Tíminn - 22.06.1973, Blaðsíða 2

Tíminn - 22.06.1973, Blaðsíða 2
2 TÍMINN Föstudagur 22. júni 1973. Fjármálaráðuneytið 20. júni 1973. Söluskattur Dráttarvextir falla á söluskatt fyrir maimánuð 1973, hafi hann ekki verið greiddur i siðasta lagi 25. þ.m. Dráttarvextir eru 1 1/2% fyrir hvern byrjaðan mánuð frá gjalddaga, sem var 15. júni s.l., og verða innheimtir frá og með 26. þ.m. I '.\y. \ >u> r rs , i 'f ' v' Sérfræðingsstaðc Staða sérfræðings við Lyflækningadeild Borgarspitalans er laus til umsóknar. Staðan veitist frá 1. september n.k. Sérmenntun i meltingarsjúkdómum er æskileg. Umsókn, ásamt upplýsingum um námsferil og störf, sendist Heilbrigðismálaráði Reykjavikur- borgar fyrir 1. ágúst n.k. ¥ k ítv h W s I m y-' v>> Reykjavik, 20. ágúst 1973. Heilbrigðismálaráð Reykjavikurborgar •:>y ■i & 1> . RAFMAGNS- BENZIN- GAS- DIESEL- TMC GAFFAL LYFTARAR frá Japan. TMC-verksmiöjurnar hafa aldrei haft eins mikiö aö gera og nú. Vegna þess má reikna meö nokkrum afgreiöslutöfum. Ef þér viljiö fá gaffallyftara fyrir næstu áramót, er vissara aö panta strax. — Þaö er ekki eftir neinu aö blöa, þvl einnig má búast viö hækkunum. — Ennþá er sama lága veröiö. Kjölur s.f. Keflavik — Simar 2121 og 2041. Litil svargrein Svar við grein þinni Skúli Skúlason, 29. mai. Ég er þér sam- mála viðvikjandi nafninu á grein minni. Hún gat heitið ýmsum öör- um nöfnum, svo er einnig um grein þina: Sigfús Steindórs og minkurinn. Hún hefði vel getað heitið Bólu-Hjálmar og fugla- söngurinn, og hefði það veriö skáldlegra. Þú hefðir þurft aö hugsa þig betur um og lesa mina grein betur, þá hefðu rangfærsl- urnar kannski orðið færri. Ég neita þvi harðlega, aö Dag- rún Kristjánsdóttir hafi skotiö upp kollinum i grein minni. Mér finnst alveg.óþarfi að draga hana inn i deilu okkar um minkinn, sú mikilhæfa og umdeilda kona hef- ur nóg á sinni mjólkurkönnu án þess. Mér finnst að þú ættir að biðja hana afsökunar og gefa henni minkapels. Hún myndi sóma sér vel i honum. Þá kem ég að minni Dagrúnu og feðra hana ekki, en eins og ég sagði i grein minni er hún falleg kona. bað myndi þér finnast, ef þú fengir að sjá hana. Þá er þaö Bjargráðasjóöur Is- lands. Ég sagði ekki, að minkabú- in hefðu fengiö lán úr Bjargráöa- sjóði. Orðrétt stendur i grein minni: og þarf meiri en litinn klaufaskap til að skilja það ekki rétt: „Mér þætti þaö ekki ótrúlegt eftir það, sem á undan er gengið, aö minkamennirnir fengju lán úr Bjargráöasjóöi Islands, ef læð- urnar létu eöa önnur skakkaföll kæmu fyrir á búunum, svo að þeir gætu haldiö þessum ósóma áfram.” bá kem ég að vitamininu, þessu sem fór i kálfana. Mér dettur i hug, að ein sprauta af þvi myndi gera þér gott. Nei, Skúli, þaö er ekki gert of mikið úr getu villi- minksins til eyðingar á náttúru landsins. I Timanum þriðjudag- inn 22. mai er sagt frá villimink i æðarvarpinu á Bessastöðum. Þar er mynd af Sveini Einarssyni, veiöistjóra, þar sem hann heldur á dauðum mink og nokkrar dauð- ar æöarkollur sjást þar einnig. Það er nóg umræðuefni i sveit- inni þó aldrei væri minnzt á mink- inn. Þaö er gert af illri nauðsyn. 1 minni sveit, Lýtingsstaðahreppi, hefur villiminkurinn drepið tugi hænsna árlega, þó eru hér góöir minkaveiöimenn. Skúli Skúlason, Kópavogi, þú gerist allsherjar ambassador og svarar fyrir alla, sem þér finnst sneitt að i grein minni. Þú telur stórlaxana hafa strangan vinnu- dag. Ég spyr, hvar fer sú vinna fram, máski á börum veitinga- húsanna hérlendis og erlendis? Þá eru þaö ráðunautarnir. bað er ekki stórt orð lengur að vera sigldur. Ég skal upplýsa þig um það, Skúli, að Bólu-Hjálmar er fæddur i Eyjafiröi, en aftur á móti er Stefán G. fæddur i Skagafiröi. Svo verður þetta ekki meira. Læt þetta duga, nema þú haldir áfram að skeiða með vixlsporum. Sigfús Steindórs, Steintúni. ■H Spánartogarar „Vegna efnis og vinnusvika, sem upp hafa komið i b/v Bjarna Benediktssyni, sem nýsmiðaður ér á Spáni, er eftirfarandi spurningu beint til nefndar þeirrar, sem sá um smiði Spánartogaranna: 1.1 hverju hefur starf þeirra tslendinga verið fólgið, sem starfaðhafa sem eftirlitsmenn viö smiöi togaranna og stað- settir hafa verið á Spáni með skipasmiðastöð togaranna sem vinnustað sinn allt frá þvi aö smiði togaranna hófst? 