Tíminn - 05.09.1973, Blaðsíða 15
MiOvikudagur 5. september 1973
TÍMINN
Hér er fyrsta myndin af nýfæddu, dönsku fjórburunum og hinni stoitu móður þeirra, Kirsten
Kynde.
Fjórburafæðing í Danmörku
Nýfæddu fjórburarnir i
Danmörku fengu konunglegar
móttökur. Prófessor Dyre
Trolle, sem tók á móti Jóakim
prins, syni Margrétar
drottningar, var fremstur i
flokki 30 sérfræðinga, sem við-
staddir voru, þegar fjór-
burarnir voru teknir með
keisaraskurði á Rikis-
spitalanum i Kaupmannahöfn.
Fiórburarnir eru tvær
stúlkur sem vógu 1700 og 1400
grömm,og tveir drengir, sem
vógu 1700 og 1600 grömm.
Þrátt fyrir lága þyngd hafa
þeir góða möguleika á að lifa.
Þeir eru nú i súrefniskassa.
Móðurinni, hinni 28 ára
gömlu kennslukonu, liður vel.
Hún hlakkar mikið til að koma
heim til eiginmannsins og
fjögra ára dóttur þeirra,Berit.
En hinir nýju fjölskyldumeð-
limir fá ekki að yfirgefa
sjúkrahúsið fyrr en þeir vega 2
kg.
Kirsten Kynde og eigin-
maður hennar, hinn þritugi
Lars Ole Kynde, bjuggu sig
ekki undir margburafæðingu,
þó að þeim hefði verið tilkynnt
nokkrum vikum fyrir fæðing-
una,að þeim myndu annað-
hvort fæðast þriburar eða
fjórburar.
Mæður okkar hefðu fengið
taugaáfall, hefðum við sagt
þeim þetta, sagði hinn
hamingjusami faðir. — Og við
sjálf hættum aðeins á að
kaupa barnaföt á eitt barn, þvi
að hugsa sér hefðu þrjú dáið...
Lars Ole Kynde er mjög
hreykinn af konu sinni og
börnum. Við höfðum áætlað að
eiga þrjú til fjögur börn i allt.
En fjögur i einu eru eins og
hvalreki.
Eðlileg
fæðing.
Fjórburafæðingin var eðli-
leg, en ekki afleiðing af hor-
mónakúr.
Skirnin á að vera mjög
hátiðleg. Afi fjórburanna,
presturinn Kárl Kynde,hætti
störfum fyrir tveimur
mánuðum eftir langt lifsstarf
á Norður-Sjálandi. Hann hefur
ákveðið að skira fjórburana,
sem sitt seinasta embættis-
verk. Þeir eiga að heita Ranti,
Iben, Truls og Suna.
Fjórburarnir eiga ekki að
vera notaðir i auglýsinga- eða
fjárgróðaskyni.
Við kona min höfum talað
um þetta og ákveðið að neita
öllum auglýsendatilboðum,
segir Lars Ole Kynd. — Ég vil
ekki að börnin min alist upp
með auglýsingaskilti um
hálsinn.
Aður hafa fæðzt tvennir
fjórburar i Danmörku. Þrir
drengir og ein stúlka fæddust
1936 á Jótlandi, og fjórir
drengii i Kaupmannahöfn árið
1967.
(Þýtt og endursagt. gbk.)
Ráðstefna alþjóðastofn-
ana í V-Evrópu haldin hér
DAGANA 5,-7. þ.m. verður haldin
hér i Loftleiðahótelinu 5. ráð-
stefna Norðurlandaráðs fyrir
alþjóðastofnanir i Evrópu. Er
þetta i fyrsta sinn sem slik ráð-
stefna er haldin hér á landi. Þátt-
takendur eru um 40 frá alþjóða-
stofnunum i Evrópu, Norður-
landaráði, skrifstofu forsætis-
nefndar Norðurlandaráðs og
öðrum skrifstofum ráðsins.
