Tíminn - 30.10.1973, Síða 11

Tíminn - 30.10.1973, Síða 11
Þriðjudagur 30. október 1973 TÍMÍNN 11 (Jtgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þór- arinn Þórarinsson (ábm.), Jón Helgason, Tómas Karlsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrif- stofur i Edduhúsinu við Lindargötu, simar 18300-18306. Skrif- stofur i Aðalstræti 7, simi 26500 — afgreiðslusimi 12323 — aug- lýsingasfmi 19523. Áskriftagjald 360 kr. á mánuði innan iands, i lausasöiu 22 kr. eintakið. Biaðaprent h.f. Grein Arna Gunnarssonar Reykjavikurbréf Mbl. á sunnudaginn er að mestu leyti nið um Einar Ágústsson utan- rikisráðherra. Tilefnið er það, að á laugar- daginn birti blaðið grein eftir Árna Gunnarsson fréttamann, þar sem hann svarar árásum Markúsar Arnar Antonssonar á sjónvarps- viðtal, sem Árni átti við utanrikisráðherra i sambandi við Allsherjarþingið i New York. Mbl. gat engar athugasemdir gert við grein Árna, en sleppir sér þeim mun rækilegar i sunnudagspistlinum. Þetta er gott dæmi um hina sérstæðu starfshætti Mbl. 1 grein Árna Gunnarssonar sagði hins vegar m.a.: „Markús segir, að Einar Ágústsson hafi það fram yfir suma fyrrverandi utanrikisráðherra islenzka, að honum hafi á sinum tima verið kenndur réttur framburður á enskri tungu, þannig að ráðherrann hafi komist nokkurn veginn skammlaust frá flutningi hinnar hefð- bundnu árlegu ræðu sinnar á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Hvernig Markúsi tekst að tengja þetta þvi máli, sem hann fjallar um, er mér óskiljanlegt. Stór hluti ræðumanna á Allsherjarþinginu, þó utanrikisráðherrar séu, treysta sér ekki til að flytja ræður sinar á ensku eða frönsku, sem eru hin hefðbundnu tungumál þessarar alþjóða-stofnunar. Mér er óhætt að fullyrða,að öllum fulltrúum íslands á Allsherjarþinginu þótti ræðan vel flutt.og sjálf- ur get ég sagt i fullri hreinskilni, að þar þótti mér tala mjög frambærilegur fulltrúi Islands. — Til fróðleiks má geta þess, að ræðu utan- rikisráðherra var vel tekið og óvenju margir fulltrúar voru i fundarsalnum, sem ekki er alltaf þéttsetinn. Hvort sem Markúsi likaði vel eða illa við þær skoðanir, er fram komu i ræðunni, urðu margir fulltrúanna til að þakka utanrikisráðherra málflutninginn. ’ ’ ,,Þá segir Árni ennfremur i greinsinni: „Markús segir, að utanrikisráðherra hafi i nefndu sjónvarpsviðtali byrjað á barnalegri kokhreysti. — Ég byrjaði viðtalið á þvi að segja, að bandariskir ráðamenn hefðu miklar áhyggj ur vegna hugsanlegrar brottfarar varnar- liðsins frá íslandi.og i beinu framhaldi af þvi spurði ég utanrikisráðherra, hvort hann hefði létt þessum áhyggjum af Bandarikjamönnum. Rökrétt svar ráðherrans hlaut að vera nei, ef miðað er við stefnu rikisstjórnar hans i málinu. Auðvitað hefði verið hægt að orða spurninguna á annan hátt. Markús hlýtur að vita, eftir hverju ég var að fiska, og er þvi þessi hluti greinar hans orðhengilsháttur og út- úrsnúningar. Ég læt ósagt hver er barnalegur i þessi tilviki”. Þá sagði i grein Árna á þessa leið: „Það er lika rétt að það komi fram, að utan- rikisráðherra hafði það á orði i þessari ferð, að það væri eðlileg krafa, að Islendingar fengju að fylgjast með þvi.hvað islenzkir ráðamenn gerðu, þegar þeir væru erlendis i erindum is- lenzku rikisstjórnarinnar. Þessa afstöðu mættu margir taka sér til fyrirmyndar.” Bersýnilegt er, að Mbl. hefur ekki þolað vin- samleg viðurkenningarorð Árna Gunnars- sonar um utanrikisráðherra, en manndómur- inn er ekki meiri en það,að gremjan fær útrás i bullandi niði i Reykjavikurbréfi blaðsins. Þ.