Tíminn - 22.06.1973, Side 3

Tíminn - 22.06.1973, Side 3
Föstudagur 22. júni 1973. TÍMINN 3 Háskólarektor, Magnus Már Lárusson, afhenti i gær nýjum kandidötum prófskirteini sin i hátföasai Iláskóians. Hér sést Sigurfinnur Þorleifsson guðfræöingur taka i höndina á rektor, en innst til vinstri stendur Björn Björnsson prófessor. Útflutningsfyrirtæki þurfa að vinna saman segir Gunnar Rogstad framkvæmdastjóri norska útflutningsrdðsins Við drekkum ekki 10 lítra mjólkur d dag MORGUNBLAÐIÐ kastaði i gær rýrð á valkyrjur Sjálfstæðis- flokksins I Húsmæðrafélaginu, er ætiuðu I vetur að beita sér fyrir þvi, að fólk keypti gosdrykki og kók I stað mjólkur. Það skýrir sem sé frá þvi, að dagsaia hjá Mjólkursamsölunni i Reykjavik sé að meðaltali 964 þúsund litrar. Otfrá þessu reiknar það síðan, að neyzlumjóik Reykvikinga sé greidd niður um hálfa sextándu milljón króna á dag. Þessar tölur þýða aftur á móti, aö hver einasti Reykvikingur, ungur sem gamall, veröur aö belgja sig sem næst tiu litrum mjólkur daglega. Mjólk er góö vara og tiltölulega ódýr, neyzla mikil og upphlaup Sjálfstæöis- kvennanna I Húsmæðrafélaginu bar engan árangur. Sannleikur- innereigiaösiðursá, að Morgun- .blaöiö tifaldar tölur. Búðardalur: Vantar tilfinnanlega vinnuafl SÞ—Búðardal. — Framkvæmdir eru að hef jast i Búðardal, eins og venjulega með sumrinu. Veöur hefur farið mjög hiýnandi undan- farið og sumarið er áreiöanlega komið. Þjóöhátíð var haidin hér með barnaskemmtunum bæði úti og inni og þótti hin bezta. Byrjað verður ánæstunni á tveimur ibúðarhúsum og öðrum tveimur siðar i sumar. Þá er verið að undirbúa nýja barna- skólabyggingu. Vegagerðarmenn eru komnir af stað og byggja á brú yfir Glerá. Heimamenn eru eitthvað við þetta, eins og þeir hrökkva til, en tilfinnanlegur skortur er á vinnuafli. Að visu fjölgar fólkinu, þvi alltaf eru ein- hverjir að flytjast úr sveitinni. KIp-Reykjavik. Undanfarna daga hefur Gunnar Rogstad, fram- kvæmdarstjóri norska útfiutn- ingsráðsins, dvalið hér á landi i einkaerindum. Hann kom hér fyrst til lands fyrir strið, en hóf störf í norska utanrikisráðu- neytinu, er Norðmcnn opnuðu hér ræðismannsskrifstofu. Hann er kvæntur islenzkri konu og talar mjög góða islenzku. Það fengu blaðamenn að heyra, er þeir ræddu við hann og Úlf Sigmunds- son, framkvæmdarstjóra Útflutn- ingsmiðstöðvar iðnaðarins, s.i. miðvikudag. A þeim fundi kom fram, aö Gunnar hafi oröið við bón útflutn- ingsmiðstöðvarinnar um að ræða við aðila þess um Norges Expor- traad, sem hann veitir forstöðu og gefa ráðleggingar. Einnig ræddi hann við Magnús Kjartansson iðnaðarráðherra um ýmis mál- efni varðandi útflutning Norö- manna og um útflutningsgjald á iðnaðarvarning, sem m.a. mikið hefur verið rætt um hér á landi. Á þessum blaðamannafundi kom margt fram, er varðar út- flutningsráð Noregs og fjármögn- un þess, auk þess sem Gunnar talaði um samstarf ráðsins við utanrikisþjónustuna. Gunnar taldi það nauðsynlegt fyrir út- flutningsfyrirtæki i litlum löndum eins og tslandi og Noregi, að hef ja samstarf um framleiðslu til að vera samkeppnisfær á heims- markaðinum. Tók hann sem dæmi, að nú