Fréttablaðið - 06.09.2004, Blaðsíða 50
FÓTBOLTI Breiðablik fékk Stjörnuna
í heimsókn í lokaumferð Lands-
bankadeildar kvenna sem fram
fór í gær. Leikurinn hafði enga
þýðingu fyrir liðin sem háðu
hvorki baráttu um Íslandsmeist-
aratitilinn né fall í 1. deild.
Um leið og flautað var til leiks
skall á rok og rigning sem varð til
þess að völlurinn var þungur og
stelpurnar seinar í gang. Það rof-
aði þó til um miðjan hálfleikinn.
Jafnræði var með liðunum
lengst af en Stjarnan var ívíð
sókndjarfari. Garðbæingar áttu
tvö skot í stöng, eitt í slá og eitt í
samskeytin og hefðu hæglega get-
að náð yfirburðaforystu um miðj-
an fyrri hálfleik. Ekkert mark
hafði verið skorað þegar flautað
var til leikhlés.
Í seinni hálfleik var meira í
boði fyrir augað og á 53. mínútu
skoraði Anna Margrét Gunnars-
dóttir glæsilegt skallamark eftir
hornspyrnu, óverjandi fyrir
Birnu Kristjánsdóttur, markvörð
Blika.
Harpa Þorsteinsdóttir, sem er
nýstigin upp úr meiðslum, bætti
öðru marki við tíu mínútum
seinna eftir að hafa snúið
skemmtilega á Breiðabliksvörn-
ina. Kópavogsliðið átti erfitt upp-
dráttar um tíma í seinni hálfleik,
komust vart yfir miðju á meðan
Stjörnustelpur réðu ferðinni.
Þriðja mark Stjörnunnar var
sérlega glæsilegt en það gerði
Lilja Kjalarsdóttir með háu skoti
utan teigs.
Blikar reyndu hvað þær gátu
til að minnka muninn en misnot-
uðu nokkur ágætis færi.
Harpa Þorsteinsdóttir lagði
svo upp fjórða mark Stjörnunnar
fyrir Lilju Guðrúnu Liljarsdóttur
sem skoraði með skoti innan
teigs. Lilja var skæð í leiknum, og
átti nokkur góð skot að marki
Blika.
Gréta Samúelsdóttir minnkaði
muninn í 4-1 á 89. mínútu en
seinni hálfleikur var eign Stjörn-
unnar frá upphafi til enda.
smari@frettabladid.is
22 6. september 2004 MÁNUDAGUR
GOLF Toyotamótaröðinni lauk um
helgina þegar Icelandair-mótið
fór fram á Strandavelli á Hellu.
Ragnhildur Sigurðardóttir GR
var með pálmann í höndunum
fyrir mótið en Ólöf María Jóns-
dóttir GK, sem var í öðru sæti,
hélt utan til Bandaríkjanna til æf-
inga fyrir úrtökumót Future-
mótaraðarinnar og gat því ekki
gert atlögu að fyrsta sætinu.
Ragnhildur lék á pari vallar-
ins, 140 höggum, og var 8 höggum
á undan Helenu Árnadóttur GA
sem var í öðru sæti. Anna Jódís
Sigubergsdóttir lék á 150 höggum
og náði þriðja sæti.
Ragnhildur sigraði því í
Toyotamótaröðinni, Ólöf María
Jónsdóttir GK varð önnur og
Tinna Jóhannsdóttir GK hampaði
þriðja sætinu.
Búist var við æsispennandi
keppni í karlaflokki en fyrir mót-
ið var aðeins þrettán stiga munur
á Birgi Leifi Hafþórssyni GKG og
Björgvini Sigurbergssyni GK og
gat því sigurinn lent hvorum
megin sem er.
Birgir lék á fjórum höggum
undir pari eða á 136 höggum.
Jafnir í öðru til þriðja sæti urðu
Stefán Orri Ólafsson GL og Sturla
Ómarsson GR sem voru tveimur
höggum á eftir Birgi Leifi.
Björgvin náði sér ekki á strik
og stóð Birgir Leifur því uppi sem
sigurvegari í mótaröðinni.
