Tíminn - 28.09.1973, Qupperneq 19
Föstudagur 28. september 1973
TÍMINN
19
O Læknadeild
stúdenta, sem hófu nám við
læknadeildina, um 150, og verða
það liklega milli 60 og 70 þeirra,
sem fá heimild til að hefja nám á
öðru ári, en það eru allir þeir
stúdentar, sem staðizt hafa gerð-
ar prófkröfur. Þessar tölur eru þó
ekki endanlegar, þar sem niður-
stöður haustprófa liggja enn ekki
fyrir i heild.
Ófullnægjandi aðstaða
Astæðan fyrir ályktun deildar-
ráðs læknadeildar er sú, að
deildarráð telur að fyrirsjánalega
verði óframkvæmanlegt að veita
þeim fjölda stúdenta, sem nú
sækja deildina, viðhlitandi
kennslu. Þetta ástand hefur verið
i deildinni i nokkur ár, að visu
ekki jafn alvarlegt og nú, en i
trausti þess, að stjórnvöld sæju til
þess að úrbætur yrðu gerðar i
þessu efni, hefur takmörkunar-
heimildinni ekki verið beitt fyrr
en nú. Ariö 1971 munaði þó litlu að
takmörkunarheimildin yrði not-
uö, en þá var tillaga um beitingu
hennar felld með eins atkvæðis
mun i deildarráði.
A siðast liðnu vori gerði lækna-
deild fundarsamþykkt þar sem
bent er á, að aðstaða til
rannsókna og kennslu bæöi i
grunngreinum og kliniskum
greinum við læknadeild og heil-
brigðisstofnanir sé með þeim
hætti, að ókleift er að veita
stúdentum i deildinni viðunandi
framhaldsmenntun, eftir fyrsta
námsár. Siðan ályktar deiidin, að
óhjákvæmilegt verði að beita
f jöldatakmörkunum nema
ákveðnar ráðstafanir verði gerð-
ar án tafar. Þessar ráðstafanir
voru: 1 fyrsta lagi, að hinn bráöi
húsnæðisskortur liffærafræði, líf-
færameinafræði, og sýklafræði
verði leystur með bráðabirgða-
ráðstöfunum. í öðru lagi verði
kliniskri kennslu við Borgar-
spitalann og St. Jósefsspitala
komið á fastan grundvöll, og loks
verði gengið endanlega frá skipu-
lagi lóðar Landspitala og lækna-
deildar, útveguð nauðsynleg
byggingaleyfi og skipaðar
hönnunarnefndir svo og fram-
kvæmdir við pre- og paraklinisk-
ar deildir geti haíizt árið 1974.
Þessi sjónarmið læknadeildar
voru kynnt háskólarektor og
menntam álaráðherra. Hét
menntamálaráðherra fullum
stuðningi sinum við lausn þessara
atriða.
Framkvæmd þessara atriða
hefur dregizt, úr hömlu að mati
læknadeildar, og auk þess bætist
það ofan á, að Rannsóknastofa
Háskólans hefur lýst þvi yfir, að
hún sé neydd til þess að hætta öll-
um krufningum, nema réttar-
krufningum. Það mun almennt
viðurkennt, segja læknadeildar-
menn, að ekkert sjúkrahús geti
talizt hæfur kennsluspitali, nema
það hafi aðstöðu til krufninga, en
eins og kunnugt er hefur
Rannsóknastofa Háskólans ann-
azt krufningar fyrir sjúkrahús i
Reykjavik.
Hinn fyrsta október eiga um
sjötiu stúdentar að hefja nám i
liffærameinafræði, en krufningar
eru hluti af námi i þeirri grein. Af
þessu getur ekki orðið, þvi auð-
sýnt er að ekki verður unnt að
framkvæma nauðsynlegar úrbæt-
ur á þessu sviði, á þeim skamma
tima sem er til stefnu. Mat lækna-
deildar er þvi það, að takmarka
veröi stúdentafjöldann sem leyfi
fær til þess að halda áfram, við
tölu sem er það lág, að tryggt sé
að unnt verði að kenna stúdentun-
um með sómasamlegum hætti.
— gj-
v>-
!Í>
0 Ásigling
þessum slóðum og sigldi varð-
skipið uppi frá 070 gráðum fyrir
aftan þverskipsstefnu Þórs.
Varðskipsmenn sáu skipverja
freigátunnar setja frfholt á siður
hennar.
