Tíminn - 10.01.1974, Qupperneq 4

Tíminn - 10.01.1974, Qupperneq 4
4 TÍMINN Fimmtudagur 10. janúar 1974 ■ Furstinn og tengdamamma Nú viröist friöurinn úti i Grimaldi-höllinni 1 Monakó. Móöir Grace furstaynju er komin i heimsókn, og allt útlit er fyrir aö sú heimsókn veröi i lengra lagi. Rainer fursta rak i rogastanz, þegar tengdamóðir hans birtist skyndilega, komin alla leið frá Ameriku, með kynstrin öll af farangri. Frúin hefur veriö ekkja árum saman og búið ein i griöarstóru 'húsi f jölskyldunnar i Philadelphia. 1 mörgum og löngum simtölum við dótt- ur sina i Monakó, hefur hún kvartað sárlega undan ein- manaleik sinum, og árangurinn varð auövitaö sá, aö Grace bauö henni aö koma og búa i fursta- höllinni. Hún gleymdi bara að segja manni sinum frá heim- boðinu. Rainer fursti tók vel á móti tengdamóöur sinni og lét útbúa handa henni nokkur herbergi til einkaafnota. En frúin er vön þvi að hafa rúm um sig. Og smám saman hefur hún lagt undir sig hvern salinn á fætur öörum. Og ekki nóg meö það. Af fádæma dugnaði og áhuga er hún þegar búin aö snúa flestu við i höllinni, láta gera breytingar og lag- færingar að eigin smekk. Þótt Rainer fursti sé manna gestrisnastur.finnst honum vist einum of langt gengið. Sögu sagnir herma, að upp á siökastið hafi þau hjónin hvaö eftir annað hnakkrifizt út af gömlu konunni, og furstinn hef- ur siður en svo haldið þvi ★ Berjast gegn hjótrú f Englandi hafa þrettán þjóökunnir menn stofnað félag til þess aö berjast gegn hjátrú. Þeir hafa skuldbundið sig til að sitja ávallt 13 yfir borðum, að mölva spegla, þegar tækifæri gefst, og berja ekki neðan i borðið, þegar þeir hafa gumað af heilsu sinni, að velta salt- kerum, að drekka kaffi með skeiðina i bollanum, að kveikja þrir á sömu eldspýtunni og þvi um likt. leyndu fyrir konu sinni, aö hans heitasta ósk sé, aö tengda- mamma hafi sig á brott hið skjótasta. En það er ekkert útlit fyrir aö Rainer fursta verði að ósk sinni i náinni framtið. Frúin er sögð una sér fádæma vel i Monakó, svo að annað hvort verður furstinn að taka á honum stóra sinum og reyna að umbera tengdamömmu, eða þá að draga eitthvað úr gestrisninni! ★ Svaf í tuttugu og eitt ór Sovézka blaðið Trud sagði á dögunum frá konu, sem vaknað hefði af tuttugu og eins árs svefni. Kona þessi á heima i Úkrainu, og þessi langi svefn hófst haustið 1952 er hún lá veik af inflúenzu. Siðan hefur hún ekki brugðið blundinum og hef- ur fæðuefnum henni viðhalds verið dælt i æðar hennar. Nú er konan farin að tala og er að byrja að læra að ganga á nýjan leik. Jarðfræðingar úti d rúmsjó Reiknað hefur verið út, að ekki minna en þriðjungur oliu- og gasbirgða heimsins sé saman- kominn úti fyrir ströndum meginlandanna, og þar eru einnig miklar birgðir af platinu, gulli, tini, járni, titani, geisla- virkum efnum og demöntum. Miklar hráefnabirgðir eru einnig fyrir hendi á djúpum hafssvæðum. Úr brotinni jarðskorpu neðan- sjávarhryggjanna streyma heit efni, sem innihalda járn, mangan, sink, blý, kopar, silfur og gull. Neðansjávarljósmyndir hafa sýnt, að viðáttumikil svæði hafbotnsins eru bókstaflega þakin járn- og mangan-mynd- unum, kóbolti, nikkel og