Tíminn - 30.06.1973, Blaðsíða 1
IGNIS
FRYSTIKISTUR
RAFIÐJAN SIMI: 19194
Hálfnað
erverk
þá hafið er
^„1
sparnaður
skapar
verðmæti
Samvinnubankinn
Skotið
að
þýzkum
togara
VAHÐSKIPIÐ Albert hrakti i
fyrrinótt vestur-þýzkan land-
helgisbrjót út fyrir 50
milurnar og sá þýzki lét sig
ekki, fyrr en skotið var föstu
skoti við stefni hans.
í fyrradag komu kvartanir
til Landheigisgæzlunnar um
að vestur-þýzkur togari væri
að veiðum innan um islenzka
fiskibáta grunnt á Eideyjar-
banka. Flugvél frá Gæzlunni
flaug yfir svæðið og fann
togarann.Varðskipið Albert
fór þegar á vettvang og um
nóttina kom varðskipið að
togaranum Tunfich BX-663.
Togarinn þrjózknaðist við að
yfirgefa svæðið og skaut varð-
skipið púðurskoti tii
aðvörunarog létu togaramenn
það ekki á sig fá og var þá
skotið kúlu framan við stefni
togarans, héit þá togarinn á
haf út og fór út fyrir fiskveiði-
mörkin.
Ekki var gerð tilraun til að
taka togarann. Skipherra á
Albert er Sigurjón
Hannesson.
Skemmdir
á 600 m
kafla
SAMKVÆMT könnun, sem gerð
hefur verið á skemmdum á raf-
strengnum milli lands og eyja,
hefur komið i ljós að nauðsynlegt
verður að skipta um streng á sex
hundruð metra kafla. Hefur
hraun lagzt á strenginn á þessum
stað, sem er inni i sjálfri Vest-
mannaeyjahöfn.
Búizt er við, að þessari endur-
bót verði lokið um miðjan ágúst
og verður þá unnt að flytja 12-1500
kílówött til Eyja um strenginn.
Fyrir er i Eyjum rafstöð, sem
framleitt getur 500 kw, en talið er
að þegar á þessu hausti verði
raforkuþörfin orðin 3500 kw.
Verður þvi nauðsynlegt að flytja
diselrafstöðvar til Eyja, sem
framleitt geta það rafmagn sem
upp á vantar. — gj.
Fyrsti íslenzki
skuttogarinn
sjósettur í dag
ÓV-Reykjavik: — Klukkan 18 I
dag, laugardag verður hleypt af
stokkunum fyrsta skuttogar-
anum, sem smiðaður hcfur verið
hérlendis. Skuttogarinn er smfð-
aður af Stálvik h/f i Garðahreppi
fyrir Þormóð ramma h/f ásiglu
firði. Togarinn verður dreginn i
kvöld að bryggju i Hafnarfirði,
þar sem lokið verður við frágang
innréttinga ofl. Búist er við að
skipið verði tilbúið til veiða i
byrjun ágúst.
Togarinn, sem enn hefur ekki
veriðgefið nafn, er um það bil 400
lestir, 46,5 metra langur, knúinn
1750 hestafla Wichmann aðalvel
en að auki eru i honum tvær 230
K.V.A. Caterpillar ljósavélar, 300
hestafla þilfarsvinda frá
Brussella i Belgiu og að sjálf-
sögðu fullkomin siglinga- og fiski-
leitartæki.
í brú eru tvær ratsjár af
Raytheon gerð með 64 sjómilna
langdrægi. Tveir dýptarmælar af
Atlas-gerð, annar 470 en hinn 780
með fisksjá og botnstækkun.
Asdic er af gerðinni Simrad SK 3
ásamt flotvörpusjá af gerðinni
FL2. Auk þess eru önnur tæki,
sem eru talin nauðsynleg i
skipum af þessari tegund.
Fiskilest er 17 metrar að lengd,
325 rúmmetrar, og er aftari hluti
hennar gerður fyrir stöflun fiski-
kassa, en röskur þriðjungur er
innréttaður fyrir isun fiskjar i
stiur. Lestin er kæld með röra-
kerfi i lofti og á að halda hitastigi
við frostmark. Ýmsar
einangranir eru og i fiskilest og
liggur færiband eftir henni
endilangri.
1 skipinu er Finsamisvél, sem
framleiðir 6 tonn af is á dag, og
flytja isflutningstækin — einnig
Finsamisinn i slöngum þangað,
sem hann er notaður. Fiskmót-
taka er af fullkomnustu gerð.
Samningur um smiði skipsins
var undirritaður 16. september
1971 og siðan samþykktur i des-
ember sama ár. Upphaflegur
samningur hljóðaði upp á 102.6
milljónir króna en búist er við að
endanlegur kostnaður nemi allt
að 160 milljónum.
Skipstjóri á hinum nýja Siglu-
fjarðartogara verður Hjalti
Björnsson.
