Tíminn - 04.05.1973, Qupperneq 16

Tíminn - 04.05.1973, Qupperneq 16
16 TÍMINN Föstudagur 4. maí 1973 vtÐAR TIL FÆREYJA? Þjálfar þar meistaraliðið Kyndil og leikur með því næsta vetur ÍÞRÓTTASÍÐAN hefur frétt að hinn kunni hand- knattleiksmaður úr FH, Viðar Simonarson muni dveljast i Færeyjum næsta vetur. Þar sem hann mun þjálfa og leika með Færeyjameisturun- um Kyndli, i handknatt- leik. Verður þvi mikil blóðtaka hjá FH-liðinu i handknattleik, þvi að það missir tvo af sinum beztu leikmönnum, þá Viðar og Geir Hall- steinsson, sem mun leika með danska 1. deildarliðinu Stadion. Einnig hefur siðan frétt um fleiri félagsskipti og má búast við að það verði nokkur hreyfing á leikmönnum og þjálfurum 1. deildarliðanna i handknattleik. Karl Benediktsson, landsliðs- þjálfari og hinn kunni þjálfari Fram, hefur skrifað undir samn- ing hjá Vikingsliðinu. ÞRÓTTUR STÓÐ SIG VEL í FÆREYJUM Handknattleiksmenn Þróttar sigruðu Færeyjameistarana í knattspyrnu. Þá lék liðið átta leiki í handknattieik, sigruðu sjö Unnu einnig veglegan bikar til eignar 2. deildarlið Þróttar i handknattleik heimsótti Færeyjar fyrir stuttu. Liðið fór utan i boði Stjörnunnar frá Klakks- vik og dvaldist i Færeyjum i viku. Þróttur lék tvö leiki gegn Stjörnunni og tók þátt i tveimur hrað- keppnismótum, einu i Klakksvik og einu i Þórshöfn. Leikið var í nýjum iþróttahöllum á báðum stöðunum. Fyrsti leikur Þróttar i ferðinni var gegn Stjörnunni og lauk honum með sigri Þróttar 31:21. Þá tók liðið þátt i hraðkeppnis- móti, sem Stjarnan og Neistinn tóku þátt i. Þrottur sigraði mótið og vann veglegan bikar til eignar. Leikir Þróttarliðsins fóru þannig: Þróttur — Stjarnan 22:6 Þróttur — Neistinn 12:6 Leikirnir stóðu yfir i 2x20 minútur. Þróttur tók einnig þátt i hrað- keppnismóti i Þórshöfn, þar sem fjögur iið tóku þátt i K.I.F. Neistinn, Kyndill og Stjarnan. Kyndill sigraði mótið, en þess má geta að þeir eru Færeyja- meistarar i handknattleik. Leikir Þróttar fóru þannig: Þróttur — K.F.l. 8:6 Þróttur — Neistinn 8:5 Þróttur — Kyndill 4:9 Þróttur — Stiarnan 17:6 Leikirnir i þessu móti stóðu yfir i 2x12 1/2 min. Siðasti leikurinn i ferðinni var svo leikinn gegn Stjörnunni og lauk honum með sigri Þróttar 35:12. Þá má geta þess, að leikmenn Þróttar léku einn knattspyrnuleik i ferðinni gegn Færeyja- meisturunum - Klakksvik, liðinu sem Sölvi Óskarsson, þjálfaði sl. sumar. Þróttur sigraði leikinn 4:2, sem má teljast góður árangur, þar sem sumir leikmenn Þróttar hafa gert litið að þvi að leika knattspyrnu. Stjarnan .liðiðsem bauð Þrótti til Færeyja, mun koma hingað i águst i sumar. Það verður Þróttur sem sér um heimsókn liðsins. Músik-samkeppni til kynningar trimminu 17-20 manna hljómsveit ásamt söngvurum mun flytja verkin Þá verða verðlaunalögin gefin út á hljómplötu i.S.í. og Félag isl. hljómlistar- manna efna til Músiksamkeppni til kynningar og stuðnings trimm- starfseminni. Keppni þessari er komið á til að auka skilning og glæða áhuga meðal almennings um nauðsyn þess að trimma. Í.S.i. og F.