molýbden. Það er þvi nauðsyn- legt aö nýta þessi auðæfi hafsbotnsins. Og til þess þarf fyrst og fremst sérfræðinga. Fjallarannsóknastofnunin i Leningrad hefur frá og með árinu 1970 veitt menntun sér- fræðingum i nýrri grein, sem áður var óþekkt, og er þar um að ræða jarðfræðinga, sem hafa að sérgrein uppgötvun auðlinda hafsbotnsins. Jarðfræðistúdentar, sem ákveða að helga sig sjávar- rannsóknum, þurfa einnig að stunda nám við kafaraskóla. Til þess að stunda sérgrein þina þurfa þeir að hafa lokaprófs- skirteini frá Fjallarannsókna- stofnuninni og kafararéttindi. Sérstök deild sjávarbotns- rannsókna var stofnuð við jarðfræðideild stofnunarinnar. Jarðefnafræðideildin mun einnig útskrifa jarðefna- fræðinga, sem hafa hafsbotninn að sérgrein Sama þróun á sér stað við aðrar deildir stofnunar- innar. I LGI hefur verið komið á fót visindaráði, sem sér um að samræma hafrannsóknirnar. Nú þegar er mikið stundað af slikum rannsóknum, og má þar nefna t.d. jarðefnafræöilegar rannsóknir á botni Baretns- hafs, rannsóknir á aðferðum við borun meö neðansjávar- tækjum, sköpun nýrrar tækni til vinnslu á hráefnum neðan- sjávar og leit að neðansjávar- birgðum rafs í Eystrasalti. ★ 4,6 milljónir stúdenta í Sovétríkjunum Haustið 1973 voru innritaðir 930.000 stúdentar i sovézka há- skóla og æðri menntastofnanir i Sovétrikjunum. Aðsóknin hefur verið mest að þeim námsgrein- um, sem eru tengdar nútima visindum og tækni, og er orsökin hin öra þróun i efnahagslifi Sovétrikjanna Nú eru alls rúm lega 4.6 milljónir stúdenta i Sovétrikjunum. Þeir eru úr öllum þjóðfélagshépum, og fá allir námslaun frá rikinu. Þvi má bæta hér við, að sl. ár hækkuðu námslaun almennt um 25%. I þessu sambandi má einnig bæta við, að i Frakklandi fær aðeins fimmti hver stúdent styrk og Bandarikjunum sjöundi hver stúdent. * Stærsta bókasafn í Síberíu Siberiudeild Visindaakademiu Sovétrikjanna hefur aðalað- setur sitt i Novosibirsk, og þar er aðalbókasafn deildarinnar. Það er eitt stærsta bókasfan i Sovétrikjunum, og nýlega hefur bók nr. 7000000 verið skráð i bókasafninu. Næstum helmingur bókanna i safninu er á erlendum tungum. ★ Jólasveinninn flaug yfir Norðurpól og vildi koma við ó Islandi Það er viðar en hér á Islandi talað um, að jólasveinar séu á ferð. Frá flugstjórnarstöð i Kanada kom á jólanótt skeyti til flugeftirlits á fslandi, þar sem segir, að ,,Santa Claus” — alheimsjólasveinninn — fljúgi yfir tsland á tilsettum tima. í skeytinu (sem var jólagrin þeirra, sem voru þarna á vakt á jólanótt sagði, að farkosturinn gengi fyrir 8 fljúgandi hreindýrum og Rúdólf rauðnef- ur væri lika með i ferðinni. Eins og flugvélarnar, sem hér fara um, þá bað jólasveinninn um eldsneyti eða orkugjafa handa sinum farkosti. Hann vildi fá 20 bagga af heyi, en spurði hvort nokkur hækkun hefði orðið hér i sambandi við oliun hækkunina. Hann fékk svarskeyti frá vakt- mönnum i Gufunesi á jólanótt og var honum þar sagt, að hann gæti fengið alla afgreiðslu hérna a íslandi — en heyið hefði hækkað geysimikið hér — sögðu þeir. Siðan sendu þeir honum beztu jólaoskir og óskuðu hon- um góðrar ferðar.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.