Tíminn - 22.06.1973, Side 1
ÍÍGNÍSl
FRYSTIKISTUR
RAFTORG SÍMI: 26660
RAFIÐJAN SIMI: 19294
Hálfnað
erverk
þá hafið er
sparnaður
skapar
verðmæti
Samvinnubankinn
Arni Edwinsson segist ekkert
meira hafa heyrt af Norðmönn-
unum og reiknaði ekki með að
heyra neitt meira frá þeim fyrr
en þeir væru komnir til landsins,
sem átti að verða um mánaða-
mótin jú.ií - júli.
Allt
í olíu d
Reyðar-
firði
ÓHUGNANLEGT er nú um
að litast á Reyðarfirði. Fjar-
an í fjarðarbotninuin er öll
löðrandi i ollu, sem þar rak á
land I gærmorgun, eftir að
japanskt skip skaddaðist við
bryggju.
óhappið varð i gærmorg-
un, er þetta japanska skip
var að ieggjast að bryggj-
unni á Reyðarfirði. Hafði
festum verið komið á land að
nokkru ieyti, er skipið sner-
ist við bryggjuna vcgna
vindliviðu og rakst á hana.
Rifnaði við það gat á það og
bunaði út svartolia. Er talið,
að fimmtiu tii sextiu lestir af
ollu hafi farið I sjöinn, áður
cn tókst að tæma gcymi
þann, er gatið kom á.
Menn á lteyðarfirði hafa
Icitazt við að kveikja i olí-
unni, sem borizt hefur á land
inni i fjarðarbotninum, þvi
að þangað rak hana undan
vindi. En það mun hafa kom-
ið að litlu gagni.
Handrita-
sýning í
sumar
ÓV-Reykjavfk: Stofnun Arna
Magnússonar opnar á morgun,
laugardag, sýningu á Konungs-
bók eddukvæða, Flateyjarbók og
Skarðsbók postulasagna i Arna-
garði.
Eins og komið hefur fram i
fréttum eru nú á leiðinni heim all-
mörg handrit, og eru átta þeirra
nú um borð i Múlafossi, sem er á
heimleið. Samkvæmt upplýsing-
um Jónasar Kristjánssonar, for-
stöðumanns Handritastofnunar-
innar, í blaðinu i gær, munu hátt i
2000 handrit vera væntanleg áður
en langt um liður.
Er þvi af sem áður var, er
menn báru merki i barmi með
áletruninni HANDRITIN HEIM!
t sumar verður siðan handrita-
sýning i Stofnun Arna Magnús-
sonar á þriðjudögum, fimmtu-
dögum og laugardögum á milli 2
og 4.
Einar, annar tveggja biaðsöiudrengja Timans, sem hrepptu verðlaun,
Kaupmannahafnarferð, fyrir frammistöðu sina i skrifstofu Loftleiða að
veita farseðlinum viötöku. — Sjá frásögn i blaðinu á tiundu síðu.
—Timamynd: Róbert.
— Ég veit ekkert hverjir þessir
menn eru og hef ekkert haft af
þeim að segja fyrir utan þetta
eina litla bréf, sagði Árni i viðtali
við fréttamann blaðsins.
— Þess vegna gætu þeir allt eins
vel hafa hætt við ferðina.
Dráttarbáturinn Lloydsman er stærstur dráttarbátanna og hefur
hvorki meira né minna en sextán þúsund hestafla vél.
Bretar enn við sama heygarðshornið:
Drdttarbátur sigldi fyrir
Óðinn í gær og olli árekstri
I GÆItMORGUN sigldi brezki
dráttarbáturinn, LLOYDSMAN á
varðskipið Óðin á miðunum út af
Vestfjörðum innan islenzku fisk-
veiðilögsögunnar.
Dráttarbáturinn sigldi á varð-
skipiö af yfirlögðu ráði og þver-
braut þar með allar alþjóðlegar
siglingareglur. Þetta uppátæki er
i senn háskalegt og furðulegt, þar
eð engir brezkir togarar voru I
næsta nágrenni við varpskipiö.
