Tíminn - 09.10.1973, Qupperneq 15
Þriðjudagur 9. október 1973.
TÍMINN
15
f .....
Björgvin hálfan
mánuð frá æfing-
um og keppni
— þrír aðrir á sjúkralista hjá Fram
Björgvin Björgvinsson,
landsliðsmaður í Fram,
meiddist i leiknum gegn Ar-
nvanni á sunnudagskvöld. t
fyrstu var talið, að meiðsli
hans kynnu að vera alvar-
legs eðlis, en samkvæmt frá-
sögn Sigurðar Einarssonar,
þjálfara Fram, reyndist það
ekki vera, og býst hann við,
að Björgvin þurfi ekki að
vera frá æfingum og keppni
nema hálfan mánuð. Það
þýðir, að hann ætti að geta
leikið með Fram i úrslitaleik
Reykjavikurmótsins, sem
háður verður 31. október. Að
sögn Sigurðar mun Björgvin
hafa tognað i liðböndum. Þá
sagði Sigurður, að þrir leik-
menn aðrir væru á sjúkra-
lista hjá sér, Pétur Jöhann-
esson, Stefán Þórðarson og
Guðmundur Sveinsson.
A myndinni að neðan sést
Björgvin Björgvinsson i leik
gegn danska liðinu Stadion.
FRAM KOMIÐ í ÚRSLIT —
SIGRAÐI ÁRMANN 15:9
— KR sigraði Fylki auðveldlega 24:13
Framarar áttu ekki i
teljandi erfiðleikum
með Ármenninga i
Reykjavikurmótinu í
handknattleik á sunnu-
dagskvöld, og sigruðu
með sex marka mun,
15:9. Þar með er Fram
búið að tryggja sér rétt
til úrslitajeiks, sem
verður að öllum likind-
um gegn Val, sem er svo
gott sem búið að sigra I
sinum riðli.
Það óhapp varð i leiknum, að
Björgvin Björgvinsson, landsliðs-
maður Fram, meiddist á fæti (sjá
aðra frétt), en fjarvera hans virt-
ist ekki hafa áhrif á liðið i leikn-
um á sunnudag, þó að fjarvera
hans muni vitaskuld hafa meiri
áhrif á leik gegn sterkari liðum.
Fyrri hálfleikurinn var tiltölu-
lega jafn, staðan i hálfleik 7:6,
Fram i vil, en i siðari hálfleik
skoruðu Framarar átta mörk
gegn þremur, og unnu þvi 15:9,
eins og fyrr segir.
Axel Axelsson var að venju
markhæstur framara, enda þótt
reynt væri að taka hann úr um-
ferð, og skoraði hann 4 mörk, þar
af 1 úr vitakasti. Arnar Guðlaugs-
son, Guðmundur Þorbjörnsson,
Andrés Bridde og Arni Sverris-
soh skoruðu 2 mörk hver og Pálmi
og Gylfi 1 hvor. Ungu mennirnir
hjá Fram láta sifellt meira að sér
kveða, og virðist liðið komast
nokkuð vel af án Ingólfs, Sigurðar
E. og Þorsteins Björnssonar, sem
á undanförnum árum hafa verið
styrkustu stoðir Fram, en hafa
annað hvort lagt skóná á hilluna
eða leika með 2. deildar liðum.
Hins vegar var leikur liðsins gegn
Armanni ekki nógu góður.
Jón Astvaldsson var markhæst-
ur Armenninga, skoraði 5 mörk,
þar af 1 úr vitakasti.
A sunnudaginn fór einnig fram
leikur milli KR og Fylkis. Voru
KR-ingar ekki i neinum vandræð-
um með Fylkiog sigruðu 24:13, en
hvorugt þessara liða hefur mögu-
leika til sigurs i mótinu.
:■
Reykjavíkurmótið í körfuknattleik:
KR-ingar virð-
ast sterkastir
Reykjavikurmótið i
körfuknattleik hófst fyr-
ir helgina. Fyrsti leikur-
inn, milli KR og Ár-
manns, var æsispenn-
andi og lauk með 2 stiga
sigri hinna fyrrnefndu.