Í.H. auglýsa sameigin- lega eftir lögum i keppnina. Skilafrestur er til 1. júni n.k. og ber að senda lögin með cða án texta, skrifuð eða leikin og sungin á segulband, til skrifstofu F.I.H. Laufásvegi 40, Box 1238. Lögin skulu merkt dulnefni og einnig skal fylgja ineð i lokuðu umslagi, inerkt sama dulnefni, en i þvi nöfn og heimilisföng höfunda. Eftirtaldir aðilar munu annast um útsetningu laganna: Arni Elvar, Björn R. Einarsson, Jón Sigurðsson, Magnús Ingimars- son, Magnús Pétursson, Ólafur Gaukur Þórhallsson og Reynir Sigurðsson. 17-20 manna hljómsveit ásamt söngvurum mun flytja verkin. Útsetjarar annast hljómsveitar- stjórn i þeim lögum sem þeir út- setja. Undanrásir keppninnar fara fram i Súlnasal Hótel Sögu og hefjast 27. júní. Siðan halda þær áfram i miðri viku og á sunnu- dagseftirmiðdögum i júli og ágúst. Eru sunnudagstónleikarnir einkum ætlaðir þeim sem ekki sækja dansleiki. (Fjölskyldutón- leikar). Útvarpað verður frá sunnudagstónleikunum. Atkvæaðagreiðsla fer þannig fram, að gestir i Súlnasal Hótel Sögu fá afhenta atkvæðaseðla um leið og aðgöngumiðann. . Auk þess verða atkvæðaseðlar i dag- blöðunum þá sunnudaga, sem út- varpað verður, og geta þvi lands- menn um land allt tekið þátt i at- kvæðagreiðslunni. Höfundar þriggja vinsælustu laganna hljóta vegleg verðlaun, en þau eru: 1. verðlaun: Radionette-út- varps og hljómburðartæki frá E. Farestveit & Co. Verðmæti 72. þús. krónur. 2. verðlaun: Pioneer-hljóm- burðartæki frá Karnabæ. Verð- mæti 50. þús. krónur. 3. verðlaun: Philipps-hljóm- burðartæki frá Heimilistæki h.f. Verðmæti kr. 24.000.00 krónur. Dregið verður úr nöfnum þeirra, sem getið hafa rétt um vinningslagið, og hljóta þeir sér- stök aukaverðlaun. Það verða þannig 10 einstaklingar úr röðum almennings, sem fá hæggengar (long playing) S.G.-hljómplötur eftir eigin vali. Að músikkeppninni lokinni áskilur F.I.H. sér rétt til að gefa út hljómplötur með verðlaunalög- unum og Trimm-merkinu á plötu- umslagi. 'í \ : f—;—i Æ r ; 1 \m\ M Hk r.r 1 í i ( |v j ; í W-Wí'TÍ • 'm t 4i4itri ' i ■ S 1 • £ H 1 ■ JHSHP9 ■ W' ,. ^ Hér á myndinni sést hljómsveitin, sem leikur lögin I múslk-samkeppninni. Hún æfir þrisvar i viku, enda áhugi hljóðfæraleikaranna mjög mikill. Hvað skeður í íslands- glímunni? Verður háð í fim- leikasal Vogaskóla á sunnudaginn kl. 2 NÚ MUN fara fram ein tvisýn- asta keppni i íslandsglimunni um árabil, þar sem þátttakendur verða m.a. Jón Unndórsson K.R. glimukóngur frá 1972, Sigurður Jónsson Vikverja, skjaldarhafi úr Skjaldarglimu Armanns og hinn nýbakaði Islandsmeistari úr Landsflokkaglimunni 1973 Ingi Yngvason H.S.Þ. Auk þessara kappa má búast við að Pétur Yngvason Vikverja, bróðir Inga, blandi sér hressilega i keppnina, þar sem hann hefur ætið veitt bróður sinum einna harðasta keppni. Þá munu Ómar Úlfarsson K.R. og Hjálmur Sigurðsson Vikv. blanda sér i keppnina um efstu sætin. 1 ár mun vera einna mesta breidd i glimunni eins og sjá má á þvi að nú skipar ekki sami maðurinn efsta sætið i öllum glimunum eins og undanfarandi ár.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.