Tíminn - 09.10.1973, Page 4
4
TÍMINN
Laugardagur 6. október 1973.
Iffi|'''!l!ll!'!l
■
í stofufangelsi
Þaö á ekki af henni Jackie
Onassis aö ganga. Síðustu
fregnir af þeirri mektarfrú
herma, aö Ari karlinn sé búinn
aö loka ávfsanareikningnum
hennar og setja hana sjálfa i
eins konar stofufangelsi á eynni
Skorpios.
Astæðan fyrir þessari harð-
ýögi er sögö fádæma eyðslusemi
frúarinnar, en við héldum nú
satt aö segja, að Ari væri hættur
aö kippa sér upp viö svoleiðis
smámuni. Hvaö um þaö, þau
hjónin voru á skemmtisiglingu
um Karabiska hafið á snekkj-
unni Kristinu. Jackie skemmti
sér nú ekki betur en svo, að hún
fór í land á Jamaica og tók
fyrstu flugvél til Parfsar. Þar
hellti hún sér út f gffurleg fata-
kaup, og á nákvæmlega tólf tim-
um og þrjátiu og nfu minútum
hafði henni tekizt að festa kaup
á 158 módelkjólum og drögtum
fyrir rúmlega fjórar milljónir
Islenzkra króna. Geri aðrar bet-
ur!
Illilegt
sjónvarpsgabb
Nýlega varð geysilegur
umferðarhnútur á vegunum út
að flugvellinum f borginni
Arequiba i Perú. Sjónvarpið þar
birti tilkynningu, þar sem allir
bileigendur voru beðnir að
hraða sér út til flugvallarins til
þess að lýsa upp lendingar-
brautina. Sagt var að flug-
vallarljósin væru ónýt, og að
innan skamms væri von á flug-
vél, sem þyrfti að nauðlenda á
vellinum. Þúsundir bileiganda
héldu þegar i stað til flugvallar-
ins, hvort sem það hefur verið af
forvitni eða hjálpfýsi. Þetta
leiddi til þess, að öll umferð
tepptist, og biðraðirnar voru
margra kilómetra langar, þeg-
ar verst var ástandið. Ekki hef-
ur verið skýrt frá þvi, hvað gert
var við siónvamsmennina. sem
göbbuðu fólk á þennan máta.
Með orðuna í leikhústöskunni
Enginn vissi hvað Margrét II
Danadrottning var með i tösk-
unni sinni, þegar hún kom i
C3
Hverri er hún lík?
Nei. Þetta er ekki Ingrid Berg-
man, Fyrst, þegar við sáum
þessa mynd,vorum við viss um
aö þetta hlyti að vera kvik-
myndaleikkonan fræga, en við
nánari eftirgrennslan kom I
ljós, að svo var ekki. Þessi
fallega kona hafði að visu eftir
nafnið Bergman, en að fornafm
hét hún Friedel, og hún var
móðir Ingrid.
Justus Bergman, sem var
listmálari, málaði myndina af
ástkærrieiginkonu sinniskömmu
áður, en hún lézt, og þetta er
eina minningin, sem Ingrid á
um móður sina.
leikhúsið nýlega með móður
sinni og systur. Þær komu til að
sjá og heyra Birgit Nilsson,
syngja aðalhlutverkið i Tristan
og Isolde. í hléinu eftir 2. þátt,
þá var söngkonan beðin að
koma og heilsa drottningunni og
fannst henni það mikill heiður,
en hrifnari varð Birgit, þegar
drottningin tók upp úr leikhús-
tösku sinni orðu, sem veitt er
listamönnum, sem skara fram
úr og heitir orðan „Ingenio et
arti”-orðan , og þykir sérstakur
heiður fyrir listamenn að fá
hana. 1 leikhúsinu vissu áhorf-
endur ekki neitt um þetta atvik,
fyrr en Birgit Nilsson hafði ver-
ið kölluð fram með lófataki 18
sinnum, þá kom hún fram i sið-
asta sinn með orðuna i barmi og
leikhúsgestir fögnuðu henni.
Þetta þótti . sérstaklega
skemmtileg orðuveiting, og
skemmtileg hugmynd hjá
drotnningu, að koma með örð-
una I leikhústöskunni sinni og
úthluta henni þarna.
— Mér er sama hvað þú segir, ég
held þvi fram,að það sé eitthvað
gruggugt við þetta.
— Konan min tekur við öllu kaup-
inu minu.
DENNI
DÆMALAUSI
Þú mátt ekki trufla forstjórann,
Denni. Hann kom hingað til að fá
að sjá GAMLA DRULLU-
SOKKINN.