Freigátan beygði snögglega á
stjórnborðssiðu varðskipsins, en
þá var varðskipið stöðvað, og
siðan sett á fulla ferð afturábak.
Ef Þór hefði ekki sett á fulla ferð
afturábak og freigátan haldið
sömu stefnu, hefði freigátan lent
með stefnið beint á siðu varð-
skipsins.
Fremur litlar skemmdir urðu á
bakkahorni varðskipsins við
áreksturinn. Eitt friholt frá frei-
gátunni lenti um borð i varðskip-
inu. Engin slys urðu á mönnum.
Norskur blaðamaður var um
borð i Þór, og tók hann ljósmynd-
ir af atburðunum.
í fréttum frá norsku fréttastof-
unni NTB segir, að brezka
varnarmálaráðuneytið hafi skýrt
frá þvi i gær, að freigátan Whitby
og varðskipið Þór hafi rekizt á
utan við norðaustur strönd ís-
lands. Sagt er að freigátan hafi
laskazt litillega, en hafi haldið
áfram „gæzlustörfum” sinum.
Ekkert er sagt um hver sök hafi
borið á árekstrinum.
Engin áhrif á samþykkt
rikisstjórnarinnar
ólafur Jóhannesson forsætis-
ráðherra sagði i viðtali við blaðið,
að þessi nýjasta ásigling hefði
engin áhrif á samþykkt rikis-
stjórnarinnar frá þvi i gær.
— Ég hefi ennþá ekki fengið ná-
kvæma skýrslu um ásiglinguna,
en mér virðist sem svo oft áður,
að herskipið hafi siglt á Þór án
nokkurs tilefnis, sagði forsætis-
ráðherra. —gj-
0 Stjórnmálaslit
innar, en sögðu, að það væri enn
stefna brezku rikisstjórnarinnar
að fá tslendinga til að setjast að
samningaborðinu til þess að
reyna að ná bráðabirgðasam-
komulagi um lausn fiskveiðideil-
unnar.
Brezki utanríkisráðherrann, sir
Alec Douglas Home, sagði i New
York i gær, að ákvörðun tslend-
inga um að rjúfa stjórnmála-
tengsl við Breta væri óréttmæt,
þvi Bretar fylgdu alþjóðalögum i
hvivetna. — Við höfum boðizt til
að draga herskipin af miðunum,
gegn þvi að tslendingar lofi að
varðskipin hætti að trufla togara
okkar við veiðarnar. Þetta ætti að
vera mjög sanngjarnt tilboð,
sagði ráðherrann.
— gj-
0 Brúðkaup
fólk spilar á spil, teflir og fær sér
kókflösku að drekka. Það er
hagnaðurinn af kóksölunni, sem
stendur undir kostnaði við þetta,
og seljum við þó hverja flösku
ekki nema eitthvað einni eða
tveimur krónum dýrara en hún
kostar i búð.
Brúðkaupsferð til Spán-
ar
— En svo að við snúum okkur
aftur að ykkur sjálfum : Hvað ætl-
izt þið nú fyrir að nýafstöðnu
brúðkaupi?
— Við ætium að byrja á þvi að
fara i brúðkaupsferð til Spánar og
vera þar fram i miðjan október-
mánuð. Þá komum við heim og ég
byrja aftur að vinna.
— Hvaða vinnu stundar þú?
Fyrsta hdlkan á Keflavíkurveginum í gær:
Tugþúsunda tjón ó ökutækjum
og tvennt flutt á sjúkrahús
KIp-Reykjavik. í gærmorgun
myndaðist hálka á um eins kiló-
metra kafla við Kúagerði á Kefla-
vikurveginum. A þessum kafla
urðu þrjú umferðaróhöpp á
skömmum tima i gærmorgun, og
varð að flytja unga konu og mann
i sjúkrahús mikið slösuð, auk þess
sem þarna varð tugþúsunda tjón
á farartækjum.
Fyrsta óhappið varð um kl.
7,25. Þá lentu saman fólksbifreið
og rútan frá Keflavik, en bilarnir
komu sinn úr hvorri áttinni.
Hvernig
verður
Areksturinn varð það harður,
að fólksbifreiðin fór i sundur i
miðju, og kastaðist annar hluti
hennar eina 75 metra út af vegin-
um, en hinn hlutinn varð eftir
uppi á vegkantinum.
