Tíminn - 19.01.1974, Side 12
12
TÍMINN
Laugardagur 19. janúar 1974.
A. Conan
Doyle:
Doktor
Lana
(Dularfulli
læknirinn)
3
höfðu breytt þessu öllu á verri
veg.
Nokkur atriði studdu framburð
Arthurs Morton. Þaö var vist, að
klukkan hálftólf var læknirinn á
lifi i bókastofu sinni. Frú Woods
bauð að sverja, að þá hefði hún
heyrt rödd hans inni i stofunni.
Vinir Arthurs Morton héldu þvi
fast fram, að Lana læknir hefði
ekki verið einsamall i stofunni á
áðurnefndum tima. Hljóðið, sem
vakti athygli ráðskonunnar og
óvanaleg styggð i svörum læknis-
ins, er hann krafðist þess, að hún
léti hann i friði, virtist styðja
þessa skoðun. Væri þetta nú rétt,
þá sýndist liklegt, að dauða hans
hefði borið að höndum á timabil-
inu frá þvi, er ráðskonan heyröi
rödd hans og til þess er frú Madd-
ing barði fyrst að dyrum hans.
Hafi læknirinn dáið á þessum
tima, þá gat Arthur Morton ekki
með neinu móti verið banamaður
hans, þvi að það var eftir þetta
timabil, sem konan mætti honúm
við hliðið.
Ef þessi kenning var nú rétt, og
einhver hafði verið inni hjá hon-
um áður en frú Madding hitti
Morton viö hliöið - hver gat þá
þessi „einhver” verið, og af
hvaða ástæðum gat hann hafa
unnið lækninum mein? Þaö var
almenn skoðun, að ef vinir hins
ákærða gætu burgöið birtu yfir
þetta atriöi, þá væri það allgóö
sönnun fyrir sakleysi hans. En
hitt var öllum augljóst, að
sannanir vantaöi alveg fyrir þvi,
að nokkur annar maöur en hinn
ungi Morton hefði komið þetta
kvöld. Afturá móti vissu allir, að
hans heimsókn til Lana var ekki i
vinsamlegum tilgangi.
Þegar frú Madding kom, gat
læknirinn vel hafa verið i svefn-
herbergi sinu, eöa hafa farið út,
eins og hún lika hélt fyrst. Svo,
þegar hann kom aftur, gat hann
hafa fundið Arthur Morton, er
beið hans. Nokkrir vinir hins
ákærða bentu á þá staðreynd, að
ljósmynd af ungfrú Morton, sem
horfið hafði úr skrifstofu læknis-
ins, fannst hvergi I plöggum
bróður hennar. Þetta voru þó litil-
væg rök þvi aö ákærði haföi haft
nógan tima til að eyöileggja
myndina fyrir handtökuna.
Að þvi er snerti óhreinu fót-
sporin á gólfinu, þá voru þau nú
svo máö orðin, að ekkert var á
þeim aö græða. Að þvi er séð
varð, gátu þau ein vel verið fót-
spor hin ákærða, eins og þau gátu
veriö annars manns spor.
Siðar sannaðist það, að stigvél
hans höfðu verið mjög forug
þessa nótt, en þar sem mikið
hafði rignt daginn áður, hlutu öll
stigvél að hafa verið óhrein,
þeirra er úti höfðu verið.
— Þetta er stutt greinargerð
um hina einkennilegu viðburðar-
röð, er vakti almenna athygli á
þessum Lancashire-harmleik. Að
þvi stuðlaði meðal annars
ókunnugleiki um ætt og uppruna
dr. Lana, hinn sérstæði og mikli
persónuleiki hans, virðuleg staða
hins ákærða I þjóðfélaginu og
ástarævintýrið, sem gerzt hafði
áður en þessi glæpur var framinn,
— allt þetta olli þvi, að menn
fylgdust af óvenjulegum áhuga
með öllum gangi málsins. 1 öllu
landinu töluðu menn um „svarta
doktorinn” i Bishops Crossing, og
margar tilgátur komu fram um
mál hans, en fáar þeirra gátu gef-
ið neinar upplýsingar og ennþá
siður búið menn undir hina
óvæntu framvindu málsins, sem
olli bæöi æsingu og eftirvæntingu
strax á fyrsta degi hinnar opin-
beru málsmeðferðar.
Ég hefi hér fyrir framan mig
marga langa dálka úr „Lancas-
hire dagblaðinu”, en læt þó nægja
að birta útdrátt um málið til þess
er vitnisburður ungfrú Frances
Morton frá óvæntri birtu yfir
málið, og var það siöari hluta hins
fyrsta dags, er málið kom fyrir
réttinn.
Parlock Carr, sækjandi máls-
ins, hafði raðað öllum gögnum er
til greina komu með venjulegum
dugnaði og hélt fast á öllum stað-
reyndum. Varð það ljóst er á dag-
inn leið, hversu erfitt starf verj-
andi málsins, Humphey, átti fyrir
höndum.
