Tíminn - 22.06.1973, Blaðsíða 8
8
TÍMINN
Föstudagur 22. júni 1973.
Flugvirkjar Fl neita
að vinna eftirvinnu
— veldur engurn töfum, segir
talsmaður félagsins
ÓV-Iteykjavik: Flugvirkjar
Flugfélags tslands á Reykjavik-
urflugvelli hafa tekiö sig óform-
lcga saman og færast undan þvi
að vinna eftirvinnu, fyrr en þeir
hafa fengið uppbót á iaun sin, sem
samið var um siöari hluta vetrar
og áttu þeir samningar að giida til
20. janúar 1975. Talsmaður F1
sagði félagiö líta þetta frekar al-
varlegum augum og taldi hann
ástandiö afleitt. — Þó eru ekki
fyrirsjáanlegar neinar tafir á
flugi okkar, sagði hann. — Innan-
landsflugvéfarnar eru skoðaðar
að degi til og millilandaflugvélar
okkar getum við látið skoða cr-
lendis án þess að um aukakostnað
sé fyrir okkur að ræða. Flug-
virkjafélagiö stendur ckki á bak
við þessi þöglu mótmæli og telur
ekki, aö um beinar aögerðir sé aö
ræða.
Flugvirkjar á Reykjavikurflug-
velli telja sig hafa komið mjög
illa út úr þeim samningum, sem
geröir voru i vetur, þar eð
skömmu siöar hafi verið samið
við flugmenn og flugvélstjóra og
sé nú kaupmismunur þessara
stétta orðinn meira en 100%, en
hafi fyrir 10 árum verið aðeins 1
1/2%. Hefur fréttamaður blaðsins
eftir einum þeirra, að nú fari þeir
fram á 10.000 króna hækkun mán-
aöarkaups en talsmaður Ft
kvaðst ekki hafa heyrt neinar töl-
ur nefndar.
Flugvirkjar F1 eru þó með
þessu ekki að brjóta gerða samn-
inga, þar sem hverjum og einum
er heimilt af afþakka eftir- og
næturvinnu, telji hann sig ekki
vera i aðstöðu til þess. Flugvirkj-
ar munu bera fyrir sig önnum,
heimilisástæðum og ööru svipuðu,
en talsmaður félags flugvirkja,
Ragnar Karlsson, sem sæti á I
stjórn félagsins, sagði félag sitt
ekki vera i neinu verkfalli og að
hér væri ekki um neinar „beinar
aðgeröir” að ræða. — Við stönd-
um við gerða samninga, sagði
Ragnar en kvaðst ekki lita á annir
flugvirkjanna sem samningsbrot.
— Okkur hefur furöað á þvi aö
ekkert skuli hafa heyrzt um þetta
frá stéttarfélagi fiugvirkja, sagði
talsmaður Ft. — 1 augnablikinu
eigum viö viðræður við flugvirkja
en þaö er einnig erfiðleikum
bundiö, þar sem við vitum ekki
almennilega hvert við eigum að
snúa okkur.
Ragnar Karlsson taldi mál
þetta ekki mundu koma til kasta
Flugvirkjafélagsins.
„Jónsmessumót"
Móna á AAánagrund
flytur skýrslu
Frá landsþingi Kvenfélagasam bands tslands. Sigríður Thorlaclus formaður,
stjórnar (Timamynd Róbert)
20. þing Kvenfélagasambandsins
SB-Rvik. Tuttugasta landsþing
Kvenfélagasambands tslands
hóft á miðvikudag aö Hallveigar-
stöðum og lýkur þvf í dag. Þingið
sitja um 60 fulltrúar alls staðar að
af landinu, en alls eru 21 kvenfé-
lag i sambandinu. Formaður er
Sigriður Thorlacius.
Aðalmálin, sem rædd verða á
þessu þingi eru aukin samvinna
við Heimilisiönaðarfélag tslands
og frumvarp til laga um hús-
mæðrafræðslu. Eitt kvenfélag til
viðbótar sækir nú um inngöngu i
sambandiö, en það er Bandalag
kvenna i Hafnarfirði.