ökumaður fólksbifreiðarinnar
slasaðist mikið og var fluttur i
sjúkrahús, en hann er ekki talinn i
lifshættu. Rannsóknarlögreglu-
maður frá Hafnarfirði, sem kom
á staðinn, sagði okkur, að hann
heföi aldrei fyrr séð bil eins illa
farinn eftir árekstur, og hefði
hann þó séð marga illa farna um
dagana.
Hann sagði, að sem betur fer
hefði ekki verið nema einn maður
I bilnum, en ef þar hefðu verið
fleiri, sagðist hann ekki efast um,
að þarna hefði orðið hroðalegt
slys. Rútan skemmdist einnig
mikið, og mátti litlu muna að hún
ylti ekki út af veginum, en öku-
manni hennar tókst að stöðva
hana á vegbrúninni.
Um klukkutima siðar urðu
þarna tvö önnur óhöpp. Það fyrra
varð, er fólksbifreið ók út af
veginum um 200 metra frá þeim
stað, þar sem fyrra óhappið varð.
Bifreiðin valt ekki en skemmdist
samt mikið. Ekki urðu nein slys á
fólki i þeirri útafkeyrslu.
Varla var þetta óhapp um garð
gengið, þegar það þriðja varö. Þá
ók stúlka litilli fólksbifreið heldur
ógætilega þarna i hálkunni Hún
missti stjórn á bilnum, og fór
hann út af veginum og valt marg-
ar veltur, þar til hann stöðvaðist
langt úti i hrauni.
Stúlkan slasaðist mikið og var
flutt i sjúkrahús. Bifreiðin
skemmdist það mikiö, að varla er
talið borga sig að gera við hana.
tjónið
bætt?
— stjórn
bjargrdðasjóðs
setur reglurnar
í dag
Ungur listamaður
sýnir ó AAokka
STJÓRN BJARGRAÐASJÓÐS
kemur saman til fundar i dag, og
verður á fundinum rætt um, á
hvern hátt og I hverjum mæli tjón
það, er varð i óveðrinu á dögun-
um, verður bætt. Akveðið er nú
þegar, að Bjargráðasjóður muni
bæta tjónið að einhverju leyti, en
nánari reglur um bætur verða
settar á fundinum I dag.
Bjargráðasjóður mun ráða yfir
um 20 milljónum króna. Stjórn
Bjargráðasjóðs skipa Hallgrim-
ur Dalberg, ráðuneytisstjóri, for-
maður, Már Eliasson, fiskimála-
stjóri, Gunnar Guðbjartsson for-
maður Stéttarsambands bænda,
Páll Lindal, formaður Sambands
islenzkra sveitarfélaga og Asgeir
Bjarnason, formaður Búnaðar-
félags Islands. -gj
— Ég er framreiðslumaður.
— En frúin?
— Siðast liðið hálft ár eða svo,
vann ég á Skálatúnsheimilinu, en
áður hafði ég unnið i bókabúð.
— Þú hlakkar auðvitað til
Spánarferðarinnar?
— Já, já, ég held nú það.
— Ætlar þú nokkuð að vinna i
skátahreyfingunni, eftir að þú
verður orðin húsfreyja i
Reykjavik?
— Ég veit ekki. Nei, ætli það
verði nokkur timi til sliks.
— En þú, Sturla?
— Ég held, að ég muni starfa
eins mikið og ég get, ef min verð-
ur þörf. Ég býst ekki við þvi, að
ég skorist undan, ef til min verður
leitað, og satt að segja þá held ég
að sú verði lika raunin með konu
mina. Hún hefur ekki verið vön að
láta sitt eftir liggja, þegar ein-
hvers staðar hefur þurft að rétta
hjálparhönd.
Að svo mæltu kveðjum við ungu
hjónin, þökkum þeim spjallið og
óskum þeim góðs gengis i
framtiðinni.
— VS.
GVA-Reykjavik — Þcssa dagana sýnir ungur maður úr Garðahreppi,
Jakob Jóhannsson, myndir sinar á Mokka. Jakob er aðeins 16 ára gam-
all, og elzta inyndin á sýningunni er siðan hann var 11 ára. Myndirnar
eru alls ellefu og eru gerðar með lakki, oliulitum og vatnslitum. Þær
eru allar til sölu nema þrjár, og kosta frá 2000 til 13000 krónur. Sýningin
stendur þessa og næstu viku.
BORÐAPANTANIR I SIMDM
22321 22322
BORÐUM HAIDIÐ ilL K1 9
BLÓMASALUR
VjKINGASALUR