Tíminn - 07.04.1973, Qupperneq 23

Tíminn - 07.04.1973, Qupperneq 23
Laugardagur 7. apríl 1973. TÍMINN 23 Heimsatburðir í Ijósi liðins tíma © siðan við stjórnartaumunum i Ar- entinu 1946 notfærði hann sér að meira eða minna leyti frumkenn- ingar nazismans eða „nasjónal- sósialismans”, enda er margt i þessum tveim stjórnmálastefn- um ekki ósvipað, að minu áliti. En það sem loðir við Peron i sambandi við nazismann er eink- um það, að hann tók við öllum flóttamönnum frá Þýzkalandi og öðrum rikjum, sem nazistar flýðu frá. Það komu flóttamenn i þúsundatali, sem Peron tók á móti opnum örmum. Meðal þessara manna er ságt að hafi verið margir þekktir herfor. og frammámenn nazista þ.ám. Martin Bormann. Þegar ég kom til Argentinu 1949, voru uppi sögusagnir um að tveim — þrem árum áður heföi komið kafbátur til smábæjar við fljótið Mar del Plata með marga háttsetta nazista.Liklegt er, að i þeim hópi hafi verið þeir menn, sem hvað mest hafa verið i brennideplinum undanfarin ár vegna meintrar veru sinnar i S-Ameriku. Enn- fremur var sagt, að þessir kafbátsmenn hefðu flutt með sér geysileg verðmæti, bæði peninga og dýrgripi. — Þú segist hafa kynnzt for- setahjónunum Juan og Evitu Peron, persónulega. Hvernig bar það annars til? — Já, ég var þess heiðurs að- njótandi að þekkja þau bæði. Segja má að þau kynni hafi orðið með þeim aðdraganda, sem hér segir. Ég var með heildverzlun þarna úti i Buenos Aires, og dag- lega um nokkurra ára skeið drakk ég kaffi með Norðmanni einum, sem Sörli nefndist. Hann var fyrrverandi Norðurlanda- methafi i kringlukasti, og einka- vinur Perons. Hafði Peron gert hann að yfirstjórnanda iþrótta- samtakanna i Argentinu. Langar mig i þessu samb. að segja frá voru svipaðir áð vexti.'báðir all- leika Perons. Þeir Peron og Sorli voru svipaðir að vexti, báðir all- hávaxnir. Eitt sinn fór Sörli til hallar Perons til að ræða við hann um einhver iþróttamálefni. Er þeir höfðu ræðzt við um stund, segir Peron allt i einu upp úr þurru: „Heyrðu Sörli, erum við ekki svipaöir i vexti?” Sörli játar þvi. „Attu nokkurn bil?” Sörli segirsvoekki vera. „Þaðeralveg ófært”, heldur Peron þá áfram, „hérna vinur, þú mátt eiga þenn- an bil”, segir hann um leið og hann réttir Sörla lykilinn að bil sinum, sem bar einkennisnúmer Buenos Aires nr. 1. Sörli kom einmitt til okkar félaganna á kaffistofunni á biln- um og sagði okkur alla söguna. Og siðar kynnti hann mig svo fyr- ir þeim hjónunum, Peron og Evitu, i höll þeirra. Seinna rabb- aði ég 2svar við Evitu, út af sér- stökum málefnum, en hún var með séstaka viðtalstima. Mér virtist þau bæöi ákaflega alúðleg og elskuleg og alveg laus við þann hroka, sem einkenndi þó GJÖFIN ssm allir kaupa hringana hjá HLfiLLLDÓRI Skólavörðustíg 2 mjög flesta háttsetta menn i Argentinu á þessum árum. Evita var áreiðanlega meö atorkusöm- ustu konum, sem þá voru uppi i heiminum. Og hún var lika mjög fögur. Peron hitti ég nokkrum sinnum gegnum kunningskap, og varð ég mjög hrifinn af persónu- leika hans. — Hefurðu haft eitthvert sam- band við Peron, eftir að hann fór frá völdum 1955 og hóf sitt út- legðartimabil, sem nú hefur stað- ið i 17 ár (Peron er i dag 77 ára). — Nei, það hefur verið litið um það. Ég hef haft nóg að gera. Ég hef talað einu sinni við