Tíminn - 19.01.1974, Blaðsíða 11
Laugardagur 19. janúar 1974.
TÍMINN
11
Omsjón: Alfreð Þorsteinsson
Þróttarar
leggja land
undir fót
Þróttarar leggja land
undir fót um helgina.
Þetta topplið 2. deildar
keppninnar i handknatt-
leik, leikur tvo leiki á
Akureyri, viö KA í dag
og Völsunga á morgun.
Með því að sigra í báð-
um leikjunum og koma
með f jögur stig aftur til
Reykjavíkur, styrkja
Þróttarar stöðu sina í 2.
deild gifurlega. Liðið
hefur nú fjögurra stiga
forustu ideildinni, hefur
ekki tapað leik.
Sex leikir verða leiknir i 2.
deild um helgina, og verða
þeir sem hér segir:
LAUGARDAGUR:
Akureyri, kl. 4.30:
Völsungur
KA
Leika á Akureyri
um helgina
Markakónga-
emvigi
Þegar Axel Axelsson og Einar Magnússon
mætast í leik Fram og Víkings á morgun
SUNNUDAGUR:
Akureyri kl. 2:
KA
Völsungur
Njarðvik kl. 3.30:
Keflavik
Fylkir
Þróttur
FYLKIR
Þróttur
KR
Seltjarnarnes kl. 4.30:
Breiðablik Grótta
Suður-
nesja
kylf-
ingar
verð-
laun-
aðir
Golfklúbbur Suðurnesja efnir
til kvikmyndasýningar og
verðlaunaafhendingar fyrir
mót á vegum klúbbsins s.l.
sumar, i Framsóknarhúsinu i
Keflavik á morgun, sunnudag,
kl. 13.30.
Sýnd verður nýleg mynd frá
golfkeppni á trlandi og afhent
verðlaun til sigurvegara i
innanfélagsmótum á vegum
klúbbsins.
Eru allir félagsmenn beðnir
um að mæta, svo og þeir
Keflvikingar og fleiri, sem
áhuga hafa á að kynnast starf-
semi klúbbsins og golfiþrótt-
inni.
Stjórnin.
Reykjavíkurmeistarar
REYKJAVÍKURMEISTARAR KR ....I innanhúsknattspyrnu 5. llokks. Standandi frá vinstri: SigurOur
Björnsson, Ingimar Isagsson, Stefán Arnarsson, Helgi M. Þorbjörnsson, Willum Þ. Þórsson og Atli
Helgason, þjálfari. Fremri röð: Guðmundur Albertsson, GIsli Felix Bjarnason, Jón G. Bjanason fyrir-
liði og Ólafur H. ólafsson. (Tlmamynd Róbert)
Taplausu liðin
í sviðsljósinu
Þrír þýðingarmiklir leikir í I. deild kvenna á morgun
Valur, Fram, Armann
og FH, öll tapiausu liðin
í 1. deild kvenna í hand-
knattleik, verða í sviðs-
Ijósinu á morgun. Is-
landsmeistarar Vals
leika þá gegn Ármanni i
Laugardalshöllinni, og
má þar búast við
baráttuleik. Einnig má
búast við hörkuleik,
þegar FH mætir Fram í
íþróttahúsinu i Hafnar-
firði. Þessi fjögur lið
koma til með að keppa
um íslandsmeistara-
titilinn i vetur.
Þá verður leikinn einn leik-
ur i fallbaráttunni á morgun.
Vikingur mætir þá Þór frá
Akureyri i Laugardalshöll-
inni, en þessi tvö lið hafa ekki
hlotið stig i 1. deildar keppn-
inni.
URSLITA-
ORUSTAN
í BLAKI
Tveir toppleikir í dag
Crslitaorustan í blaki veröur háö i Iþróttahúsi háskólans I dag.
Tveir stórleikir fara þar fram, og verða þeir örugglega spennandi
og tvísýnir. Stúdentar mæta UMF Biskupstungna kl. 14.00, og strax
á eftir leika Reykjavíkurmeistarar Vikings við Laugdælinga. Þessi
fjögur lið eru nú okkar langbeztu hlaklið, og eru leikir þeirra ávallt
spennandi og vel leiknir.
Markakóngaeinvígi
verður á morgun i
Laugardalshöllinni,
þegar Víkingur og Fram
mætast í 1. deildar
keppninni i handknatt-
leik. Þá munu þeir Axel
Axelsson (49 mörk) og
Einar Magnússon (47
mörk) leiða saman
hesta sina. Þetta eru
tveir skothörðustu hand-
knattleiksmenn okkar,
og verður örugglega
spennandi að fylgjast
með þeim, þegar
Vikingur og Fram mæt-
ast i Laugardalshöllinni.
Vikingur vann Fram i
skemmtilegum leik i
fyrri umferð islands-
mótsins, en nú er Fram-
liðið í ham, og hafa leik-
menn liðsins örugglega
hug á að hefna sin.
Annað kvöld verður einnig
leikur á milli Armanns og
Þórs frá Akureyri. Þessi lið
eru i fallbaráttunni, og verður
örugglega hart barizt, þegar
þau mætast. Leikurinn hefst
kl. 20.15.
Armenningar stefna, að þvi
að leggja Akureyringana að
velli, en eins og menn muna,
sigruðu Þórsarar Armenninga
fyrir norðan. Það verða þvi
tveir spennandi leikir i
Uaugardalshöllinni annað
kvöld.
• •
KORFU-
BOLTI
UM
HELG-
INA.....
Fjorir leikir í I.
deild á Nesinu
islandsmótinu i körfu-
knattleik verður fram
haldið í dag. Ármann
mætir KR í 1. deildar
keppninni i íþróttahús-
inu á Seltjarnarnesi kl.
16.00. Strax á eftir leika
iS og Valur. Á morgun
heldur svo 1. deildar
keppnin áfram, og leika
þá á Nesinu kl. 16.00 ÍR
og UMFN og strax á eft-
ir Valur og Ármann.
★