Fréttablaðið - 06.09.2004, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 06.09.2004, Blaðsíða 10
10 15. júlí 2004 ÞRIÐJUDAGUR FUNDARSALUR SKOÐAÐUR Blaðamenn skoða fundarsal framkvæmda- stjórnar Evrópusambandsins í nýjum höfuðstöðvum þess í Brussel. Húsið nefn- ist Berlaymont og verður tekið í notkun fyrsta nóvember. Poppstjarnan Michael Jackson: Viðurkennir mútur BANDARÍKIN, AP Poppstjarnan Mich- ael Jackson hefur viðurkennt að hafa á árum áður borgað einstak- lingum sem hótuðu honum mál- sókn, til þess eins að losna við vandræðagang. Þetta viðurkenndi Jackson nokkrum klukkustundum áður en skýrsla var opinberuð þar sem fram kom að hann hefði borg- að fyrrverandi starfsmanni sínum tvær milljónir dala árið 1990 til að koma í veg fyrir ákæru fyrir mis- notkun á syni starfsmannsins. Jackson sagði að með þessu hefði hann vilja bregðast við ósannindum og mögulegum æs- ingaskrifum fjölmiðla. Hann bætti við að hann væri viðkvæmt skotmark þeirra sem sækjast eft- ir peningum, en að hann mundi aldrei í lífinu gera börnum grikk á nokkurn hátt. Árið 1993 greiddi poppgoðið ungum dreng sem hótað hafði málshöfðun á hendur honum 20 milljónir Bandaríkjadala. Réttar- höld hefjast yfir Michael Jackson í Kaliforníu í janúar. Hann hefur lýst sig saklausan af tíu ákærum um kynferðislega misnotkun á börnum. ■ Borga fyrir að láta verði öskra á sig Ferðamenn eru farnir að borga fyrir næturvist í gömlu sovésku fangelsi þar sem verðir öskra á þá og setja ferðamennina í einangrun ef þeir haga sér ekki vel. Kaldir og rakir fangaklefar virðast heilla. LETTLAND, AP Lettar eru nú farnir að borga fyrir að fá sömu meðferð og fólk hefði áður fyrr greitt háar upphæðir til að sleppa við, nefni- lega að kynnast vistinni í ill- ræmdu fangelsi frá þeim tímum þegar Sovétmenn réðu lögum og lofum í Lettlandi. Karosta var upphaflega byggt sem hersjúkrahús í byrjun 20. ald- arinnar. Sjúkrahúsinu var hins veg- ar fljótlega breytt í fangelsi og þjónaði sem slíkt hvort tveggja þýska hersetulið- inu sem var í Lett- landi 1941 til 1944 og Sovétmönnum sem réðu Eystra- saltsríkjunum þar til fyrir rúmum áratug. Vistin í fangelsinu gat verið erfið. Fangaverðirnir voru harð- hentir og aðstæður slæmar. Þeir sem nú borga andvirði um 700 króna fyrir að verja nóttinni í fangelsinu gamla eru læstir inni í fangaklefum þar sem fólk þarf að vera á stöðugri hreyfingu til að halda á sér hita enda klefarnir kaldir og rakir. Þarfir sínar gerir fólk í holu í jörðinni. Fletin sem fólk sefur á eru harðir tréplankar og helsti félagsskapurinn er flær. „Þetta gefur manni færi á að kynnast fortíðinni og sjá hvað fór fram hérna,“ sagði Martins Jaungailis, tvítugur framhalds- skólanemi sem borgaði fyrir eigin fangelsisvist. Áhugasamir geta valið á milli stuttrar kynnisferðar og þess að verja nóttinni í fangelsinu. Þeir sem verja nóttinni í fangelsinu mega líka eiga von á því að vera sendir í einangrun ef þeir þykja ekki nógu hlýðnir. Allir verða þeir að sætta sig við að hlýða skipun- um sem verðirnir öskra á þá. Enduropnun Karosta sem ferðamannastaðar kemur í kjölfar þess að áratugalangt hernám Sov- étríkjanna er orðið Lettum létt- bærara. Samtök sem eru skamm- stöfuð KGB á lettnesku, eins og gamla leynilögregla Sovétríkj- anna, standa að verkefninu og er markmið þeirra að viðhalda hús- inu og minningunni um það sem þar átti sér stað. ■ SAKLAUS EÐA SEKUR? Michael Jackson segist aldrei munu skaða börn og hefur lýst sig saklausan af tíu ákærum um barnamisnotkun. Réttarhöld fara fram í janúar. ,,Þarfir sínar gerir fólk í holu í jörðinni. Sjúkrahúsið á Akranesi: Sértekjur hækka AKRANES Rekstur Sjúkrahússins og heilsugæslustöðvarinnar á Akra- nesi var jákvæður um 2,4 prósent á fyrstu sex mánuðum ársins. Sértekjur sjúkrahússins hækk- uðu um 6,6 prósent á milli ára að því er fram kemur Í fréttatilkynn- ingu frá heilbrigðisráðuneytinu. Tekjuaukningin skýrist fyrst og fremst af aukinni útseldri þjónustu til annarra heilbrigðisstofnanna. Launagjöld hækka um 2,3% á milli tímabila sem er í samræmi við áætlun. Aðrir útgjaldaliðir eru inn- an þeirra marka sem sett voru við gerð ársáætlunar nema hvað lækn- inga- og hjúkrunarvörukostnaður hækkar nokkuð umfram það sem gert hafði verið ráð fyrir. Ástæður má rekja beinlínis til aukinnar starfsemi og fleiri aðgerða, einkum liðskiptaaðgerða en þeim fjölgar um 50% milli ára þetta tímabil. ■ Námskeið hefjast 13. september Innritun stendur yfir Námskeið fyrir byrjendur og lengra komna Taltímar - einkatímar Námskeið fyrir börn Viðskiptafranska - lagafranska Kennum í fyrirtækjum alliance@simnet.is LEIDDUR TIL AFTÖKU Eitt af því sem ferðamenn geta fylgst með er hinsta för dauðadæmds manns sem taka á af lífi vegna flóttatilraunar. Svo er fólkið sett í fangaklefa, yfirheyrt og niðurlægt. Fangarnir heimsækja einnig fjöldagröf frá tímum nasista. FANGAVÖRÐUR „Þú ert á förum úr helvíti,“ hefur verið krotað á útgang úr Karosta-fangelsinu. Umferðaröngþveiti: Sektuð í um- ferðarteppu NOREGUR, AP Renathe Opedal trúði ekki eigin augum þegar stöðu- mælavörður tók til við að skrifa sektarmiða og sagði hana hafa lagt ólöglega. Renathe var allt annað en sátt enda var hún pikk- föst í umferðarteppu þegar hún var sektuð um andvirði rúmra 5.000 króna íslenskra. Þegar yfirvöld neituðu að fella sektina niður ákvað Renathe að höfða mál á hendur þeim. Dómur í málinu er nú fallinn, hálfu ári eftir að atvikið átti sér stað, og er Renathe sýknuð af sektargreiðslu og fær að auki rúmar 400.000 ís- lenskar krónur í bætur. ■ BARIST VIÐ ENGISPRETTUR Ríkin tólf í Afríku, sem sagt hafa engi- sprettum stríð á hendur, segjast þurfa hundruð milljóna króna styrk frá alþjóðasamfélaginu til að binda enda á faraldurinn sem nú geisar. Ef fram fer sem horf- ir blasir við hungursneyð í mörgum löndum álfunnar því engispretturnar eyðileggja alla uppskeru. ■ AFRÍKA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.