Fréttablaðið - 06.09.2004, Qupperneq 6
6 6. september 2004 MÁNUDAGUR
Friðarviðræður milli Indlands og Pakistans:
Rætt um framtíð Kashmír
INDLAND, AP Utanríkisráðherrar
Indlands og Pakistans komu
saman í Nýju-Delí, höfuðborg
Indlands, í gær til að hefja frið-
arviðræður á milli landanna
tveggja. Aðalumræðuefni friðar-
viðræðnanna er framtíð
Kashmír sem bæði löndin gera
kröfu til.
Ríkisstjórn Pakistans neitar
ásökunum um að þeir sjái upp-
reisnarmönnum í Kashmír fyrir
vopnum og þjálfi þá hernaðar-
lega en saka Indverja um að
fremja mannréttindabrot í hér-
aðinu. Löndin tvö hafa deilt um
Kashmír allt frá því að Indland
og Pakistan fengu sjálfstæði frá
Bretum árið 1947 og stjórnvöld í
Kashmír ákváðu að gerast hluti
af Indlandi í staðinn fyrir hern-
aðarlega aðstoð. Deilurnar hafa
síðan þá tvisvar leitt til hernað-
arátaka á milli kjarnorkuveld-
anna.
Forsætisráðherra Indlands,
Manmohan Singh, sagði að land
sitt vildi frið og óttaðist ekki að
ræða um framtíð Kashmír, en
hann teldi ekki að þetta væri
eina deiluefni ríkjanna.
Utanríkisráðherra Pakistan,
Khursheed Kasuri, sagði á laug-
ardaginn að mikilvægt væri að
löndin tvö sammæltust um tíma-
áætlanir sem leystu Kashmír-
deiluna, þar sem ástandið hefði
áhrif á framtíð allrar Suður-Asíu.
Auk viðræðna um Kashmír er
áætlað að ráðherrarnir tveir
ræði um hvernig draga megi úr
kröfum um vegabréfsáritanir til
að auðvelda ferðalög á milli land-
anna fyrir verslun, fjölskyldu-
heimsóknir og pílagrímaferðir.
Mótmæli hófust í Kashmír á
laugardaginn til að krefjast
sjálfstæðis héraðsins. ■
Segir þörf á opinberri
rannsókn á Línu.Neti
Guðlaugur Þór Þórðarson segir að eitthvað meira en vanhæfni hafi legið á bak við
250 milljóna fjárfestingu Línu.Nets í Irju árið 2000. Hann segir að alls staðar annars
staðar yrðu kaupin tilefni opinberrar rannsóknar.
LÍNA.NET Guðlaugur Þór Þórðar-
son, borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins, segir að eðlilegast sé
að opinber rannsókn fari fram á
vissum þáttum í fjarskipta-
rekstri Reykjavíkurborgar.
Nefnir hann sérstaklega kaup
Línu.Nets á Irju.
Lína.Net keypti Irju á 250
milljónir í mars árið 2000. Guð-
laugur segir að þá hafi verið ljóst
að Irja væri verðlaust fyrirtæki
og að í raun hafi þurft að borga
með því.
„Það hefur enginn útskýrt það
eða komið með neinar haldbærar
skýringar, hvorki þá eða í fram-
haldinu, hvernig í ósköpunum
mönnum dettur þetta í hug. Það
er ekki hægt að útskýra þetta
með einhverri hefðbundinni van-
hæfni,“ segir Guðlagur Þór.
Hann segist efast um að
ástæða kaupanna hafi verið van-
hæfni. „Ég ber það mikla virð-
ingu fyrir fólkinu í R-listanum að
ég á mjög erfitt með að trúa því
að það hafi verið hrein og klár
vanhæfni að kaupa fyrirtæki
sem var einskis virði og í raun-
inni var ljóst að það þurfti að
borga með því. Það að kaupa það
á 250 milljónir er eitthvað sem er
rannsóknarefni og í öllum öðrum
löndum og stöðum væri farið út í
opinbera rannsókn á þessu,“ seg-
ir Guðlaugur Þór.
Lína.Net er fyrirtæki sem er
að mestu í eigu Orkuveitu
Reykjavíkur. Búið er að ákveða
að selja félagið til Og Vodafone
og samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins greiðir Orkuveitan
meira en fjögur hundruð milljón-
ir með félaginu gegn því að halda
eftir ljósleiðaranetinu sem byggt
hefur verið upp í Reykjavík.
