Tíminn - 09.10.1973, Side 19
Þriðjudagur 9. október 1973.
o íþróttir
Staðan i 1. deild i er nú þannig:
Leeds 10 8 2 0 21-5 18
Burnley 10 6 3 1 19-10 15
Coventry 11 6 2 3 14-9 14
Derby 11 5 3 3 15-10 13
Liverpool 10 5 3 2 12-9 13
Everton 10 4 4 2 12-9 12
Leicester 10 3 6 1 11-9 12
Newcastle 10 4 3 3 17-13 11
Arsenal 10 5 1 4 13-12 11
Man.City 10 4 3 3 13-13 11
QPR 10 2 6 2 14-14 10
Sheff.Utd. 10 4 2 4 12-12 10
Ipswich 10 3 4 3 15-17 10
Southampton 10 3 3 4 13-17 9
Chelsea 10 3 2 5 14-14 8
Stoke 10 1 6 3 10-11 8
Tottenham 10 3 2 5 12-15 8
Manch.Utd. 10 3 2 5 9-12 8
West Ham 10 0 4 6 10-19 4
Birmingham 10 0 3 7 8-22 3
TÍMINN
19
fP Israel
undirbúinni áætlun, sagöi hann.
El-zayyat tók siðar til máls og
endurtók ásakanirnar i garð isra-
ela og að Egyptar berðust i sjálfs-
vörn. — Ég vil gjarna fræða alls-
herjarþingið um það, að egypzku
hersveitirnar hafa dregiö upp
egypzka fánann meðfram austur-
bakka Súez, sem er i rauninni
egypzkt umráðasvæöi, sagöi
hann.
Ræðu Abba Ebans var tekiö
meö algjörri þögn i salnum, en
þegar egypzki utanrikisráðherr-
an lauk máli sinu, dundi við mikið
lófatak.
Sovézki flokksleiðtoginn Brés-
nef var hinn rólegasti, er hann
drap á styrjöldina i gær i hádegis-
verðarboði fyrir japanska for-
sætisráöherrann. Brésnef sagði,
að þróunin i heiminum leiddi nú
til minnkandi spennu, en þrátt
fyrir það, blossuðu upp bardagar
i vissum heimshlutum. Dæmi um
sliktværu Mið-Austurlönd, og þar
heföi nú Israel ráðizt á Egypta-
land og Sýrland. Hann sagði enn-
fremur, að öll samúð Sovétrikj-
anna væri með Aröbum og að
Sovétmenn vildu leggja sitt af
mörkum til að koma á varanleg-
um friði á þessum slóðum.
Sérfræðingar i Moskvu veittu
þvieftirtekt, aö Brésnef kom ekki
fram með neinar ásakanir frekar
á ísraelsmenn, og er taliö að hann
hugsi sér að fá Bandaríkin i lið
með sér til að reyna að koma á
friöi.
Nixon forseti hafði persónulega
samband við Brésnef í gær um
málið, og Kissinger ræddi það
einnig viö sendifulltrúa Kina i
Washington.
©' Siglufjörður
ina, og flæddu jafnvel niður i
kjallara í sumum húsum. Ekki er
þó vitað um verulegt tjón, en
eitthvað er um skemmdir i einum
kjallara, og einnig munu mörg
þök og gluggar hafa lekið.
Austan megin við Strákagöng,
þr e. Siglufjarðarmegin, féll aur-
skriða með grjóti. Meiri
skemmdir urðu þó vestanmegin
gangnanna. Þar féll skriða og
mikiðvatngróf sig niðuriveginn
og skar hann i sundur. Vonazt er
til, að búið verði að lagfæra
veginn fyrir morgundaginn.
Veður fer nú batnandi á Siglu-
firði, en snjór i fjöllum og grátt
niður i miðjar hliðar.
©Á víðavangi
unnið mikið starf og gott og á
ýmsan hátt merkt.
Þannig varð þessi fundur á
Sögu einnig hinn þyngsti á-
fellisdómur um Mbl., skrif
þess og stefnu, eða réttara
sagt stefnuleysi i landhelgis-
málinu. Og sá maður, sem
'orðið hefur að sæta allt að
þvi ofsóknum i Mbl., Hannes
Jónsson blaðafulltrúi, hlaut
sérstaka hyilingu hins fjöl-
menna fundar á Sögu.
-TK.
31. þing Iðnnemasambandsins 19.-21. október:
RÆTT UM IÐNFRÆÐSLU
OG KJARABARÁTTUNA
Stefnt að skipulagsbreytingum d sam.tökunum
31. ÞING Iðnnemasambands
Islands veröur haldið i Reykjavik
dagana 19., 20. og 21. okt. n.k.
