Tíminn - 10.01.1974, Qupperneq 17
Fimmtudagur 10. janúar 1974
TÍMINN
17
LIVERPOOL AFRAM
liðið sigraði nú Doncastle 2:0 í ensku bikarkeppninni
„Ungverjar
sterkir"
— segir Karl
Benediktsson,
landsliðsþjólfari
„UNGVERJARNIR eru
geysilega sterkir núna og það
er mikill kraftur i þeim”...
sagði Karl Benediktsson,
landsliðsþjálfari i handknatt-
leik, þegar við spurðum hann,
hvort okkur tækist ef til vill að
hefna fyrir tapið i heims-
meistarakeppninni i Tékkó-
slóvakiu 1964. Þá voru fslend-
ingar nálægt úrslitaleiknum,
þeir máttu tapa fyrir Ung-
verjum með sex marka mun
til þess að komast i úrslita-
keppnina. En leikurinn gegn
Ungverjurr varð að martröð
og Islendingar töpuðu i
Bratislava 21:12, eða með niu
marka mun.
Islenzku leikmennirnir voru
geysilega spenntir fyrir
leikinn gegn Ungverjum i
Bratislava, sagði Karl — úr-
slitin blöstu við. Ef við
hefðum sigrað Ungverja,
hefðum við komist i riðil með
Svium, A- og V-Þjóðverjum og
hefðum ' . farið i riðilinn með
tvöstig, sem við fengum gegn
Svium i undankeppninni. En
Ungverjar stöðvuðu okkur og
Sviar léku úrslitaleikinn gegn
Rúmenum — úrslitaleik, em
við misstum af á siðustu
stundu. Markvarzlan brást
hjá okkur og leikmenn
isienzka liðsins höfðu enga
reynslu að baki, þvi fór sem
fór. SOS
UVERFOOU Iryggði sér rétt
til að lcika i 4. umferð ensku
bikarkeppninnar, þegar
meistaraliðið lagði 4. deildar-
liöið Doncastle að velli f öðr-
um leik liöanna á þriðjudags-
kvöldið i Doncastle. I.eikmenn
Liverpool átti ekki i erfiðleik-
um með nesta liðið i 4. deild og
sigurinn varð þeirra 2:0. Steve
lieighway .skoraöi fyrra
markiö og Peter Cormack,
bætti siðara markinu við.
Úrslitin i bikarkeppninni á
þriðjudagskvöldið, urðu þessi:
Doncastle—I.iverpool 0:2
Coventry—Sheff. Wed. 3:1
Hull—BristolCity 0:1
Scunthorpe—Millwall 1:1
Oldham—Cambridge 3:3
Coventry átti ekki erfitt með
að sigra Sheffield Wednesday.
David Cross skoraði fljótlega
fyrir Coventry og var staðan
1:0 fyrir 1. deildarliðið i hálf-
leik. 1 siðari hálfleik jafnaði
Sunley fyrir miðvikudagsliðið.
Hutchinson kom Coventry yfir
2:1 og rétt fyrir leikslok
innsiglaði fyrirliði Coventry,
Mike Coop, góðan sigur
Coventry-liðsins, þegar hann
skoraði úr vitaspyrnu.
TREVOR
TAINTON...Bristol City, sést
hér skalla að marki Ilull
City. Hann skoraði sigur-
markið gegn IIull.
Hörður kemur
inn fyrir Geir
íslenzka landsliðið í handknattleik,
sem leikur gegn Ungverjum, valið
HÖRÐUR Kristinsson
tekur stöðu Geirs
Hallsteinssonar i is-
lenzka landsliðinu i
handknattieik, sem
leikur gegn Ungverj-
um i Laugardalshöll-
inni á laugardaginn.
Hörður leikur sinn 20.
landsleik á laugar-
daginn og það verður i
annað skiptið, sem
hann leikur gegn Ung-
verjum,hann lék gegn
• •
HOFUM ATT I
ERFIÐLEIKUM
MEÐ UNGVERJA
ÍSLENZKA landsliðið I handknattleik hefur fjórum sinnum leikið
landsleik gegn Ungverjum. Ungverjar hafa ávallt borið sigur úr
býtum. island lék fyrst gegn Ungverjum i heimsmeistarakeppninni
i Austur-Þýzkalandi 1958. Ungverjar unnu leikinn, sem fór fram I
Magdeburg 19:16.
Annar leikur islands gegn Ungverjalandi var leikinn i
HM-keppninni i Tékkóslóvakiu 1964 og fór hann fram I Bratislava.
Honum lauk með sigri Ungverja 21:12.
Þriðji leikur íslands og Ungverjalands var leikinn I heimsmeist-
arakeppninni I Frakklandi 1970. Leikurinn fór fram i Mulhouse og
lauk 19:9 fyrir Ungverjaland.
Siðast léku tslendingar gegn Ungverjum I alþjóölega handknatt-
leiksmótinu I Rostock i Austur-Þýzkalandi. Þá unnu Ungverjar
24:21.
Ungverjum 1
HM-keppninni i
Tékkóslóvakiu 1964.
tslenzka liðið verður
nær óbreytt frá lands-
leikjunum gegn
Bandarikjamönnum,
en liðiö verður skipað
þessum leikmönnum:
Ólafur Benediktsson, Val
Gunnar Einarsson, Haukum
Gunnsteinn Skúlason, Val
Björgvin Björgvinsson, Fram
Viðar Simonarson, F’H
Ólafur Jónsson, Val
Axel Axelsson, Fram
Gisli Blöndal, Val
Sigurhergur Sigsteinsson,
Fram
Hörður Kristinsson, Armanni
Einar Magnússon, Vlkingi
Auðunn Óskarsson, FH
ÞakkarTím-
anum fyrir
drengilega
afstöðu . . .
ÞAÐ ER ekki venja iþróttasiöu Timans að flagga með það, þó ein-
staklingar hafi samband við blaðið með einum eöa öörum hætti i
þeim tilgangi að þakka fyrir þaö, sem vel er gert á iþróttasiðunni.
Ýmsir aðrir munu vera sérstaklega sólgnir i slika viðurkenningu,
og vila sér þá ekki við þvi aö hvetja fólk beinlinis til að skrifa les-
endabréf, og ef ekki vill betur til, þá skrifa þeir hólbrefin bara sjálf-
ir. Iþróttasiða Timans ætlar að bregða út af vananum og birta
örstutt bréf frá einum fræknasta iþróttamanni landsins um þessar
mundir, Erlendi Valdimarssyni, en bréf hans er svohljóðandi:
„Um leiö og ég lýsi yfir furðu minni á afstöðu iþróttafréttaritara
VIsis til iyftingaafreks Gústafs Agnarssonar, vil ég nota tækifæriö
til að þakka íþróttasiðu Timans, og þá alveg sérstaklcga Alfreö Þor-
steinssyni, er ritaði undir „opiö bréf” til VIsis, rúm á iþróttasiðunni,
þegar sýnt þótti, að nokkrir Iþróttafréttamenn höfðu bundizt sam-
tökum um að þegja þaö i hei.
Að minu áliti eiga iþröttafréttaritarar ekki að vera undanþegnir
gagnrýni frekar en viö iþróttafólkið.
Erlendur Valdimarsson.”