Tíminn - 30.06.1973, Síða 2

Tíminn - 30.06.1973, Síða 2
2 TÍMINN Laugardagur 30. júni 1973. KSÍ - KRR íslandsmót NJARÐVÍKURVÖLLUR I dag kl. 15 leika ÍBV—ÍBA Komið og sjáið spennandi leik ÍBV LAUGARDALSVOLLUR AAánudagskvöld kl. 20 leika KR - Breiðablik KR Kennarar Kennara vantar að Gagnfræðaskóla Borgarness. Aðalkennslugreinar: stærðfræði og eðlis- fræði. Upplýsingar gefur skólastjórinn Sigurþór Halldórsson, simi 7197 og 7183. Skólanefnd. Framkvæmda stjóri Ungmennasamband Kjalarnesþings óskar að ráða framkvæmdastjóra frá 1. ágúst að telja. Nánari upplýsingar gefa skrifstofa UMFÍ s. 12546 og Sigurður Skarphéðinsson s. 86500 eða 66322. Umsókn er greini aldur menntun og fyrri störf sendist skrifstofu UMSK Klappar- stig 16, fyrir 15. júli n.k. Ungmennasamband Kjalarnesþings. Fró Egilsstaðaskóla Landsprófsdeild miðskóla verður starf- rækt við Egilsstaðaskóla skóiaár 1973-74. Umsóknir um skólavist ásamt staðfestum afritum unglingaprófsskirteina sendist undirrituðum fyrir 1. ágúst næst komandi. Skólastjóri. Bahaíar um land allt Dr. Múhajir Höndmálstaður Guðs verður i Haziratúl-Qúds Óðinsgötu 20, miðviku- dagskvöld 4. júli kl. 8,30, til að ræða við vinina. Andleg þjóðráð, Bahaiar á íslandi. nmHmnmtmmutTimmntmi Sérleyfis- oq Reykjavik — I.aufiarvatn — Geysir — Gullfoss i 1 x’t »• um Grimsnes, Biskupstungur, Laugardal Skemmtlteroir a|]a daga — engin fri við akstur BSÍ — Simi 22-300 — Ólafur Ketilsson tltttAlÍAlllilllillitilliilllllllltÍÍlH Myndu mörg lítil varðskip henta betur? ALKUNNA er hver not urðu að hvalbátnum Tý við landhelgis- gæzluna á s.l. vetri, og þegar á þetta er minnt, er ekki úr vegi að minna á, að þetta kom hvað ber- legast fram hjá brezku togara- körlunum á miðunum, sem urðu æstir og bölvuðu jafnvel hressi- legar en nokkurn tima fyrr, þegar þeir urðu þess varir, að „bloody Moby Dick”, sem þeir svo kölluðu, var kominn i námunda við þá. Þá er ekki siður alkunna hver vandkvæði eru á, að verja stækkaða landhelgi við þær að- stæður, sem nú eru, hvað þá ef hún yrði enn færð út siðar meir, enda er þetta eitt mesta vanda- mál, sem valdamenn og aðrir ráðamenn eiga við að glima. Hafa IGNIS ÞVOTTAVÉLAR RAFIOJAN — VESTURGOTU 11 19294 RAFTORG V/AUSTURVÖLL 26660 ber i huga, að vörn land- helginnar verður ævarandi vandamál, og enginn Islendingur mun fara i grafgötur um, þótt eitthvert samkomulag næðist á þeim grundvelli, að erlendir togarar fengju undanþáguleyfi til að veiða í „hólfum,” að eftirlits varðskipa verður þörf eftir sem áður, sennilega aukins. Hver treystir þvi að harðskeyttir og ófyrirleitnir veiðiþjófar bregði gömlum vana, að veiða ólöglega, er færi gefst? Og nú spyr ég, einn hinna al- mennu borgara i landinu, vitan- lega ófróður um margt, sem þessi mál varðar: ( Er það rétt stefna, að smiða æ fleiri feikna dýr varðskip, i stað þess að taka til notkunar mörg varðskip, litil en traust, hrað- skreið, svipaðrar stærðar og Týr er, eins vel búinn og hann var, helzt betur, til gæzlunnar? Ættu tslendingar allt að 20 slik varð- skip myndum við þá eigi standa stórum betur að vigi? Takmarkið hlýtur að vera, að ólögleg togaraveiði innan stækkaðrar landhelgi, verði æ áhættusamari. Þvi spyr ég þá, sem með völdin fara, yfirmenn og ráðunauta Landhelgisgæzlunnar, skip- herrana á varðskipunum og alla þá vösku menn, sem á þeim eru, hvort það væri hyggileg stefna, sem að ofan er að vikið? Loks aðeins eitt atriði: Smiði nýrra varðskipa á borð við Ægi tekur langan tima, en ofannefnd stefna virðist bjóða upp á tiltölu- lega skjóta úrlausn,:. og mætti þá ekki byrja a þvi að