Tíminn - 30.10.1973, Qupperneq 5

Tíminn - 30.10.1973, Qupperneq 5
Þriðjudagur 30. október 1973 TÍMINN 5 ÞÓRDÍS Tryggvadóttir heldur nú málverkasýningu i Bogasal Þjóðminjasafnsins, og sýnir þar 39 verk, oliumálverk, blýatns-og kritarteikningar. Er þetta þriöja sjálfstæöa sýning Þórdfsar, sem hefur tekiö þátt f samsýningum bæöi heima og erlendis. Mikill hluti myndefnisins er tekinn úr þjóösögum og sögn- um. Hér er listakonan meö mynd sina „Adam ogEva”. Sýningin veröur opin næstu viku. (Timamynd Gunnar). PARK-REMAX BEDFORD MORRIS TRADER VAUXHALL LAND ROVER GIPSY CORTINA FERGUSON Suðurlandsbraut 20 * Sími 8-66-33 REGN I MAI eftir Einar Braga í norskum búningi NVLEGA er út komin hjá bóka- forlaginu Norges boklag f ósló Ijóðabókin Regn i mai eftir Einar Braga. Ariö 1957 kom út hjá Helgafelli ljóöabók eftir Einar Braga með þessu sama nafni, myndskreytt af Herði Agústssyni listmálara. Hér er þó ekki um norska þýöingu hennar aö ræöa, lieldur er i hinni norsku útgáfu úr- val úr Ijóðum Einars Braga frá árunum 1950-1970, sem norska Ijóöskáldiö Knut ödegard hefur valið og þýtt. Einnig ritar hann formála að bókinni um höfundinn og Ijóölist hans. Blaðið Dag og Tsd birti hinn 11. september heilsiðu'frásögn af út- komu bókarinnar og kynningu á höfundinum, aðallega byggða á formála þýðandans og viðtali við hann, þar sem hann segist með þessu ljóðasafni vilja leggja fram lið sitt við að brúa þá gjá, sem verið hafi milli Noregs og Islands á bókmenntasviðinu, ekki sizt á vettvangi ljóðlistar. Þetta er önnur ljóðabók Einars Braga, sem þýdd hefur verið á er- lend mál. Árið 1968 kom bók hans, Hreintjarnir, út i franskri þýð- ingu eftir Régis Boyer og nefndist á frönsku Etangs claire. Þá hafa ljóð eftir hann birzt i timaritum og safnritum á ensku, lettnesku, rúmensku og esperanto. SKÁTAÞING í KEFLAVÍK Landsmót á Úlfljótsvatni næsta sumar SKATAÞING var haldið f Iðn- skólanum f Keflavik dagana 13,- 14. okt. s.l. Þingið var haldiö i boöi skátafélagsins Heiðabúa undirstjórn Magnúsar Jónssonar félagsforingja. Mörg mál voru rædd á þinginu m.a. fyrirhugaðar framkvæmdir á úlfljótsvatni, en þar verður landsmót skáta haldið næsta sumar, útgáfa skátabókar, sem út á að koma fljótlega, foringja- þjálfun, erindrekstur, framtið skátastarfs á fslandi o.fl. Á þinginu var kosin ný stjórn B.l.S. Úr stjórfo gengu Arnbjörn Kristinsson aðst. skátahöfðingi og Guðrún Jónsdóttir fyrirliði al- þjóðasamstarfs kvenskáta. I þ&irra stað komu Jón Mýrdal og Ragnheiður Jósúadóttir. 1 stjórn eru nú Páll Gislason skátahöfðingi, Halldór S. Magnússon gjaldkeri og fyrirlið- ar alþjóðasamst. Ragnheiður Jósúadóttir og Arnfinnur Jóns- som I íok þingsins bauð bæjarstjórn Keflas^ku;- öllum þingfulltrúum til kaffidrykkju i Stapa. Þar færði bæjarstjóri, Jóhann Einvarðsson, skátahöfðingja fánastöng með fána Keflavikur. Þingið sóttu 79 fulltrúar *>iðs vegar að af landinu, auk áheyrnarfulltrúa. 1 14444 ? mum T 25555 BÍLALEIGA CAR RENTAL BORGARTUN

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.