Tíminn - 22.06.1973, Page 17

Tíminn - 22.06.1973, Page 17
Föstudagur 22. júni 1973. TÍMINN 17 Að kunna að meta sína menn! ÞEIR kunna sýnilega að meta sfna menn félagarnir i Golf- klúbbi Ness á Sel- tjarnarnesi. Það sönnuðu þeir i vikunni, þegar þeir fóru af stað með fjár- söfnun meðal klúbb- félaga til handa ein- um þeirra, hinum unga íslandsmeist- ara i golfi, Lofti ólafssyni, sem er i is- lenzka landsliðinu, sem keppir á t EM- mótinu i Portugal i næstu viku. En það verður i fyrsta skipti á ævinni, sem hann fer út fyrir lands- steinana. Loftur er nemandi i Mennta- skólanum i Reykjavik og hefur þvi ekki mikla peninga aflögu i svona ferðir. Það vissu félagar hans i klubbnum og fóru þvi af stað með söfnun sin á meðal. Á skömmum tima söfnuðu þeir um 30 þúsund krónum, sem þeir siðan af- hentu honum. Er ekki að efa að það hefur komið sér vel fyrir hann, enda kosta lands- liðsmennirnir i golfi að mestu leyti sjálfir þessa ferð til Portúgal, þar sem þeir ætla að keppa fyrir Islands hönd. SOS. LOFTUR ÓLAFSSON fer i fyrsta skiptið út fyrir landsteinana, þegar hann fer með landsliðinu til Portúgal. (Timamynd Róbert) ÞORBJÖRN SETTI VALLARMET Á NESVELLINUM Þegar landsliðið í golfi sigraði unglingalandsliðið 5:1 í holukeppni Þorbjörn Kjærbo, lands- liðsmaður i golfi, náði frábærum árangri i golfi á þriðjudagskvöldið, þegar landsliðið lék gegn unglingalands- liðinu á Nesvellinum. Hann setti nýtt vallar- met, fór 18 holurnar á 71 höggi, eða einu höggí yfir pari. Þetta er vallarmet á Nesvellin- um, eftir breytingarnar, sem hafa verið gerðar á honum upp á síðkastið. Loftur Ólafsson átti fyrra metið 72 högg, og hann átti einnig metið fyrir breytingu, 169 högg. Þorbjörn, sem er fyrirliði landsliðsins, stýrði liði sinu til sigurs gegn unglingunum. Keppnin var holukeppni og leiknar voru 18 holur. Landsliðið hlaut fimm stig gegn einu stigi unglingalandsliðsins. Eftirtaldir keppendur léku saman: Einar Guðnason, GR — Þórhallur Hólmgeirsson, GS 1/2 : 1/2. Þorbjörn Kjærbo, GS — Hannes Þorsteinsson, GL 1:0 Jóhann Ó. Guðmundsson, GR — Ragnar Ólafsson, GR 1:0 Thomar Holton NK — Ólafur Skúlason GR 1:0 Loftur ólafsson, NK — Sigurður Thorarensen, GK 1:0 Óttar Yngvason, GR — Óskar Sæmundsson, GR 1/2 : 1/2 Thomas Holton lék fyrir Björg- vin Þorsteinsson, Akureyri, sem komst ekki suður að keppa. Björgvin varðstúdent frá MA nú fyrir stuttu. „Við reynum að troða okkur upp / pr i miorioil . . . SÆMILEG HÆÐ...Þorbjörn Kjærbo, horfir á keppninni við unglinganna. eftir litla boltanum f (Timamynd Róbert) — sagði Einar Guðnason, landsliðsmaður í golfi, semkeppir ó Evrópumótinu í Portúgal ,,Við reynum að troða okkur upp i miðriðiL” sagði Einar Guðnason, landsliðsmaður i gilfi, þegar iþróttasiðan hafði samband við hann og spurði hann um Evrdpu- keppnina i golfi. En is- lenzka landsliðið tekur nú i fyrsta skiptið þátt i Evrópukeppninni < sem fer fram i Portúgal dag- ana 28. júni til 1. júli n.k. íslenzka liðið heldur utan i fyrramálið áleiðis til Portúgal, með milli- lendingu i London. Einar sagði,að keppnin myndi hefjast um morguninn 28. júni á mjög góðum golfvelli i Penina. Þá yrðu leikinn 18 hölu höggleikur. 18 þjóðir af 20, sem eru i Evrópu- sambandinu, taka þátt i mótinu. Sex keppendur frá þessum þjóð- um taka þátt i höggleiknum og árangur fimm beztu verður reiknaður saman og siðan raðað i riðla eftirhonum. I A-riðli keppa átta þjóðir, í B-riðli keppa sex þjóðir og i C-riðli fjórar þjóðir. Keppnin i riðlunum hefst svo á föstudaginn, með keppni i fjór- leik. Þá keppa tveir og tveir saman,eða fjórir frá hverri þjóð — tveir keppendur sitja hjá) keppt verður þannig, að þeir tveir keppendur, sem leika saman, slá annað hvort högg. A laugar- daginn og sunnudaginn (30. júni og 1. júli) verður svo keppt i höggleik 36 holur hvern dag. 18 fyrir hádegi og 18 eftir hádegi. Fimm keppendur frá hverri þjóð keppa þá (einn situr hjá). Islenzka landsliðið er skipað þessum mönnum: Einar Guðna- son, Þorbjörn Kjærbo, fyrirliði, Loftur Ólafsson, Björgvin Þor- steinsson, Óttar Yngvason og Jó- hann ó. Guðmundsson. Einar sagði, að landsliðs- mennirnir sjálfir hefðu safnað nær öllum peningunum sjálfir, sem þyrfti til að komast i keppnina. Þeir hafa aðeins fengið 5 þús. krónur á mann frá Golf- sambandinu, en farseðillinn kostar 44 þús. krónur. Landsliðs- mennirnir hafa eytt miklum tima i fjáröflun og hafa þvi ekki getað æft sem skyldi. Liðið hefur komið saman 12 sinnum, sl. tvo og hálfan mánuð, og æft þá i 5 tima i einu. „Andinn er mjög góður hjá liðinu,” sagði Einar og viðmun- um gera okkar bezta. Þegar við verðum komnir til Penima i 25 stiga hita, verðum við mjúkir og góðir, og við reynum að troða okkur upp i miðriðil.,” sagði Einar að lokum. SOS. KINAR GUI)NASON...er hér að slá með trékylfu á I. brautinni i Nes- vellinum. (Timamynd Róbert)

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.