2. Hafa fyrrnefndir eftirlits- menn staðið vel i stöðu sinni aö mati nefndarinnar, og ef svo er hverjar eru þá orsakir mistakanna að dómi nefndar- innar?” Hjalti J. Þorgrlmsson Goðheimum 10 Sveinn Benediktsson, fram- kvæmdastjóri, svarar: „Smiðalýsingin á skut- togurunum fjórum, sem samið var um smiði á , á Spáni haustið 1970, var gerð eftir rækilegan undirbúning. Var smiðalýsingin samin aö mestu eftir nýjustu smiðalýsingum og teikningum þýzkra skut- togara að stærð 1000-1200 brúttó smálestir, eins og þær voru haustið 1970, en siðan hafa oröið þar á nokkrar breytingar. Stærð þessara togara er um 940-960 brúttó smálestir, hvers um sig, eftir nýju mælingunni, en myndi hafa verið um 1420 brúttó smálestir eftir gömlu mælingunni. Kaupverð hvers þessara togara hefur verið áætlað um kr. 190.000.000.-. 1 nefndinni, sem endanlega gekk frá smiðalýsingunni og samdi um kaupin með milli- . göngu þáverandi fram- kvæmdastjóra Sambands spænskra skipasmiðastöðva (Construnaves), E. Silvela, og fulltrúa skipasmiðastöðvar- innar Astilleros Luzuriaga S.A. I Pasajes við San Sebastian á Spáni, voru: Sveinn Benediktsson, formað- ur, Jón Axel Pétursson, Guö- mundur B. Ólafsson, Þor- steinn Arnalds og togaraskip- stjórarnir Sæmundur Auðuns- son og Vilhelm Þorsteinsson. Tæknilegur ráðunautur nefndarinnar var Pétur Gunnarsson, vélstjóri, sem kom i stað Erlings Þorkels- sonar, vélfræðings, sem tekið hafði þátt i að undirbúa smiðalýsinguna, en var for- fallaður haustið 1970 vegna veikinda. Aður en gengið var endan- lega frá teikningum að gerð skipanna var haft samráð við Hjálmar Bárðarson, siglinga- málastjóra, sem geröi breytingatillögur á lin- um smiöateikningar þeirrar, er Spánverjar höfðu gert af skipunum og lagði til, að likan af skipunum yrði „tankpróf- að” af dönsku tilraunastöðinni Hya Laboratorium i Lyngby. Var endanlega gengið frá teikningu af skrokk skipanna skv. niðurstöðu þeirrar stofn- unar. Þykkt á stálplötum byrðings skipanna er meiri og bönd eru þéttari en i nokkrum öðrum is- lenzkum skipum, vegna hættu, sem vera kann á isreki i fiski- miöum. Ber öllum saman um að skipin séu hin beztu sjóskip. Byrjaö var á smiði skipanna sumarið 1971. Af hálfu Samninganefndar um smiði skuttogara voru þeir ráðnir til að hafa eftirlit með smiðinni Erlingur Þorkelsson, vél- fræðingur, sem mun hafa meiri reynslu sem eftirlits- maður með togarasmiði en nokkur annar Islendingur og Alfreið Júliusson, vélstjóri, sem veriö hafði 1. vélstjóri á togurum Bæjarútgerðar Reykjavikur og siðar unnið sem vélaeftirlitsmaður hjá Bæjarútgerð Reykjavikur i mörg ár. Hafa þessir eftirlits- menn dvalizt á Spáni við eftir- litið siðan sumarið 1971 með litlum frátöfum. Ennfremur var ákveðið að skipin skyldu flokkuð sam- kvæmt reglum þeim, sem II lHil"ill 1 V æ IQl in '■ krafizt er af Llyod’s Register of Shipping i London og undir eftirliti fulltrúa þess á Norður- Spáni. Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á búnaði skip- anna á smiðatimanum vegna örrar þróunar á útbúnaöi skuttogara frá þvi smiði hófst. Um þessar breytingar var m.a. haft samráð við togara- skipstjórana Sigurjón Stefáns- son og Halldór Halldórsson. Þegar afhending b/v Bjarna Benediktssonar RE 210 fór fram á Spáni, var úttekt á skipinu samþykkt af fulltrúa Lloyd’s Register of Shipping á Norður-Spáni, Börge Rasmus- seadansks verkfræðings, sem fylgzt hafði með byggingunni. Ennfremur af fulltrúa Islenzku siglingamálastofnun- arinnar, svo og af islenzku eftirlitsmönnunum og skip- stjóra skipsins. Spánskur ábyrgðarvélstjóri fylgdi skipinu til Islands og ber skipasmiðastöðin skv. smiðasamningnum ábyrgð á öllum göllum þess og frá- gangi, sem I ljós koma innan 6 mánaða frá þvi afhending fór fram á Spáni. önnur aðalvél b/v Bjarna Benediktssonar bilaði á leið skipsins til íslands um miðjan janúar s.l. Hafði siglingin frá Spáni tekið tæpa 5 sólar- hringa. Var gert við þá bilun eftir komu skipsins og farið i reynsluferð eftir viðgerðina Framhald á bls. 19 Þeir sem hafa spurningar fram að færa, hringi I slma 18300 kl. 2-3 mánudaga til föstudaga. Nafn og heimilis- fang þarf að fylgja spurning- unum. (1 sumum tilfellúm reynist ekki unnt að afla svara við spurningum og er fólk beðið aö taka tillit til þess, að leitast er við eftir megni að fá viðkom- andi aðila til að leysa úr þvi, sem spurt er um. máhúngt

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.