Tíminn - 30.10.1973, Síða 23

Tíminn - 30.10.1973, Síða 23
Þriðjudagur 30. október 1973 TÍMINN 23 O Selfoss þvi svipt sig sem svarar öllu fylgi Sjálfstæðisflokksins á Selfossi með Votmúlakaupunum. Fréttaritari Timans á Selfossi, Hjalti Þórðarson, sagði, að nú gengi niðurstaðan á ný til oddvita sýslunefndar, en að sjálfsögðu væri það aðeins formsatriði, þar sem hvort tveggja er um var spurt á atkvæðaseðlunum, væri endanlega útkljáð af Sel- fyssingum sjálfum með atkvæða- greiðslunni, svo sem til hefði verið ætlazt. Fólk lætur ekki bjóða sér allt Timinn leitaði eftir þvi i gær, hvað þeir, sem börðust i fremstu viglinu að þessu sinni, vildu segja um úrslitin. — Mér finnst þetta sýna svo glöggt sem verða má, að fólk lætur ekki bjóða sér hvað sem er. Það hefur ekki viljað láta bjóða sér, að milljónatugum sé sóað á þann hátt, er hér stóð til, og fjár- munir almennings notaðir til þess að sprengja upp verð á jörðum langt umfram það, er áður hefur þekkzt. Allt það moldviðri, sem reynt var að þyrla upp, til þess að gera okkur, sem risum gegn þessu, sem tortryggilegasta, hefur reynzt árangurslaust, ef það hefur þá ekki haft öfug áhrif við það, sem til var ætlazt. Þar með basta Guðmundur Á. Böðvarsson sveitarstjóri var i skrifstofu sinni. Hann var næsta stuttur i spuna: — Ég visa þessu öllu til odd- vitans, sagði hann, er leitað var eftir áliti hans. Við spurðum, hvort hann teldi, að hreppsnefndarmeirihlutanum bæri að segja af sér eftir þá útreið, er hann hefði fengið. — Ég læt ekkert hafa eftir mér um það, svaraði hann. — Komu úrslitin þér á óvænt? spurðum við. — Ég er búinn að segja, að ég læt ekkert hafa eftir mér og þar með basta! Við segjum auðvitað ekki af okkur Óli Guðbjartsson oddviti var heima hjá sér, og tók spurningum okkar þægilega. — Úrslitin eru ótviræð, að minni hyggju, sagði hann. Þar af leiðir, að þessu tvö mál, Votmúla- kaupin og kaupstaðarréttindi eru úr sögunni. En við þetta vil ég fá að bæta þessu: Byggðin hér hefur þróazt á skömmum tima. Hún var upphaf- lega eins og tjaldbúð hér á árbakkanum, en er nú orðin mikil og á eftir að veröa meiri. Hér verður framvinda, sem þjóðin mun taka eftir, og sjálfir eiga Sel- fyssingar seinna eftir að sjá betur en nú, hverjir hagsmunir þeirra eru. Ég óttast ekki dóm framtiðarinnar. Við spurðum Óla, hvort hrepps- nefndarmeirihlutinn myndi ekki telja sér skylt að segja af sér, eftir þann áfellisdóm, er gerðir hans hefðu fengið: — Nei auðvitað segjum við ekki af okkur, sagði Óli. Það voru ekki greidd atkvæði um stöðu okkar, heldur þessi tvö mál — Votmúlakaupin og kaupstaðarrétt indin. Það var þessu tvennu, sem fólk hafnaði. —JH o Eldvarnir þennan hátt megi koma tækjum þessum fyrr á brunastað en nú er, og nota þau samhliða slökkvibil, ef þörf krefur. Eins og sakir standa leita Vestur-Eyfellingar til slökkviliðs i Hvolsvelli, en þangað eru 30-50 km, og ogt reyn ist erfitt að ná simasambandi aö næturlagi. Heildarkostnaður við fram- kvæmd þessa varð um 17 þúsund krónur, svo auðvelt ætti að vera fyrir aðra að nota sér þessa ágætu hugmynd. Eyjafjalla- hreppur lagði til 5.000 krónur til kaupanna, en hitt slysavarna- deildin Bróðurhöndin. 