Fréttablaðið - 06.09.2004, Blaðsíða 47
MÁNUDAGUR 6. september 2004
MERKISATBURÐIR 06.09.
490 f.kr Maraþonbardaginn fer fram
milli persneska hersins og hers
Aþenu.
1948 Norður-Kórea verður Alþýðu-
lýðveldið Kórea.
1976 Kínverski kommúnistaleiðtog-
inn Mao Tse-tung deyr, 82 ára.
1993 Leiðtogar Ísraels og PLO sam-
þykkja að viðurkenna tilvist
hvor annars.
1993 Fyrrverandi forseti Fillipseyja,
Ferdinand Marcos er grafinn í
heimalandi sínu, fjórum árum
eftir dauða hans í útlegð.
1997 Sinn Fein, pólitískur armur IRA,
hafnar formlega notkun ofbeld-
is í friðarviðræðum um framtíð
Norður-Írlands.
1998 Fjórir túristar, sem höfðu hver
greitt 32.500 dali fyrir ferðina,
fóru í kafbát til að skoða flak
Titanic.
1999 Að minnsta kosti 93 láta lífið
þegar sprengja springur í
íbúðablokk í Moskvu.
MARGRÉT PÁLA VALDIMARSDÓTTIR
Er blaðberi Fréttablaðsins þessa vikuna.
Hún er búin að bera blaðið út í rúm tvö ár.
Henni finnst skemmtilegast að vera með
vinum sínum.
Hvað heitir blaðberinn?
Margrét Pála Valdimarsdóttir.
Hvað ertu búin að bera
út lengi?
Í rúmlega 2 ár.
Hvað ertu með
í vasanum?
GSM-síma.
Hvað finnst þér
skemmtilegast að gera?
Vera með vinum mínum.
Hvert er þitt mottó?
Að lifa lífinu lifandi.
BLAÐBERINN
LÍNA LANGSOKKUR Sterkasta stelpa í
heimi mætti aftur í Borgarleikhúsið eftir
sumarfrí í gær en á hana fjölmenntu
krakkar sem unnu til verðlauna í teikni-
myndasamkeppni Borgarleikhússins. Inn-
sendar myndir eru til sýnis á göngum leik-
hússins þessa dagana.