Tíminn - 19.01.1974, Síða 13
Laugardagur 19. janúar 1974.
TÍMINN
13
Hraunkæling
o
jarðýtan komst upp á hraunkant-
inn og ruddi veg um 100 m inn á
hraunbreiðuna á nokkrum
klukkutimum. Ýtustjórinn varð
þó að fara að öllu með gát, þvi
þegar farið var að ýta kom glóðin
strax upp á yfirborðið. Hinsvegar
sýndi hraunið engin merki þess
að síga undan ýtunni, enda þótt
bráðið væri undir.
Að tveimur dögum liðnum hafði
vegurinn kubbazt sundur á tveim
stöðum og auk þess var hraun-
kanturinn orðinn svo hár. aö vtan
komst alls ekki upp. bá var val-
inn annar hentugri staður til
vegagerðar og gengið frá vegi inn
á hraunið fyrir bfl, sem flutti
rörin þangað. Þótt það tækist að
bolta rörin saman og tengja þau
við dæluskipið, sem lagt hafði
verið I vikið á milli hafnar-
garðsins og Skansins, þá var það
erfiðasta eftir, því að rörin
brotnuðu hvaö eftir annað eftir að
farið var að dæla, vegna
hreyfinga hraunsins. Vinnu-
skilyrðin á hrauninu höfðu þá
versnað til mikilla muna vegna
gufunnar, sem var svo þétt að
varla sá út úr augum. En þrátt
fyrir alla erfiðleikana voru rörin
lengd smátt og smátt unz þau
náðu um 200 metra inn á hrauniö
og kæling var fengin þvert yfir
hrauntunguna, sem lagöist að
hafnargarðinum.
Eftir að dælt hafði verið þarna i
rúmlega hálfan mánuð, næstum
hálfri milljón rúmmetra af sjó,
var kominn traustur veggur þvert
yfir hrauntotuna, sem stöðvaði
allt aðrennsli. Mörgum vikum
slðar var enn hreyfing á hrauninu
rétt sunnan við þennan vegg, og
þrýstingurinn varð svo mikill að
yfirborð hraunsins lagðist I fell-
ingar,en hinn kældi veggur bifað-
ist ekki. An kælingarinnar hefði
hrauntungan væntanlega orðið
lægri og þá tilsvarandi lengri, auk
þess sem ætla má að hún hefði
haldið áfram að mjakast allt aö
mánuöi lengur en raun varð á, en
þarna vantar aðeins um 100
metra til þess að innsiglingin lok-
ist.
A tveggja mánaða afmæli goss-
ins veröa þáttaskil, þvi að þá tók
hraun aö flæða inn I bæinn aust-
anverðan, svo hratt að ekki varð
við neitt ráöið fyrr en um fimmti
hluti bæjarins hafði horfið undir
hraunið. Hraunstraumur sá, sem
flæddi yfir bæinn, kom beinustu
leiö úr glgnum meðfram vestur-
kanti eldra hraunsins og rann inn
I bæinn suðaustanverðan.
Varnargarðurinn frá Skansinum
lá þarna um og sveigði þar upp i
átt aö Vilpunni. Hrauntungan fór
sér að engu óðslega I fyrstu og lá
endi hennar á varnargarðinum i
hálfan mánuð. A meðan var allt
kapp lagt á að hækka garðinn, en
hrauntungan hækkaði hraðar og
bólgnaði út. Þarna varð kælingu
ekki við komið vegna ónógs
þrýstings hjá dælum þeim, sem
tiltækar voru, og fjarlægðar frá
höfninni. Að lokum var garðurinn
orðinn 12 metra hár, og hraun-
tungan var þá meira en helmingi
hærri og tók að renna yfir garð-
inn. Það var athyglisvert, að
hraunið virtist ekki ýta garðinum
burt, enda þótt honum væri ýtt
upp úr lausum efnum, ösku og
gjalli þvi, sem huldi framanverða
hrauntotuna.
Eftir hraunflóðið i bænum urðu
einnig timamót hvað hraunkæl-
inguna snerti. A grundvelli feng-
innar reynslu hafði verið unnið að
þvl að fá aukinn dælubúnað, sem
fullnægt gæti þörfunum bæði hvaö
vatnsmagn og þrýsting snerti. A
ótrúlega skömmum tima var
safnað saman I Bandarikjunum
um 50 stórum dælum, sem sendar
voru með flugvélum til Islands.