I gær fimmtudag, var dagskrá
þingsins sem hér segir: Fundur
settur kl. 9 og siðan lesin fundar-
gerð og afgreidd þau mál sem
ekki hlutu afgreiðslu i fyrradag.
Þá var rætt um skiptingu landsins
i orlofssvæði. Eftir hádegiö flutti
Stefán Jónsson arkitekt erindi um
K.t. og Heimilisiðnaðarfélagsins
og þvi næst sinntu nefndir störf-
um sinum. Kl. 16 fóru fulltrúar i
heimboð að Bessastöðum og að
þvi loknu var kosið i stjórn og rit-
nefnd Húsfreyjunnar.
t dag, föstudag, verður fundur
settur kl. 9 og afgreidd mál frá
nefndum, en siðan er ádegisverð-
arboð hjá menntamálaráðherra.
Þinginu verður slitið siðdegis eft-
ir boð i Norræna húsinu.
Þess má geta, að Kvenfélaga-
sambandið hefur gefið út leið-
beiningabæklinga handa hús-
mæðrum á undanförnum árum.
Má þar'nefna einn um þvottavél-
ar, annan um blettahreinsun og
nýlega kom út bæklingur um ger-
bakstur. Auk þess gefur sam-
bandið út timaritið Húsfreyjuna.
Þá hefur sambandið efnt til
sýninga, til dæmis sýninganna
Vörulýsing, vörumat og Fjöl-
skyldan á rökstólum.
Róðstefna herstöðvaand-
stæðinga á Egilsstöðum
ALLMORG hestamannamót hafa
verið haldin að undanförnu I
Reykjavik og nágrenni. Hafa þau
veriö vel sótt, enda nýtur hesta-
mennskan æ meiri hylli, jafnt
meöal ungra sem aldinna, karla
og kenna. Mikið og veglegt hesta-
mannamót verður haldið um
helgina á Mánagrund við Kefla-
vik, um Jónsmessuna, en það er
Hestamannafélagið Máni á
Suöurnesjum, sem gengst fyrir
þvi. Er hér um árlegt mót félags-
ins að ræða.
Við höfðum samband við Guð
finn /Gislason, formann félags-
ins, og tjáði hann okkur, að þetta
væri eitt af stórmótum ársins.
Stendur mótið yfir laugardag og
sunnudag, en tjaldsvæði og mót-
taka fyrir aðkomuhesta veröa
opnuð á föstudagskvöld. Að sögn
Guöfinns er áætlað, að skipuleg
tjaldborg risi á hinni viöáttu-
miklu Mánagrund.
Guðfinnur sagði þátttöku i
kappreiðunum mjög góða og væri
búið að skrá um 40 aökomuhesta.
Þeirra á meðal væru allflestir af
fremstu hlaupagörpum landsins.
Og að sjálfsögðu fylgdu þar fræg-
ustu knaparnir meö! Nefndi hann
m.a. Randver Jóninu Hliðar, Óð-
in.. Þorgeirs i Gufunesi og Hroll
Sigurðar ólafssonar, en þeir.
keppa allir i 250 m skeiði. I 800 m
stökki nefndi Guðfinnur m.a.
Blakk Hólmsteins Arasonar frá
Borgarnesi, en Blakkur er sjálfur
tslandsmethafinn. Sagði Guöfinn-
ur, að búast mætti við mjög
harðri keppni i þessu hlaupi, þar
sem það færi fram á beinni,
grasi-vaxinni braut. Mætti búast
við mjög góðum tima.
Dagskrá „Jónsmessu-hesta-
mannamótsins” hefst kl.
þrjú eftir hádegi á laugardag með
góðhestakeppni i A og B flokki.
Þar næst hefjast undanrásir i
hlaupum, en að þvi loknu gefst
Framhald á bls. 19
RÚMT ár er nú liðið
siðan Samtök her-
stöðvaandstæðinga voru
endurvakin i Reykjavik
og nágrenni með það að
markmiði að knýja á
stjórnvöld um efndir
þess ákvæðis stjórnar-
sáttmálans, sem kveður
á um brottför banda-
riska herliðsins af
Keflavikurflugvelli og
sameina til starfa alla
þá, sem viija vinna að
framgangi þess máls,
hvar i flokki sem þeir
standa.