1 næsta mánuði verður lagður
kjölur að næsta togara, sem er af
sömu gerð, fyrir Guðmund
Runólfsson, o.fl. i Grundarfiröi.
Þokaðist
í áttina
Aftur fundur
í ágúst
Viðræðunefndir isiands og
Sambandslýðvcldisins Þýzka-
lands héldu tvo fundi i dag og
ræddu um hagkvæmt bráða-
birgðasamkomulag til lausnar
þeim vandamálum, sem leiða
af útfærslu fiskveiðilög-
sögunnar við tsland. Skipzt
var á skoöunum af hreinskilni
um öll þau atriði, sem aöilar
töldu máli skipta og áiitu þeir
að fundirnir heföu verið
gagnlegir.
Málin þokuðust nokkuð
áfram i ýrnsum atriðum.
Nánari athugun mun fara
fram af beggja hálfu í ljósi
þcirra viðræðna, scm nú hafa
farið fram.
Framhald viðræðnanna er
ráðgert seinni hluta ágúst-
mánaðar og verður ákvörðun
siöar tekin um stað og tima.
Myndin var tekin er fundur
hófst I gærmorgun.
Timamynd GE.
Gerðu út d saltfisk í sendibfl
Willy Brandt
til íslands
Stálu a.m.k. ótonnum og seldu fisksölum
— Við sáum i blöðunum að salt-
fiskur væri ófáanlegur i verzl-
unum og færi öll framleiðslan til
útflutnings og væri verðið mjög
hátt. Þarna vantaði fram-
kvæmdamenn til að bæta úr
brýnni þörf og þess vegna fórum
við að útvega fisksölum saltfisk.
Þetta er viðbára tveggja náunga,
sem nú sitja i gæzluvarðhaldi
fyrir að hafa stolið að minnsta
kosti sex tonnum af fullverkuðum
saltfiski og selt i fiskbúðir. Ekki
eru öll kurl komin til grafar enn
og má vera að magnið sé miklu
meira. Saltfiskinum stáiu þeir i
Sandgerði, Eyrarbakka og
Stokkseyri og jafnvel á fleiri
stöðum. 1 ljós er komið að þeir
hafa brotist inn i fiskgeymslur og
stálu þaðan saltfiskpökkum, sem
voru tilbúnir til útflutnings.
Ferðuðust mennirnir um á sendi-
ferðabil og fluttu þýfið i honum til
Reykjavikur og fleiri staða i
nágrenninu og seldu. Segja þeir
að fiskurinn hafi runnið út eins og
heitar lummur enda fágæti að ná i
slikan mat. Fisksölunum gáfu þeir
ýmsar skýringar á hvernig þeir
komust yfir matvælin og vissu
þeir ekki að hann væri stolinn.
Saltfiskinn seldu þjófarnir á 40
til 50 kr. hvert kiló. Framleið-
endur fá 90 kr. til útflutnings. 1
vor var verð á saltfiski út úr
fiskbúð 80 kr. kg. en er nú 107 kr.
Þrir menn voru handteknir og
úrskurðaðir i gæzluvarðhald en
einum var fljótlega sleppt og
virðist hann ekki eiga stóra hlut-
deild i útveginum en tveir sitja
inni og leikur grunur á að magnið,
sem þeir stálu sé miklu meira en
komið er i ljós. Þeir, sem inni
sitja.eru báðir búsettir i Reykja-
vik og hafa litt komið við sögu
lögreglunnar áður.
Willy Brandt kanslari
Vestur-Þýzkaland er væntan-
legur til islands i ágúst-
mánuði. Dr. Apei aðstoðar-
utanrikisráöherra, skýrði
islenzkum ráðherrum frá
þessu i kvöldverðarboöi i gær-
kvöldi. Hér mun hann hafa
viðdvöl i einn dag og ræða við
islenzka ráðherra.
Kanslarinn fer i nokkurra
daga sumarfri til Grænlands
og kemur við hér i leiðinni.
Þetta kom fram þegar blaða-
mður Timans ræddi við
vestur-þýzku þingkonuna
Huber, sem er formaöur þing-
inannanefudar, sem verið
hefur hér i boði Alþingis.
Einar Agústsson, utanrikis-
ráðherra, sagði i gærkvöldi,
að henn hefði ekki vitað um
hcimsókn kanslarans fyrr en f
gærkvöldi. En hann fagnaði
■iomu hans og þvi tækifæri,
>em þá gefst til viöræðna.
Dr. Apel sagöist vera
bjartsýnn á, að samningar
mundu takast i deilu tslend-
inga og Vestur-Þjóðvcrja, þótt
viðræðurnar i gær leiddu ekki
til endanlegra samninga og
enn beri nokkuö á milli, en
viðræðunum verði haldið
áfram i ágústirjánuði. H.H.J.
OÓ