Tíminn - 05.09.1973, Blaðsíða 11
10
TÍMINN
Mibvikudagur 5. september 1973
sem teknar eru á skotaugnablik-
inu. Hins vegar gæti hún staðizt,
ef læknarnir hafa aðeins athugað
jakkann, en ekki likamann.
Auk stærðar sáranna og skotlin-
unnar er fleira, sem bendir til, að
Kennedy hafi verið skotinn fram-
an frá en ekki að aftan. Þá mun
skotið hafa komið frá hægri.
Allir læknarnir, sem sáu
Kennedy á sjúkrahúsinu, töldu,
að stóra sárið, sem var á höfði
forsetans, og það sem olli honum
bana, væri eftir kúlu, skotið frá
hægri, en þar var einmitt grasi
vaxin hæð. Nokkrir læknar við
Parkland-sjúkrahúsið töldu einn-
ig, að sárið á hálsinum væri eftir
skot framan frá, en yfirvöld hafa
ekki tekið neitt mark á þvi.
Eina kvikmyndin, sem tekin
var á morðaugnablikinu (af
áhugamanni að nafni Abraham
Zapruder), sýnir greinilega, að
þegar skot no. 2 hitti Kennedy,
slengdist hann aftur á bak og til
vinstri óeðlileg hreyfing ef skotið
hefði komið aftan frá. Engin af
þeim skýringum, sem gefnar
hafa verið á þessu, eru sannfær-
andi.Jackie snertiekki mann sinn
þá,og billinn tók ekki að hemla
fyrr en 3 sekúndum siðar. Það
sést greinilega á myndunum.
Kom skotið framan frá?
Það má þykja undarlegt, að fá-
ir vita, að forsetinn slengdist aft-
ur á bak á skotaugnablikinu.
Meira að segja meðlimir Warren-
nefndarinnar hafa ekki hugmynd
um það, en nefndin var stofnuö til
að komast að sannleika málsins.
Tvær mjög. mikilvægar myndir
voru nefnilega teknar út úr filmu
Zapruders, þegar Warren-skýrsl-
an var prentuð,og aörar settar i
staðinn. Arangurinn er sá, að það
litur út fyrir, aö Kennedy slengist
fram. 1 desember 1965 viður-
kenndi svo J. Edgar Hoover, þá-
verandiyfirmaður FBI, að „oröið
hefðu mistök” i prentuninni hvað
varðaði myndir no. 314 og 315 i
Zapruder-filmunni.
Warren-nefndin taldi á sinum
tima, aö önnur kúlan, eftir að
hafa fariö gegn um Kennedy, hafi
hitt Conally rlkisstjóra I bakið,
lærið og úlnliðinn. Þeir, sem ekki
vita um allar krókaleiðir byssu-
kúlu, hafa lýst þetta ómögulegt.
Til eru fjölmörg dæmi um kúlur,
sem farið hafa hinar undarleg-
ustu leiðir. Það fékk maöur sá að
reyna, sem eitt sinn ætlaöi að
Þetta eru myndir, sem Zapruder tók á 8 mm litfilmu. Fyrsta myndin er tekin rétt áður en fyrsta skotið reið af. A þeirri siðustu er bfllinn kominn
á hraða ferð tii sjúkrahússins.
Dr. Cyril H. Wecht,
þekktur bandariskur
lögfræðingur og réttar-
læknir, hefur á eigin
spýtur reynt að komast
til botns i morðmáli ald-
arinnar — þvi, er John
F. Kennedy Banda-
rikjaforseti var myrtur i
Dallas i Texas fyrir tæp-
um tiu árum. Nú heldur
Wecht eftirfarandi
fram:
Forsetinn slengdist aftur á bak
við fyrsta skotið, og þar af leið-
andi getur það skot ekki hafa
komið frá Oswald, sem var fyrir
aftan forsetann. Myndir af ódæð-
inu sýna þetta glöggt. En i Warr-
en-skýrslunum um morðið hefur
verið skipt um myndir, og þar
sést forsetinn falla fram á við.
