.
Kveðjuleikur liðsins verður
gegn tslandsmeisturunum
Fram, en það var einmitt gegn
Fram, sem KR-liðið fékk eina
stigið sem liðið hefur fengið i
1. deildinni.
Leikirnir verða leiknir i
Laugardalshöllinni, annað
kvöld kl. 20.15.
JÓN HJALTALÍN LEIKUR
MEÐ VÍKINGI Á MORGUN
4