Samanlagt dældu þær allt að 1000
1/s, og gátu náð nægum þrýstingi
til að lyfta vatninu 100 metra upp.
A þessum tima varð einnig ljóst
að plaströr af þeirri gerð, sem
farmleidd er á Reykjalundi,
henta mjög vel til að veita vatn-
inu um hraunið. Að visu kom fyrir
að þau bráðnuðu og brunnu, ef
þau lágu tóm á heitu hrauninu, en
með vatni i virtust þau þola hit-
ann. Mest voru notuð rör sem
voru 20 sm i þvermál. en slikt
rör flytur auðveldlega 100 litra af
vatni á sekúndu. Plaströrin voru
fest aftan i jarðýtu i 1—200 m
lengjum og dregin út á hraunið.
Þannig voru þau miklu auðveld-
ari að leggja en málmrör, auk
þess sem þau þoldu hreyfingar
hraunsins án þess að brotna.
Hraunskriðan i bænum nam
staðar að morgni hins 23. marz og
var þá komin hálfa leið i gegnum
bæinn til hafnarinnar. Þar sem
skriðan setti gamla dælu- og
dreifikerfið allt úr skorðum og
nýja dælukerfið var þá ekki kom-
ið i gagnið, varð nokkur töf á þvi
aö hægt væri að hefja dælingu á
hraunið. Teljandi kæling var
raunar aðeins framkvæmd á
norðausturhorni hraunskriöunn-
ar, viö Bakkastig, en þar var dælt
100-200 1/s i einn sólarhring, áður
en skriðan fór aftur á stað að
kvöldi hins 26. marz.
Þegar hraunflóðið staldraði við
I annað sinn hinn 28. marz var
dælingin hafin af fullum krafti á
norðurjaðar hraunsins, sem sneri
að höfninni, og var þá dælt 300-
—400 1/s á 350 m langan hraun-
kant. Fyrst i stað var vatninu
sprautað úr stútum upp i hraun-
kantinn, en á þriðja degi var tekið
að leggja brunaslöngur upp á
hraunið. Hraunjaðarinn hreyfðist
sára litiö eftir að farið var að
dæla á hann fyrir alvöru og eftir
viku var hann orðinn sæmilega
traustur. Hins vegar hélt hraunið
áfram að streyma inn i bæinn eft-
ir hrauntungunni og hún varð
stöðugt hærri. Til að hefta þessa
þróun var lagður vegur upp á
hrauntunguna á móts við nýja
sjúkrahúsið um hálfan km frá
noröurenda tungunnar og dregin
þar upp rör, sem alls fluttu 4—500
litra af vatni á sekundu inn á
hraunið. Kæling hófst þarna 1.
april, eða fjórum dögum siðar en
kæling norðurkantsins, og var
vatninu veitt á hraunið i 50 og 100
litra bunum, þ.e. bunum, sem
námu 50 eða 100 litrum á sekúndu.
4,april var svo bætt við einni 100
litra bunu 300 metrum nær gign-
um, þar sem hið forna vatnsból
Vilpan var áður, en það lá nú
undir þykku hrauni.
Þegar kælingin á hrauninu
austan við sjúkrahúsið hófst, var
straumhraði hraunsins bar 1—2
m/klst, en hrauniö virtist hægja
mjög fljótt á sér eftir að dælingin
hófst. Vegna gufunnar var þó ekki
hægt aö fylgjast almennilega með
þessu. Frá þessum stað rann
vatnið um 250 m með hraun-
straumnum i átt til hafnarinnar
og myndaði samfelldan gufu-
mökk. Hins vegar virtist það ekki
renna út af hrauninu svo teljandi
væri, enda voru jaðrar hraun-
straumsins yfirleitt nokkru hærri
en hann sjálfur.