1 stjórn hennar eru nú: Séra Halldór Gunnarsson i Holti, Ólafur Sveinsson i Stóru Mörk og frú Marta Kristjánsdóttir á Eystra- Seljalandi. o Ted Willis irnir séu alveg ábandilslendinga, en samúðin með þeim fer vax- andi. Sama er aðsegja um brezka togarasjómenn. Andstaða útgerð- armannanna er mikil, en sjó- mennirnir kæra sig ekkert um að veiöa undir herskipavernd og vilja samninga. Það hafði mikil áhrif i Bret- landi, þegar stjórnin sendi her- skipin til Islands. Fór ekki á milli mála, að þar var verið að ráðast á lltilmagnann. Þegar Frakkar sprengdu kjarnorkusprengjur sinar á Kyrrahafi i sumar tóku þeir sér miklu stærra lögsagnar- umdæmi en Islendingar. Þeir bönnuðu öllum skipum að koma nær en 75 milur frá sprengju- staðnum. Brezka stjórnin hreyfði ekki minnsta fingur til mótmæla. Ég hef spurt, hvort Bretar mundu senda herskip, ef Sovétrikin færðu sina landhelgi út I 50 milur. Auðvitað yrði það ekki gert. Ted Willis sagðist vona, að samningar milli Breta og Is- lendinga gætu tekizt hið fyrsta. Hann kvaðst ekki i vafa um, að á hafréttarráðstefnunni fengju tslendingar allar sinar vonir i sambandi við fiskveiöilögsögu uppfylltar. Hann kvaö einnig von sina, að þegar eftir að deilan verður til lykta leidd muni Bretar og Islendingar taka upp vinsam- leg samskipti eins og góðum grönnum sæmir. Aðspurður um ritstörf sin, sagðist lávarðurinn búast við, að brátt verði hann viðurkenndur sem heimsmethafi i þvi að semja þætti fyrir sjónvarp , en hann hef- ur skrifað fleiri slika þætti en nokkur maður annar. Alls hefur hann skrifaði 21 leikrit fyrir svið milli 30 og 40 kvikmyndahandrit og 21 sjónvarpsleikrit. Nú segist hann vera með leikrit i smiðum, sem sýnt verður i vor og um svipað leyti kemur út eftir hann skáldsaga, — hálfgerður reyfari, segir höfundurinn. Það f jallar um skæruliða, sem ræna forsætisráð- herra Bretlands. Meira segi ég ekki um efni þess að svo stöddu. Með sanni má segja, að Ted Willis hafi mörg járn i eldinum. I sumar dvaldi hann i Ástraliu og aðstoðaði gamlan vin sinn i kosningabaráttunni þar Skrif aði hann ræður og lagði á ráðinum kosningabaráttuna. Það gekk ekki verr en svo, að vinurinn Gough Whitlam, er nú forsætis- ráðherra Ástraliu. Eitt aðalbar- áttumálið var: Kaupum Astraliu fyrir Astraliumenn. Það er ekki úr lausu lofti gripið, þvi að erlend auðfélög, aðallega brezk og japönsk hafa keypt upp gifurleg landflæmi i álfunni. Eru sum svæðin i eigu útlendinga stærri en Island að flatarmáli. Mun nýja stjórnin beita sér fyrir þvi, að kaupa þessi svæði aftur og setja lögum takmarkanir á eignarrétti útlendinga á landi. Við skulum vona, að fleiri af baráttumálum Ted Willis komist farsællega i höfn. — Oó © Tass heimild til að lýsa yfir, að slikar útskýringar eru fáránlegar, þar eð athafnir Sovétrikjanna miöa eingöngu að þvi, að ákvarðanir Sameinuðu þjóöanna um vopna- hlé og frið i Mið-Austurlöndum verði i heiöri hafðar. Þessi ráðstöfum Bandarikj- anna, sem er alls ekki i þágu bættrar sambúöar á alþjóðavett- vangi, hefur greinilega verið gerð i þvi skyni aö ógna Sovétrikjun- um. En þeim, sem standa á bak við þessa ráöstöfun skal sagt, að þeir hafa valið skakkt númer, segir I skeytinu. Sinfóníu- tónleikar 3. reglulegu tónleikar Sin- fóniuhljómsveitarinnar á þessu starfsári verða næstkomandi fimmtudag 1. nóvember, og kemur þar fram sem einleikari á lágfiölu WALTER TRAMPLER, og leikur Violukonsert Béla Bartoks. Walter Trampler er þýzkur að uppruna, og var þegar orðinn þekktur i heimalandi sinu, er hann fluttist til Bandarikjanna I byrjun siðari heimsstyrjaldar. Hann er i dag einn virtasti lag- fiðluleikari i heimi fyrir frábæra