Tíminn - 04.05.1973, Side 1

Tíminn - 04.05.1973, Side 1
101. tbl. —Föstudagur4. mai—57. árgangur WOTEL miæifí Hotel Loftleiöir býöur gestum sinum að veiia á milli 217 herbergia með 434 rúmun — en gestum standa líka tbúðir til boða. Allur búnaður miðast við strangar kröfur vandiétra. LOFTLEIÐAGESTUM LIOUR VEL. NIXON OG POMPIDOU í REYKJAVÍK 31. MAÍ SB—ÞÓ—Reykjavik — Eftirfarandi tilkynning var birt kl. 3 i gær, samtimis i Washington, Paris og Reykjavik: „Forseti Bandarikjanna, Richard M. Nixon og forseti Frakklands, Georges Pompidou hafa komið sér saman um að hittast á íslandi i boði islenzku rikisstjórnarinnar dagana 31. mai og 1. júni 1973.” Það var Hannes Jónsson, blaðafulltrúi rikisstjórnarinnar, sem las tilkynninguna á fundi með fréttamönnum. Allt er enn óljóst um nánari at- riöi i sambandi við þessa heim- sókn forsetanna, en fundurinn er fyrst og fremst til þess að þeir ræðist við sin á milli. Að sjálf- sögðu munu þeir hitta islenzka ráðamenn, en ekki eru fyrir- hugaöar við þá neinar formlegar viðræður. Ekki er vitað, hvort forseta- frúrnar verða með i förinni, né heldur utanrikisráðherrar land- anna, þeir Rogers og Joubert. Gert er ráð fyrir að fylgdarlið for- setanna verði tugir eða jafnvel nokkur hundruð manna, þar af herskari blaðamanna. Lauslega er áætlað að i fylgd Pompidous verði um 80 blaðamenn frá Frakklandi og Evrópu. A fundin- um sagði Hannes Jónsson, að vist mætti telja, að komið yrði á fót sérstakri miðstöð fyrir frétta- menn af þessu tilefni. f stuttri frétt frá NTB-frétta- stofunni segir, að fundur forset- anna á tslandi sé liður i viðræðum Nixons við æöstu menn Evrópu. Hvar búa þeir? Að sögn Hannesar Jónssonar hefur enn ekki verið ákveðið, hvar forsetarnir munu búa i Reykjavik, meðan á viðræðum stendur, en veriö væri aö undir- búa það. Timinn hafði samband við hótel borgarinnar og kannaöi, hvort eitthvaö af hópnum myndi þegar hafa fengið inni um mánaðamót- in. Erling Aspelund, hótelstjóri á Loftleiðum, sagði að einmitt i dag hefði borizt afturköllun á pöntun á 50 tveggja manna herbergjum vegna meinatæknaþings og utan- rikisráðuneytið hefði pantað þau um leið. Þá sagði hann erlendar fréttastofnanir vera farnar að spyrja um herbergi. A Hótel Esju. var okkur tjáð aö þar hefði utanrikisráðuneytið þegar látið bóka herbergi fyrir um 100 manns og þar myndi annar forsetinn að öllum likind- um búa. Konráð Guðmundsson á Hótel Sögu sagði að þar hefðu veriö bókuð 20-30 herbergi, en ekki vissi hann hvort annar forsetinn yröi á Sögu, né hvort viðræðufundirnir færu fram þar. A Hótel Holti hafa verið pöntuð 12 eins manns herbergi fyrir blaðamenn og á Hótel Borg 12 tveggja manna herbergi. Þetta er alls tæplega 300 manns, sem verður á hótelumi sambandi við heimsóknina. Auka talrásir og telextæki Aðalsteinn Norberg ritsima- stjóri sagði I gær, að vitað væri að Flugmenn boða verkfall FÉLAG islenzkra atvinnuflug- manna hefur boðað til 48 stunda verkfalls kl. 6.00 8. mái n.k. ef samningar nást ekki fyrir þann tima. Ef það dugir ekki til, er ætlun okkar aö hef ja ótimabundiö verkfall frá og með 14. mai n.k., sagði Björn Guömundsson for- maöur félagsins i viðtali við blaöið i gær. Við settum fram kröfur okkar með góðum fyrir- vara þ.e.a.s. i nóvember á sl. ári, en þær samningaviðræður sem siðan hafa farið fram hafa næsta litinn árangur borið. Flugmenn gengu siðast frá kjarasamningum sinum við flug- félögin fyrir þremur árum siðan, en þeir samningar urðu lausir 20. janúar sl. Telja flugmenn sig hafa tapaö gifurlega i launum vegna þessa langa samningstimabils, þvi kaupgjaldsvisitalan, en laun flugmanna hækkuðu samkvæmt henni, hafi hvergi nærri gefiö sanna mynd af verðbólgunni i þjóðfélaginu. Hafi þannig laun flugmanna rýrnað verulega á samningstimabilinu og þeir dregizt langt aftur úr miðað við aðrar starfsstettir i þjóöfélaginu. Að þessari reynslu fenginni, er þaðein af kröfum flugmannanna, aö samningstimabil næstu kjara- samninga verði aðeins eitt ár. Eins og áður greinir settu flug- menn fram kröfur sinar I nóvember. Þar fara þeir fram á u.