Samtökin reyna með gömlum
og nýjum rökum að fá sem flesta
til að gefa sjálfstæöismálum
þjóðarinnar gaum aö nýju og hafa
með ýmsu móti vakið athygli á
málstað sinum. Samtökunum
hefur vaxið fiskur um hrygg á
þessu ári, og viða út um land hafa
verið endurreistar héraðsnefndir
og kjördæmisnefndir og fundir
haldnir á vegum þeirra en það er
kannski einmitt úti á lands-
byggðinni, sem andstaðan gegn
hersetunni hefur alltaf verið
hvað mest og sjálfsögðust.
Um siðustu áramót var stofnuð
kjördæmisnefnd á Austurlandi og
hefur hún m.a. gengizt fyrir
myndun starfshópa i öllum
byggðarlögum fjórðungsins.
Samtök herstöðvaandstæðinga á
Austurlandi gangast nú fyrir ráð-
stefnu og Jónsmessuvöku i Vala-
skjálf á Egilsstöðum laugar-
daginn 23. júni og hefst hún
klukkan tvö. Erindi um stefnu og
starf herstöðvaandstæðinga
flytja m.a.: Arni Björnsson,
þjóðháttafræðingur, Kristján
Ingólfsson, kennari, Sigurður
Blöndal, skógarvörður, Sigurður
Ö. Pálsson, skólastjóri, og Smári
Geirsson.háskólanemi. Umræður
verða milli erinda. Ráðstefnu-
stjóri er Hjörleifur Guttormsson.
Jónsmessuvaka hefst klukkan
niu og ber gesti að garði. Úr
þeirra hópi flytja ávörp: ólafur
Ragnar Grimsson, lektor,
Jakobina Sigurðardóttir, skáld,
Gunnlaugur Stefánsson, for-
maður ÆSI, og Jón Hnefill Aðal-
steinsson, fil.lic.
Þjóðlagasöngur verður siöan á
dagskrá. Þá tslandsklukkan:
Samlestur úr 3. þætti leikrits
Halldórs Laxness. Ljóöalestur.
Fjöldasöngur: Arni Björnsson og
Magnús Magnússon gefa tóninn.
Kynnir á vökunni verður Kristin
Halldórsdóttir
Almennur dansleikur verður i
vökulok. Amon Ra leikur fyrir
dansi og Ólöf Þórarinsdóttir
syngur með hljómsveitinni.
Ibúðarhús eyðilagðist í eldi
Um klukkan 17,30 I gærdag kom upp cldur i ibúðarhúsinu að Suðurlandsbraut 96, sem er timburhús.
Þegar slökkviliðið kom á staðinn var þar nokkur eldur á efri hæðinni, en þar var ekki búið, en ekki á
neðri hæðinni, þar sem ein fjölskylda bjó. Tók um tvo tima að ráða niðurlögum eldsins, en þá var húsið
orðið mikið skem.mt og er nú talið svo til ónýtt.
(Tímamynd Gunnar)
STAL ÚR VESKI
SOFANDI KONU
Klp-Reykjavik. 1 fyrrinótt komst
óboðinn gestur inn i ibúð á fyrstu
hæð i húsi einu hér i Reykjavik.
Þar inni fann hann kvenveski,
sem i voru 42 þúsund krónur og
hafði hann peningana á brott með
sér.
Konan, sem átti veskið, hafði
sett peningana i það kvöldið áður,
en hún ætlaði i bæinn um morgun-
inn og greiða af láni á ibúðinni.
Situr hún nú uppi með sárt enni og
á varla málungi matar.
Ekki er vitað.hvernig þjófurinn
komst inn i ibúðina, en málið er
nú i höndum rannsóknarlögregl-
unnar.
Lýst eftir ökumanni
RANNSÓKNARLÖGREGLAN i
Reykjavik auglýsir eftir öku-
manni dökkleitrar bifreiðar, sem
ók á hægri akrein vestur Hring-
braut föstudaginn 15. júni um kl.
17.30.
Þá varð árekstur á mótum
Hringbrautar og Laufásvegar og
mun þessi bifreið hafa verið
fyrsti bill á árekstrarstaðinn.