Tíminn - 07.04.1973, Page 24

Tíminn - 07.04.1973, Page 24
24 TÍMINN Laugardagur 7. apríl 1973. ORMURINN í BLÁBERINU „Svei attan!", sagði Helga. ,,En sá viðbjóður!" sagði Sigga. ,,Hvað er það?" sagði fullorðin systir þeirra. „Það er ormur", sagði Helga. „Á bláberinu", sagði Sigga. „Drepið hann þá", sagði Björn litli. „Hvaða læti eru þetta úr af einum smáormi!" sagði fullorðna systirin með nokkurri þykkju. „Já, þegar við fórum að hreinsa bláberin...",, sagði Helga. „Þá skreið hann út úr því stærsta," hélt Sigga áfram sögunni. „Og hefði nú einhver étið bláberið", sagði Helga enn. „Nú, þá hefði hann étið orminn með," sagði Sigga. „Nú, og hvað um það?" sagði Bjössi litli. „Að éta orm, hugsið ykk- ur það!" sagði Helga. „Og bíta hann í sundur!", sagði Sigga. „Hvað sýnist ykkur!" sagði Björn litli og hló við. „Nú er hann að skríða á borðinu", sagði Helga. „Æ, blásið þið honum burt", sagði fullorðna systirin. „AAerjið þið hann með fótunum," sagði Björn litli glottandi. En Helga tók lyngblað og sópaði orminum á það með varúð og bar hann út í garðinn. Þá sá Sigga að spörfugl sat á skíðgarðin- um og horfði í vígahug á orminn. Hún tók þá blaðið með orminum á og bar það út í skóg og faldi það undir bláberjarunni. Fugla- vargurinn gat nú ekki fundið fylgsni ormsins. Hvað verður nú fleira sagt um veslings bláberja- orminn? Hvað mundi vera sögulegt við svona grey? Hvermundi eigi vilja búa í svo hressandi, ilmandi rós- leitu smáhýsi úti í skógar- kyrrðinni, innan um blóm og grænt lauf? Nú var kominn tími til miðdegisverðar og nú borð- uðu þau öll bláber með rjóma. „Hrúgaðu ekki of miklu sykri á, Bjössi", sagði full- orðna systirin. En diskur Björns litla var eins og snjóskafl á vetrardegi, en sæist á eitthvað bláieitt undir. Eftir máltíðina sagði fullorðna systirin: „Nú höf- um við lokið öllum blá- berjunum og höfum ekkert skilið eftir til vetrarins. Ég vildi að við ættum tvær körfur fullar af nýjum berjum. Þau gætum við hreinsað í kvöld og soðið á morgun og borðað svo seinna pönnukökur með bláberjasætu!" „Komdu, viðskulum fara út í skóg og tína ber", sagði Helga. „Já, það skulum við gera", sagði Sigga. „Þú tekur gulu körfuna, en ég tek þá grænu". „Villist þið nú ekki og komið aftur fyrir kvöldið!" sagði fullorðna systirin. „Ég bið að heilsa blá- berjaorminum, sagði Björn litli í ertni. „Ef ég hitti hann aftur, mundi ég telja mér heiður að éta hann upp til agna". Nú fóru þær Helga og Sigga út í skóg. Þar var nú ekki Ijótt að vera! Gangan var þó erfið. Urðu þær að klifra yfir fallna tréstofna og smeygja sér gegnum runnana og berjast við mý- flugurnar. En hvað gerði það til! Þær voru létt- klæddar, telpurnar, og skil- aði þeim vel áfram og fóru þær æ lengra og lengra inn í skóginn. Hér var nóg af krækiberj- um og hrútaberjum og öðr- um berjum, en lítið af blá- berjum. Telpurnar gengu nú lengra og lengra og komu loks að stórum skógi úr biá- berjalyngi, þótt ótrúlegt megi þykja. Hér hafði skógurinn brunnið áður, en nú var* þar hver bláberja- runnurinn af öðrum, svo langt sem augað eygði, og voru alþaktir fögrum, full- þroskuðum berjum. Slíka berjamergð höfðu þær aldrei séð fyrr, telpurnar. Helga