Tíminn - 09.06.1974, Qupperneq 2

Tíminn - 09.06.1974, Qupperneq 2
2 TÍMINN Sunnudagur 9. júni 1974. Sunnudagur 9. júní 1974 Vatnsberinn: (20. jaa-18. febr.) Þú skalt búa þig undir það að fá einhverja viður- kenningu i dag, en störfin ættir þú samt að bæta, og endilega forðast að lenda i orðasennu við sanrfstarfsmenn þina. Sýndu vini þinum áhuga. Fiskarnir: (19. febr-20. marz) Vera má, að i dag skjóti nýjar og skemmtilegar hugmyndir upp kollinum, og það er alls ekki úti- lokað, að hér sé um verkefni að ræða. Það má lika vera, að þú fáir að kynnast þvi, að það er gott að eiga góða að. Hrúturinn. (21. marz-19. april) Þú ert með eitthvað undir höndum núna, sem hætt er við, að einhver eða einhverjir reyni að tefja þig við. Láttu það ekki á þig fá, og haltu ótrauður þitt strik, rétt eins og ekkert hafi i skor- izt. Nautið: (20. april-20. mai) Þú skalt gæta þess alveg sérstaklega að tala ekki af þér i dag. Þú skalt hafa það hugfast, að áform þin koma engum við nema sjálfum þér og þinum allra nánustu. Svo að þú skalt bara hafa hægt um þig. Tviburamerkið: (21. maí-20. júni) Þetta er dagur heilabrota og bollalegginga, og það er eitthvað, sem þú verður að taka afstöðu til. Dagurinn verður skemmtilegur, þegar á lið- ur, og aldrei að vita, nema þú lendir i skemmti- legum félagsskap. Krabbinn: (21. júni-22. júli) Áform þin og ráðagerðir skaltu ræða við skyld- fólk þitt. Það kynni að vera, að einhver kæmi i heimsókn til þin, sem ylli leiðindum eða óvænt- um ágreiningsmálum, en þetta þarf ekki að vera varanlegt. Ljónið: (22. júli-23. ágúst) Það er hætt við þvi, að þú verðir i hálfslæmu skapi i dag. Það er eitthvað að hjá þér núna, og þú skalt fara yfir það, sem þú hefur verið að gera upp á siðkastið og endurskoða það i nýju ljósi. Jómfrúin: (22. ágúst-22. septj Það er aldrei að vita, nema eitthvað kunni að vera til i þessu, sem kunningi þinn segir þér i dag, þótt þér finnist það ótrúlegt. Þú leggur of mikla áherzlu á kynlifið til að vera fyllilega ánægður. Vogin: (22. sept-22. oktj Þetta er svolitið skritinn dagur, og það er þó vist, að ekki leiðist þér. Um afleiðingarnar fæst þú hins vegar ekki til að hugsa, og þýðingarlitið að benda þér á, að þær kunna að verða skritnar lika. Sproðdrekinn: (22. okt.-21. nóv.) Nú verður þú að fara að athuga fjárhaginn nán- ar og hafa auga með útgjöldunum. Þetta þýðir ekki það, að þú eigir að neita þér um tilbreyting- ar, en varastu að særa náinn ættingja þinn. Bogmaðurinn: (22. nóv-21. des.) Aðrir munu þarfnast stuðnings þins og áhuga i rikara mæli en áður. Þú skalt auka áherzluna á það að fá sem allra mest út úr stöðunni, sem þú hefur þegar náð og skalt reyna að halda, hvað sem tautar og raular. Steingeitin: (22. des.-19. janj. Stjörnumerkin eru þér hagstæð, og það gæti vel orðið til að örva þig til að taka forystuna i þinum hópi. Þessi ákvörðun þin gæti orðið talsvert mikilvæg, og afdrifarik fyrir þig strax i kvöld. t >4444 X mmm 25555 BÍLALEIGA CAR RENTAL BORGARTUN Ráðstcfnugestir fyrir utan Kjarvalsstaöi á föstudag en þar snæddu þau hádegisverð. Tímamynd: Ráð heyrnleysingja frá Norðurlöndum — þingaði hér dagana 5.