hann i sima á þessu timabili, til Spánar, þar sem hann hefur dvalið mestan hluta útlegðar sinnar og dvelst nú. Hins vegar á ég enn marga kunningja úti i Argentinu, og gegnum þá hef ég fylgzt allná- ið með þróun mála þar i landi sið- ustu tuttugu árin, en ég flutti heim til Islands árið 1954. Astand- ið hefur farið versnandi með hverju ári. Dýrtið hefur verið mikil og ýmiss konar erfiðleikar komið upp. Herforingjar hafa farið með völdin, og hafa þeir ekki ráðið við neitt. Það virðist hafa verið af illri nauðsyn, að þeir buðu Peron heim til Argentinu á siðasta ári, og ef til vill hafa þeir eygt þá lausn, að Peron gæti bjargað málunum. Astandið i Argentinu er sem sagt slæmt i dag, og ráðamenn hafa vafalaust verið orðnir von- daufir um að geta bjargað málun- um. Kosningaúrslitin um daginn ættu ekki að hafa komið neinum á óvart, sem eitthvað þekkti til mála i Argentinu. Það er stað- reynd, að verkalýöurinn og hinir efnalitlu yfirleitt höfðu það betra á dögum Perons, — og þeir minn- ast þess vel enn þann dag i dag. Hinn nýkjörna forseta, Hector Campora, kannast ég ekki við, en Peron virðist bera óbilandi traust til hans. Campora hefur lýst þvi yfir, að hann muni stjórna i anda Perons og að helzt vilji hann hafa Peron sjálfan við hlið sér. Peron vill ekki taka beinan þátt i lands- stjórninni, liklega einkum vegna aldurs, en liklegt er,að hann snúi þó heim til Argentinu á næstunni. Sá og talaði við Eich- man — Svo að við vikjum aftur að ástandinu, eins og það var á tima Perons. Hver var aðstaða flótta- mannanna, eftir að þeir settust að i Argentinu? Var Peron þeim verulega hliðhollur? — Hann tók þeim yfirleitt mjög vel, og þeir fengu tækifæri til að komast áfram, sem þeim tókst mörgum með miklum ágætum, enda atorkumenn að eölisfari, bæði Þjóðverjarnir og Englend- ingarnir. En ekki vissi ég til þess að Peron léti þá komast að i stjórnmálum landsins. í hópi Þjóðverjanna voru auðvitað margir þekktir nazistar eins og Eichman, sem siðar var drepinn i ísrael. Reyndar sá ég bæði og talaði við Eichman í Argentinu. Það bar þannig til, að ég fór ásamt kunningja minum að skoða Mercedes Benz-verksmiðjurnar þarna i Argentinu, og þar fengum við þýzkan leiðsögumann, er fylgdi okkur um verksmiðjurnar og til forstjórans. Ég bar ekki kennsl á hann þá, en þegar ég sá siðar mynd af Eichman, var ég ekki i nokkrum vafa um, að þetta hefði verið hann. Sem sé fáum ár- um eftir striðið hafði hann það starf, að vera leiðsögumaður i verksmiðju. — Kynntistu einhverjum fleiri þýzkum nazistum þarna úti? — Ekki þýzkum, að ég held, en ég kynntist allmörgum norskum nazistum, flóttamönnum og drakk oft með þeim kaffi i veitingahúsi við Calle General San Martin (gata i Buenos Aires). Meðal þessara norsku nazista, sem ég kynntist dálitið, var yfir- fangavörðurinn i Grini.enþað var illræmdasta fangelsi nazista i Noregi á striðsárunum Einnig kynntist ég yfirritstjóra nazista- blaðs, er gefið var út i Noregi á þessum árum, Thorkelsen hét hann. Þá má nefna að ég hitti alla áhöfnina, 20 manns, á norska skipinu Solbris, en þetta voru nazistar, sem flúið höfðu úr norskum fangelsum eftir striðið. Þessi áhöfn var mjög i heims- fréttunum á þessum tima. Eftir að þeir flýðu, höfðu þeir fyrst ver- ið eitt ár i fangelsi