Margt bendir til þess, aö skotiö
i hálsi forsetans hafi farið inn að
framanverðu, þar sem sárið i
hnakkanum var stærra en það að
framan. Hafi svo verið, voru fleiri
að verki en Oswald.
t athugasemdum frá krufning-
unni sjálfri var sagt, að skot-
sáriö i hnakkanum væri átta
sentimetrum neðar en segir I op-
inberum krufningarskýrsl. Þar
af leiðandi hefur þvi veriö hleypt
af á jörðu niðri, en ekki ofan af
sjöttu hæö, þar sem Oswald var.
Þegar yfirkrufningalæknirinn
var spurður i réttinum, hvers
vegna leið kúlunnar gegnum
hnakka forsetans hefði ekki verið
rannsökuð nánar, svaraöi hann:
— Við vorum beðnir að gera það
ekki. Dr. Wecht telur, að krufn-
ingin hafi farið fram undir eftir-
liti.
Frumskýrsla frá kurfningunni
var brennd af yfirlækninum strax
eftir að hún var skrifuð. Hvers
vegna?
Burkley aðmiráll birti aðeins
opinberlega þá hluta skýrslunnar,
sem hann taldi „nauðsynlega.”
Margt bendir til, að aðskota-
hlutur á stærð við kúlu, sem ekki
er nefndur I krufningaskýrslum,
sitji I heila forsetans. En heilinn
sjálfur og nokkrar mikrófilmur,
sem gætu sannaö þetta, er nú
horfið sporlaust. Krufninga-
læknarnir rannsökuðu aldrei höf-
uð forsetans nánar til aö athuga,
hvort fleiri kúlur hefðu hæft hann.
Allt bendir þetta i eina átt að
áliti dr. Wecht. Nefnilega til sam-
særis.
Visindalega unnið
Margir starfsbræðra dr. Wecht
eru honum ósammála.og margir
þeirra gagnrýna hann fyrir að
koma með slikar yfirlýsingar. En
þeir eru læknar, og þeirra verk-
efni er að segja til um, hver or-
sökin var. en ekki hver geröi þaö.
En það er ekki hægt bara rétt si
sona aö visa staöhæfingum dr.
Wechts á bug. Hann er ekki bara
læknir og lögræðingur, heldur
sérmenntaður á þvi sviöi sjúk-
dómafræðinnar, sem einmitt þarf
til að skilgreina moröið á Kenne-
dy. Auk þessa er dr. Wecht fyrr-
verandi forseti réttarvísindaaka-
demiunnar i Bandarikjunum.
— Sú staðreynd, að margt fólk
er sagt hafa séö marga menn að
verki með byssur á morðaugna-
biikinu, er ekki mikiö við að
styðjast.segir dr. Wecht. — Það,
sem úrslitum ræður, eru horn
þau, sem skotin fóru inn og út úr
likamanum undir, nákvæm stað-
setning skotanna,’fjöldi þeirra og
hvort þau fóru inn i likama
Kennedys framan, eða aftan frá.
I flestum tilfellum er tiltölulega
auðvelt fyrir réttarlækni að segja
til um, hvort skotsár er eftir kúl-
una á leið út eða inn, þvi kúla á
leiö inn veldur sári, sem venju-
lega er minna en það, sem kemur,
þegar hún er á leiö út.
Skotsárin
Þvi miður voru herlæknarnir
þrir, sem framkvæmdu krufning-
una á liki Kennedys, ekki mjög
reyndir á þvi sviði. Yfirmaðurinn
hafði aðeins einu sinni áður komið
nálægt skotsárstilfelli, og þeir
voru ekki hæfir til að meta, hvaða
sár voru eftir kúlur á leið út eða
inn. Þeir gátu það heldur varla,
þvi að læknarnir i Dallas höfðu
skorið upp háls forsetans til að
reyna aö bjarga honum.
Hefðu krufningalæknarnir
hringt til læknanna i Dallas, hefðu
þeir aö llkindum getað fengið it-
arlegar upplýsingar um sárin, en
það var aldrei gert. Aðeins með
því að skoða sárið að aftan, drógu
læknarnir þá ályktun, að sárið að
framan væri eftir kúlu á leið út.
Þar með var talið, aö vist væri, að
Kennedy hefði verið skotinn aftan
frá, þar sem Lee Harvey Oswald
er talinn hafa verið.