—7. júní Gsal—Reykjavik. — Hér á landi hafa verið staddir fulltrúar frá félögum heyrnarlausra á Norður- löndum, en þeir hafa myndað með sér ráð, sem fjallar um mál- efni heyrnarlausra. Þetta ráð kemur saman tvisvar á ári hverju, til skiptis á Norðurlönd- um, en þetta er i fyrsta sinn, sem ráöið þingar hér á landi. island er ekki orðið beinn aðili að ráðinu. Þingið hófst á miðvikudag og lauk formlega á föstudag. Fundir Heimilis ánægjan eykst með Tímanum Viögerðir é fólksvögnum. Höfum til sölu fólksvagna Skiptivélar frá Danmörku. Bílaverkstæðið EKILL BRAUTARHOLTI 4, SÍMAR: 28340-37199 hafa verið haldnir i húsakynnum Heyrnleysingjaskólans við öskjuhlið, utan fyrsti fundurinn, sem fram fór að Hótel Holti. Á fimmtudaginn var hópnum boðið til borgarstjóra og á föstudag fór hópurinn i ferðalag um Þingvelli, Gullfoss og Geysi og viðar. Erlendu þátttakendurnir á þinginu hafa rómað mjög allar viðtökur hér á landi, og óskaði þingið sérstaklega eftir þvi, að næsta ungdómsmót fyrir heyrn- leysingja væri haldið á Islandi, en mótið á að halda eftir tvö ár. Mjög mörg og merk mál voru til umræðu á þinginu, eins og vera ber, og skal hér nefnt nokkuð af þvi helzta: Rætt var um félagsstarfsemi heyrnleysingja um samræmingu á merkjamáli innan Norðurlanda og hvernig hæg't er að nota hjálpartæki, um söfnun á rituðu máli um málefni heyrnleysingja, um skilgreiningu á hugtakinu „heyrnarleysi” og „heyrnar- deyfð”,ogum meiri samvinnu á milli heyrnleysingja á Norður- löndum. 1 sambandi viö umræður þings- ins um skilgreiningu á áðurnefnd- um hugtökum, var uppi sú skoðun meðal ráðstefnufulltrúa, að „heyrnarlaust fólk, væri fólk, sem ekki gæti notað heyrnar- tæki”. Það skal tekið fram, að á þing- inu sitja bæði heyrnleysingjar og fólk með fulla heyrn. Þeir, sem hafa fulla heyrn, er fólk, sem hef- ur annað hvort eða bæði, starfað mikið fyrir heyrnleysingja eða hefur átt foreldra sem hafa verið heyrnardauf eða heyrnarlaus. Næsta þing verður haldið i Sviþjóð. Húsbyggendur —Einangrunarplast Getum afgreitt einangrunarplast á Stór-Reykjavikursvæðið með stuttum fyrirvara. Afhending á byggingarstað. Hagkvæm verð. Greiðsluskilmálar. Borgarplast HF Borgarnesi Simi 927270. Sveitarstjóri óskast Neshreppur utan Ennis óskar að ráða sveitar- stjóra. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, sendist skrifstofu Nes- hrepps Hellissandi fyrir 22. júni n.k. Hreppsnefnd Nauðungaruppboð Uppboð það á eígnum Málms h.f. Blönduósi sem auglýst var i 87. tolublaöi Logbirtingablaðsins, verður fimmtu- daginn 13. júni n.k. Seld verður húseign fyrirtækisins og naglavélar. Uppboðið hefst á skrifstofu Húnavatnssýslu kl 14 oe verður fram haldið á eigninni sjálfri sama dag. Sýslumaður Húnavatnssýslu.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.