Fréttablaðið - 06.09.2004, Blaðsíða 8
8 6. september 2004 MÁNUDAGUR
Menntamál geðsjúkra:
Framlagið dugir engan veginn
MENNTUNARMÁL Ljóst er að þær sex
milljónir króna sem ríkið hefur lagt
fram til menntunarmála geðsjúkra
fram að áramótum duga engan veg-
inn ef bjóða á upp á sama náms-
magn og kennt hefur verið til þessa,
að sögn Sveins Magnússonar, fram-
kvæmdastjóra Geðhjálpar. Þetta
framlag væri þó mjög þakkarvert
að hálfu ríkisstjórnar sem gripið
hefði í taumana, þegar í óefni hefði
verið komið.
En þrátt fyrir það liggi fyrir
að leita þurfi til samfélagsins eft-
ir framlögum, til þess að hægt
verði að koma til móts við þarfir
þeirra 130 einstaklinga sem sótt
hafa um nám af ýmsu toga á
haustönn. Námsvistin er sam-
starfsverkefni Fjölmenntar og
Geðhjálpar.
Sveinn sagði hitt þó gleðiefni, að
ráðuneytið ætlaði að taka samning-
inn við Fjölmennt til gagngerrar
endurskoðunar. Í ljósi þess að ríkið
ætlaði að ganga í þetta mál til fram-
búðar, myndi Geðhjálp leita til fólks
eftir framlögum svo ekki þyrfti að
skera framboðið niður á haustönn.
„Svona hlutir eiga að standa
jafnfætis framlögum ríkisins til
framhaldsskólanna í landinu,“ sagði
Sveinn. „Það er fjöldi fólks sem þarf
sannarlega á þessu að halda og lög-
in segja að allir skulu eiga jafnan
rétt til náms.“ ■
Fléttulistar afmá
kynjamismunun
Samfylkingin stefnir að því að framboðslistar fyrir næstu alþingiskosn-
ingar verði svokallaðir fléttulistar, þar sem kona og karl eiga sæti á víxl.
Átökin í Framsóknarflokknum sögð auka kröfur um jafnt kynjahlutfall.
JAFNRÉTTISMÁL „Það er mjög líklegt
að það verði lagt til á næsta þingi
að framboðslistar Samfylkingar-
innar verði svokallaðir fléttulist-
ar, þar sem kona og karl eiga sæti
á víxl,“ segir Kjartan Valgarðs-
son. „Helmingur Samfylkingar-
innar er konur og geri ég ráð fyrir
því að að það muni endurspeglast
í framboðslistum í næstu alþingis-
kosningum, 2007. Það gerir það
reyndar nú þegar í þingflokkn-
um,“ segir hann. Kjartan starfar í
hópi Samfylkingarinnar sem
vinnur að endurskoðun laga
flokksins og hefur það meðal ann-
ars að markmiði að kanna hvernig
auka megi lýðræði innan Sam-
fylkingarinnar.
Nú þegar segir í lögum Sam-
fylkingarinnar að hvort kynið eigi
rétt til að minnsta kosti 40 pró-
senta í öllum stofnunum flokksins
og við skipan á framboðslista skuli
stefnt að því að hlutfall kvenna og
karla verði sem jafnast.
„Eftir það sem gengið hefur á í
Framsóknarflokknum mun eng-
inn flokkur lengur komast upp
með það að segja að „stefnt skuli
að“ jöfnu hlutfalli kynjanna. Kröf-
urnar hafa aukist og ekki verður
lengur hægt að sætta sig við að
„stefnt verði að“ jafnmörgum
frambjóðendum af hvoru kyni,“
segir Kjartan. „Samfylkingin á að
vera í fararbroddi með breytingar
sem þessar,“ segir Kjartan.
