Tíminn - 22.06.1973, Side 10

Tíminn - 22.06.1973, Side 10
10 TÍMINN Föstudagur 22. júni 1973. SGNIS ÞETTA eru kapparnir, sem sigruöu i sölukeppni Tlmans. Til hægri er Einar Bragi Bjarnason og til vinstri Agnar Gestsson. (Timamynd: Róbert) Þeir sigruðu — og fara til „Borgarinnar við Sundið" Spassky hyggur a hefndir 1975 BORIS Spassky er ekki af baki dottinn, þótt hann lyti i lægra haldi fyrir Fischer hinum bandariska á sinum tima. Hann teflir á næstunni á hverju mótinuá fætur öðru og stefnir að nýju einvigi við Fischer árið 1975. I júlibyrjun teflir Spassky á Evrópumeistaramótinu, sem fer fram i Englandi. Þar verða saman komnir allir beztu skákmenn i Evrópu. Spassky teflir á fyrsta borði. Það sýnir, að enn hafa sovézkir ráöa- menn um skák traust á Spasský, úr þvi að hann er valinn til að tefla á fyrsta borði og þar með settur feti framar en afburðamenn eins og Petrosian, Tal, Korchnov og Karpov. Frá Englandi heldur Spassky til Amsterdam og teflir á IBM-mótinu. Siðan liggur leiðin heim til Sovétrikjanna, þar sem hann tekur þátt i mikilvægasta innanlandsskákmóti Sovét- manna sem haldiö verður við Svartahafið.Á hausti komanda teflir hann svo á bandarisku móti, sem verður undir umsjá hins kunna bandariska söngvara Bobby Darin. Með þessu móti hyggst Spassky undirbúa sig undir undanrásir heimsmeistara- keppninnar, sem hefjast á næsta ári. Að Reykjavikureinviginu loknu, kvaðst hann þess al- búinn að tefla að nýju við Fischer hvar og hvenær sem væri, en nú segir hann, að til þess muni ekki koma fyrr en 1975 enda telji ráöamenn annað óráð. „Þar að auki er ég ekki enn búinn að jafna mig og tefli þess vegna ekki eins vel og ég á vanda til”, segir hinn fyrrverandi heimsmeistari. Hann segir, að fregnir um að Fischer hafi dregið sig inn i skel sina og vilji helzt ekki tefla, komi sér ekki á óvart og telur vafalitið, að Fischer eigi við stórfellda sálræna örðug- leika að striða. Þess ber þó að geta að ummæli af þessu tagi eru likast til þáttur i þvi tauga- striði sem þeir keppinautar heyja sin á milli. A hinn bóginn kemur, að Spassky reynir ekki að leyna þvi, að honum er ekki með öllu rótt sjálfum, þótt hann telji sig betur á sig kominn en hann var fyrir heimsmeistara- einvigið i Reykjavik 1972. ,,Ég er mun frjálsari núna”, segir hann.,,Áður þurfti ég að hugsa um rússneskan skák- heiður, en núna get ég einbeitt mér að þvi að tefla. Komi til einvigis okkar á milli 1975 verður Fischer i sömu aðstöðu og ég var i Reykjavik með öllum þeim vandkvæðum sem þvi fylgja”. UM StÐUSTU mánaðarmót voru birt úrslit i sölukeppni þeirri, sem Timinn efndi til i vetur. Keppnin fólst i þvi, hver seldi mest af laugardags- og sunnu- dagsblaði Timans, og stóð keppnistimabilið frá 1. janúar siðastl til mailoka. Tveir eða tvö þau söluhæstu fengu i verð- laun flugferð til Kaupmanna- hafnar (og að sjálfsögðu heim aftur) og þriggja daga dvöl þar i borg. Er þar allt innifalið, fæði, gisting og annað. Og i för með sigurvegurunum verður leið- sögumaður frá Timanum. Hlutskarpastir urðu þeir Agnar Gestson, Langholtsvegi 60, Reykjavik, og Einar Bragi Bjarnason, Kópavogsbraut 49, Kópavogi. Þeir urðu báðir 11 ára á þessu ári. Einar átti raunar 11 ára afmæli siðastliðinn mánudag. Það var þvi skemmtileg tilviljun, að hann skyldi einmitt frá verð- launin um þetta leyti. Drengirnir fara út núna á laugardaginn, 23-júni, með flug- vél frá Loftleiðum. Brottför frá Kelavikurflugvelli er klukkan 8:50, en lagt er upp héðan frá Reykjavik klukkan hálf