Rrezk yfirvöld hafa heldur enga
viðhlítandi skýringu getað gefið á
ásiglingunni.
Stefni ÓÐINS er nokkuð laskað
eftir ásigiinguna, en ckki urðu
nein siys á varðskipsmönnum.
Dráttarbáturinn skemmdist að
likindum meira, en skv. fréttum
norsku fréttastofunnar NTB var
ekki taliö, að hann sykki.
Vist er, aö LLOYDSM AN
hverfúr i bili úr hópi þeim, sem
heidur verndarhendi yfir brezk-
um veiöiþjófum á tslandsmiðum.
Frásögn Landhelgisgæzlunnar
af ásiglingunni er á þessa leið:
Um kl. 08.45 i morgun (þ.e. i
gær) sigldi brezki dráttarbátur-
inn LLOYDSMAN á varðskipið
ÓÐIN noröur af Vestfjörðum.
I morgun var ÓÐINN á siglingu
24 sjómiiur N af Kögri. Um kl.
08.00 nálgaðist skip úr NV, sem
hélt SA-læga stefnu, en ÓÐINN
var á siglingu i stefnu i NNA.
Skyggni var hálf sjómila. Um
kl. 08.25 létti til og var skyggni 6
til 7 sjómilur. Sást að skipið, sem
nálgaðist, var dráttarbáturinn
LLOYDSMAN og var þá um 1/2
sjómila á milli skipanna.
Dráttarbáturinn hægði ferðina og
allt að þvi stöðvaðist. Er um 100
til 200 metrar voru á milli skip-
anna og dráttarbáturinn var á
bakborða, jók hann skyndilega
ferðina og beygði til bakborða
fyrir stefni varðskipsins. brátt
fyrir að báðum aðalvélum varð-
skipsins var beitt til hins ýtrasta
aftur á bak varð árekstri ekki
forðað. 1 um 500 og 1000 metra
fjarlægö voru tvær brezkar frei-
gátur, en næsti brezki togari var i
3 sjómílna fjarlægð.. Skemmdir á
skipunum urðu: Á OÐNI kom gat
á stafnhýlki og stefnið lagðist inn
við sjólinu, á dráttarbátnum
lagðist lunningin inn á 2 metra
kafla. Engin slys urðu á varð-
skipsmönnum.
Þess má geta, að LLoydsman
er 2041 tonn að stærð, en ÓÐINN
aðeins 882 tonn.
Varðskipið hélt rakleitt inn til
Framhald á bls. 19
Norðmenn hættir við
Vatnajökulsferðina?
ÓV-Reykjavík. Eins og Tlminn mun væntanlegur hingað til lands manna hópar, I þvi augnamiði að
skýrði frá ekki alls fyrir löngu hópur Norömanna, tveir fimm ganga Vatnajökul endilangan.
Höfðu þeir samband við ritara
flugbjörgunarsvcitarinnar, Arna
Edwinsson og leituðu hjá honum
upplýsinga, scm þeir hafa nú
fengið, en siöan hefur Árni ekkert
heyrt.
Flugbjörgunarmennirnir
fylltust miklu kappi við fregnir af
Norðmönnunum og lögðu fimm
flugbjörgunarsveitarmenn á
jökulinn á föstudagskvöldið i
siðustu viku, svo að heiðurinn af
fyrstu gönguferð eftir endi-
löngum jöklinum væri örugglega i
höndum Islendinga. Koma þeir
væntanlega niður nú um helgina,
en eftir þvi, sem blaðið hefur
fregnað, þá hefur ferð þeirra
gengið vel, enda veðuF á jöklinum
gott um þessar mundir.
Skemmdirnar á stefni Óðins eftir ásiglingu Lloydsman i gærmorgun. Myndin er tekin I Isafjarðarhöfn.
Timamynd: Guðmundur Sveinsson.