Miklar likur eru á að þetta sé
rangt, þvi stærð sáranna kom i
ljós siðar, þegar Warren-nefndin
yfirheyrði læknahópana, hvorn
fyrir sig. Þeir, sem sáu skotsárið
áöur en skorið var, segja það hafa
veriðþrjá til fjóra mm i þvermál,
en sárið i hnakkanum er sagt
fimm til sjö mm. Þó að hið gagn-
stæða gerist stundum, er það afar
sjaldgæft. Dr. Wecht segir út frá
þessu, að kúlan hafi farið inn að
framanverðu.
Hnakkinn eða bakið?
Onnur aöferð til að ákvaröa,
hvort skotið hefur komið frá
sjöttu hæð i geymsluhúsinu, er að
athuga afstöðu sáranna hvors til
annars. Ef Kennedy var skotinn
aftanfrá af sjöttu hæð, hlýtur
hnakkasárið að vera hærra uppi
en það að framan. Það er einmitt
sagt i krufningarskýrslunni. En
riss, sem gert var við sjálfa
krufninguna, áður en læknarnir
komu saman til að ákveða, hvað
þeir ættu aö skrifa, sýnir, að sárið
á bakinu er átta sm neðar en
stendur i skýrslunni. Ef rissið, en
ekki skýrslan, er rétt, hefur skot-
inu verið hleypt af á jörðu niöri.
Munurinn á rissinu og skýrsl-
unni getur auðvitað stafað af
óhæfni og reynsluleysi læknis, en
dr. Wecht leggur áherzlu á, að
læknarnir hafi af mikilli vand-
virkni merkt allt annað, svo sem
fæðingarbletti og ör. 1 skýrslunni
stendur, að skotið hafi komið i
hnakkann, en teikningin og
punktar með henni segja i bakið.
Það er skrýtið, að þrir læknar
skuli rugla saman hnakka og
baki.
Lee Harvey Oswald. Verkfæri í höndum samsærismanna?
Kúlugatið á frakka forsetans er
einnig átta sentimetrum neðar
en skýrslan segir til um, en skýr-
ingin er sögð sú, að frakkinn hafi
krumpazt, þegar forsetinn veifaði
til mannfjöldans. Þessi skýring
kemur þó ekki heim við myndir,
HEILI KENNEDYS
ER HORFINN
Miövikudagur 5. september 1973
TÍMINN
11
fremja sjálfsmorð. Hann miðaði
á hjartað og vaknaði siðan á
sjúkrahúsi með kúluna i pungn-
um. Skýringin er sú, að þegar
kúla hittir bein, er hætt við að hún
fari af leið. Warren-nefndin telur,
aö það hafi gerzt i Dallas. En kúl-
an, sem fór i gegnum háls Kenne-
dys, rakst bara alls ekki i bein.
Samt sem áður er talið, að hún
hafi fariö á skakk til hægri og hitt
Conally á hinum óliku stöðum.
Fleiri kúlur
i spilinu
Connally, sem náði að snúa sér
við, þegar hann heyrði fyrsta
skotið, segir, að það sé aldeilis
óskiljanlegt, að sama kúlan hafi
hitthann. Annað, sem gerir þessa
kenningu ósennilega, er það, að
eftir allar eyðileggingarnar, var
kúlan svo til ósködduð og vó svo
að segja það sama og i upphafi.
— Það hljóta að hafa verið
fleiri kúlur i spilinu, segir dr.
Wecht —■- En hvaðan komu þær og
hvað varð af þeim? Hann ætlar
sjálfur aö finna svariö við þvi.
Fleiri aöferðir eru til að reyna
kenningu Warrennefndarinnar
um eina kúlu. Ein þeirra er nev-
trónugreining, en hún hefur
aldrei fariö fram, þrátt fyrir að
sérfræðingur i réttarlækningum
gekk svo langt sem til réttarins til
að fá slfka greiningu gerða — en
án árangurs.
Spektrografiskar greiningar
hafa verið gerðar á málmleifum
þeim, sem fundust i likama for-
setans, en niðurstöðurnar hafa
aldrei verið birtar. Auk þess hef-
ur dr. Wecht uppgötvað, að grein-
ingar-skýrslurnar eru horfnar á
dularfullan hátt úr þjóðskjala-
safninu.