Landmælingamenn frá Land-
mælingum tslands og Orkustofn-
un fylgdust með hreyfingu
hraunsins eftir þvi sem hægt var
og auk þess var hún mæld út á
loftmyndum. Um 10. apríl er
hreyfing hraunsins i bænum
hvergi meiri en um 1 m á sólar-
hring. Þá er vatnsrennslið á
hraunið austan vð sjúkrahúsið
minnkað niður i 200 1/s, en tekið
að kæla vestasta hluta hraun-
straumsins, sem rann út úr gig-
kjaftinum, með tveim 100 litra
bunum. Útrennslið úr gignum er
þá einna örast með vesturbakk-
anum og hraðinn um 2 m/klst.
Ahrifa kælingarinnar gætti fljótt
og næstu daga hrannaðist hraunið
upp, ekki aðeins þar sem bunurn-
ar voru heldur einnig neöar, en
vatnið rann með hraunstraumn-
um 1—200 m og virtist kæla hann
ört. Yfirborð hrauns þessa varð
mjög úfið og sker það sig úr öðru
hrauni. Það liggur yfir Kirkju-
bæjunum og mætti vel heita
Kirkjubæjahraun.
Um miðjan april hafði náðst
svo til samfelld kæling á hraun-
straumnum sem rann á bæinn,
allt ofan frá gig. Við norðurjaðar
hrauntungunnar, sem vissi að
höfninni, hafði verið rækilega
kælt belti, sem náði 50 m inn á
hraunið og var kælingu þar hætt.
Engin hætta var lengur á þvi að
hraunstraumurinn færi aftur af
stað, en án vatnskælingar má
ætla að hann hefði haldið áfram
margar vikur með fullum þunga.
Hrauntungan i bænum hefði þá
haldið áfram að hækka og bólgna
út og hraunjaðarinn væntanlega
hlaupið fram nokkrum sinnum og
lent i höfninni.
Páskavikan, sem nú fór i hönd,
varð afgerandi fyrir framtiðar-
þróun hraunrennslisins. Rennslið
vestantil i hraunrásinni frá gign-
um stöðvaðist smátt og smátt,
væntanlega fyrir áhrif kælingar-
innar, en um leið stöðvaðist allt
hraunrennsli frá gignum og fast-
ur þröskuldur hlóðst upp i
gigkjaftinum. Liklega hefur
hraunið i gigskálinni þá tekið að
hækka unz þrýstingurinn var orð-
inn svo mikill að eitthvað varð
undan aö láta. Það skeði á páska-
daginn 22. april að hraunið aust-
ast i rásinni frá gignum lét
undan og hraunið úr gigskálinni
boraði sig undir þröskuldinn og
flæddi austur og suður með gig-
keilunni, þaðan sem það svo rann
að nokkru leyti i sjó fram. Eftir
þetta rann hraunið svo til algjör-
lega I þessum farvegi, en hraun-
rennsli úr gignum mun hafa
stöðvast að mestu um mánaða-
mótin maí—júni.
Hvað aðstæður snerti virtust
likur á þvi aö hraunið brytist út að
vestanverðu i rásinni engu minni
en að austanverðu, nema ef vera
skyldi vegna kælingarinnar, sem
hafði gert hraunið aö vestanverðu
fastara fyrir. Ef hraunflóðið hefði
komið út að vestanverðu lá leið
þess beint niöur i bæ og allt það
hraun, sem átti eftir að renna,
hefði vissulega nægt til að kaf-
færa allan miöbæinn og fylla höf-
ina.
Eftir þetta var kælingunni
haldið áfram og bunurnar smátt
og smátt fluttar lengra austur á
hraunið, þar til þær voru komnar
á linu frá vestanverðum gígnum i
stefnu laust utan við Yztaklett.
Einnig var dælt á hraunjaöarinn
af tveim dæluprömmum allt út
undir Yztaklett. Þetta var gert til
að stöðva hreyfingu, sem enn var
i þessum hluta hraunsins, og gat
ógnað innsiglingunni, einkum við
Yztaklett. 1 maibyrjun mátti svo
heita aö allt þetta svæði væri
kyrrstætt, en alls er það að flatar-
máli um hálfur ferkilómetri.
