Fréttablaðið - 06.09.2004, Blaðsíða 12
12 6. september 2004 MÁNUDAGUR
TÖKUR Á KING KONG HEFJAST Í DAG
Peter Jackson, leikstjóri Hringadróttinssögu,
stýrir verkinu en helstu leikarar eru Naomi
Watts, Adrien Brody og Jack Black. Hér
standa þau fyrir framan gufuskipið Vogun í
kvikmyndaveri Miramar á Nýja Sjálandi.
Páfinn hittir biskupa frá Bandaríkjunum:
Kynlífshneyksli
skuggi á kirkjunni
VATÍKANIÐ, AP Jóhannes Páll páfi
annar fullvissaði biskupa frá Nýja-
Englandi í Bandaríkjunum um að
hann styddi að fullu viðleitni
þeirra til að taka á þeim skaða sem
kynlífshneykslismál hafi valdið
kaþólsku kirkjunni. Páfi viður-
kenndi að kynlífshneykslin hefðu
„varpað skugga“ á kirkjuna.
Páfinn hvatti biskupana til að
eggja áfram söfnuði sína í trúnni og
bað þá að „styðja af afli“ þá presta
sem yrðu fyrir barðinu á „mikilli
umfjöllun fjölmiðla um vankanta“
sumra sampresta þeirra.
Biskupar úr Norðausturríkjum
Bandaríkjanna voru í þungamiðju
málanna um kynferðismisbeiting-
arnar. Þeir hafa haldið fyrirlestra
í Vatíkaninu, en gert er ráð fyrir
slíkum heimsóknum allra biskupa
á fimm ára fresti.
Jóhannes Páll páfi hitti banda-
rísku biskupana í sumarhúsi sínu
í Castelgandolfo, í útjaðri Rómar.
Hann hrósaði einnig kaþólsku
kirkjunni í Bandaríkjunum fyrir
viðleitni til sátta og samvinnu við
aðra en kaþólikka. „Hörmung-
arnar 11. september árið 2001
hafa leitt í ljós að efling sam-
heldni um heim allan og virðing
fyrir mannlegri reisn er eitt
mikilvægasta verk sem mann-
kynið stendur í dag frammi
fyrir,“ sagði páfinn. ■
Flugbílar í háloftin
fyrir árið 2030
Boeing-verksmiðjurnar í Bandaríkjunum eru að hanna flugbíl. Sérfræðingar NASA segja tækni-
lega mögulegt að slíkir bílar verði að veruleika eftir 25 ár. Spurning sé hins vegar hvort þeir verði
nægilega praktískir. Óvíssa ríkir um það hvernig löggæslu verði háttað í háloftunum.
BANDARÍKIN, AP Tækni- og þróun-
ardeild Boeing-verksmiðjanna í
Seattle í Bandaríkjunum hefur
búið til módel af flugbíl. Lynne
Wenberg, framkvæmdastjóri
verkefnisins, segir markmiðið
vera að búa til flugbíl sem kosti
ekki meira en dýrustu lúxusbílar
geri í dag. Flugbíl sem sé auð-
velt að stjórna og eyði litlu elds-
neyti.
Fjöldi fyrirtækja er að vinna
að svipuðum verkefnum og
Boeing. Sérfræðingar hjá Banda-
rísku geimferðastofnuninni
(NASA) reikna með því að eftir
fimm ár verði þeir búnir að
hanna litla flugvél, sem verði
ekki hávaðasamari en mótorhjól
og kosti innan við tíu milljónir
króna. Vélin á að geta flogið
stuttar vegalengdir milli flug-
valla. Eftir tíu ár stefna þeir að
því að vera búnir að hanna flug-
vél sem getur líka ekið stuttar
vegalengdir um hliðargötur ná-
lægt flugvöllum. Eftir fimmtán
ár er stefnt að því að ljúka hönn-
un á vél sem mun geta tekið allt
að fjóra farþega og tekið lóðrétt
á loft.
Sérfræðingar NASA telja að
raunverulegir flugbílar geti í
fyrsta lagi orðið að veruleika
eftir 25 ár. Stjórnendur Boeing
eru þegar farnir að líta það
langt fram í tímann. Á meðal
vandamála sem sérfræðingar
Boeing eru að velta fyrir sér er
hvernig löggæslu verði háttað
þegar og ef þúsundir flugbíla
fara í háloftin. Lausnin á því
vandamáli liggur ekki fyrir en
ljóst er að bílstjórar flugbíla
vilja ekki láta svína fyrir sig eða
lenda fyrir aftan ökunema mörg
hundruð metrum fyrir ofan
jörðina.
Ken Goodrich, háttsettur
verkfræðingur hjá NASA, segir
ljóst að flugbílar þurfi að vera
tæknilega fullkomnir og örugg-
ari en venjulegir bílar eru í dag.
Ein af hugmyndunum sem
NASA er með er að hanna bíl
sem getur forðast árekstur og
jafnvel ratað sjálfur á ákveðna
staði með einhvers konar sjálf-
stýringu.