Þriöja aðfeðin til að ákvarða,
hvort það var sama kúlan, sem
hitti Kennedy og Connally, er að
athuga föt Connallys, þar sem
kúla hitti. Kúla, sem hleypt er úr
riffli, ber alltaf einhverja oliu á
sér, en kúla, sem fyrst fer gegn-
um mann, og siðan i annan, er al-
veg oliulaus. Dr. Wecht hefur nú
komizt að þvi, aö föt Kennedys
voru athuguð strax, en Connallys
ekki fyrr en eftir hreinsun.
Hvað er i
heilanum?
Dr. Wecht hefur sett ótal spurn-
ingarmerki viö þau gögn, sem
hann hefur fundið i þjóðskjala-
safninu. A einni af stóru myndun-
um af heila Kennedys sést dökk-
brúnn hlutur á stærð ca. hálf sinn-
um treikvart lomma. Þetta er
hvergi nefnt i krufningarskýrsl-
unni, þrátt fyrir það, að hún geri
itarlega grein fyrir 35 málmflis-
um, sem fundust i likama forset-
ans, flestar i höfðinu, og á stærð
við sandkorn.
Fyrst læknarnir hafa ekki nefnt
þetta og heilinn finnst ekki, telur
dr. Wecht, að þetta hljóti að vera
blæðing vegna skotsins.kúla eða
hluti kúlu, æxli eða einhver van-
sköpun á æðum. Hann hefur þó
ekki sérstaka trú á, aö þetta sé
blæðing — ef svo væri, heföi það
veriönefnti skýrslunni. Hins veg-
ar þykist hann viss um, að lækn-
arnir hafi séð hlutinn — vegna
stærðar hans — en látiö vera aö
nefna hann i skýrslunni. Sé þetta
kúla, eða hluti kúlu, vakna marg-
ar spurningar, þvi að Kennedy
var skotinn af manni, sem ekki
átti að hafa skotið nema tveimur
kúlum, og þær eru báðar fundnar.
Dr. Wecht taldi, að vandalaust
væri að sjá á heilanum, hvar kúl-
an heföi fariö inn, en þegar hann
kom i safnið, eftir aö hafa boöaö
komu sina bréflega, uppgötvaði
hann, aö heilinn var horfinn.
Þetta olli honum ekki stórum
vonbrigðum, þar sem hann vissi,
aö til voru mikrófilmur af heilan-
um og þær myndu sýna það, sem
hann leitaði. En er hann baö um
þær, var honum tjáð, að þær væru
einnig horfnar.
Það verður að segjast, að venj-
an er að brenna heila þegar eftir
krufningu, en dr. Wecht spyr: —
Hver vill taka á sig þá ábyrgð að
eyöileggja forsetaheila?
Heilinn getur
leyst gátuna
Eftir að hafa rætt við ýmsa
háttsetta menn og Lincoln, einka-
ritara Kennedys, komst Graham,
blaðamaöur New York Times, að
þvi, að mikrófilmurnar, og lik-
lega einnig heilinn i krukku með
formalini, hafði verið afhent að-
stoðarmönnum Roberts Kennedy
i læstum kassa árið 1965. 1 l.iós
kom svo, þegar allt frá krufning-
unni var afhent þjóðskjalasafninu
árið eftir, að heilinn.og fleiri mik-
ilvægir hlutir, voru þar ekki.
Einn merkilegur hlutur á
krufningarmyndunum er laus
húöflipi á hnakka Kennedys,
lengst til vinstri. Hans er hvergi
getið. Hafi Kennedy verið skotinn
aftanfrá með einni kúlu gegnum
hnakkann,og annarri sem fór ínn i
höfuðuð neðarlega til hægri, eins
og Warren-nefndin segir, hefði
sa'nnarlega átt að rannsaka skaða
vinstra megin á höfðinu. En
hversu ótrúlegt sem það kann að
viröast, gerðu læknarnir þrir eng-
ar athuganir á höfði forsetans til
að vita, hvort fleiri kúlur hefðu
hæft hann. Venjulega er höfuðið
rakað. En þarna var ekkert gert.