„Ég gleðst ekki yfir því hvern-
ig komið er fyrir Línu.Neti. Þetta
eru afskaplega slæmar fréttir
fyrir skattgreiðendur í Reykja-
vík og það er augljóst að menn
eru búnir að gefast upp á að
halda úti þessari starfsemi en
kostnaðurinn við þetta ævintýri
hefur verið gríðarlegur og því
miður er þetta ekki búið,“ segir
Guðlaugur Þór.
Að sögn Guðlaugs hefur ekk-
ert staðist af því sem forsvars-
menn Reykjavíkurlistans lögðu
upp með þegar hugmyndir um
stofnun Línu.Nets voru fyrst
kynntar.
Að sögn Guðlaugs Þórs hefur
fulltrúum Sjálfstæðisflokks í
borgarstjórn gengið illa að fá upp-
lýsingar um rekstur Línu.Nets og
annarra fjarskiptafyrirtækja sem
borgin hefur stofnað. Hann segir
að sér virðist að ekki sé vilji hjá
Reykjavíkurlistanum til að rann-
saka málið og læra af því sem úr-
skeiðis hafi farið.
thkjart@frettabladid.is
KHURSHEED KASURI OG
NATWAR SINGH
Utanríkisráðherrar Pakistans og Indlands
hittust í gær til að ræða um friðsamlegri
tengsl á milli landanna tveggja.
GUÐLAUGUR ÞÓR ÞÓRÐARSON
Telur að sumt í rekstri fjarskiptafyrirtækja
Reykjavíkurborgar hefði útheimt opinbera
rannsókn víðast hvar annars staðar. Sérstak-
lega ámælisverð telur hann kaup Línu.Nets
á fjarskiptafyrirtækinu Irju árið 2000.
VEISTU SVARIÐ?
1Hvað heitir búlgarski fótboltamaður-inn sem skoraði tvö mörk gegn ís-
lenska landsliðinu?
2Hvaða safn opnaði Davíð Oddssonvið hátíðlega athöfn um helgina?
3Hvenær á að klára göngin milli Reyð-arfjarðar og Fáskrúðsfjarðar?
Svörin eru á bls. 34
HAUSTNÁMSKEIÐIN
HEFJAST 13. SEPTEMBER
Faxaból 11.Víðidal • Sími 822 2225
Svíi stórundrandi vegna
stöðumælasektar:
Snjósleða
lagt ólöglega
STOKKHÓLMUR, AP Svíi nokkur er
sagður stórundrandi vegna
stöðumælasektar sem honum
var gefin í Bretlandi.
Því er haldið fram að hann
hafi lagt snjósleða sínum ólög-
lega í bænum Warwick í Mið-
Englandi í þrjár klukkustundir í
sumar.
Sektin hljóðar upp á um tíu
þúsund íslenskar krónur en
Svínn heldur því fram að hvorki
hann né snjósleðinn hafi komið
til bæjarins.
Svíinn býr á sveitabæ í Boll-
starbruk 330 kílómetra norður af
Stokkhólmi og segir að snjósleð-
inn sé geymdur í hlöðunni heima
hjá sér. Allar upplýsingar á sekt-
inni eru réttar, svo sem gerð og
skráningarnúmer sænska snjó-
sleðans. ■
Morðið á ritstjóra
í Svartfjallalandi:
Tveggja
manna leitað
SVARTFJALLALAND, AP Lögreglan í
Svartfjallalandi leitar nú tveggja
manna grunaða um að hafa átt
þátt í morðinu á ritstjóra dag-
blaðs í Svartfjallalandi, sem
myrtur var í maí.
Fyrr á árinu handtók lögregl-
an einn mann og leitar nú tvegg-
ja nafngreindra manna. Ritstjór-
inn var skotinn til bana fyrir
utan skrifstofu sína í höfuðborg-
inni Podgorica.
Morðið vakti mikinn óhug
vegna tengsla ritstjórans við
stjórnarandstöðu landsins og
gagnrýni hans á forsætisráð-
herra landsins, Milo Djuka-
novic. ■
M
YN
D
A
P