semja um notkun islenzku hvalveiðibátanna til landhelgisgæzlu yfir veturinn, frá lokum vertiðarinnar i haust? A. Th. Lítið bréfkorn vegna mikils tilefnis Loftur Bjarnason, útgerðar- maður ásamt miklu fleira, er tal- inn óverðugur Stórriddarakross þess, sem hann hlaut fyrir út- gerðarstörf þann 17. júni s.l. Þar eð enginn manna eða kvenna, sem standa honum mjög nærri, og þekkja hans stórkost- legu störf að útvegsmálum, sem eru svo einstæð og rekin af slikri víðsýni og frábærri tillitssemi við allar aðstæður, auk þess, sem hann aðstoðar við uppeldi á mjög þörfum einstaklingum, hafa mót- mælt þessu, — þá víti ég svona þvaður, sem um hann er sagt i dagblaðinu Timanum, þann 19. júni s.l. Meira að segja hafa margir fengið fálkaorðuna fyrir minni störf i þjóðfélaginu utan þeirra, sem tilteknir voru, heldur en Loftur Bjarnason, þótt þeir eða þær hafi ekki stundað störf með þeirri fádæma elju og samvisku- semi sem hann, allt til 75 ára aldurs. Hvalstöðin er aðeins eitt af stórvirkjum hans. An þess að kasta skugga á nokkurn orðuþega 17. júni s.l. þá er það min skoðum, að annar stórriddarakrossinn hafi að minnsta kosti lent á rétt- um stað. Markús Guðmundsson, skipstjóri Laugarásvegi 17. Leyfilegar fjarlægðir milli háspennulina og annarra mannvirkja „Hvaða reglur gilda um byggingar og mannvirkjagerð i námunda háspennulina? Fer það eftir hæð linanna og lengd milli mastra hvað nærri má byggja? Hvað má eftir núverandi regl- um byggja t.d. hús nærri Búr- fellslfnu 2?” Stefán Guðmundsson Túni Hjá Skipulagsstjóra, Borgar- túni 7, Reykjavik fengum við eftirfarandi upplýsingar: „Ef háspennulína og mann- virki það, sem um er að ræða, (vegur, hús eða annað) standa á jafnsléttu eða þvf sem næst, eða Tafla 1 Hús eðo onnoð monnv/rki a b 1 m 12 m 2 _ 14 - 3 - 16 - 4 - 18 - 5 - 20 - ef háspennulinan stendur lægra en mannvirkið, má fjarlægðin milli mannvirkisins og næsta virs háspennulinunnar fara nið- ur i 10 m, án þess að stytta þurfi staurabil. Standi háspennulinan hærra en mannvirkið, eykst þessi lágmarksfjarlægð um tvo metra fyrir hvern metra, sem háspennulinan stendur hærrá en mannvirkið, sjá uppdrátt og töflu I. ? Háspennulino 7- Tafla 2 b M& minnka j meó þvt aó $tytta niður i ' staurabil um 12 m 11 m ! 20% 10 - ! 50% 14 - 12 - 1 20% 10 - 1 50% 16 - 14 - 20% 12 - i 50% 18 - 17 - 20% 15 - 50% 20 - 18 - | 20% 15 - I 50% Fjarlægðina b milli mann- virkis og háspennulínu má hafa minni en segir i töflu 1, ef meðal staurabil hlutaðeigandi linu er sytt samkvæmt þvi, er tafla 2 segir til um, enda skal vera að minnsta kosti 20 m fjarlægð frá mannvirkinu til beggja handa út fyrir hin styttu staurabil. Það, sem skráð er hér að framan um fjarlægð milli há- spennulinu og annarra mann- virkja, er miðað við það, að hæsti vir linunnar sé ekki yfir 8,5 m frá jörðu i festipunktum. Sé um að ræða meiri linuhæð, skal auka fjarlægðina um það, er þeim mismun nemur. Séu einhverjar þær aðstæður fyrir hendi, að fjarlægðir þær milli háspennulinu og annarra mannvirkja, sem um getur hér að framan, nægi ekki, aðdómi Rafmagnseftirlits rikisins, get- ur það fyrirskipað meiri fjar- lægðir eða aðrar tilsvarandi ráðstafanir.” Þeir sem hafa spurningar fram að færa, hringi I sima 18300 kl. 2-3 mánudaga til föstudaga. Nafn og heimilis- fang þarf að fylgja spurning- unum. (I sumum tilfellum reynist ekki unnt að afla svara við spurningum og er fólk beðið að taka tillit til þess, að leitast er við eftir megni að fá viðkom- andi aðila til að leysa úr þvi, sem spurt er um.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.