Þingið er haldiö að Hótel Esju
oghefstkl. 14 föstudaginn 19. með
setningarræðu Rúnars
Bachmanns formanns I.N.S.t. og
ávarpa menntamálaráðherra og
fulltrúa A.S.t. Þingið sækja milli
80 og 90 fulltrúar 20 aðildarfélaga
viðs vegar af landinu.
Helztu málaflokkar, sem fyrir
þinginu liggja eru Iðnfræðsla,
kjaramál iðnnema, félagsmál
iðnnemasamtakanna, þjóðmál og
skipulagsbreytingar sam-
Nýtt fiskverð:
AAeðaltalshækkunin
varð 15% frá 1. okt.
A FUNDI Verðlagsráös sjávarút-
vegsins i dag varð samkomulag
um, aö lagmarksverö á fiski, sem
gilt hefur til 30. september, skuli
hækka um 15% aö meðaltali frá 1.
október 1973. Einstakar fisk-
tegundir hækka sem hér segir:
Þorskur um 15.5%, ufsi og
blálanga um 31.5% karfi um 5%,
langa um 25% og keila um 10%.
Verö á ýsu og lýsu verður það
sama og á þorski og verð a átein-
Sólarhrings-
varðstaða hjó
Tilkynningaskyldu
íslenzkra skipa
ARIÐ 1968 voru samþykkt lög
tum Tilkynningaskyldu tsl. skipa
og reglugerð sett um framkvæmd
hennar. Slysavarnafélagi tslands
var þá þegar falin starfræksla
Tilkynningaskyldunnar og er
stjórnstöð hennar i húsi SVFt á
Grandagarði.
Þau fimm ár, sem Tilkynninga-
skyldan hefur starfað, hefur gildi
hennar ótvirætt komiðjljós og er
hún i dag snar þáttur i slysa-
varna- og björgunarstarfi
félagsins.
Auk þess sem starfsmenn
Tilkynningaskyldunnar færa
daglega spjaldskrá um stað-
setningu skipanna, veita þeir
aðstandendum sjómanna ýmsar
upplýsingar um ferðir skipanna
og er sá þáttur Tilkyningaskyld-
unnar vel metinn af þeim, sem
heima biða, en vilja þó fylgjast
með, hvar skipin eru á hverjum
tima.
Starfstilhögun við Tilkynninga-
skylduna hefur mikið breytzt frá
þvi hún fyrst tók til starfa og
varðstaða við hana hefur stöðugt
verið aukin.
A s.l. vetri var varðstaða i
Tilkynningaskyldunni allan
sólarhringinn og af þeirri
reynslu, sem af þvi fyrirkomulagi
fékkzt, samþykkt 14. Landsþing
SVFt sem haldið var i mai s.l., að
sá háttur yrði á hafður að nýju nú
þegar i haust.
Frá l. okt. s.l., er þvi varðstaða
i Tilkynningaskyldunni allan
sólarhringinn, og annast þann
starfa þrir fastráðnir menn og að
auki einn maður til afleysinga um
helgar.
(Fréttatilkynning frá SVFl).
TIMINN
ER
TROMP
Vegna hundrað ára afmælis Halldóru Bjarnadóttur, verð-
ur móttaka i Kvennaskólanum á Blönduósi, sunnudaginn
14. október kl. 14.30. Þátttaka tilkynnist fyrir fimmtu-
dagskvöld i sima 4180 eða 4209 á Blönduósi, og 21760 eða
11784 i Reykjavík.
Samband austur-húsvetnskra kvenna
Heimilisiðnaðarfélag tslands.
Aðrar fisk-
15%. Verð-
biti verður óbreytt.
tegundir hækka um
uppbót á linufisk verður óbreytt,
þ.e. 75 aurar og veröuppbót á 1.
flokks fiski isaðan i kassa verður
eins og áður, þ.e. 8% á ýsu og 6%
á annan fisk. Gildistimi hins nýja
lágmarksverðs er til 31.
desember 1973.
Reykjavik, 6. október 1973.
Verðlagsráð sjávarútvegsins.
