Tíminn - 09.06.1974, Síða 1

Tíminn - 09.06.1974, Síða 1
Auglýsingadeild TÍAAANS Aðalstræti 7 MINNA LENGRA Tékkneska bifreiöa- umboðið á Islandi Auðbrekku 44-46 Kópavogi Sími 42606 Vestmannaeyingar heilsuöu Noregskonungi á sinn sérstæöa hátt. Miðja vegu milli lands og Eyja mætti fánum prýddur bátafloti Eyjamanna konungsskipinu og fyigdi þvi til hafn ar. Timam' Gunnar. rri V A R N A RMÁ LIN 1 moldviðri kosningabarátt- unnar hefur aftur og aftur verið reynt að afflytja stefnu Fram- sólkarflokksins I varnar- og öryggismálum. Þess vegna finnst mér ástæða til þess i ör- stuttu máli að skýra hana nokkúð nánar. Það hefur aldreiverið meining okkar Framsóknarmanna að rjúfa samstarfið við Vestrænar þjóðir. Það er beinlinis tekið fram i málefnasamningnum að samstarfinu við Atlantshafsrik- in skuli haldið áfram. Við Framsóknarmenn höfum alltaf lagt á það höfuðáherzlu, að eiga samvinnu og samstarf við Atlantshafsrikin og að tsland verði áfram aðili að NATO. Það hefur aldrei komið til greina að rjúfa þessa samstöðu. Eins er þessu farið að þvi er varðar herstöðvarmáiin. Enda þótt við stefnum að þvi, að hér verði ekki her á friðartimum, þá hefur það verið og er ásetningur okkar að vinna að þessu stefnu- máli okkar i fullri samvinnu við Bandarikin og framkvæma það i fullri vinsemd við þá. Þannig hefur verið haldið á málinu og þannig verður haldið á þvl með- an við Framsóknarmenn förum með það. Við leggjum höfuð- áherzlu á, að eiga góð samskipti og samvinnu við Bandarikin og Atlantshafsrikin og munum þvi vinna að stefnumálum okkar um herlaust land á friðartimum i fullri vinsemd við Bandarikin og finna lausn á þvi máli i sam- ræmi við það. Þetta á ekki að vera erfitt i framkvæmd, enda hafa Bandarikjamenn sýnt skilning á sjónarmiðum okkar. Markmið okkar er að tryggja sjálfstæði og öryggi íslands og islenzku þjóðarinnar fyrst og fremst með aðild að Atlants- hafsbandalaginu og með þvi að tryggja bandamönnum okkar aðstöðu til þess að halda áfram eftirliti sinu i Norðurhöfum, jafnframt þvi sem aðstaða sé fyrir hendi til varna með skjót- um hætti, ef ófriðarblika skyldi koma upp, en á friðartímum verði hér ekki erlendur her. Þessi stefna er hvorki stefna Sjálfstæðisflokksins um varan- lega hersetu, og óbreytt ástand, né heldur stefna Kommúnista um varnarlaustland, sem býður hættunni heim. Þetta er hin ábyrga, farsæla og sjálfstæða stefna fyrir islenzka þjóð, sem vill halda sjálfstæði sinu og frelsi, þótt smá sé, tryggja stöðu sina i hópi vestrænna þjóða, gæta öryggis sins með veru i varnarsamtökum Atlantshafs- ins, láta Bandarikjunum i té að- stöðu til öryggiseftirlits fyrir Atlantshafsbandalagið á Norðurhöfum og viðhalda hér varnaraðstöðu af öryggisástæð- um, sem gripa má til, ef ófriðar- blika kæmi á loft, og það er sannfæring min að þetta sé eina leiðin til að binda á hæfilegum varnartima enda á dvöl varnar- liðsins hér. Samhliða þessu viljum við gera allt, sem i okkar valdi stendur, til þess að örfa þá frið- samlegu þróun alþjóðasam- skipta, sem átt hefur sér stað að undanförnu. Þess vegna leggj- um við megináherzlu á jákvæða þátttöku i starfi Sameinuðu þjóðanna. Við fögnum friðsam- legri samskiptum stórþjóðanna, m.a. Bandarikjanna og Sovét- rikjanna og Bandarikjanna og Kina. Við tökum virkan þátt i Evrópuráðstefnunni um friö og öryggi i álfunni og vonum aö Vinarráðstefnan um samdrátt i vigbúnaði megi bera árangur. Jafnframt rekum við vinsam- lega utanrikisstefnu gagnvart öllum rikjum, þótt nánast sam- starf sé eðlilega á milli okkar og Norðurlanda og Atlantshafs- rikjanna. Þessi utanrikisstefna okkar sem er stefna Fram- sóknarflokksins hefur leitt til þess, að við eigum enga óvini meðal rikja heims, ekkert riki ógnar öryggi okkar og sjálfstæði en við eigum góð samskipti og viðskipti við alla nágranna okk- ar bæði vestan og austan At- lantshafs. Árnaðarkveðjur Tímans á hátíðisdegi sjómanna

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.