Fréttablaðið - 06.09.2004, Síða 62
„Rauði krossinn er með mikla starf-
semi í Palestínu, bæði til að aðstoða
palestínska rauða hálfmánann við
brýn mannúðarverkefni á Vestur-
bakkanum og Gaza, en einnig í
fangaheimsóknum til að tryggja að
aðbúnaður sé með réttum hætti og
koma á tengslum milli fanga og ætt-
ingja, ásamt því að styðja palestínsk
börn sem eru þjökuð vegna langvar-
andi hernaðarástands,“ segir Sigrún
Árnadóttir, framkvæmdastjóri
Rauða kross Íslands, sem á dögun-
um kom heim eftir þriggja vikna
dvöl í suðupottinum Jerúsalem.
„Gríðarlegar öryggisráðstafanir
fylgja ferðalögum til Ísraels. Allur
farangur er gegnumlýstur og mikið
spurt um tilgang ferðarinnar, hvað-
an maður kemur, við hvað maður
starfar, hverja maður þekkir í Ísra-
el og Palestínu, hvort maður þekki
einhverja araba og svo framvegis.“
Sigrún dvaldi í vesturhluta Jer-
úsalem þar sem aðallega búa arabar
en í austurhluta borgarinnar helgu
búa gyðingar. Hún segir ástandið
skelfilegt. „Mikil spenna er í loftinu
og ekki bætir úr skák bygging hins
nýja múrs milli Jerúsalem og Vest-
urbakkans, sem hefur mjög alvar-
legar afleiðingar fyrir Palestínu-
menn. Með múrnum verða þeir lok-
aðir af og ruðst er inn á þeirra eigið
landsvæði, þar sem þeir hafa rækt-
að sína ávexti og ólífutré. Allt sam-
félagið lifir í ótta en við fyrstu sýn
kemur landið fyrir sjónir sem ró-
legt og afar fallegt. Þegar betur er
að gáð má alls staðar sjá vopnaða
hermenn og nú um stundir er varla
ferðamann að sjá vegna ótta fólks
við fyrirvaralausar árásir.“
Þegar Sigrún var á ferð um Jer-
úsalem í fyrra sprakk í loft upp
kaffihús þar sem hún hafði oft feng-
ið sér kaffibolla fyrr um sumarið.
„Hörmungar blasa víða við. Meðan
ég var úti voru þúsundir palest-
ínskra fanga í hungurverkfalli, en
mikill fjöldi Palestínumanna hefur
verið handtekinn á síðustu árum og
situr í ísraelskum fangelsum. Þá
var ég einn daginn að koma upp að
landamærastöð þegar okkur var
skipað að snúa tafarlaust við vegna
bíls sem hafði verið sprengdur í loft
upp við landamærin með þeim af-
leiðingum að nokkrir létu lífið og
margir særðust. „
Sigrún segir flesta Palestínu-
menn sem sprengja sig í loft upp
vera ungt fólk sem vill koma á
hefndum. „Þegar fólk hefur lifað
lengi við stríðsástand verður auð-
veldara að hvetja það til sjálfsvíga í
hefndarárásum. Það er erfitt að
setja sig í spor þessa unga fólks.
Það hefur horft upp á sína nánustu
drepna, hús sprengd í loft upp, fólk
fangelsað fyrir litlar sakir og sífellt
er þrengt að því. Oft er sett sama-
semmerki milli araba og hryðju-
verkamanna en þannig er það að
sjálfsögðu ekki. Flestir Palestínu-
menn sem ég hef hitt vilja lifa frið-
sælu lífi, ala börn sín upp í öryggi
og eru áberandi hlýlegt og gestrisið
fólk.“
thordis@frettabladid.is
Arabar eru ekki allir
hryðjuverkamenn
Stelpurnar í hljómsveitinni
Nylon héldu til London í gær en
þar munu þær leggja lokahönd á
sína fyrstu breiðskífu sem Skífan
gefur út í haust. Eins og alþjóð
veit er það tónlistarmógúllinn
Einar Bárðarson sem setti Nylon-
bandið saman og á stærstan þátt í
velgengni sveitarinnar. Hann
kann að velja sér samstarfsmenn
og tjaldar öllu sem til er og bók-
aði því stelpurnar í einkastúdíó
Nigels Wright rétt fyrir utan
London.
Wright er margverðlaunaður
upptökustjóri og hefur meðal
annars unnið með Madonnu, Bar-
böru Streisand, Ronan Keiting,
Cliff Richards og Boyzone.
Wright er ekki bara þunga-
vigtarmaður í upptökubransan-
um þar sem hann er einnig nán-
ast einráður á West End í London
en þar er varla settur upp söng-
leikur án þess að Nigel Wright
stjórni tónlistarútsetningum.
Nigel er tónlistarstjóri Idol-þátt-
anna á Englandi og Bandaríkjun-
um. Hann hefur tvisvar verið til-
nefndur til Grammy-verðlaun-
anna, einu sinni til Óskarsverð-
launa en það var fyrir tónlistina í
kvikmyndinni Evitu. Hann hefur
verið tilnefndur til Bafta-verð-
launa og alþjóðlegu Emmy-verð-
launanna. Nylon er því í góðum
höndum en stúlkurnar verða í
London fram á miðvikudag og
nota hverja vökustund í upptök-
ur. ■
Nylon vinna með hjálparkokki Madonnu
NYLON Stúlkurnar eru farnar til London þar sem þær ætla að klára upptökur á fyrstu
breiðskífunni sinni. Þær njóta fulltingis Nigels Wright sem hefur reynst Madonnu vel í
gegnum tíðina.
34 6. september 2004 MÁNUDAGUR
SIGRÚN ÁRNADÓTTIR, FRAMKVÆMDASTJÓRI RAUÐA KROSSINS „Þegar fólk hefur lifað lengi við stríðsástand verður auðveldara
að hvetja það til sjálfsvíga í hefndarárásum. Að sumu leyti get ég skilið þetta fólk.“
í dag
Rán Freysdóttir
Segir fellibylinn
hafa verið
smágusu
Upphluturinn
veldur uppnámi
enn og aftur
Kúgast af
skólpfnyk á
Sauðárkróki
ÚTI: „DEAD“
Jakkarnir hans Jóns Sæmundar Auðar-
sonar hafa verið inni í sumar. Meira að
segja fékk söngkonan Pink einn slíkan
þegar hún skrapp í verslunarleiðangur í
Reykjavík. En þegar Björgvin Halldórsson
er mættur í einn slíkan jakka, er þetta þá
ekki farið að verða spurning um hvenær
þeir muni fást í Hagkaup?
| INNI & ÚTI |
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 6
1
3
2
Dimitar Berbatov.
Gljúfrastein – hús skáldsins.
Eftir eitt ár.
INNI: GULL, SILFUR, KOPAR,
BRONS
Tískugoð heimsins segja okkur að ef við
glitrum ekki svolítið í haust, getum við
alveg eins haldið okkur inni. Hvernig á
öðruvísi að díla við styttri daga og minni
sól en að grípa með sér gullveskið sem
lýsir sjálft upp umhverfið?