Birgir Leifur var ánægður
með árangurinn en sagðist hafa
gert klaufamistök á báðum dög-
um mótsins. „Það var engu að síð-
ur góð tilfinning að vinna mótið
og verða þar með stigameistari.“
Birgir Leifur náði að standast
spennuna í baráttunni við Björg-
vin Sigurbergsson. „Þó að nokkur
mistök hafi litið dagsins ljós þá
var þetta traust spilamennska.“
Framundan hjá Birgi er úrtöku-
mót fyrir evrópsku mótaröðina.
„Ég held vonandi áfram á sömu
braut þar, spila sama golf, vera
þolinmóður en það er happa og
glappa hverja viku fyrir sig
hvernig maður er upplagður.
Komast sem lengst, það er mark-
miðið.“
smari@frettabladid.is
Birgir Leifur
bestur á Hellu
Birgir Leifur Hafþórsson sigraði á síðasta stigamóti Toyota-móta-
raðarinnar og tryggði um leið sigurinn á mótaröðinni.
FREMSTUR MEÐAL JAFNINGJA Birgir Leifur Hafþórsson sýndi og sannaði í gær að
hann er besti kylfingur landsins.
■ BREIÐABL.–STJARNAN1-4
0–1 Anna M. Gunnarsdóttir 53.
0–2 Harpa Þorsteinsdóttir 66.
0–3 Lilja Kjalarsdóttir 75.
0–4 Lilja Liljarsdóttir 88.
1–4 Gréta Mjöll Samúelsdóttir 89.
BEST Á VELLINUM
Lilja Liljarsdóttir Stjörnunni
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 10–19 (8–13)
Horn 3–7
Aukaspyrnur fengnar 5–5
Rangstöður 0–11
MJÖG GÓÐAR
Lilja Liljarsdóttir Stjörnunni
Harpa Þorsteinsdóttir Stjörnunni
GÓÐAR
Linda Persson Breiðabliki
Hjördís Þorsteinsdóttir Breiðabliki
Hildur Einarsdóttir Breiðabliki
Anna M. Gunnarsdóttir Stjörnunni
Tinna Mark Antonsdóttir Stjörnunni
Nanna Rut Jónsdóttir Stjörnunni
Breiðablik veitti litla mótspyrnu í Kópavogi í gær:
Stjarnan fór létt með
Blikastúlkur
SVONA UPP MEÐ ÞIG Stjörnustúlkur réttu hver annarri hjálparhönd í gær.
Norðurbandalagið hafði lítið að gera í ungt og efnilegt KR-lið í Frostaskjólinu:
Fínt að enda mótið með sigri
FÓTBOLTI KR-stúlkur unnu góðan
sigur á Þór/KA/KS, 3-1, í Frosta-
skjóli í gær. Þrátt fyrir erfiðar að-
stæður, þar sem skiptust á skin og
skúrir, voru það ungliðarnir í KR
sem áttu daginn meðan gestirnir
sem höfðu fyrir miklu að berjast í
leiknum náðu aldrei að finna sig í
honum.
Edda Garðarsdóttir kom KR
yfir strax á fyrstu mínútu og eftir
það var leikurinn KR-inga. Þær
voru í stórsókn allan leikinn og
bættu við tveimur mörkum áður
en gestirnir náðu einhverjum
takti í leik sinn.
Þór/KA/KS náði að svara fyrir
sig undir lok leiksins en það var
ekki nóg, þær enduðu í næstneðs-
ta sæti deildarinnar og þeirra bíð-
ur umspil um laust sæti í Lands-
bankadeild kvenna á næsta tíma-
bili.
Góður sigur
„Þetta var góður sigur og var í
raun aldrei í hættu þannig að
þessar ungu stelpur stóðu sig vel.
Það var fínt spil í leiknum en völl-
urinn var þungur og það hafði sitt
að segja í síðari hálfleik þegar
leikmenn voru orðnir þreyttir, en
það var fínt að enda mótið með
sigri.
Ég átti samt von á þeim beitt-
ari þar sem þær voru að berjast
fyrir lífi sínu í deildinni en mér
fannst þær aldrei reyna að pressa
á okkur en við vorum aftur á móti
að spila vel og gáfum þeim
kannski aldrei færi á því,” sagði
Halldóra Björk Sigurðardóttir,
þjálfari KR, sem hefur þurft að
leika síðustu leiki mótsins með
ákaflega ungt lið. ÞAÞ
ENDUÐU MEÐ SIGRI Ungu stúlkurnar í KR-liðinu enduðu tímabilið með því að leggja
Þór/KA/KS í Frostaskjólinu.