Þ. ERLENT YFIRLIT AAarkar stjórnarmyndun Ecevits tímamót? Flokkur Ataturks kemst til valda að nýju t GÆR voru liðin 50 ár siðan Ataturk lýsti yfir stofnun tyrk- neska lýðveldisins. Afmælis- ins verður að sjálfsögðu minnzt hátiðlega i Tyrklandi, þar sem Ataturk er þjóðhetja hins tyrkneska lýðveldis. Það getur átt eftir að gera afmælið sögulegra, að nú er verið að vinna að stjórnarmyndun i Tryklandi, sem getur átt eftir að marka þáttaskil i tyrk- neskri stjórnmálasögu. A valdatimum Ataturks var flokkur hans, Lýðveldisflokk- ur alþýðu, allsráðandi i land- inu, enda lengi vel eini flokk- urinn. Ataturk taldi það fyrir- komulag ekki heppilegt til frambúðar, að aðeins einn flokkur væri i landinu, og lét þvi nokkra fylgismenn sina stofna annan flokk, Lýðveldis- flokkinn. Þessir flokkar skyldu svo berjast um völdin i landinu og vera hvor öðrum heppilegt aðhald. Þegar Ata- turk féll frá 1938, tók nánasti samverkamaður hans, Ismil Inönu, bæði við stjórnarfor- mennskunni og forustu Lýðveldisflokks alþýðu. Hann fór með völd til 1950, en þá vann Lýðræðisflokkurinn kosningarnar og varð Bayar, einn af gömlum samherjum Ataturks, forseti, en Menderes varð forsætisráðherra. Lýðræðisflokkurinn, sem náði miklu fylgi i sveitunum, fór siðan óslitið með völd til 1960, en þá steypti herinn stjórn Menderes úr stóli fyrir meinta fjárglæpi og óheiðarlegt stjórnarfar. Herinn lét hengja Menderes, en setja Bayer i ævilangt fangelsi. Herinn setti nýja stjórnarskrá og var kosið til þings samkvæmt henni ’61 Lýðræðisflokkur Menederes var bannaður en nýr flokkur reis upp af grunni hans, Réttlætisflokkurinn,undir for- ustu Suleyman Demirels. Hann fékk næstum eins mikið fylgi og Lýðveldisflokkur alþýðu undir forustu Inönus. Niðurstaðan varö sú,að Inönu myndaöi sambræðslustjórn þessara flokka. I þingkosning- unum, sem fóru fram 1965, fékk Réttlætisflokkurinn hreinan meirihluta og myndaði Demirel þá stjórn. Réttlætisflokkurinn hélt meirihluta sinum i þing- kosningunum 1969. Margvis- legir erfiðleikar stefndu að stjórn Demirels á siðara kjörtimabilinu, efnahagslegir og pólitiskir. Einkum létu ýmis vinstri sinnuð samtök á sér bera. Herinn taldi stjórn Demirels ekki vera vandan- um vaxna. 1 marz 1971 skarst hann þvi i leikinnn, vfek stjórn Demirels frá völdum og tók sér einræðisvald. FREGNUM frá Tyrklandi ber yfirleitt saman um, að þar hafi skapazt hrein ógnaröld eftir að herinn tók völdin. Miklar ofsóknir hófust á hend- ur ýmsum róttækum samtök- um og voru fangar beittir hinni hrottalegustu meðferö. Alls er talið, að herinn hafi lát- ið fangelsa um 6000 manns af pólitiskum ástæðum, og sitja um 4000 þeirra enn í fangels- um án dóms og laga. Þetta framferöi hersins vakti mikil mótmæli viða um heim og þó einkum i löndum Atlantshafs- bandalagsins. Innan Atlants- hafsbandalagsins hefur veriö mikil og vaxandi gagnrýni á framferði herstjórnarinnar tyrknesku, og hafa fulltrúar ýmissa minni rikjanna ekki sizt látið það mál til sin taka. Þetta, ásamt