siðari ár hafi útflutn- ingsráðið beitt sér fyrir nánari samvinnu milli fyrirtækja i Noregi, er framleiða útbúnað til vetrariþrótta svo og seljenda þessara vörutegunda. Þetta hafi tekizt með þeim árangri, að á kaupstefnu vetrar- iþróttavarnings i Munchen hafi Norðmenn verið með stærstu sýn- ingardeild einstakra þjóða, og hafi hún vakið verðskuldaða at- hygli. Útflutningur á útbúnaði vetrariþrótta hefur aukizt úr 2,5 millj. króna árið 1971 i 25 millj. króna áriö 1972 og er gert ráð fyr- ir, að útflutningurinn á þessum vörum I ár verði á milli 40 til 50 milljónir króna. Taldi Gunnar, að þetta væri einnig hægt að gera hér á landi, eins og t.d. i hús- gagnaiðnaöi og fleiri iðngreinum. Margt fleira athyglisvert kom fram á þessum fundi, m.a. að 80% af 15 þús. iönaöarfyrirtækjum I Noregi hafi færri starfsmenn en 20. Það eru þvi um 12 þúsund fyrirtæki i Noregi, þar sem vinna færri en tuttugu, og frá þeim kemur tæplega fjórðungur allrar iðnaðarframleiðslu þar. Starf útflutningsráðsins norska er m.a., að láta útflytjendum i té hverju sinni fróðleik um m arka ðsa ðstæður, tolla, samningsaðstæður og fleira. Einnig að rannsaka markaði, hvort heldur eftir beiðni útflytj- enda eöa að eigin frumkvæöi. Reka virka upplýsingaþjónustu fyrir norska útflytjendur og inn- flytjendur. Skipuleggja feröalög sendinefnda erlendis, beita sér fvrir kaupstefnum og vörusýn- ingum i öðrum löndum og taka þátt i þeim. Fé til þessarar starfsemi er afl- að með þeim hætti, að lagt er 3/4 promille gjald á allan útflutning frá Noregi að skipum undantekn um. Þetta gjald færði Útflutn- ingssjóði hvorki meira né minna en rúmlega 15 milljónir norskra króna árið 1972. Gunnar Rogstad framkvæmdarstjóri norska útflutningsráösins talaði á isienzku, er hann ræddi við blaöamenn s.l. miövikudag. Meö honum á þessari mynd er úlfur Sigmundsson framkæmdarstjóri útflutnings- miðstöðvar iönaðarins. (Timamynd Róber) imd lr Vttrf D 1 lifa ÍH Veiði gengur vel i Viðidalsá Veiðihornið hringdi i veiði- húsið við Lækjamót og leitaði frétta hjá Gunnlaugu Hannes- dóttur, ráðskonu, um veiði i Víðidalsá það, sem af er sumri. Gunnlaug sagði, að veiðin hefði gengið ljómandi vel til þessa. Á hádegi i gær voru 68 laxar komnir á land úr ánni frá 15. júni, er veiöin hófst. 6 stangir eru leyfðar i Viðidalsá nú i upphafi veiðitimabilsins. Laxinn er yfirleitt vænn, meðalvigtin liklega um 10-11 pd., sagði Gunnlaug ennfrem- ur. Stærsti laxinn, sem fengizt hefur, vó 21 pd. Sá, sem hann veiddi, er Egill Þorfinnsson úr Keflavik, en fiskinn fékk hann 18. júni i Réttarhyl. Veðrið i Húnavatnssýslunni hefur hingað til verið sæmilegt til veiða — súld, en þvi miður nokkuð kalt. Þó lét Gunnlaug þess getið i lok viðtalsins, að veðrið færi hlýnandi og hugs- uðu laxveiðimenn við Viði- dalsá þvi gott til glóðarinnar. 