i Brasiliu, en þá bauð Peron forseti þeim til Argentinu ogþar fengu þeir pólitiskt hæli. — Hvernig var nú hljóðið i þessum mönnum, nazistunum, sem þú hafðir kynni af? — Þeir voru ákaflega svekktir vegna þess, hvernig þeim fannst að farið hefði verið með þá i heimalöndum þeirra. Og allir voru þeir áfram svellharðir nazistar og héldu óbilandi sann- færingu sinni og skoðunum. Þar segja þeir óspart „manana” — Þú dvaldist úti i Argentinu á árunum 1949-1954. Hefur þú kom- ið þangað eftir það? — Nei, það hef ég ekki gert. — Hvernig vegnaði þér sem heildsala þarna úti? — Það má segja, að mér hafi vegnað bara allvel. En hagur okkar útlendinganna fór þó versnandi með hverju ári á stjórnartima Perons. Verðlagið var orðið geysihátt undir lokin. Og enda þótt húsaleiga stæði i stað hjá almenningi, eins og ég nefndi áðan, gilti ekki það sama fyrir okkur. Ég leigði t.d. hús þarna úti og var ársleigan upp- haflega 200 pesos (u.þ.b. 200 kr. isl.) en var komin upp i 2000 pesos undir það siðasta. Ég nefni þetta bara sem dæmi. — Og við hvað hefurðu starfað, eftir að þú komst heim? — Þessi tæp tuttugu ár má segja, að ég hafi aðallega starfað við tryggingar. — Voru einhverjir lslendingar þér samtiða úti i Argentinu á þessum árum? — Já, en þeir voru fáir. Fyrst vil ég nefna fyrri konu mina Brynhildi Björnsson, sem ég gift- ist þar úti, og tengdaforeldra mina, þau Björn Sv. Björnsson og Nönnu Egils, söngkonu. Þarna vareinnig Bryndis ólafsdóttir frá Hafnarfirði, og Ingimundur Guð- mundsson, einnig frá Hafnarfirði, en hann var einn af forstjórum hinna geysistóru bandarisku Swiftsláturhúsa i Rosario, og er þaö vafalaust enn, ef hann er ekki látinn. Þeir íslendingar, sem komnir eru nokkuð á efri ár, muna eflaust flestir eftir hinum landskunnu Vera Similion-snyrti- vörum, sem voru þær einu, er seldar voru hér á tslandi á árun- um fyrir strið. Einnig muna ábyggilega margir eftir eiganda snyrtivöruverzlunarinnar, sem framleiddi og seldi þessar vörur, ingibjörgu Stein Bjarnason (dótt- ur Þorleifs Bjarnasonar, bróöur Brynjólfs H. Bjarnasonar). Ingi- björg fór héðan af landi fyrir stríð, og vissu fæstir, hvað af henni varð. Það er þvi gaman að geta frætt fólk um það, að hún fluttist einmitt til Argentínu, ásamt þýzkum eiginmanni sin- um, og var þar búsett, er ég kom þangað 1949. Þetta spjall okkar er orðið all- langt, en að lokum langar mig til að spyrja þig, Jón Alexandersson, hvernig likaði þér viö Argentlnu- menn á þessum árum? — Þeir voru upp og ofan eins og annað fólk. Það yrði of langt mál að fara að telja upp sérstaka kosti þeirra og galla. Og hvað sem öðru liður, er Argentina vafalaust menntaðasta rikið i S-Ameriku. En eitt má segja að sé mjög ein- kennandi við Argentinumenn, sem eru hvitir menn af spænskum og itölskum uppruna og eru 10% indiánar. Þeir taka lifinu meö ákaflega mikilli ró. Þú kemst ekki hjá þvi að heyra oft af þeirra vörum orðið „manana”, sem þýðir „á morgun”, en er oftast notað i merkingunni „einhvern tima seinna”. Búfjárrækt hefur löngum staðið I miklum blóma f Argentfnu. m;r,; m V>r>V<»uí>A Það er alltaf gott að hrissta upp landafræðikunnáttuna. Saiva Isrtttrt, — Stp. Hér sést stór akuryrkjubúgarður f Argentfnu.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.