fleiru, átti sinn Kcevit þátt i þvi, að herstjórnin tilkynnti skyndilega i júni- mánuði siðastliðnum, að hún myndi efna til þingkosninga seint i nóvember og láta þær afskiptalausar. Það gerði hún að mestu. Erlendum frétta- mönnum ber yfirleitt saman um, að þær hafi farið frjáls- lega fram. Það sannar m.a. þessa skoðun, að úrslit þeirra komu talsvert á óvart. Rétt er að geta þess, að það kann að hafa haft áhrif á af- stöðu hersins, aö honum tókst ekki að koma fram vilja sin- um, þegar nýr forseti rikisins var kjörinn i marzmánuði siðastliönum. Herinn ætlaði þá að fá Faruk Gurler kjörinn, en hann átti mikinn þátt i bylt- ingu hersins 1971. Stærstu flokkarnir i þinginu komu sér þá saman um að hindra kosn- ingu hans, en þingið kýs for- setann. Eftir þetta varð mikiö þóf milli leiðtoga hersins og foringja þingflokkanna og lauk þvi á þann hátt, að gamall flotaforingi, Tatiri Koruturk, var kosinn forseti. Hann er talinn hafa átt þátt i þvi aö beina stjórnarfarinu inn á frjálsari brautir. ÞVI var yfirleitt spáð fyrir kosningarnar, að Réttlætis- flokkurinn myndi ná meiri- hluta, þar sem það þótt liklegt til að bæta fyrir honum, að herinn vék stjórn hans frá völdum. Úrslitin urðu hins vegar ekki á þann veg. Flokk- urinn beið mikinn ósigur i þingkosningunum og eru tvær ástæöur einkum taldar valda þvi. önnur er sú, að flokkurinn haföi klofnað. Minnihluti hans unfir forustu Bayars gamla og Menderes yngri hafði stofnað nýjan flokk, Nýja lýðræðis- flokkinn, og fékk hann um 40 þingsæti. Hin ástæðan var sú, að hinn gamli flokkur Ataturks, Lýðveldisflokkur alþýðu, hafði fengið nýjan glæsilegan foringja. Mikil átök höfðu orðið á þingi flokksins 1972 milli hægri armsins undir forustu Inönu, sem er kominn yfir nirætt,og vinstri armsins undir forustu Bulent Ecevits. Vinstri arm- urinn sigraði og var Ecevit, kostinn foringi flokksins. Ece- vit, sem er 48 ára gamall, boðaði róttæka stefnu á mörgum sviðum og lofaði m.a. að náða alla pólitiska fanga. (Jrslitin urðu þau, að flokkur hans vann mjög mikinn kosningasigur og hlaut 185 þingsæti af 450 alls. Réttlætis- flokkurinn hlaut hins vegar ekki nema 149 þingsæti. Næst kom nýr flokkur, þjóðlegi Hjálpræðisflokkurinn, sem fékk 49 þingsæti. Þetta er flokkur strangtrúaðra Múhameðstrúarmanna, sem jafnframt aðhyllist þó ýmsar sósialiskar hugmyndir i lik- ingu við skoðanir Gaddafis, einræöisherra Libýu. Þá fékk Nýi lýðræðisflokkurinn, sem er talinn mjög Thaldssamur, um 40 þingsæti. Aðrir flokkar fengu miklu minna. I samræmi við úrslit þing- kosninganna hefur Koruturk forseti falið Ecevit stjórnarmyndun. Ecevit hefur sagt að hann muni reyna að mynda samsteypustjórn, en það geti tekið drjúgan tima. Liklegast er talið, að hann muni reyna að mynda stjórn með Hjálpræðisflokkn- um, en ekki er þó talið vist, að það muni takast. Samsteypu- stjórn þeirra Ecevits og Demirels er ekki talin með öllu útilokuð, þvi að persónu- legur kunningsskapur tókst meö þeim, er þeir unnu saman i sambandi við forsetakjörið á siðastl. vetri. Þá kemur sá möguleiki til greina, að Ecevit myndi minnihlutastjórn. Yfir- leitt hyggja erlendir frétta- menn, sem verið hafa i Tyrk- landi, vel til stjórnarforustu hans. — Þ.Þ.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.