375 laxar úr Norðurá Skv. upplýsingum ráðskon- unnar i veiöihúsinu við Norð- urá, voru 375 laxar komnir á land úr ánni á hádegi i gær. Er það dágóð veiði á þ'eim þrem vikum, sem veitt hefur verið i ánni. Sem dæmi um fengsældina i Norðurá má nefna, aö „holl- ið,” sem veitt hefur i ánni s.l. tvo daga, hafði 65 laxa á brott með sér. Svo ekki er hægt að segja, að þeir veiðimenn hafi snúið heim með öngulina i rassinum. Laxinn, sem fengizt hefur i Norðurá i sumar, er vænn, þvi að mest ber á 9-10 pd. fiski i aflanum. • Hrakspór, sem rættust ekki Magni birti nýlega viötal við Halldór E. Sigurðsson fjár- málaráöherra um afkomu rikisins á siöastl. ári. Þykir rétt aö endurbirta nokkurn hluta þess hér: ,, — Morgunblaöið og önnur málgögn stjórnarandstöö- unnar höföu uppi á s.l. ári miklar hrakspár um haiia á rikisbúskapnum, svo og um mikinn haiia á gjaldeyrisvið- skiptum viö útlönd. Hvernig hafa þær hrakspár rætzt, Halldór? —Ekki á þann veg að stjórnarandstæðíngar sönn- uðu spádómsgáfu sina með þvi. Nú iiggur rikisreikningur- inn fyrir árið 1972 fyrir og talar sinu máli. Hann lá nú fyrir áöur en þingi iauk og mikiu fyrr en vant er. Ég lagði á þetta áherzlu, og starfsfólk rikisbókhaidsins á þakkir skiidar fyrir þann dugnað. Niðurstaðan er sú, að rekstrarafgangur varö hjá rikissjóði 134,9 milij. kr. og er þá lánsfé til framkvæmda tekiö inn á rekstrarreikning- inn. Ef það hefði ekki verið gert, heföi rekstrarafgangur orðiö 985 millj. kr. Greiðslujöfnuður rfkissjóðs varöhagstæðurs.I.árum 1689,6 millj. kr. en þar i eru 1000 millj. kr., sem rikið fékk hjá Seðlabankanum, sem stofn að rekstrarsjóöi, sem rikið kom á fót, og er afborgun af þvl iáni 250 millj. kr. á ári. Að þessu frádregnu er greiðslujöfnuður rikissjóös hagstæður um 689 millj. kr. Á árinu voru tekin lán til vegagerðar, landsvirkj- unar og landhelgisgæzlu. Sé litið á greiðsluafkomu rikissjóðs siðustu ár, er hún þessi. Arið 1968 varð greiðsluhaili 74 milijónir. Árið 1969 varð greiösluafg. 488 milljónir. Arið 1970 varð greiösluafg. 457 miiljónir. Arið 1971 varð greiösluhalli 339 milljónir. Arið 1972 varð greiðsluafg. 689 milljónir. — Urðu tekjur rikisins um- fram fjárlög verulegar á siðasta ári? — Nei, þær urðu 9% en sé frátalin hækkun áfengis og tóbaks, sem ákveðin var á árinu eftir fjáriagagerð eru þær um 6%. Þetta er miklu minna en varð árin 1970 og 1971 og svipað og á venju- legum árutn þar áður. — Nokkuð hefur verið rætt um innheimtu rikissjóös og henni talið ábótavant. Hefur ástandið batnað i þeint efnum? — Já, innheimtan hefur batnaö nokkuð, en þarf þó enn aö batna verulega. Ariö 1968 var innheimta rikisgjaida um 80% en árin 1971-72 varð hún 86-88%. Innheimta tekju- og eignaskatts hefur til að mynda batnað úr 65% árið 1968 I 75% áriö 1972. — Hvernig var staða ríkis- sjóös við Seðlabankann I árs- lok 1972? — Spár stjórnarandstæðinga um hana voru nú vlst ekki sem beztar, en útkoman varð sú, að hún hefur aldrei verið betri en um s.l. áramót. Hinn 31. des. 1972 skuidaði rikissjóður Seðlabanka'num tæpar 6 miiij. kr. og eru þá teknar meö I reikninginn þær þúsund milijónir, sem Seðiabankinn lánaöi rlkinu i rekstrar- sjóðinn. Rikissjóður átti þvi um áramótin inni I Seðla- bankanum svo að segja alveg fyrir þvi láni. Undanfarin ár hefur skuld rikissjóðs við áramót jafnan verið nokkur t.d. 529 millj. 1969. — Er biliö milli fjáriaga og Framhald á bls. 19

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.