tíndi og Sigga tíndi og báðar átu. Innan skamms voru körfurnar fullar. „Nú skulum við fara heim," sagði Sigga. „Nei, við skulum tína meira", sagði Helga. Nú settu þær frá sér körfurnar og fóru að tina í svuntu sína. En þess var ekki langt að bíða, að þær yrðu fullar. „Nú skulum við fara heim", sagði Helga. „Ja, nú er víst bezt að halda heim á leið", sagði Sigga. Svo tók hvor sína körfu í aðra hendina, en hélt á svuntunni með hinni. Siðan héldu þæraf stað heim. En það var hægar ort en gert. Þær höfðu aldrei farið svo langt inn í skóginn. Þar var enginn vegur eða troðning- ur, og þær urðu þess brátt varar, að þær voru farnar að villast. Skuggarnir urðu æ lengri og lengri, fulgarnir flugu heim í hreiður sín og dögg tók að falla. Loks gekk sólin til viðar og varð þá svalt og rokkið i skógin- um. Börnin fóru nú að verða óttaslegin, en héldu þó áfram göngunni og bjugg- ust við að skóginn mundi loks þrjóta og að sjá rjúka heima hjá sér. En er þær höfðu lengi gengið datt myrkrið á, þær voru þá komnará mikla sléttu, sem var vaxin runnum. Þegar þær skyggndust um sem bezt þær gátu í myrkrinu, þá sáu þær að þær höfðu gengið stóran bug, því að nú voru þær komnar aftur að hinum fögru bláberja- runnum, þarsem þær höfðu fyllt körfurnar sínar og svunturnar með verjum. Nú voru þær orðnar þreytt- ar og setturst niður á stein og fóru að gráta. „Ég er svo svöng," sagði Helga. „Já", sagði Sigga, „ef við hefðum nú tvær vænar smurðar brauðsneiðar með kjöti ofan á". Óðara en hún sleppti orð- inu, fann hún allt í einu að eitthvað lá í kjöltu hen- hennar. Og þegar hún gáði að var það stór smurð brauðsneið með dilkakjöti ofan á. í sama bili sagði Helga: „Hvað er nú þetta, ég hef allt í einu smurða brauðsneið í hendinni". „Og ég eins", sagði Sigga, „ætlar þú að borða þína?" „Já, mér detturekki ann- að í hug", sagði Helga. „Bara að ég hefði nú vænt glas af mjólk með". Og óðara en orðinu var sleppt, hafði hún mjólkur- glas í hendinni. Þetta þykir mér undarlegt!" En af því að telpurnar voru svangar, átu þær og drukku meö beztu lyst. Þegar þær höfðu etið lyst sína, fór Sigga að geispa og sagði: „Æ, ég vildi ég hefði nú mjúkt rúm, svo að ég gæti sofið nægju mína!" Óðara sá hún fallegt mjúkt rúm við hliðina á sér, og Helga annað eins. Þeim þótti þetta æði undar- legt, en af þvi þær voru syf jaðar, hugsuðu þær ekki frekarum það, en lögðust í rúmin, lásu kvöldbænirnar sínar og breiddu upp yfir höfuð. Að vörmu spori féllu þær í fasta svefn. Sólin var hátt á lofti er þær vöknuðu aftur. Þá var fagur sumarmorgun í skóginum og fuglarnir fiögruðu kvakandi í kring- um þær. Nú urðu þessi und- ur þeim óskiljanleg, þegar þær sáu að höfðu sofið í bláberjarunnunum. Þær litu hvor á aðra og á rúmin, sem voru gerð úr mosa og laufi, og skínandi lin breytt yfir. Loks sagði Helga: „Ertu vakandi Sigga?" „Já", svaraði hún. „En mig er að dreyma enn þá", sagði Helga. Framhald á morgun Fórnarvika hjálparstofnunar þjóðkirkjunnar: 40 MILLJÓNIR, EF LANDSMENN SPÖR- UÐU EINA MÁLTIÐ ÞJÓÐKIRKJAN heldur fórnar- viku i fjórfta skipti, og aö þessu sinni hefst hún á sunnudag, en lýkur næstkomandi iaugardag. Þá er ætlazt tii þess, aó fóik, sem , þessu vili sinna, spari viö sig, en láti i þess staö fé af höndum rakna til hjálparstofnunar kirkj- unnar, sem viöa hefur komiö viö sögu þegar neyö steöjar aö. Það er að sjálfsögðu margt, sem fólk getur dregið við sig, sér algerlega að meinalausu, svo að ekki sé meira sagt, og stutt þannig hjálparstofnun þjóðkirkj- unnar, án þess að leggja á sig auka útgjöld. Mjög er auðvelt að neita sér um eina máltið, kaffi- brauð nokkra daga, eina kvik- myndahúsaferö, einn vindlinga- pakka eða það, sem kostnaðar- samara er: Ferð i samkomuhús bæjarins. Til dæmis má nefna, að neituðu allir landsmenn sér um eina ein- ustu máltið, sem varlega er áætl- un tvö hundruð krónur á mann, myndu sparast fjörutiu milljónir króna. En þaðeru fjármunir, sem sums staðar i heiminum myndu nægja til þess að framfleyta fjögur þúsund manns i heilt ár — fólki, sem ella yröi hungri og kröm að bráð. Þjóðkirkjan mun hvorki bjóða merki né happdrættismiöa i fórn- arvikunni, heldur einungis treysta á frumkvæði fólks sjálfs. En þeir, sem það gera, geta treyst þvi, að fjármunir verða notaðir þar, sem þeirra er sár þörf. Allir vita, hve hjálparstofn- unin hefur oft og myndarlega rétt hjálparhönd, en svo gerast lika stundum harmleikir, sem litt er getið i fréttum, og einnig i slikum tilvikum hefur hjálparstofnuninni stundum auönast að lina kvöl og þjáningar. t fórnarvikunni, sem nú hefst um helgina, verður mest áherzla lögð á eflingu neyðarsjóðs, A móti gjöfum i fórnarviku verður tekið hjá sóknarprestum og i biskupsskrifstofu og eins má leggja peninga á giróreikning 20.000. Appelsínufjallið, sem hvarf VIÐ höfum sagt frá fiski- manninum á eynni Tjörn i Búhúsléni, sem gekk bæ frá bæ og safnaði stórfé handa ís- lendingum vegna eldgossins i Eyjum, án þess að taka af þvi eyri í þóknun eða ferðakostnað handá sjálfum sér. Nú hefur Sigriður J. Hannes- dóttir skrifað okkur frá Gauta- borg um flóðin tvö, sem hún nefnir svo: hraunflóðið i Eyjum og peningana, sem flæða i ís- landssöfnunina frá góðviljuðu og fórnfúsu fólki i Sviþjóð. Þegar hún hefur farið nokkrum orðum um fiskimanninn Louis Jakobs son, nefnir hún dæmi önnur: „Ávaxtasalar tóku sig saman og mynduðu tuttugu smálesta appelsinufjall i húsakynnum stærstu verzlunarmiðstöðvarinn- ar hér á Gautaborgarsvæðinu. Hluti af andvirði þess átti að renna til islandssöfnunarinnar, og „fjallið” hvarf eins og dögg fyrir sólu. Skipafélagið Stena-Line, sem heldur uppi ferðum oft á dag á milli Gautaborgar og Friðriks- hafnar, lækkaði fargjöldin um helming i eina viku og lét and- virði allra miða renna óskipt til Is landssöfnunarinnar. Alla dagana var boðið upp á góða skemmtun og þeir, sem skemmtu, gáfu fyrir sitt leyti það, er þeir hefðu ella borið úr býtum. Það var þröngt á þingi um borð i Stena-Danica, enda voru þar jöfnum höndum sænskar húsmæður að taka sér ferð á hendur til þess að kaupa i sunnudagsmatinn, danskar hús- mæður að drýgja matar- peningana með kaupum á sænsku kaffi og velviljað fólk af ýmsum stigum, er vildi styrkja gott málefni. Áhrifanna af verkföllun- um i Danmörku fór ekki að gæta fyrr en þessi vika var liðin.”

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.