Beitukaup
Ekki kemur til
vandræða
ÞAR sem sú beita, sem venjulega
hefur verið notuð hér á landi og
aflað hér, þ.e. sild og kolkrabbi,
veiðist ekki lengur,hefur orðið að
flytja inn beitu I allverulegu
magni, segir I nýlegu fréttabréfi
frá S.l.S. A undanförnum árum
liefur verið keyptur kolkrabbi eöa
makrill i Bandarikjunum,
Kanada, Færeyjum og Noregi.
t sumar var gerður samningur
við Pólverja um kaup á kol-
krabba og makril, en veiðar Pól-
verja brugðust, svo að þeir gátu
ekki staðið við umsamdar af-
hendingar. Þó tókst Sjávaraf-
urðadeild S.t.S., eftir mikla leit,
að fá kolkrabba frá Sovétrikjun-
um, og um þessar mundir er skip
að losa hér verulegt magn af kol-
krabba, segir ennfremur i frétta-
bréfinu. Þessi kolkrabbi er veidd-
ur á Nýfundnalandsmiðum af
sovézkum verksmiðjuskipum, og
kom hingað með sovézku frysti-
skipi frá Kleipeda.
Fer hann til fjölmargra aðila
úti um allt land, og hefur þannig
tekizt að forða frá þvi alvarlega
vandamáli, sem ella hefði
skapazt af beituskorti viðsvegar
um landið, segir að lokum.
-hs-
takanna. Viöamesta mál þingsins
er að þessu sinni skipulags-
breytingar á samtökunum, aðal-
lega stjórn þeirra og miða þær til-
lögur, sem liggja fyrir að aukinni
félagslegri virkni iðnnema-
samtakanna. Einnig verður
fjailað itarlega um iðnfræöslu-
mál, með hliðsjón af endurskoöun
laga um iðnfræðslu, og kjaramál,
vegna komandi samninga i
nóvember. I lok þingsins verður
kjörin stjórn sambandsins fyrir
næsta starfsár.
Askenazy
stjórnandi
Askenazy stjórnar
Sinfóniuhljómsveit tslands að
Minni-Borg.
Sinfóniuhljómsveit tslands
heldur tónleika i Félagsheimilinu
Borg I Grimsnesi næstkomandi
fimmtudag 11. október, og verður
Vladimir Askenazy stjórnandi og
einleikari á þeim tónleikum.
Eftirtalin verk veröa á efnis-
skránni: Sinfónia nr. 1 (klassiska
sinfónian) eftir Prokofieff, Pianó-
konsert nr. 21 eftir Mozart og
Sinfónia nr. 5 eftir Beethoven.
Þetta eru aðrir tónleikar utan
Reykjavikur, sem hljómsveitin
heldur á þessu starfsári, og
jafnframt I annað sinn sem
Askenazy kemur fram sem
stjórnandi hljómsveitarinnar að
Minni-Borg.
Sfmar 38900
38904 38907 ■
BÍLABÚSIHI
Notaðirbílar
til sölu á góðum kjörum
1973
1972
1972
1972
1972
Chevrolet Nova,
sjálfskiptur.
Vauxhall Viva.
Chevrolet Chevelle.
Merzedes-Benz 280 S.
Ford Dimto.
1972 Mercury Comet.
1971 Chevrolet Nova.
1971 Opel Ascona.
1971 Ford Mustang March.
1970 Toyota Crown,
sjálfskiptur.
1969 Vauxhall Victor 1600.
1969 Dodge Dart G.T.
1969 Vauxhall Victor 2000
Station.
1969 Taunus 20 M. 2ja
dyra.
1968 Taunus 12 M. Station.
1968 Opel Record.
1968 Scout 800.
1968 Buick Special.
1966 Chevrolet Chevelle.
1966 Chevrolet Nova.
1966 Fiat 1500 Station.
1966 Opel Caravan.
1965 Vauxhall Victor.
1965 Opel Caravan.
FflA FL UGFELAGi/VU
Ræstingakona
Flugfélag islands h.f. óskar að ráða
ræstingakonu til starfa. Vaktavinna.
Upplýsingar hjá Sverri Jónssyni, stöðvar-
stjóra, Reykjavikurflugvelli. Upplýsing-
ar ekki veittar i sima.
FLUGFELAG JSLANDS
Electrolux
Húsbyggjendur og
Termel brenna ekki loftryki.
Termel gefur notalegan og þægilegan loft-
hita.
Termel hitar eins og venjuleg vatnsmið-
stöð.
Termel hefur hitastilli, sem heldur her-
bergishitanum mjög jöfnum (aðeins ca
-f+1%)
eír sem rafmagns
nota
Við seljum Termel-E
olíufylltu rafmagnsofnana.
Kjölur s.f.
Keflavik. Simar 2121 og 2041.