Fréttablaðið - 06.09.2004, Síða 18
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma,
Sigrún Skarphéðinsdóttir
Stóragerði 5, Reykjavík
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn
7. september kl. 13.30.
Sigríður Magnea Njálsdóttir, Björgvin Þ. Valdimarsson, Sigrún Ósk
Björgvinsdóttir, Helga Þóra Björgvinsdóttir.
„Við vorum svoddan dvergar, við
Stefán Hilmarsson, þegar við
fórum í Eurovision, ég var bara
24 ára froskur,“ segir Sverir
Stormsker þegar blaðamaður
lætur í ljós undrun sína yfir því
að hann sé ekki eldri en rétt rúm-
lega fertugur. Sverrir er að
vinna að plötu sem hann vill
koma út um miðjan nóvember en
býst við að það verði þó ekki fyrr
en í desember.
„Að vera tónlistarmaður er
ekki ólíkt því að vera verkamað-
ur, nema hvað maður er ekki
drulluskítugur upp fyrir haus.
En margir tónlistarmenn segja
reyndar að það þurfi að vinna
þetta eins og kófsveittur iðnað-
arþræll. Ég hef oft reynt að
koma mér upp svona iðnaðar-
mannafyrirkomulagi eins og
Bubbi sem vaknar upp fyrir allar
aldir eins og bakari, nuddar stír-
urnar úr augunum, pissar í kopp
og röltir svefndrukkinn og
vinnulúinn með ljóðastresstösk-
una inn á kontór og fer að svitna
við tölvuna. Ég hef hins vegar
ekki getað það. Ég vil ekki að það
sé svita- og peningalykt af verk-
unum sem ég sendi frá mér og
enn síður skítalykt. Ef menn
skylda sig til að gera eina plötu á
ári af peningalegum ástæðum
sama hvað tautar og raular,
hvort sem þeim er mál eða ekki
fara verkin að bera þess merki,
þeir verða mónótónískir og fara
að stínka,“ segir Sverrir.
„Það er mjög glatað að eiga
afmæli á mánudegi þannig að ég
býst við að eyða deginum í
þynnku og halda svo upp á af-
mælið mitt með poppi og prakt
helgina á eftir en ég býst samt
ekki við að vera með neina flug-
eldasýningu eða ísbjörn á ein-
hjóli því þetta er svo sem ekkert
stórafmæli. Þetta verður allt
mjög rólegt og gufusoðið, allra
mest svona kassi af bjór á mann
og þrjár tekílaflöskur, og helst
ekki meira en kíló af kókaíni í
hverja nös. Svo verð ég náttúru-
lega með bollu. Kynntist henni í
Úkraínu. Alveg svínfeitt tólgar-
fjall. Helvíti hressandi ílát,“ seg-
ir Sverrir. ■
18 6. september 2004 MÁNUDAGUR
ROGER WATERS,
fyrrum Pink Floyd-meðlimur og aðalhöfundur
Veggsins, er sextugur í dag.
AFMÆLI
Dóra Þórhallsdóttir er 57 ára.
Sigríður Margrét Guðnadóttir 54 ára.
BRÚÐKAUP
Brúðhjónin Arna María Geirsdóttir og
Ragnar Ingi Sigurðsson, Kríuási 17B,
Hafnarfirði, voru gefin saman í Fríkirkj-
unni í Hafnarfirði 17. júlí. Prestur var sr.
Sigríður K. Helgadóttir.
JARÐARFARIR
13.30 Erlendur Einarsson múrarameist-
ari, Tjarnarstíg 9, Seltjarnarnesi,
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju.
13.30 Kristján Einarsson læknamiðill,
Hlíðarhjalla 53, verður jarðsung-
inn frá Fríkirkjunni í Reykjavík.
13.30 Pétur Hannesson, Giljalandi 12,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni í Reykjavík.
Þegar Díana prinsessa var jarð-
sungin á þessum degi árið 1997,
söfnuðust um milljón manns sam-
an í kringum dómkirkjuna og má
reikna með að mikill fjöldi manns
hafi fylgst með athöfninni þegar
henni var sjónvarpað í beinni.
Eins og kunnugt er lét Díana líf-
ið í bílslysi í París ásamt elskhuga
sínum, Dodi Al Fayed. Slysið átti
sér stað í undirgöngum í borginni,
þegar bíll þeirra var á flótta undan
aðgangshörðum blaðaljósmyndur-
um á mótórhjólum. Rannsókn á
slysinu leiddi síðar í ljós að bíl-
stjóri þeirra, Henri Paul hafi bæði
neytt lyfja og áfengis í miklu
magni skömmu áður en hann sett-
ist undir stýrið.