A grundvelli þessa húðflipa og
hreyfinga forsetans, þegar skotin
hittu hann, er nauösynlegt að
finna heilann, ef sannleikurinn á
nokkurn tima að koma i ljós.
Vandræði dr. Wechts
Það, sem dr. Wecht hefur kom-
izt að, og það, sem hann hefur
sagt um málið, hefur leitt til þess,
að hann er óæskileg persóna á
mörgum stöðum. Aður en hann
heimsótti safnið, hafði hann skrif-
að greinar, þar sem hann lét i ljós
þá skoðun sina, að vinnubrögð
hins opinbera i málinu væru að-
eins sýndarmennska. Nærri má
geta, að honum var ekki tekið
opnum örmum i safninu. I ágúst
1971 skrifaði hann Burke Mar-
shall, lögfræðingi Kennedyfjöl-
skyldunnar, en hann ákveður
hvaöa læknar mega sjá gögnin.
Burke svaraði, að hann skyldi
snúa sér til safnsins, sem aftur
vlsaöi til hans. í það sinn svaraöi
Burke Marshall ekki bréfinu fyrr
en aö ári liðnu, þegar Graham,
blaðamaðurinn áðurnefndi, tók
að sýna málinu áhuga. Þá fékk
dr. Wecht aðgang að sönnunar-
gögnunum.
Þaö er synd, að læknar þeir,
sem framkvæmdu krufninguna,
skyldu gera svo margar vitleysur
og sleppa svo mörgum atriðum i
skýrslu sinni. Aðeins einn þeirra
var réttarlæknir, og hann haföi
aöeins einu sinni unniö við skot-
sár áður. Auk þess kom hann ekki
fyrr en verkið var hafið.
Var krufningar-
skýrslan samin?
Þrátt fyrir vitleysurnar og þaö,
sem sleppt er i skýrslunni, geta
læknarnir þrir hafa unnið betra
verk en ástæöa er til að halda.
Mögulegt er, að þeim hafi verið
neitað um að skrifa ýmislegt, eða
að skýrslunni hafi siðar verið
breytt. Þriðji möguleikinn er sá,
að þeir hafi unnið undir einhvers
konar eftirliti. Við yfirheyrslur
yfirClay Shaw, sem ákærður var
fyrir samsæri gegn Kennedy en
siðar saklaus fundinn, spurði
ákærandinn, Jim Garrison, lækn-
inn hvers vegna hann hefði ekki
látið rannsaka sárin betur. Lækn-
irinn svaraði, að hann hefði verið
beðinn að gera það ekki.
Jim Garrison telur nú, að það
hafi verið hershöfðingi úr flug-
hernum, sem stjórnaði krufning-
unni, en sennilega verði nafn hans
aldrei kunnugt. Rikissaksóknar-
inn segir: Krufning forsetans var
viðkvæmt mál, og hætta var á, að
eitthvað kæmist upp. Þar af leið-
andi urðu þeir, sem stóðu að baki
samsærinu, að sjá um að fylgzt
væri með henni — ekki aðeins af
lækni — heldur einnig einhverj-
um, sem vissi, hvað þurfti að fela.
Einhverjum, sem vissi, hver hin
opinbera útgáfa á morðinu yrði,
og kurfningarskýrslan þyrfti að
vera i samræmi við það.
Garrison er sannfærður um, að
skýrslan, sem siðar var gefin út,
sé fösluð. Hin sanna skýrsla hefði
nefnilega leitt i ljós samsæri, og
þaðan er ekki löng leið til sam-
særismannanna, sem Garrison
telur hiklaust, að séu engir aðrir
en hinir mjög svo voldugu vopna-
framleiðendur i Bandarikjunum,
sem litu á friðarstefnu Kennedys
sem tilræði viö sig. Hann var
þeim þyrnir i augum, og þeir
ákváðu aö losa sig við hann. Lee
Harvey Oswald var aðeins verk-
færi, og hann var skotinn strax, til
þess að hann næöi ekki að segja
sannleikann.