þ.b. 50% kauphækkun lengt orlof og ýmsar breytingar á vinnutlmafyrirkomulagi og auknar slysa- og liftryggingar. Viðræður deiluaðila hófust þó ekki að marki fyrr en eftir áramótin, en frá þeim hafa veriö haldnir milli 20 og 30 fundir deilu- aðila. Arangur þessara viðræðna er óverulegur að áliti flugmanna og var deilunni visað til sátta- semjara i siðustu viku. Er þá kannski nokkur von til að skriöur komist á málið. Eitt atriði enn eru flugmenn óángæðir með, en það er hinn skammi uppsagnarfrestur og þar af leiöandi hið litla atvinnu- öryggi, sem þeir búa við. Uppsagnarfrestur hjá flug- félögunum er aðeins þrir mánuðir, en flugmenn gera kröfur um að hann verði lengdur i eitt ár. Eins og sjá má, ráðgera flug- menn verkfall sitt á þeim tima þegar mesti annatimi flugfélag- anna gengur i hönd. Þarf þvi ekki neinum blöðum um þaðaðfletta, hversu gifurlega alvarlegt ástand gæti skapazt ef samningar nást ekki. Kannski er jafngott að þeir félagar Nixon og Pompidou hafa yfir einkaþotum að ráða, en þurfa ekki aö treysta á áætlunar flug islenzku flugfélaganna. —G.J. vegna komu þeirra Nixons og Pompidous þyrfti að koma fyrir aukatalrásum og telextækjum, þann tima sem fundir þeirra stæðu yfir. Hann sagði, að sem stæði hefði Island 19 talrásir til útlanda, og þeim þyrfti að fjölga aðmun. Bjóst hann við, að komið yrði upp þjónustumiðstöð við blaðamenn, eins og gert var er skákeinvígið fór fram og á meðan siðasti fundur Norðurlandaráðs var i Reykjavik. Þá má geta þess, að sæstreng- urinn, sem liggur á milli Islands og Kanada Ice-Can er nú kominn i lag, eftir að hafa verið slitinn i marga mánuði. Tilkoma hans að nýju, auðveldar allan fréttaflutn- ing vestur um haf. Öryggisráðstafanir? Við spurðum Sigurjón Sigurðs- son, lögreglustjóra, hvort farið væri að undirbúa öryggisráðstaf- anir vegna komu forsetanna og hvernig þær yröu. Hann sagði, að koma Pompidous og Nixons krefðist að sjálfsögðu mikilla öryggisráðstafana. Þetta mál væri svo nýtilkomið, aö undir- búningur væri ekki byrjaður en þegar yrði hafizt handa. Alltaf þegar þjóöhöfðingjar koma I heimsókn til Islands, er allt lið lögreglunnar haft til taks, og svo verður einnig að þessu sinni. Jafnvel er gert ráð fyrir, að leita þurfti til lögreglunnar i ná- grannabyggðarlögunum. Þá veröur einnig haft samband viö bandarfska og franska sendi- ráðið, þegar öryggisráðstafanirn- ar verða undirbúnar, en heill skari af öryggisvörðum fylgja forsetunum, hvert fótmál sem þeir fara. Richard Milhous Nixon, forseti Bandarikjanna er fæddur 9. janúar 1913 I Kaliforniu. Menntun slna hlaut hann við Duke-háskólann I N-Karólinuriki. Hann stundaöi lögfræðistörf 1937-1942, um tima sem málflytjandi á vegum hins opinbera. Þá gekk hann i Bandariska flotann og var I honum til 1946. Nixon var þá kjörinn til setu I fulltrúadeild Bandarikja- þings sem republikani fyrir Los Angeles. Arið 1950 var hann kjörinn I öldungadeiidina og útnefndur varaforseti 1952. Hann var endurkjörinn i varaforsetaembættiö 1956, en i forsetakosningunum 1960 er hann var i framboöi á móti John F. Kennedy, beiö hann nauman ósigur. Nixon reyndi aö ná kjöri sem rikisstjóri Kaliforniu i nóv.1962 en beiö þá ósigur fyrir Brown, frambjóöanda demókrata. Nixon var kjörinn Bandarikjaforseti 1968, er hann fékk nauman sigur yfir Hubert Humphrey. Þessar kosningar voru sérstaklega eftirtektarveröar, vegna þess aö þriöji frambjóöandinn, George VVallace, náöi talsveröum árangri. A stjórnarferli Nixons hafa átökin í Vietnam, Laos og Kambódiu veriö ofarlega á baugi, svo og til- raunir hans til að bæta sambúðina viö Kina og Sovétríkin. Georges Jean Raymond Pompidou forseti Frakk- lands fæddist I Montboudif áriö 1911. Faöir hans var kennari, en sjálfur stundaöi Pompidou kennslustörf I Marseilles og Paris. Hann starfaöi I andspyrnu- hreyfingunni og var ráöunautur de Gaulles hers- höfðingja i kennslumálum 1944-1946. Siöar gegndi hann ýmsum störfum á sviöi tækni og stjórnsýslu, þ.á.m. sem varaforstjóri feröamála. Arið 1954 gekk hann I þjónustu Rotchildættar- innar og varö þá aðalforstjóri fyrirtækja hennar. Þegar de Gaulle tók viö völdum 1958, útnefndi hann Pompidou formann ráðuneytis og forseta ráöhcrra- nefndarinnar. Hann átti sæti I stjórnlaganefndinni 1959-1962. Hann átti mestan þátt I samningaviö- ræöunum I Evian, sem leiddu til þess aö friöur var saminn viö alsirska þjóðernissinna. Pompidou tók viö embætti forsætisráðherra i april 1962. Ari siöar var samþykkt vantraust á stjórnina og kosningar fóru fram. Gaullistar sigruöu og Pompidou varö aftur forsætisráöherra til 1968. Forseti Frakklands var hann kjörinn 1969 og hlaut þá 58% greiddra atkvæöa i siöari umferö. Hann var kjörinn forseti til sjö ára.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.