sjö um morguninn. Gunnlaugur Sig- valdason, gjaldkeri Timans, fer með þeim. Við ræddum við hann og báðum hann að skýra okkur frá ferðaáætluninni i aöal- atriðum. Komið verður til Kaupmanna- hafnar um eitt-leytið á laugar- dag. Þá er fyrst á dagskrá að fá sér eitthvað að borða, en siðan verður farið i skoðunarferð (sightseeing) um borgina fram eftirdegi. Um kvöldið verður svo fariö i hið heimsfræga Tivoli Kaupmannahafnar. Geta má þess, að á hverjum laugardagi er vegleg flugeldasýning um miö- nætti. A sunnudaginn fer-Gunnlaugur með þá Einar og Agnar i dýra- garðinn, þar sem þeir fá tækifæri til að sjá (og heyra) dýr hvaðan- æva að úr heiminum. Það er flestum hin mesta upplifun að koma i dýragarðinn i Kaup- mannahöfn, enda telst hann mjög góður. Segjast sumir leggja leiö slna I hann (og Tivoll) i hvert sinn, sem þeir koma til Kaup- mannahafnar. Eitthvað fleira munu þremenningarnir hafa fyrir stafni á sunnudaginn, en um kvöldiö ætla þeir að heimsækja Bakken (Dyrehavsbakken), þar sem eru ýmiss konar skemmti- staðir, dýragarður o.fl. A mánudaginn ætlar Gunn- laugur að fara með drengjunum i Sjónvarpið tekur upp 6 leikrit og leiknar kvikmyndir í sumar verzlunarhverfi Kaupmanna- hafnar, þar sem þeir fá tækifæri til að kaupa föt, minjagripi eða annað.sem þá langar aðkaupa. Þá heimsækja þeir liklega söfn og einhverja af merkustu stöðum Kaupmannahafnar. Eftir hádegi á þriðjudag halda þremenn- ingarnir siðan aftur heim til tslands. Þetta kvað Gunnlaugur áætlunina i stórum dráttum, en ef til vill yrði eitthvað brugðið út af henni. Kannski skroppið með ferjunni yfir til Sviþjóðar t.d. Seldu um 2.000 blöð „Ofsalega spenntir”. Við tókum þá Agnar og Einar tali núna i vikunni og spurðum þá, hvort þeir væru ekki spenntir fyrir ferðinni. ,,Jú, ofsalega”, sögðu þeir einum rómi. Enda þótt þeir vissu ekki mikið um Kaupmannahöfn, höfðu þeir vissulega heyrt um dýragarðinn, Tivoli og Legoland. Komst vart annað að hjá þeim, þegar þeir stöldruðu við hjá okkur. Komu úrslitin þeim á óvart? ,,Já og nei”. Auðheyrt var.aðfrá upphafi höfðu þeir verið ákveðnir i þvi að sigra. Báðir seldu þeir samtals um 2 þúsund blöð. Yfir eina helgi seldi Einar mest 275 blöð, en Agnar mest 200. Einar seldi i vesturbænum i Kópavogi og einnig niðri i Nesti og viðar, Agnar seldi við heimagötu sina, Langholtsveg, og þar i grennd- inni, en seldi einnig m.a. niðri við Sundlaugarnar i Laugardal. Á Bilasýningunni i vor seldi hann heilmikið. Agnar hefur aldrei flogið áður, en Einar hefur flogið milli Akur- eyrar og Reykjavikur. Hvorugur hefur farið til útlanda áður, og kváðust þeir raunar verða þeir fyrstu i fjölskyldum sinum til þess, eða svo til. Við spurðum þá, hvað þeir ætluðu að hafa fyrir stafni i sumar, og voru þeir ekki alveg vissi r um það. Þeir höfðu ætlað að fara i sveit, en ekki komizt. Ef til vill myndu þeir bera eitthvað út blöð. ,,Ég hugsa, að ég fari kannski á sjómeðpabba i sumar, svona nokkra túra”, segir Einar. ,,Og ætli ég skreppi ekki eitthvað upp I sveit, i kynnisferð eða svo- leiðis”, segir Agnar. Þar höfum við það. óskum við þeim félögum innilega til hamingju með sigurinn, og vonum, að þeir njóti feröarinnar til „Borgarinnar við Sundið”. vel. —Stp AÐ VENJU fer starfsfólk sjón- varpsins i fri i júlimánuði og fell- ur sjónvarp niður allan þann mánuð. Reynt verður að nota sumarið eftir föngum til að kvik- mynda leikrit og er búið að ákveða hvaða verkefni verða tek- in fyrir i sumar og i haust. Litið verður unnið að sliku i