Goodrich segir að þótt hann
telji að tæknilega sé mögulegt
að flugbílar verði að veruleika
eftir 25 ár þá telji hann alls óvíst
hvort það verði raunin. Hann
segist spyrja sig að því hvort
slíkir bílar verði ekki of hávaða-
samir, hafi of truflandi áhrif á
daglegt líf og hvort þeir verði í
raun nægilega praktískir.
trausti@frettabladid.is
PÁFINN OG BISKUPAR FRÁ BANDARÍKJUNUM
Jóhannes Páll páfi annar hitti biskupa kaþólsku kirkjunnar frá Norðausturríkjum Bandaríkj-
anna í sumarhúsi sínu í Castelgandolfo í útjaðri Rómar í gær.
MÓDEL AF BOEING FLUGBÍL
Lynne Wenberg, verkefnastjóri hjá Boeing, heldur á módeli af flugbíl. Hún segir markmiðið
vera að búa til flugbíl sem kosti ekki meira en dýrustu lúxusbílar geri í dag.
Fangar í breskum
fangelsum:
Sjálfsmorðs-
tíðni með
hæsta móti
BRETLAND, AP Tveir fangar fund-
ust hengdir í klefa sínum í fang-
elsinu í Manchester á laugar-
dagsmorgun. Báðir mennirnir
voru frá Yorkshire og sátu inni
fyrir rán. Hvorugur mannanna
var á sjálfsmorðsvakt og virtust
á engan hátt líklegir að vera
haldnir dauðahvöt. Lögregluyfir-
völd telur annan fangann hafa
hengt hinn áður en hann tók sitt
eigið líf. Fimm fangar hafa hengt
sig á árinu í þessu fangelsi, alls
tóku fjórtán fangar sitt eigið líf í
ágúst. Það er hæsta sjálfsmorðs-
tíðni í breskum fangelsum í tutt-
ugu ár en að meðaltali fremja 95
fangar sjálfsvíg í breskum fang-
elsum á ári hverju. ■
■ MIÐAUSTURLÖND
MORÐINGI KVÆNIST Yigal
Amir, sem myrti Yitzhak Rabin,
forsætisráðherra Ísraels, árið
1995 er genginn í hjónaband
þrátt fyrir að yfirvöld hafi neit-
að honum um leyfi til þess.
Hann afplánar nú lífstíðardóm
fyrir morðið en gat kvænst
vegna undanþágu sem leyfir að
par sé gefið saman þótt annað
sé fjarverandi.
ÁLVER Um þessar mundir eru 30 ár
liðin síðan fulltrúar frá Norsk-
Hydro töluðu fyrst við hrepps-
nefnd Reyðarfjarðar um hugsan-
lega byggingu álvers við Reyðar-
fjörð.
Í fundargerð hreppsefndar
Reyðarfjarðarhrepps frá 23.
ágúst 1974, sem Helgi Seljan þá-
verandi hreppsnefndarmaður rit-
aði, kemur fram undir liðnum
önnur mál að oddviti hafi greint
frá komu þriggja manna frá
Norsk Hydro og íslensks verk-
fræðings Páls Stefánssonar.
Koma þeirra stóð í sambandi
við kannanir þeirra á möguleikum
á byggingu álverksmiðju á Ís-
landi, segir í fundargerðinni og
jafnframt að þeir hafi athugað
fleiri staði. Þeir hafi fengið ýmsar
staðbundnar upplýsingar en málið
sé að öllu leyti á frumstigi. Þá seg-
ir að álverksmiðjan sé hugsuð
heldur stærri en Straumsvíkur-
verksmiðjan.
Á fundinum benti oddviti á að
verksmiðja sem þessi til dæmis
miðja vegu milli Eskifjarðar og
Reyðarfjarðar yrði upplyfting
fyrir bæði byggðarlögin. Í fund-
argerðinni kemur síðan fram að
málið hafi verið rætt mjög fram
og aftur og aðallega talað um al-
menna upplýsingasöfnun. ■
M
YN
D
A
P
Árið 1974 sögðu menn að álver á Austfjörðum yrði mikil upplyfting fyrir svæðið:
Þrjátíu ár síðan fyrst
var talað um álver
HELGI SELJAN
Í ágúst árið 1974 greindi Helgi Seljan, þá-
verandi þingmaður og hreppsnefndarmaður,
frá komu þriggja manna frá Norsk Hydro.
Afsláttur
• Afslátt
ur • Afslá
ttur • Afs
láttur •
sláttur •
Afsláttur
• Afslátt
ur • Afslá
ttu
Afsláttur
• Afslátt
ur
láttur • A
fsláttur •
Afsláttu
r • Afslát
tur • Afs
70%
Hnakkar
● Úlpur
● Skóbux
ur á börn
og fullor
ðna ● Re
iðstígvél
og -skór
Sonnenre
iter buxur
, jakkar o
g flíspeys
ur ● Hj
álmar ●
Reiðtygi
Hófhlífar
● Hanska
r ● Bæk
ur ● Myn
dbönd og
margt, m
argt fleira
Lynghálsi 4 • Sími: 567 3300 • Opið virka daga 9-18 • www.hestarogmenn.is