Frá tslandi taka þátt Matthias
A. Mathiesen alþm., vara-
tormaður tslandsdeildar Norður-
landaráðs, Friðjón Sigurðsson,
skrifstofustjóri Alþingis, og
Þórður Einarsson, deildarstjo'ri, i
Rætt verður um hlutverk
Norðurlanda i Evrópu, samband
alþjóðastofnana og Norðurlanda-
ráðs, Efnahagsbandalagið og
Norðurlöndin, tollabandalagið og
Norðurlöndin og alþjóðavinnu-
málastofnunin og Norðurlöndin.
Ráðstefnan verður sett af
Matthiasi A. Mathiesen alþm., en
fyrirlesarar verða meðal
annarra: Þórður Einarsson,
deildarstjóri i menntamálaráðu-
nevtinu, Per Kleppe, fyrrv. ráð-
herra i Noregi, V. Kostelecky,
ritari efnahagsnefndar Evrópu,
Oie Bech, deildarstjóri i utan-
rikisráðuneyti Danmerkur og
Xke Linden, viðskiptafulltrúi
tollabandalagsins.
15
LAUGARDALSVOLLUR
Íbikarkeppnin
ÍFram - ÍBV
I leika i kvöld kl.18 (undanúrslit);
I Komið og sjáið
I spennandi leik.
| Knattspyrnudeild Fram.
nmHTTTyiTyinTriTmrmmmiHnii
Sérlevfis- oq Itevkjavik — I.augarvatn — Geysir — Gullfoss
■ ..r um Grimsnes, Biskupstungur, Laugardal
skemmmeröir al)a daga engin fri við akstur
BSl — Simi 22-300 — rtlafur Ketilsson
l±±±±±±i±±±±±±±i±±±±±±±±±±i±±±±±±±±±±iil
'ff:
>.4s'
í ’f
Bókavarzla
I
Borgarbókasafn Reykjavikur óskar að
ráða tvo bókaverði. Annar þeirra hafi
bókavarðarpróf.
Umsóknir sendist borgarbókaverði fyr-
ir 15. sept. n.k.
Upplýsingar gefnar i sima 10075 virka
daga kl. 9-11.
1'
'o'.vC
$
. !•'
r
V > *
• .
* >./
Borgarbókasafn
Reykjavikur.
&
Frá Fimleikasambandi íslands.
Ndmskeið
i áhaldafimleikum fyrir iþróttakennara og
þjálfara verður i íþróttahúsi Seltjarnar-
ness 14. til 16. september n.k.
Kennt verður fimleikakerfið „Turnstig-
en” fyrir stúlkur og pilta.
Kennarar: Harald Brynildsen og Tore Jo-
hansen.
Innritun og upplýsingar i sima 83402 og
83377.
Fimleikasambandið
-
ír1•
<*
r ^
:*V:
zTr
;,v
- J. v>
'S.y-
Frd
gagnfræðaskólum
Reykjavíkur
b"immtudaginn 6. septernber n.k., kl.
3-6 siðdegis, þurfa væntanlegir
nemendur gagnfræðaskóla Reykjavik-
ur (i 1., 2., 3. og 4. bekk) að staðfesta
umsóknir sinar þar sem þeir hafa feng-
ið skólavist.
Nemendur þurfa þó ekki nauðsynlega
að koma sjálfir i skólana, heldur nægir
að aðrir staðfesti umsóknir fyrir þeirra
hönd.
%
k-f
kl
m
vr
■$'}
r-‘.
%
■J
i, V
V
Umsóknir um 3. og 4. bekk, sem ekki
verða staðfestar á ofangreindum tima,
falla úr gildi.
Umsækjendur hafi með sér prófskir-
teini.
Gagnfræðaskólar borgarinnar verða
settir 17. september. Nánar auglýst
siðar.
‘M'C- .'■* + r
- u
'■yX?
y -
V >>
■' 4,
\ •/
’V>Y
SÍjZ't
Fræðslustjórinn i
Reykjavik.