Fréttablaðið - 06.09.2004, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 06.09.2004, Blaðsíða 52
24 6. september 2004 MÁNUDAGUR Stjörnustúlkur byrja vertíðina með miklum látum: Unnu Hauka í dramatískum leik Öruggur Haukasigur Íslandsmeistarar Hauka litu ákaflega vel út er þeir rúlluðu KA- mönnum upp í úrslitum á Reykjavík Open Hasar og læti í úrslitaleik hins árlega Valsmóts: Tveir reknir í sturtu HANDBOLTI Stjörnustúlkur tryggðu sér sigur í Reykjavík Open í gær með því að leggja Hauka að velli, 29–27, eftir framlengingu. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 25- 25. Stjarnan byrjaði leikinn mikið mun betur og leiddi allan fyrri hálfleikinn en í leikhléi var staðan 12–9 fyrir meyjarnar úr Garðabæ. Þær héldu uppteknum hætti í upphafi síðari hálfleiks og náðu fljótlega fimm marka for- ystu, 15–10. Þá hættu markverðir liðsins algjörlega að verja og slíkt lofar ekki góðu. Haukar gengu á lagið og komust yfir, 19–18, og virtust vera með unninn leik í höndunum í stöðunni 24–21. Þá vöknuðu Stjörnustúlkur á ný og náðu að jafna af harðfylgi. Í framlengingunni var síðan eitt lið á vellinum. Haukarnir voru sprungnir og náðu ekki að fylgja eftir þessum góða kafla um miðjan síðari hálfleikinn. Elísabet Gunnarsdóttir var atkvæðamest Stjörnustúlkna með 8 mörk. Kristín Guðmundsdóttir og Ásdís Sigurðardóttir komu næstar með 6 mörk. Jelena Jovanovic varði 16 skot í markinu og Helga Dóra Magnúsdóttir var með 16 varða bolta. Ragnhildur Guðmundsdóttir var atkvæðamest Haukastúlkna með 7 mörk og Hanna Guðrún Stefánsdóttir skoraði 6 mörk. Helga Torfadóttir varði frábær- lega í Haukamarkinu eða 25 skot. HANDBOLTI Það er breitt bil á milli Íslandsmeistara Hauka og bikarmeistara KA í upphafi tíma- bils. Það mátti glögglega sjá í íþróttahúsinu í Austurbergi í gær er Haukar kjöldrógu Norðanmenn og unnu að lokum sannfærandi fjögurra marka sigur, 35–31. Haukarnir tóku forystuna í leiknum strax í upphafi og létu hana aldrei af hendi. Mikið var skorað í fyrri hálfleik en hálfleiks- tölur voru 21–18 fyrir Hauka. Þeir héldu áfram að byggja á þessari forystu í síðari hálfleik og náðu mest átta marka forystu. Þeir slökuðu síðan á klónni undir lokin, KA-menn komu aðeins til baka og björguðu andlitinu. Það er ljóst að Haukaliðið verður illviðráðanlegt í vetur. Liðið virkar í gífurlega góðu formi í upphafi móts og vélin mallar ekki síður en hún gerði í lok síðasta vetrar. Ungu og efnilegu strákarnir eru orðnir árinu eldri og ekki er lengur hægt að tala um Ásgeir Örn og Andra sem unga og efni- lega menn lengur. Þetta eru orðnir karlmenn sem munu draga Haukavagninn langt í vetur. Sömu draugarnir KA-menn eru aftur á móti að glíma við sömu drauga og síðasta vetur. Markvarslan er engin hjá þeim og í raun er óskiljanlegt að þeir skuli ekki hafa nælt sér í nýjan markvörð í sumar. Án alvöru markvarðar geta þeir hætt að láta sig dreyma um titla í vetur. Það háði liðinu þó í þessum leik að Halldór Sigfússon var meiddur og gat lítið spilað sem og Daninn Mikael Blatt sem lítur ágætlega út og gæti reynst liðinu drjúgur er hann nær sér góðum af meiðsl- unum. Mörk Hauka: Þórir Ólafsson 10, Ásgeir Örn Hallgrímsson 8, Jón Karl Björnsson 4, Gísli Jón Þórisson 3, Andri Stefan 3, Vignir Svavarsson 3, Halldór Ingólfsson 2, Pétur Magnússon 1 og Magnús Magnússon 1. Birkir Ívar Guðmundsson varði 16 skot í markinu. Mörk KA: Jónatan Magnússon 8, Bjartur Máni Sigurðsson 6, Andri Snær Stefánsson 4, Magnús Stefánsson 4, Hörður Fannar Sigþórsson 4, Ragnar Njálsson 2, Halldór Jóhann Sigfússon 1, Mikael Blatt 1 og Davíð Kristinsson 1. Hafþór Einarsson varði 11 skot. ■ KÖRFUBOLTI KR og ÍR léku til úr- slita á hraðmóti Vals í körfubolta í gærkvöldi. Leikurinn leystist á köflum upp í tóma þvælu og létu ÍR-ingar skapið hlaupa með sig í gönur. KR byrjaði betur og náði fljót- lega yfirhöndinni í fyrsta leik- hluta. ÍR-ingar voru aldrei langt undan og náðu góðum spretti undir lok fyrri hálfsleiks. Staðan í leikhléi var 29-28 fyrir KR. Í þriðja fjórðungi skoraði KR 15 stig gegn 8 stigum ÍR-inga og lagði það grunninn að sigrinum. Í lokafjórðungnum létu ÍR- ingar mótlætið fara í taugarnar á sér og voru þeir Ómar Sævarsson og Ásgeir Hlöðversson reknir af velli. Allir stóru menn ÍR fengu 5 villur og eina tæknivillu á mann. KR náði 16 stiga forskoti um miðjan leikhlutann og voru loka- tölur 67-53. Stigahæstir hjá ÍR voru Ólafur Sigurðsson og Ólafur Þórisson en Lárus Jónsson fór fyrir liði KR-inga með 16 stig og gaf að auki fimm stoðsendingar. Herbert Arnarson, þjálfari KR-inga, var ánægður með leik sinna manna. „Leikurinn leystist upp í töluverðan æsing á tíma- bili og sérstaklega síðustu 5 mínúturnar fyrir hlé,“ sagði Herbert. „ÍR-ingar lögðu sig meira fram og uppskáru eftir því. Við vildum sýna það að við líðum ekki að hitt liðið leggi sig meira fram en við. Við komum til baka og héldum fengnum hlut eftir það“. Mótið gefur KR-ingum byr undir báða vængi enda nýir leik- menn að standa sig með prýði. Herbert hefur þó allan varann á því. „Þetta mót er ekki alveg að marka enda landsliðsmenn ekki með og sömuleiðis fáir erlendir leikmenn. En þetta er ágætt til að vita hvar við stöndum og kærkomin úrslit fyrir okkur. Ég held að fáir reikni með því að KR og ÍR leiki til úrslita í vor enda mótið ekki partur af alvör- unni sem byrjar í október“. smari@frettabladid.is SÁ FYRSTI Í HÖFN Anna Blöndal, fyrirliði Stjörnunnar, tók við bikarnum í leikslok. ÞÉTTUR MÚR KA-maðurinn Jónatan Magnússon átti oft í erfiðleikum með sterka vörn Hauka í gær. Hér verja Vignir Svavarsson og Andri Stefan eitt af sko- tum Jónatans. Fréttablaðið/Vilhelm FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M BIKARINN LÉTTUR EN LJÚFUR Steinar Kaldal, fyrirliði KR, lyftir hér bikarnum sem KR- ingar fengu fyrir að sigra Valsmótið í gær. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.