Ennfremur var lögð vatnslögn
enn nær gignum en áður, allt að
150 m frá opinu. Við lögnina voru
tengdar brunaslöngur og stútar,
sem ætlað var að sprauta vatni
yfir hraunið, ef það tæki að renna
frá gignum eftir gili, sem mynd-
azt hafði i vesturjaðri hraunrás-
arinnar. Þarna komu nokkrar
hraunspýjur, en þær voru litlar
og stöðvuðust af sjálfu sér, svo
aldrei reyndi verulega á kæling-
una á þessum stað.
Siðustu lifsmerki frá gignum
sáust 26. júni, en 2. júli var farið
niður i hann og var þá botninn
kaldur og hulinn skriöu. Vatns-
kælingunni var endanlega hætt
10. júli og hafði þá verið dælt á
hraunið um 6 milljón rúmmetrum
af sjó. Samkvæmt áðurnefndum
útreikningum má ætla að vatn
þetta hafi breytt um 4 milljónum
rúmmetra af bráðnu hrauni i fast
berg, en til samanburðar má geta
þess að alls komu upp um 250
milljónir rúmmetra af gosefnum.
Hitamælingar i 5 borholum,
sem boraðar voru i hraunið i mai
og júni, bentu til þess að kælingin
hefði orðið nokkurn veginn i sam-
ræmi við útreikningana. I borholu
skammt frá hraunjaðrinum við
Fiskiðjuna fannst ekkert bráðið
hraun. I borholu á móts við
sjúkrahúsið var fast berg niður i
a.m.k. 13 m dýpi og sama var að
segja um borholu i hrauninu yfir
Vilpu. 1 hrauntungunni viö hafn-
armynnið, sem Sandeyjan kældi,
náði kælingin niður á 15 m dýpi.
Aðeins á einum stað fannst bráðið
hraun strax undir lausa gjallinu.
Það var i holu, sem boruð var i ó-
kælda hrauntungu, þar sem áður
voru gatnamót Austurhliðar og
Urðarvegar. Þar var bráðið
hraun á 5 m dýpi en borað var um
17 m niður I það. Hinn 13. júli
mældist hitinn i þessari holu 1050
gr. C, en hitastig rennandi hrauns
á meðan á gosinu stóö mældist
yfirleitt um 1080 gr. C.
Umsögn:
Hraunkælingin var að vonum
umdeild á meðan á framkvæmd-
um stóð. Þetta voru kostnaðar-
samar framkvæmdir og enginn
vissi, hver útkoman yröi. Þó ætla
ég að nú muni enginn sjá eftir þvi
fé, sem i þær fór.
Það verður tæplega nokkurn-
tima sagt með neinni vissu hver
áhrif hraunkælingarinnar á
Heimaey raunverulega urðu og
hvernig þar liti nú út ef menn
hefðu ekki snúizt til varnar gegn
eyðileggingunni. Ályktanir þær,
sem ég hefi dregið, eru byggðar á
likum og gildi þeirra verður varla
metið af öðrum en þeim, sem
kunnugir eru staðháttum og
hegðun hraunsins. Það að ekki
var hægt að fylgjast með hreyf-
ingum hraunsins umhverfis bun-
urnar fyrstu dagana eftir að vatn-
inu var hleypt inn á hraunið,
hamlaði þvi mjög, að hægt væri
að meta áhrif kælingarinnar jafn-
óðum. Hér er um að ræða tækni-
legt vandamál, sem ekki var
leyst, en vert væri að finna viðun-
andi lausn á. Annað vandamál,
sem biður úrlausnar, er að finna
aðferö til aö mæla, hversu mikil
gufa stigur upp frá hrauninu.
Borholumælingarnar sýndu
greinilega að mikið magn af
hrauni hafði storknaö fyrir áhrif
vatnsins, en þetta er seinvirk
mælingaraðferð, sem ekki verður
við komið fyrr en hraunið hefur
stöðvast.
t Heimaey var geysilegum
verðmætum bjargað með þvi að
hindra ikveikjur og með þvi að
koma i veg fyrir að hús sliguðust
undan öskunni. Ég kann ekki að
nefna tölur i þessu sambandi, en
vafalitið mætti meta þessi atriði
til fjár. Hvað hraunvarnirnar
snertir verður sliku mati varla
við komið, en aðstæöur allar að
gosi loknu eru þannig, að hver töf,
sem orðið hefur á hraunrennslinu
með tilheyrandi aukningu á þykkt
hraunsins, hlýtur að hafa gert sitt
gagn og stuðlað að þvi að hraunið
fór ekki lengra en raun varð á.