Frumskýrslan brennd
Aö rannsaka ekki sárin voru
herfileg mistök. Þá hefði verið
hægt aö segja um, hvort kúlan,
sem sögð er hafa farið inn um
hnakkann, fór raunverulega
þvert i gegn og kom út um háls-
inn, eða hvort kúlurnar voru
tvær, annarri skotiö framan frá,
en hinni aftan frá.
Burkley aömiráll, heimilis-
læknir forsetans, sem fékk krufn-
ingarskýrsluna i hendur strax,
hefur viðurkennt að hafa aðeins
birt þá hluta hennar, sem hann
taldi nauðsynlega. Tveimur mán-
uöum siðar var skýrslan send Se-
cret Service, sem tveimur mánuð
um siðar sendi hana til FBI. Eftir
öllu að dæma, er það aðeins frum-
skýrslan, sem sagði sannleikann,
en vafasámt er, að bandariska
þjóöin, eða heimurinn, fái nokk-
urn tima að vita, hvað i henni
stóð.
Það einkennilegasta við alla
krufninguna er samt sem áður sú
staðreynd, að frumskýrslan var
brennd strax og hún hafði verið
skrifuð, og það gerði læknir sá, er
stjórnaði krufningunni. Þar var
skýrt nákvæmlega frá, hvar skot-
sárin voru, hvar kúlur fóru inn og
komu út, hve margar kúlurnar
voru o.s.frv. Að margra áliti er
þetta það dularfyllsta i öllu mál-
inu.
Bandarisku þjóðinni finnst hún
vera höfð að fifli i sambandi við
þetta morð aldarinnar. Þess
vegna munu sögurnar halda
áfram að ganga og fólkið að
hugsa. Margir þeirra, sem raun-
verulega hafa lagt sig i lima við
að velta málinu fyrir sér, sitja
uppi með ótal spurningar, sem
enginn svarar: Hvað með mynd-
irnar, sem teknar voru af
geymsluhúsinu rétt fyrir morðið?
Hvers vegna sést þar maður likur
Oswald við glugga á fyrstu hæð en
ekki sjöttu? og Nokkrum sekúnd-
um fyrir morðið sjást tveir menn
við gluggann á sjöttu hæð. Og
hvað með manninn i Dallas sem
kallaði sig Lee Harwey Oswald, á
meðan Oswald sjálfur var erlend-
is? Hvað með manninn, sem
ásamt syni sinum hafði ótal sinn-
um séð þennan dularfulla Oswald
að skotæfingum skömmu fyrir
morðið. Eða konuna, sem kvaðst
áður hafa heyrt þrjá menn gera
áætlanir um morðið á forsetan-
um. Hún taldi einn þeirra hafa
verið Lee Harvey Oswald.
Hverjir voru mennirnir á grasi
vöxnu hæöinni rétt við morðstað-
inn, sem kváðust vera úr leyni-
þjónustunni, þó að leyniþjónustan
neitaði siðar að hafa haft þarna
menn. Spurningarnar eru marg-
ar, en nú, tiu árum siðar, eru
svörin of fá.
1 ljósi upplýsinga dr. Wechts er
góð ástæða til að ætia,að svörin
viö nokkrum þessara spurninga
sé að finna i hinum týnda heila
forsetans. t þvi sambandi er vert
aö geta þess, að Jack Ruby, sá
sem skaut Oswald, tautaði á leið
úr fangelsinu til réttarsalarins,
ári eftir morðið: — Samsæri frá
upphafi til enda... morðið á for-
setanum lika.... ef fólk vissi sann-
leikann, fengi það áfall....
(ÞýttSB)
Afar mikilvæg sönnunargögn í Kennedymálinu, sem
geymd hafa verið í þjóðskjalasafni Bandaríkjanna eru
horfin. Hvers vegna? Hver hefur fjarlægt þau? Hvar
eru þau? Rannsókn á þessum gögnum,framkvæmd af
sérfræðingum, hefði getað leitt í Ijós, sannleikann um
þetta morðmál aldarinnar - og þar með bundið endi á
10 ára efasemdir bandarísku þjóðarinnar. En það virð-
ast ekki allir hafa hug á að sannleikurinn komi fram.
Jack Ruby skýtur Oswald á leið I réttarsalinn. Var það gert til aö hann segði ekki sannlcikann?