Tíminn - 19.01.1974, Blaðsíða 15
Laugardagur 19. janúar 1974.
TÍMINN
15
Rauður hestur
5 vetra, tapaðist frá Sjávarhólum á
Kjalarnesi. Mark: Vaglskora framan
hægra.
Þeir sem geta gefið upplýsingar, vinsam-
lega láti vita i sima 17859.
FUF í Kópavogi
Félagsfundur FUF i Kópavogi verður haldinn i
Félagsheimili Kópavogs fimmtudaginn 24..
janúar kl. 20:30. Dagskrá: 1. Kosning i
kjörnefnd 2. Tilnefning 7 ungra manna til
kjörnefndar Framsóknarfélaganna i Kópa-
vogi. 3. önnur mál. Stjórnin.
Viðtalstími
alþingismanna ■ 1 1
og | borgarfulltrúa
Laugardaginn 19. janúar verur Þórarinn Þórarinsson alþingis-
maður til viðtals á skrifstofu Framsóknarflokksins að Hring-
braut 30 frá kl.10-12 f.h.
Austur-Skaftfellingar
Arshátiö Framsóknarfélaganna i Austur-Skaftafellssýslu verður
haldin að Hótel Höfn laugardaginn 26. jan. og hefst kl. 20.30.
Nánar auglýst siðar.
Njarðvíkingar!
"N
Félag Framsóknarmanna i Njarðvik heldur aðalfund laugar-
daginn 19. janúar kl. 2 siðdegis i Framsóknarhúsinu Keflavik.
Venjuleg aðalfundarstörf
Stjórnin.
Félag framsóknarkvenna
í Reykjavík
Aðalfundur félagsins verður að Hallveigarstöðum fimmtudaginn
24. janúar næst komandi kl. 20:30. Fundarefni: Venjuleg aðal-
fundarstörf. önnur mál. Fjölmennið.
^ Stjórnin.
Breiðholtsbúar!
Alfreð Þorsteinsson, borgarfulltrúi, verður til viðtals laugar-
daginn 19. janúar n.k. milli kl. 13-15 að Vesturbergi 22. (Simi
43710).
Félagsmólanómskeið
á Akureyri 21.
til 26. janúar
Félag ungra framsóknarmanna á Akureyri efnir til félagsmála-
námskeiðs i Félagsheimilinu aö Hafnarstræti 90 21. til 26. janúar.
Haldnir verða sex fundir, er hefjast kl. 21, en kl. 14 á laugardag.
A þessu námskeiði verða tekin fyrir fundarsköp og fundarreglur,
ræðumennska, framburöur og notkun hljómburðartækja. Leið-
beinandi verður Kristinn Snæland erindreki. Nánari upplýsingar
gefur Ingvar Baldursson simi 21196 á kvöldin og skrifstofa
Framsóknarflokksins Akureyri, simi 21180. Allir velkomnir.
Keflvíkingar
Aðalfundur fulltrúaráös framsóknarfélaganna og húsfélagsins
Austurgötu 26, verður haldinn mánudaginn 21. janúar n.k. kl.
20.30 i Framsóknarhúsinu. Venjuleg aðalfundarstörf og önnur
mál. Stjórnin.
O Á víðavangi
ar norður á Melrakkasléttu
svo sem hér er bent á vinnst
ákaflega margt. í fyrsta lagi
nuindu öll samskipti milli is-
lendinga og varnarliðsins
minnka verulega. Kr augljóst
og alkunnugt. að herstöðvum
fylgja ávallt vandamál og þvi
meiri, sem þéttbýli er meira
umhverfis. A það alveg jafnt
við livort sem þær eru á is-
landi, i Bandarikjunum eða
aunars staðar. Hefur svo oft
verið rætt um þennan vanda
hér á landi, að óþarfi er að
fjölyrða um hann i þessari
grein.
Með þeirri skipan, sem hér
er mælt með. yrði bæði sjón-
varpi og útvarpi varnarliðsins
lokað. 1 hinni nýju herstöð yrði
ekki léð máls á öðru, en slik
fjölmiðlun færi um simakerf-
ið. Deilur um sjónvarp og út-
varp varnarliðsins yrðu þá úr
sögunni.
Þá hefur oft verið bent á. að
hætta stafi af herstöðinni, hún
hljóti að verða skotmark i
ófriði og þvi stafi öllum þeim,
sem búa á mesta þéttbýlis-
svæði landsins mikill háski af
henni. Slik hætta hlyti að
minnka við saman flutning.
Að visu er ekki unnt að skilja á
milli hernaðarmannvirkja og
mannvirkja til friðsamlegs
starfs. Flugvöllur er nytsam-
legur jafnt i striði sem friði.
Eigi að siður er á það að lita,
að herstöð veitir hugsanlegum
árásaraðilja fremur átyllu til
árásar og siðferðilega réttlæt-
ingu en mannvirki, sem ein-
vörðungu eru notuð i friðsam-
legum tilgangi. Þó að þetta
muni ef til vill ekki miklu og
reyndin sé sú, að einskis sé
svifizt, þegar út i hernaðar-
átök er komið, má þó ekki al-
gerlega vanmeta þá vörn, sem
i þessu kann að felast.
Flugvöllur norður á Mel-
rakkasléttu, scm hefði tvær
þriggja kin hrautir yki veru-
lega öryggi i flugi yfir Norður-
Atlantshaf og kæmi það Is-
lendingum ekki sizt til góða,
bæði i mcira öryggi fyrir eigin
flugvélar og þvi, að flugum-
ferð laðaðist fremur að land-
inu en ella, þegar ganga mætti
að varaflugvelli nyrðra vis-
um.” —TK
Sleðaóhugamenn — sem ekki hafa
talið sig hafa haft róð ó að fó sér
vélsleða — hafa nú
EKKI RÁÐ Á
að lóta þetta
einstaka
tækifæri
fara fram
hjó sér
VÉLSLEÐINN
Vélsleðinn, 30 hö.,afImikill og duglegur ferðasleði
með farangursgéymslu, breitt belti — mikið
dráttarafl. Sjálfskipting með gíra afturábak jafnt
sem áf ram. Þetta er sleði þeirra vandlátu — meiri
og vandaðri sleði, en áður hefur sézt hér á
markaðnum. Amerísk framleiðsla. Þrátt fyrir
stærð og glæsileik er verð ekki til f yrirstöðu f yrir þá
sem eru að leita að góðu tæki til vetrarferða og
f lutninga.
l>ættir úr sögunni af Heljarslóðarorrustu cftir Benedikt skáld Gröndal verða enn endurteknir í Sfðdegis-
stundinni hjá Leikfélagi Keykjavikur i dag kl. 17. Þættirnir voru frumfluttir í sl. viku og þóttu takast
cinkar vel. Mikið var hlegið að spaugilegum persónum I þessari 100 ára gömlu gamansögu, sem tekur
fyrir þjóðhöfðingja 19. aldarinnar. Jón Hjartarson bregður sér í gerfi Frans Jósefs Austurrikiskeisara,
Kjartan Kagnarsson er Napóleon III og Valdemar Helgason stjórnmálaskörungurinn Metternich, Karl
Guðmundsson sagnfræðingurinn Thiers og Sólveig Hauksdóttir keisarafrú Efgenia. Þættirnir eru fluttir
undir stjórn lielgu Bachmann, og aöeins i þetta eina sinn.
7
Heimilis
ánægjan
eykst
með
Tímanum