frimánuði sjónvarpsfólks og verður mest kvikmyndað og tekið upp á mynd- segulbönd i ágúst og september. N.k. mánudag verður tekið upp leikritið Hversdagsdraumur eftir Birgi Engilberts. Það verður gert I stúdiói. t ágúst er svo ráðgert að kvik- mynda verk eftir Agnar Þóröar- son, sem höfundur hefur gefið nafnið Mangi grásleppa. Er það nýtt verk og sérstaklega samið fyrir sjónvarp. Sýningartimi verðurum 75 minútur. Leikendur verða alls tiu. Þá verður tekið upp barnaleik- ritið Dýrin i Hálsaskógi, sem sýnt hefur verið i Þjóðleikhúsinu. Einnig verður gerð myndsegul- bandsupptaka af Lýsiströtu i þeirri leikgerð, sem sýnd var i Þjóðleikhúsinu s.l. vetur og fer upptakan fram á sviðinu þar. 1 september verður leikritið Vér morðingjar eftir Guðmund Kamban kvikmyndað og i sama mánuði sjónvarpsgerð af leikriti Gunnars M. Magnúss t múrnum, en það var upphaflega samið sem framhaldsleikrit fyrir útvarp og flutt þar, en sjónvarpsgerðin verður mun styttri, eða um 90 minútur. Auk þessa verða gerðar nokkr- ar fræðslukvikmyndir i sumar. Verða leikritin og kvikmyndirnar sýndar einhverntima næsta vet- Umsjón: Halldór Kristjónsson Orð af t Þjóðviljanum 7. júni er hug- leiðing, sem nefnd er vanda- máliö eilifa. Höfundur talar þar um hneykslanir manna og um- tal vegna hátternis unglinga á utiskemmtunum. Nefnir hann i þvi sambandi svokallað ung- lingavandamál, sem hann telur þó ekkert vandamál vera.,,örfá eru drukkin I raun og veru, kannski 5-10% af öllum skaranum”, segir höfundur. Og þó að tiunda hvert barn á úti- skemmtun væri ofurölvi finnst honum ekki ástæða til að hafa orð á slíku. orði Hér er önnur orðrétt til- vitnun: „Svona var þetta einnig á árunum eftir 1950, og sennilega hefur þetta alltaf veriö eitthvað svipað þessu. Mér eru i fersku minni skrif og umræður, sem urðu um ung- lingavandamáliö mikla eftir verzlunarmannahelgarnar á Hreðavatni 1950-1955. Þá varö ekki betur séð en að æska þesst lands væri gerglötuð. Nú er þetta fólk, sem þá var glataö talið komið undir fertugt, og ekki hefur annaö heyrzt en aö þaö sé, flest að minnsta kosti, hinir nýtustu þjóðfélags- þegnar”. Að visu er það ofmælt, að kyn- slóðin hafi verið talin glötuð, og margt getur borið út af áður en svo er komið. En þvi miður eru skörð i raðir þessa fólks, og sum vegna óheppilegra skemmtanahátta. Þau skörð veröa ekki fyllt. Vel má vera, að þar vanti stundum þann, sem hefði getað orðið bezti þjóð- félagsþegninn. Þvilik slys megum við aldrei sættast við, eða telja okkur trú um, að þar séu aðeins „örfáir svartir sauðir” sem einu gildi um. An þess að gera á nokkurn hátt litið úr einum aldursflokki öörum fremur, skulum við gera okkur ljóst að nú eru hér á landi hundruð barna, sem beöiö hafa varanlegt tjón á sálu sinni, vegna upplausnar og öryggis- leysis, sem langoftast stafar af drykkjuskap foreldranna, annars eöa beggja, Þó að meiri hluti hvers árgangs séu nýtir menn er það ekki nóg. Góðir menn eiga ekki að sætta sig við að nokkur góður drengur glatist vegna heimsku eða klaufa- skapar. Og meðan skemmtana- lif er siðspillandi og mannskemmandi, svo sem stundum reynist nú, er þar við að eiga raunverulegt vandamál. En þaö er ekki bundið einum aldursflokki fremur en öðrum, en engu betra fyrir þvi. En viö megum aldrei sætta okkur við mannskemmdir vegna þess, að þær hafi alltaf átt sér stað. Og við megum heldur ekki loka augum fyrir áfengisböli meö þeirri huggun, að það snerti bara svörtu sauöina.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.