Hann bendir á að fléttulistar
hafi lengi tíðkast. „Íhaldssömustu
karlmenn hafa verið hlynntir
fléttulistum þegar það hentar
þeim sjálfum. Til að mynda eru
notaðir fléttulistar varðandi skip-
un á framboðslista eftir búsetu,“
segir Kjartan.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
varaformaður Samfylkingarinnar,
segir þetta jákvætt skref þótt auð-
vitað ætti ekki að vera þörf á lög-
um sem þessum. „Sú vitund ætti að
vera til staðar að það sé sjálfsagt
og sjálfgefið að kynin standi jafn-
fætis í öllu starfi og öllum stofnun-
um Samfylkingarinnar, samt sem
áður þurfum við stöðuga áminn-
ingu um þetta. Slík samþykkt yrði
sterk og jákvæð yfirlýsing frá
flokknum,“ segir hún.
sda@frettabladid.is
Átökin í Darfur:
Þúsundir
hraktir af
heimilum
SÚDAN, AP Talsmaður Sameinuðu
þjóðanna segir að allt að fjögur
þúsund manns hafi verið hrakin
brott af heimilum sínum í átök-
unum í Darfur síðustu daga. Rík-
isstjórn Súdans hefur verið undir
miklum alþjóðlegum þrýstingi
um að grípa til frekari aðgerða til
að stöðva hörmungarnar í Darf-
ur. Alls er talið að 30 þúsund
manns hafi látið lífið og ein millj-
ón hafi þurft að flýja heimili sín í
átökunum síðastliðið eitt og hálft
ár. ■
SVONA ERUM VIÐ
HLUTFALL KARLA OG KVENNA
SEM STARFA Á LEIKSKÓLUM
Karlar Konur
1998 2,0% 98,0%
1999 1,8% 98,2%
2000 2,1% 97,9%
2001 2,8% 97,2%
2002 3,9% 96,1%
2003 3,9% 96,1%
Heimild: Hagstofa Íslands
Interpol yfirheyri
Jón Baldvin
– hefur þú séð DV í dag?
Sendiherrann
fái stöðu
grunaðs
manns
KJARTAN VALGARÐSSON
„Það er mjög líklegt að það verði lagt til á næsta þingi að framboðslistar Samfylkingarinn-
ar verði svokallaðir fléttulistar, þar sem kona og karl eiga sæti á víxl.“
INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR
„Sú vitund ætti að vera til staðar að það sé sjálfsagt og sjálfgefið að kynin standi jafnfætis
í öllu starfi og öllum stofnunum Samfylkingarinnar, samt sem áður þurfum við stöðuga
áminningu um þetta.“
Kópavogssundið var þreytt í gær:
Synt af kappi
HEILSA Á annað hundrað manns
tóku þátt í Kópavogssundinu í
Sundlaug Kópavogs sem fram fór í
gær. Kópavogssundið er keppni
fyrir almenning þar sem hver og
einn syndir í kapp við sjálfan sig og
klukkuna. Ýmist synti fólk 500,
1000 eða 1500 metra en þeir hörð-
ustu fóru enn lengra og lögðu að
baki svokallað Viðeyjar- eða Drang-
eyjarsund. Út í Viðey eru 3.900
metrar en 6.800 metrar í Drangey.
Öllum sundstílum brá fyrir í Kópa-
vogslaug í gær en bringusundið var
hvað vinsælast. ■
SVEINN MAGNÚSSON
Allir eiga jafnan rétt til náms.
ÖRYGGIÐ Í FYRIRRÚMI
Góð þátttaka var í Kópavogssundinu í gær
sem haldið var í ellefta sinn. Hnátan var
fær í flestan sjó með kútana á baki pabba.
Skipulag á Seltjarnarnesi:
Áfram
mótmælt
SKIPULAGSMÁL Forsvarsmenn
Áhugahóps um betri byggð á
Seltjarnarnesi freista þess að
gera rödd sína enn háværari en
nú er og safna fleiri undirskrift-
um gegn fyrirhuguðum fram-
kvæmdum á Hrólfsskálamel og
Suðurströnd Nessins.
Jónmundur Guðmarsson bæj-
arstjóri tók á föstudag við und-
irskriftum 924 íbúa Seltjarnar-
ness, sem eru rúm 37 prósent
kjósenda í síðustu bæjarstjórn-
arkosningum, að sögn forsvars-
manna mótmælanna.
Frestur til að skila athuga-
semdum við deiliskipulag Sel-
tjarnarness rennur út á fimmtu-
dag. ■