Þjóðarsorg varð á Englandi við
andlát prinsessunnar og í almenn-
ingsgörðum í hverjum bæ mátti
finna blóm, bangsa og kveðjur til
hinnar látnu prinsessu. Þegar til-
kynnt var um tveggja mínútna
þagnarstund til að minnast hennar
mátti sjá í miðborg Lundúna, þar
sem asinn stöðvar venjulega
aldrei, hvernig tíminn getur staðið
í stað. Dögum saman var ekki um
annað rætt en dauða og líf
prinsessunnar. Áður en leið á
löngu hafði ímynd hennar breyst
frá því að vera konan sem skildi
við prinsinn, konan sem varð ær af
því að myndir sem höfðu verið
teknar á líkamsræktarstöð birtust
opinberlega eða konan sem átti í
ástarsambandi við son Al Fayed,
eiganda Harrods í að vera engill-
inn Díana, sem var öllum mönnum
góð og konan sem Elton John söng
um Candle in the Wind. ■
ÞETTA GERÐIST
DÍANA PRINSESSA ER JARÐSUNGIN Í WESTMINSTER ABBEY
6. september 1997
„Annað hvort semurðu lög eða ekki. Og ef þú
semur lög, líkt og ég, tel ég að það sé eðlislæg
þörf að vilja gefa út plötur.“
Roger Waters að útskýra af hverju hann hélt áfram sem
einherji eftir að hann yfirgaf Pink Floyd.
Milljónir fylgdust með
Vaxinn upp úr því að þroskast
SVERRIR STORMSKER: 41 ÁRS Í DAG
Á Kjarvalsstöðum hefur verið opn-
uð viðamikil yfirlitssýning á verk-
um Rögnu Róbertsdóttur. Á sýn-
ingunni eru ný og eldri verk
Rögnu, aðallega unnin í íslenskt
grjót, hraun, vikur, skeljamulning
og jarðveg. Eins og segir í sýning-
arskrá: „hefur Ragna átt í löngu
ástarsambandi við Heklu, eitt
glæsilegasta fjall Suðurlands, sem
hefur gosið á um það bil tíu ára
fresti síðustu áratugi. Ragna fer
oft út á hraunbreiðuna í kringum
Heklu, andar að sér nálægð hennar
og safnar uppskerunni svo að
segja. Hún safnar, litlum, léttum
molum af harðnaðri kviku eða vikri
sem eldfjallið hefur spúið í allar
mögulegar áttir gegnum aldirnar.
Auk hrauns og torfs hefur Ragna
einnig safnað öðru jarðlagi frá
strönd af Vestfjörðum sem er nán-
ast algjörlega þakin mulningi úr
skeljum. Ragna hefur einstakt auga
fyrir slíkum dýrgripum, fyrir feg-
urð þeirra og kröftunum sem felast
í þeim. Hún hefur tínt upp fermetra
af ströndinni og á því undurfagra og
yfirgripsmikla sneiðmynd af sjáv-
arlífi í brotum.“
Sýning Rögnu stendur til 31.
október. ■
RAGNA RÓBERTSDÓTTIR: YFIRLITSSÝNING Á KJARVALSSTÖÐUM
Ástarsamband við Heklu
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi
Guðmundur Á. Jónasson
lést á heimili sínu, Hringbraut 86, Keflavík miðvikudaginn 1.
september sl. Útförin fer fram frá Borgarneskirkju,
miðvikudaginn 8. september nk. kl. 14.
Guðný Guðmundsdóttir, Guðrún Ósk Guðmundsdóttir
Guðveig Guðmundsdóttir, Eyþór Á. Sigmarsson,
Hannes G. Guðmundsson, Jófríður Magnúsdóttir
og barnabörn.
M
YN
D
/F
RÍ
Ð
U
R
EG
G
ER
TS
D
Ó
TT
IR
RAGNA RÓBERTSDÓTTIR Sýnir verk unnin úr íslensku grjóti, hrauni, vikri, skeljamuln-
ingi og jarðvegi.
SVERRIR STORMSKER Afmælisbarnið vinnur nú að plötu sem hann vonast til að komi út í desember.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »
Almenna bókafélagið hefur gefið út bók-
ina Elling – Fugladansinn eftir Ingvar
Ambjörnsen í kilju. Þetta er önnur bókin
af fjórum um hinn óvenjulega Elling og
sjálfstætt framhald af Elling – Paradís í
sjónmáli sem kom út hjá Almenna bóka-
félaginu 2003. Hún hlaut virtustu bók-
menntaverðlaunin í Noregi, Brageprisen.
Elling vaknar á geðdeild eftir að hafa
fengið taugaáfall. Þar kynnist hann Kjell
Bjarne sem líkt og Elling er ekki eins og
fólk er flest. Á milli þessara sérkennilegu
en ólíku manna myndast óvenjuleg vin-
áttutengsl. Vináttuböndin verða þó ekki
til átakalaust og eftir sérlega misheppn-
að aðfangadagskvöld rifjar Elling upp
viðburðaríka ferð með móður sinni til
Benidorm þar sem hann gerði tilraun til
að haga sér eins og dæmigerður sólar-
landafari.
■ NÝJAR BÆKUR