Tíminn - 05.09.1973, Blaðsíða 17
Miðvikudagur 5. september 19/3
TIMINN
17
Bikarkeppni KSÍ:
Hvort reynist haldbetra,
raunhyggjan eða hjótrúin?
„BEA-OPEN"
um helgina
Kylfingar — til
kynnið þátttöku
í dag!
„BEA-OPEN”... opin flokka-
keppni Oolfklúbbs Suöurn. fer
fram ;í Hómsvellinum vift Leiru
uin næslu helgi. Leiknar verða :i(»
holur i meistara- I. og 2. flokki.
Peir.sem liafa áhuga á að taka
þátt i þcssu opna inóti, eru heönir
að tilkynna þálttöku sina til golf-
klúbba, sem viðkomandi er með-
limur i, fyrir kl. 20.00 i kvöld.
Nánar verður sagl frá keppninni
sem stendur yfir laugar- og
sunnudag, i hlaðinu á föstu-
daginn.
Slökkvilið
Keflavíkur-
flugvallar
gefur
Slökkvilið Keflavikurflugvallar
bcfur gefið 0.000,00 krónur i söfn-
unina til styrktar ekkju llauks B.
Ilaukssonar, knattspyrnumanns.
Slökkviliðið lagði peningana inn á
girórciking söfnunarinnar nr.
20002. Allmörg framlög frá vinnu-
liópum og einstaklingum hafa
hori/.t og er vonandi, að íþrótta-
menn og iþróttaunnendur taki
höndum saman, minnugir þess,
að safnast þegar saman kemur.
Vann
Norfolk-
meist-
arann
Finnbogi Guömannsson, tslands-
meistari i knattborðsleik,
„Billiard” tók þátt i „billiard”-
keppni út i Bandarikjunum fyrir
stuttu. llann keppti við nokkra
sterkustu knattborðsspilara I
Norfolk i Virginia-fylki, þar á
meöal Norfolk-meistarann.
Finnbogi stóð sig mjög vel i
keppninni. Hann spilaði tólf leiki,
vann ellefu og tapaði aðeins
einum. Finnbogi gerði sér litið
fyrir og vann Norfolk-meistarann
sex sinnum i röð. Þeir sem voru
vitni að þessari keppni, sögðu að
Finnbogi hafi vakið mikla athygli
fyrir skemmtilega spilamennsku
og gerði hann margar kúlur á
mjög skemmtilegan hátt. En eins
og menn vita, þá eru kúlur
skotnar niður i göt i „billiard”.
STEINAR JÓHANNSSON... hefur ósjaldan skorað mörk á Skaganum. Hvað gerir hann i kvöld?
ARNAR GUÐLAUGSSON... sést hér skora mark fyrir Fram, gegn Viking. Hann leikur meö Framliöinu
að nýju í vetur.
t siðasta Reykjavikúrmóti varð
röð liðanna, þessi:
1. Vikingur
2. Valur
3. Fram
4. KR
5. Armann
6. Þróttur
7. ÍR
8. Fylkir
í kvöld fara fram
undanúrslit i Bikar-
keppni KSÍ, en á
Laugardalsvellinum
leika Fram og Vest-
mannaeyingar og á
Akranesvelli leika
Akurnesingar og Kefl-
vikingar, Bendir flest til
þess, að tvö utanbæjar-
félög leiki til úrslita i
Bikarkeppninni i ár, þvi
að Fram virðist ekki lik-
legt til afreka, a.m.k. ef
miðað er við siðasta
leik. Spá iþróttasiðu
Timans er sú, að Kefl-
vikingar og Vestmanna-
eyingar leiki til úrslita i
Bikarkeppninni i ár.
Annars er það svo einkennilegt,
að það lið, sem lagt hefur Viking
að velli i Bikarkeppninni á undan-
förnum árum (4 sinnum á
fimm árum), hefur orðið Bikar-
meistari. Samkvæmt þeirri reglu
ættu Framarar að verða Bikar-
meistarar i ár. Nú er að vita,
hvort reynist haldbetra, raun-
hyggjan eða hjátrúin! Leíkurinn
Laugardalsvelli i kvöld milli
Fram og Vestmannaeyinga hefst
kl. 18. Leikur Akurnesinga og
Keflvikinga á Akranesi hefst á
sama tima.
Bikarmeistarar frá
hafa þessi félög orðið.
1960 KR
1961 KR
1962 KR
upphafi,
1963 KR
1964 KR
1965 Valur
1967 KR
1968 Vestmannaeyjar
1969 Akureyri
1970 Fram
1971 Vikingur
1972 Vestmannaeyjar
Núverandi bikarmeistarar hafa
lagt tvö Reykjavikurfélög að velli
i bikarkeppninni. F’yrst Val á
Laugardalsvellinum og siðan KR
á Melavellinum. Báðir leikirnir
voru nokkuð sögulegir. 1 leik Vals
og Eyjamanna, var Hermanni
Gunnarssyni vikið af leikvelli og i
leik KR og Eyjamanna, vakti
netamarkið umtalaða mikla
athygli. Hvaö skeður i kvöld? Slá
Eyjamenn, þriðja Reykjavíkur-
félagið úr bikarkeppninni, eða
halda Framarar merki Reykja-
vikur á lofti.?
Handknattleikur:
FRAMARAR ENDUR-
HEIMTA LEIKMENN
Fjórir fyrrverandi meistaraflokksmenn munu leika aftur með
Framliðinu í vetur. Handknattleiksvertíðin
Framliðið i handknatt-
leik hefur nú endur-
heimt fjóra fyrrverandi
meistaraflokksmenn,
sem munu leika með lið-
inu i vetur. Þessir leik-
menn eru Arnar Guð-
laugsson, Stefán
Þórðarson, Pálmi
Pálmason og Sveinn
Sveinsson. Það er
öruggt, að þessir leik-
menn koma til að
styrkja liðið mikið og
að hefjast
má þvi búast við að
Framliðið verði með i
baráttunni i vetur.
Arnar mun aftur koma til
Reykjavikur, en hann hefur
dvalizt á Húsavik sl. ár. Stefán
Þórðarson hefur stundað nám i
Danmörku, en er nú alkominn
heim. Pálmi, sem stundar nám i
tþróttakennaraskólanum á
Laugarvatni, mun verða sóttur i
leiki i vetur. Þá er Sveinn
byrjaður að æfa aftur, en hann
hætti á siöasta keppnisbili og fór
að vinna út á landi.
Handknattleiksvertiðin byrjar
nú um miðjan mánuðinn, með
Reykjavikurmótinu. Nýtt fyrir-
komulág hefur verið tekið upp i
mótinu. Liðunum átta, sem taka
þátt i þvi, hefur verið raðað niður
• i tvo riðla og verður nú i fyrsta
skiptið leikinn fullur leiktimi 2x30
min. i Reykjavikurmótinu.
1 a-riðli leika Reykjavikur-
meistarar Vikings, Fram, 1R og
Armann. 1 b-riðli leika Islands-
meistarar Vals, KR, Þróttur og
Fylkir. Eins og sést á þessu, þá er
a-riðillinn miklu sterkari og má
búast við tvisýnni og spennandi
keppni i honum. Aftur á móti eiga
Valsmenn að vinna b-riðilinn
örugglega.