Engu mátti muna að hraunið
eyðilegði nokkrar mjög verðmæt-
ar fiskvinnslustöðvar, auk þess
sem það liggur þétt að höfninni og
innsiglingunni á rúmlega kiló-
meters löngum kafla. Ef hraunið
hefði runnið nokkur hundruð
metra i viðbót einhvers staðar á
þessum kafla, hefði höfnin lokast.
Ég hefi hér greint frá hraun-
kælingunni á Heimaey, án þess að
fara út i einstök atriði fram-
kvæmdanna. Þeim munu verða
gerð skil af öðrum, sem einkum
að þeim stóðu. Hér var um ó-
venjulega og vandasama fram-
kvæmd að ræöa og allt undir þeim
komið, sem skipulögðu, stjórnuðu
og unnu verkið. Harðfylgni þeirra
og hæfileikum til að semja sig að
nýjum aðstæðum er það að
þakka, að þarna var unnið braut-
ryðjendastarf, sem vert er að
minnast.
Eldgos hefur löngum þótt ein-
hver ægilegasti vágestur, sem
heimsótt gæti nokkurt byggðar-
lag, og yfirleitt hefur orðið litið
um varnir. Liklega hefur aldrei
verið snúizt jafn ákveðið til varn-
ar gegn neinu eldgosi og Heima-
eyjargosinu, og i þessu tilfelli
reyndist vágesturinn e.t.v. ekki
jafn ægilegur og óviðráðanlegur
eins og óttazt hafði verið.
Reynslan frá Heimaey geíúr á-
stæðu til að ætla að menn séu þess
megnugir, að hafa veruleg áhrif á
hraunrennsli ef aðstæður eru
hagstæðar og nægilegt vatn til
reiðu. Ef vel tekst til getur vatnið
skapað fastan vegg i fljótandi
hrauninu, álika að vöxtum og
vatnið, sem notað er. Þannig má,
ef timinn er nægur og landslagið
leyfir, fá hraunið til að sneiða hjá
verðmætum svæðum og veita þvi
þangað, sem það gerir minni
skaða. Jafnvel má stuðla að þvi
að hraunið hlaðist upp i þykkan
byng og draga þannig úr út-
breiðslu þess.
tsland er skapað i eldgosum lið-
inna tima og þeim eigum við til-
veru okkar hér að þakka. Fyrir
tslending er þvi ekki rökrétt að
lita á eldgos fyrst og fremst sem
ógn og tortimingu. 1 Heimaeyjar-
gosinu varð vissuiega tilfinnan-
legt tjón, en þegar fram i sækir
munu þó vega meira auknir land-
kostir og bætt hafnarskilyrði. Hér
eru enr, að verki sömu öflin og
skópu landið, sem við byggjum.
r
Oskilahestar í
Villingaholtshreppi
1. Jarpur, markbiti framan hægra, biti
aftan vinstra.
2. Brúnn, mark gagn bitað vinstra.
Verða seldir að þrem vikum liðnum, hafi
eigendur ekki gefið sig fram.
Hreppstjóri.
Forstöðukonur
Óskum að ráða forstöðukonur að dag-
heimilinu Hliðarenda við Laufásveg og
leikskólanum Hliðaborg i Eskihlið.
Fóstrumenntun áskilin. Laun samkvæmt
kjarasamningum Starfsmannafélags
Reykjavikurborgar.
Umsóknir sendist Barnavinafélaginu
Sumargjöf, Fornhaga 8, fyrir 5. febrúar.
Verksmiðjustörf
Viljum ráða vélgæzlumann. —Ennfremur
nokkra menn til annarra starfa.
Mötuneyti á staðnum. ódýrt fæði og gott.
Kassagerð Reykjavikur.
Simi 3-83-83.
Jörð
Jörðin Kljá, Ilelgafellssveit er laus til
kaups og ábúðar á næsta vori.
Góð sauðjörð.túnstærð 14 hektarar
Semja ber við eiganda og ábúanda jarðar-
innar, Magnús • Guðmundsson.
Upplýsingar veittar i sima 8143, Stykkis-
hólmi.