leikni og næma túlkun. Stjórnandi veröu hinn kornungi finnski hljómsveitarstjóri OKKO KAMU, sem heimsækir okkur nú i annað sinn, en hann stjórnaði tónleikum hljómsveitarinnar 24. mai siðastl. Má teljast mikill fengur að fá Okko Kamu hingað öðru sinni, þar sem hann er meðal mest eftirsóttu hljómsveitar- stjóra eftir að hann vann Karajan-verðlaun fyrir hljóm- sveitarstjórn, þá aðeins rúmlega tvitugur. Satt að segja færðu ótrúlega mikið fyrir peningana í Heilsuræktinni TÖKUM T.D. ALMENNA ÞJÁLFUN 2 X í VIKU — í ÞVÍ NÁMSKEIÐI FELST: 50 min. líkamsþjálfun ásamt jógaæfingum og jógaslökun og síðan frjáls afnot að eigin vild af kerlaugum með hvera- vatni# sauna, sturtuböðum, háfjallasól, infrarauðum Ijósum, hvíldarbekkjum, hvíldartækjum og þrekþjálfunartækjum. Og hvað kostar svo þetta allt saman? Jú, 3ja mán. námskeið kostar fyrir einstaklinga kr. 2 þús. á mánuði ef allt námskeiðið, kr. 6 þús., er greitt i einu eða tvennu lagi, og fyrirhjón aðeins3.l67.00á mánuði. HEILSURÆKTIN GLÆSIBÆ SÍMI 85655 Málarinn með djöfsa sinn AAólar djöf- ulinn á vegg JÓNAS GUÐMUNDSSON, list- málari og rithöfundur, hefur ný- iega lokið við að mála „djöfulinn á vegg” cins og hann orðar það, fyrir verzlunina Casanova I Bankastræti. — Þctta er ekta Rubcns, sagði Jónas, en hann lagöi til fyrir- myndina i þetta popp-verk. Myndin myn sýna sjálfan Bakkus konung og einhvern fulltrúa istöðuleysisins. Ég hafði afskaplega mikla ánægju af að vinna þetta verk fyrir strákana, en myndin er 146x97 sentimetrar, en verst þótti inér að sjá ekki svipinn á stúlk- unni I Sendibilastööinni, þegar ég sagði henni að billinn yrði að vera stór, þvi að ég þyrfti að flytja djöful milli húsa. — A þetta að teljast málverk, eða skrevting? — Ég veit að Ilubens tekur ekki i mál að þetta sé málverk. Eiguin við ckki að ncfna þetta skraut. Síldveiðarnar: Selt fyrir 90 millj. í síðustu viku Loftur Baldvinsson hefur selt fyrir 60 milljónir í sumar EINS og áður hefur komiö fram, náðu sfldveiðiskipin að selja afla úr Norðursjónum fyrir einn millj- arð fyrir helgina, eða nákvæm- lcga 1.00(1.880.624.-. A sama tiina i fyrra var þessi tala tæpar 445 milljónir. Munar þar mestu, að mcðalverðið í ár hefur verið meira cn 10 kr. hærra, eða kr. 24.88 á móti 14.31 i fyrra. I sumar hcfur verið landaö um 9 þús. lest- um mcira en á sama tima I fyrra, þ.e. 40.236 lestum á móti 31.453 lestum. I siðustu viku var sfld seldfyrir hvorki meira né minna en rúmar 90 milljónir, nákvæmlega 90.391.374,- kr. meðalveröiö i vik- unni var kr. 28.48 pr. kg. Hæstu sölu hafði Faxaborg GK, sem seldi fyrir 6.1 milljón eftir einn túr. Þrjú hæstu skipin á vertiðinni eru Loftur Baldvinsson, sem selt hefur fyrir rúmar 60 milljónir. Guðmundur RE, fyrir 48 milljónir og Súlan EA fyrir 44 milljónir. Þrjú skip seldu afla i gær, en það voru Vörður ÞH, sem seldi fyrir 1.5 milljónir, Isleifur VE fyrir 1.9millj., og Súlan EA fyrir rúmar tvær, þannig að alls er skipið búið að selja fyrir 46 millj- ónir. Sildveiðarnar i sumar hafa gengið afbragðs vel og hátt verð fengizt fyrir aflann. Búastmávið þvi, að skipin verði á veiðum fram i byrjun desember, en upp úr þessu má fara að búast við þvi að veðrið fari versnandi á veiði- svæðinu og sölur verði þvi stop- ulli . — hs— tannduftið sem gerir tóbaks- litaðar tennur HVÍTAR I 1 KRISTJAN JÓHANNESSON. heildvarzlun, Simi 32399

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.