Mörg vitni voru leidd fram og
báru það, að þau hefðu heyrt hinn
unga herragarðseiganda viðhafa
stór orð og reiöileg um lækninn,
vegna smánarlegrar framkomu
hans viö systur hr. Mortons.
Frú Madding endurtók frásögn
sina um heimsókn þá, er hinn
grunsamlegi maður heföi veitt
lækninum siöla nætur. Annað
vitni gat upplýst þaö, að áfevarða
var vel kunnugt um þá venju dr.
Lana, aö sitja lengi fram eftir I
hinum mannlausa enda hússins.
Hann hefði þvi valið þennan tima
til heimsóknarinnar, að þá vissi
hann að læknirinn var einsamall
og á valdi hans.
Einn af þjónum herragaröseig-
andans varð að játa það, að hann
hefði heyrt húsbónda sinn koma
heim kl. 3 um morguninn. Það
kom heim viö framburð frú
Madding, að hún heföi séð hann i
runnunum viö húsið, þegar hún
kom þar i siöara skiptið. Mikil
sönnun þóttu vera forugu stigvél-
in og sporin eftir þau. Var nú
flestum auösætt, að öll sönnunar-
gögn, þótt smávægileg væru, voru
i óhag hinum ákærða manni, og
mundu örlög hans verða sakfell-
ing nema eitthvað nýtt og óvænt
kæmi fram, og gæti borgiö máli
hans.
Klukkan hálffjögur var réttar-
rannsókninni lokið. Þá hafði mál-
ið tekið nýja stefnu og óvænta. Ég
skal nú segja frá þvi, er gerðist, i
stuttu máli. Styðst ég þar við frá-
sögn áðurnefnds dagblaðs, en
sleppi inngangi málsins.
Það vakti ákafa athygli i hinum
troðfulla dómsal, að fyrsta vitnið,
sem verjandi kallaði fram var
ungfrú Frances Morton, systir
hins ákærða manns.
Lesandinn man, aö hin unga
dama hafði verið heitkona dr.
Lana, og menn álit, aö reiöi bróð-
ur hennar yfir brigðum á þessu
heitorði hefði getað knúið hann til
að fremja glæpaverkið. Ungfrú
Morton hafði ekkert við þetta mál
verið kennd, hvorki við llkskurð-
inn né aðrar ráðstafanir lögregl-
unnar i máli þessu. Var þvi koma
hennar sem eitt aðalvitni flestum
alveg óvænt.
Ungfrú Frances Morton var há
vexti, fögur ásýndum og dökk á
brún og brá. Hún talaði lágt en
skýrt, þótt auðséð væri, að hún
var mjög hrærð. Hún nefndi trú-
lofun þeirra, hennar og dr. Lana,
svo og slit þess samband, er hún
kvað stafa af persónulegum
ástæöum frá hans hendi. Hún
lýsti þvi yfir fyrir hinum
undrandi dómurum að sér heföi
alltaf fundizt reiði bróður sins
stjórnlaus og óskynsamleg. Svar
hennar við spurningu verjandans
var á þá lund, að hún bæri alls
enga þykkju til dr. Lana, sem
henni fannst hafa komið alveg
heiðarlega fram i þessu efni.
Bróðir hennar hafði vegna
ókunnugleika tekið aðra stefnu og
hún neyddist til að játa, að þrátt
fyrir mótmæli hennar hefði hann
haft hótanir i frammi um per-
sónulegt uppgjör og ofbeldi við
lækninn, meira að segja daginn
áður en glæpurinn var framinn.
Hún hafði beitt ölium áhrifum
sinum til að fá hann til að lita
skynsamlega á málið, en hann
var mjög stifur og ósveigjanlegur
hvaö þessu við kom.
Til þessa sýndist vitnisburöur
hinnar ungu dömu hafa verið
mjög óhagstæður hinum ákærða,
en spurningar verjandans brugðu
fljótlega nýrri birtu yfir málið og
sýndu nýja og óvænta varnarlinu,
sem breytti allri stöðunni.
Verjandi: „Haldiðþér að bróðir
yöar sé sekur um þennan glæp.”
T)ómarinn: „Ég get ekki leyft
þessa spurningu, hr. Humpheyr.
Við erum hér til að taka
ákvarðanir um staðreyndir, en
ekki ágizkanir.”
Verjandi: „Vitið þér aö bróöir
yðar er saklaus af þessum glæp? ”
Ungfrú Morton: „Já”.
Verjandi: „Hvernig vitið þér
það?”
Ungfrú Morton: „Af því að
doktor Lana er ekki dáinn.”
Nú varö ys og þys I salnum og
truflaði nokkuð vitnaleiðsluna. |
Verjandi: „Af hverju vitið þér
að dr. Lana sé ekki dáinn, ungfrú
Morton?”