Höfðu Ármenningar
góða möguleika til að
jafna á siðustu
sekúndunum, en mis-
tókst, og má þvi segja,
að KR-ingar hafi sloppið
með skrekkinn. Lauk
leiknum 72:70.
A sunnudaginn voru KR-ingar
aftur á ferð, nú gegn Val, og
sigruðu að þessu sinni með 10
stiga mun. Tæplega er þó hægt að
segja, að sá sigur hafi veriö
átakalaus, þvi að Valsmenn, meö
Þóri i brodd fylkingar, höfðu yfir-
höndina mest allan leiktimann.
Hins vegar léku Valsmenn grófan
varnarleik, sem gerði það að
verkum, að KR-ingar fengu
dæmd vitaköst i grið og erg, og
tókst með góðri hittni að jafna
stöðuna og komast yfir.
Islandsmeistarar 1R léku gegn
stúdentum og sigruðu með aðeins
6 stiga mun, 84:78, en það hefði
einhvern tima þótt saga til næsta
bæjar, að IR-ingar hefðu ekki
meiri yfirburði gegn liði stúdenta,
sem hefur verið i veikara lagi að
undanförnu. Er ÍR-liðið greini-
lega ekki eins sterkt og i fyrra,
hvað sem siðar kann að verða. En
að öllum likindum mun þó leikur
ÍR og KR ráða úrslitum i þessu
Reykjavlkurmóti, eins og á
undanförnum árum, enda þótt IR-
ingar eigi eftir að etja kapp við
hættulega mótherja, sem Ar-
mann og Valur eru óneitanlega.
Frekar slakur árangur
íúrhellisrigningu
— Hafnarfjarðarmót í frjálsíþróttum haldið á AAelavelli
Hafnarfjarðarmeistaramót í
frjálsum fþróttum fór fram mið-
vikudaginn 26. september á Mela-
vellinum i úrhellisrigningu. Voru
Glímu-
æfingar
Víkverja
Glimuæfingar Vikverja eru
hafnar i tþróttahúsi Jóns Þor-
steinssonar, Lindargötu 7 —
minni salnum — á mánudögum,
miðvikudögum og föstudögum kl.
7-8 siðdegis. Kennari er Kjartan
Bergmann Guðjónsson.
A glimuæfingum Vikverja er
lögð áherzla á alhliða likams-
þjálfun: fimi, mýkt og snarræði.
Komið og lærið holla og þjóölega
iþrótt. Ungmennafélagið Vik-
verji.
þvi litlar likur á að þar yrðu unnin
afrek, þvi siður slegin met.
Eins og kunnugt er, er engin
frjálsiþróttaaðstaða i Hafnar-
firði. Eiga hafnfirzkir frjáls-
iþróttaiðkendur þvi erfitt upp-
dráttar og þurfa að leita á náðir
annarra til að halda mót. Frjáls-
iþróttadeild FH vill þvi sérstak-
lega þakka Baldri Jónssyni
vallarstjóra, sem greiddi götu
þess meö ágætum og gerði frjáls-
iþróttadeild FH fært að halda mót
við löglegar aðstæður.
Úrslit i einstökum greinum á
mótinu urðu þessi:
400 m grindahlaup: sek.
l.SigurðurP.Sigmundsson 65,0
2. Gunnar Þór Sigurðsson 72,2
Kringlukastkarla: m.
1. ViktorSturlaugsson 34,56
2. Einar Sturlaugsson 31,65
600mhlauptelpna: min.
1. Anna Haraldsdóttir 1:49,4
2. Lára Halldórsdóttir 1:59,4
3. Agústina Sigurgeirsd. 2:13,1
600 m hlaup telpna: min
1. Sólveig Birgisdóttir 2:14,6
600mhlauppilta: min.
l.SigurðurHaraldsson 1:58,0
600 m hlaup stráka: min.