Ungfrú Morton: „Af þvi að ég
hef fengið bréf frá honum eftir að
álitið var að hann væri dáinn.”
Verjandi: „Hafiö þér þetta í
bréf?”
Ungfrú Morton: „Já, en ég vil
helzt ekki sýna það.”
Verjandi: „Hafið þér umslag-
ið?”
Ungfrú Morton: „Já, það er
hér.”
Verjandi: „Hvar er bréfiö póst-
merkt?”
Ungfrú Morton: „1 Liverpool.”
Verjandi: „Hver er dagsetn-
ingin?”
Ungfrú Morton: „Hinn 22.
júni.”
Verjandi: „Það er daginn eftir
hinn imyndaða dauða læknisins.
("Gott hjá þér Geiri. Þetta^ En hvaö um foringja
eru tveir af mönnum Loukys.! þeirra. Þaö er hann
Láttu lögreglustjórann um/ Við Geiri þurfum
þaö, Hammer. Þú verður/( að fljúga i keppni i
á sjúkrahúsi um tima. Þaö Vnæstuviku. -
II
■■
Laugardagur
20. janúar
7.00 Morgunútvarp.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Óskalög sjúklinga
Kristin Sveinbjörnsdóttir
kynnir.
14.30 iþróttir. Umsjónar-
maður: Jón Asgeirsson.
15.00 tslenzkt mál. Jón Aðal-
steinn Jónsson cand. mag.
talar.
15.20 Framhaldsleikrit barna
og unglinga: „Riki betlar-
inn” eftir Indriða Ulfsson.
Sjöundi og siðasti þáttur:
„Upp komast svik um
síðir”. Félagar úr Leik-
félagi Akureyrar flytja.
Leikstjóri: Þórhildur Þor-
leifsdóttir. Persónur og
leikendur: Broddi, Aðal-
steinn Bergdal. Gvendur,
Guðmundur Ólafsson.
Smiðju-Valdi, Þráinn
Karlsson. Riki betlarinn,
Arni Valur Viggósson. Afi,
Guðmundur Gunnarsson.
Maria, Sigurveig Jónsdótt-
ir. Fúsi, Gestur Einar
Jónasson. Þórður, Jóhann
ögmundsson. Sögumaður,
Arnar Jónsson.
15.40 Barnakórar syngja.
16.00 Fréttir
16.15 Veðurfregnir Tiu á
toppnum.örn Petersen sér
um dægurlpgaþátt.
17.20 Framburðarkennsla i
þýzku.
19.00 Veðurspá. Fréttaspegill.
19.20 Framhaldsleikritið:
„Sherlock Holmes” eftir
Arthur Conan Doyle. (Aður
útv. 1963). Fjórði þáttur:
„Mazarinsteinninn’.
Þýðandi: Andres Björns-
son. Leikstjóri: Flosi Ólafs-
son. Persónur og leikendur:
Sherlock Holmes, Baldvin
Halldórsson. Dr. Watson,
Rúrik Haraldsson. Merton,
Valdemar Helgason. Bill
Arni Tryggvason. Sylvius
greifi, Jón Sigurbjörnsson.
Lögreglumaður, Jón Múli
Arnason. Gamtlemere,
Ævar R. Kvaran.
19.55 Léttir tónleikar frá
brezka útvarpinu.
20.00 Létt tónlist frá hollenska
útvarpinu.
20.30 Frá Sviþjóð: Sigmar B.
Hauksson segir frá.
20.55 Fifukveikur. Smásaga
eftir Guðmund Friðjónsson
á Sandi. Elin Guðjónsdóttir
les.
21.15 Hljómplöturabb. Þor-
steinn Hannesson bregður
plötum á fóninn.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir.
22.30 Danslög
23.55 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
17.00 íþróttir Meðal efnis eru
myndir frá innlendum
iþróttaviðburðum og mynd
úr ensku knattspyrnunni.
Umsjónarmaður Ómar
Ragnarsson.
Hlé
20.00 Fréttir
20.20 Veður og auglýsingar
20.25 Pelikan Hljómsveitin
Pelikan flytur frumsamda
rokk-músife. Hljómsveitina
skipa Asgeir Óskarsson,
Björgvin Gislason, Jón
Ólafsson, Ómar óskarsson
og Pétur Kristjánsson.
20.45 Réttarhöldin í Ntirnberg
Bándarisk biómynd frá
árinu 1961, byggð á heim-
ildum um réttarhöld Banda-
rikjamanna yfir þýzkum
striðsglæpamönnum. Leik-
stjóri Stanley Kramer.
Aðalhlutverk Spencer
Tracy, Burt Lancaster,
Richard Widmark, Maxi-
milian Schell, Marlene
Dietrich og Judy Garland.
Þýðandi Jón Thor Har-
aldsson.
23.40 Dagskrárlok.