1. MagnúsHaraldsson 1:56,7
2. Ingvar Sigurðsson 1:57,0
3. Börkur Gislason 2:07,0
4. Magnús Bjarnason 2:15,6
Hástökk karla: m
1. Arni Þorsteinsson 1,75
2. Sigurður P. Sigmundsson 1,50
3. Gunnar Þór Sigurðsson 1,45
4. Einar P. Guðmundsson 1,35
Hástökk telpna: m
1-2. Anna Haraldsdóttir 1,40
1-2. Lára Halldórsdóttir 1,40
3. Lilja Baldursdóttir 1,25
800 m hlaup karla: min.
1. Sigurður P. Sigmundsson 2:07,6
2. Gunnar Þór Sigurðsson 2:13,6
(nýtt piltamet, Magnús Geir
Einarsson átti gamla metið, sem
var 2:15,2) min.)
3. Einar P. Guðmundsson 2:25,0
800mhlaupstráka: min.
1. Magnús Haraldsson 2:39,9
2. Ingvar Sigurðsson 2:40,5
3. Óðinn Guðmundsson 2:48,6
800 m hlaup kvenna: min.
1. Anna Haraldsdóttir 2:34,8
2. Lilja Baldursdóttir 2:58,4
3x800 m boðhlaup telpna: min.
A-sveitFH 8:49,4
B-sveitFH 10:15,0
2000 m hlaup karla: min.
1. Sigurður P. Sigmundsson 6:23,9
2. Gunnar Þór Sigurðsson 7:02,8
(Gestur) Gunnar P. Jóakimss,
1R 6:23,5
2000 m hlaupið setti svo sannar-
lega svip á mótið. Þar setti
Sigurður P. Sigmundsson nýtt
sveinamet. Hann hljóp á 6:23,9
min og bætti gamla metið um 30,5
sek. Einnig setti Gunnar Þór
Sigurðsson nýtt piltamet, og bætti
þar með 23 ára gamalt met
Björns Jóhannessonar IBK um 13
sek.
Alverið i Straumsvik gaf bikar
fyrir bezta afrekið i karla- og
kvennaflokki. Isal-bikarinn i
karlaflokki vann Arni Þorsteins-
son fyrir hástökkiö, stökk 1,75 m,
sem gefur 634 stig. Sigurður P.
Sigmundsson vann annað bezta
afrekið i 800 m hl., 2:07,6 min.,
sem gefur 625 stig. 1 kvennaflokki
varð 800 m hlaup stigahæst, en
þar sigraði Anna Haraldsdóttir á
timanum 2:34,8 min., sem gefur
621 stig. Annar bezti árangur var i
hástökkinu hjá þeim stöllum Láru
Halldórsdóttur og önnu
Haraldsdóttur, sem gaf 612 stig.
Inniæfingar frjálsiþróttadeild-
ar FH eru byrjaðar af fullum
krafti. Æfingatimar eru á
fimmtudögum i iþróttahúsinu
v/Strandgötu kl. 21,25-23,00, og i
leikfimishúsi Lækjarskóla kl.
13,00-14,40 á laugardögum.
350
þátttak-
endur
Reykjavikurmótið i körfubolta
fer nú fram i 17. sinn.með þátt-
töku 25 flokka frá 6 Reykjavikur-
féiögum.auk móts i minnibolta.
Munu þátttakendur vera um 350
talsins. Frá þvi að Reykjavfkur-
mótið komst á fyrir 17 árum, hafa
K.R. og l.R. oftast borið sigur úr
bitum, eða alltaf utan 4 sinnum.
Þau félög, sem taka þátt i mótinu
aö þessu sinni, eru: Armann, 1R,
Valur, l.S. K.R. og Fram. Þessi
félög hafa sigrað i meistaraflokki
frá upphafi:
1957 Í.S. 1965 K.F.R.
1958 I.R. 1966 K.R.
1959 K.F.R. 1967 K.R.
1960 I.R. 1968 t.R.
1961 t.R. 1969 I.R.
1962 I.R. 1970 Í.R.
1963 I.R. 1971 Armann
1964 t.R. 1972 K.R.
Ársþing
KSÍ
28. ársþing Knattspyrnusam-
bands tslands verður haldið að
Hótel Loftleiöum dagana 10. og
11. nóv. N.k. og verður sett
laugardaginn 19. nóv. kl. 13.30.