Tíminn - 09.06.1974, Page 3
Sunnudagur 9. júnl 1974.
TÍMINN
3
Hugsjón Moniku d Merkigili:
Bílvegur yfir gilið fræga
HJARÐFJOS
IHALDSINS
MONIKA HELGADÓTTIR á
Merkigili hefur beöið mig aö
koma á framfæri við blaðið
Ieiðréttingu á frétt, sein það
birti 29. inai. Aðalfréttin er að
sjálfsögðu rétt, þar scm frá
þvi var greint, að Monika sé
að hverfa frá búskap og vilji
selja jörð sina. Hún bað mig
einnig að geta þess, að leiga
kæmi engu siður til greina.
Monika hefur búið á
Merkigili frá árinu 1925, með
öðrum orðum i 49 ár, nær
fimm áratugi, en ekki ,,nær
fjóra”, eins og i greininni
segir. Það leiðréttist einnig,
að dætur Moniku eru sjö, en
ekki 9, enda heitir bókin um
hana „Konan i dalnum og
dæturnar sjð”. Sonur Moniku
heitir Skarphéðinn og er
^
búsettur i Hveragerði. Monika
er nú 72 ára gömul, og verður
að telja, að heilsa hennar hafi
bilað fyrir aldur fram.
Ég vil að lokum geta þess,
að það hefur lengi verið hug-
sjón Moniku, að gerður yrði
bilfær vegur yfir hið fræga
Merkigil. Litil reisn finnst yfir
verkum þeirra manna, sem 1
um samgöngumál héraðsins
fjalla, ef þvi verki verður lengi
slegið á frest, þar sem vegur
sá myndi gera hvort tveggja i
senn að koma einni mestu bú-
jörð sýslunnar i stórbætt ?
vegarsamband og opna hring- 1
veg um innansveitir Skaga- I
fjarðarsýslu. t
Gilsbakka, 3. júni 1974. \
Hjörleifur Kristinsson. i
FYRIR NOKKRUM árum fundu
menn upp þá tegund af fjósum,
sem nefnd voru „hjarðfjós”. Þar
gengu allar skepnur lausar: kýr,
og kálfar og jafnvel nautin fengu
að bregða á leik. Gamla
„viðreisnin”, ihaldið og kratar,
ráku alla sina hjörð i eitt mikið
„hjarðfjós” og hinir miklu fjósa-
meistarar, Eykon og Styrmir,
tryggðu Ihaldsöflunum hreinan
meirihluta viö borgarstjórnar-
kosningarnar. Gylfi lánaði part af
sinni litlu hjörð aðeins með „láns-
og leigukjörum”, svo höfuðbóliö
gæti hrósað sigri I fyrstu lotu og
státað af sinum mikilleik frammi
fyrir alþjóö.
„En gjöf skal gjalda.” Þann 30.
júni á að greiða skuldina að
nokkru, svo „knörrinn” Gylfi
Þorsteinsson komist til hafnar.
Sem sagt: björgunarafrekið er
hugsað þannig, að Gylfi, Eggert
og hinn nýupprisni Björn Jónsson
verði ekki úti undir fjósveggnum
og krókni þar. Þvi að þá væri illa
launuð dygg þjónusta.
Islenzka þjóðin á nú um tvo
kosti að velja i þessum kosning-
um, semnúfara i hönd: Að endur-
vekja hið glæsta timabil frá 1927,
þegar ihaldsöflunum var kastað
fyrirborð og Tryggvi Þórhallsson
og Jónas Jónsson hófu sina glæstu
framfarabyltingu, sem setur enn
svip á allt þjóölif Islendinga. Þá
gladdist þjóðin við hvern veg,
hverja brú yfir vatnsfall og hvern
skóla, sem reistur var við heita
laug.
Hinn valkosturinn er að dreifa
kröftunum og kasta atkvæðum á
óteljandi klofningslista, sem
angurgapar og landshornalýður
hafa hnoðað saman eftir miklar
fæðingarhriðir.
Þessir piltar, sem hafa verið
kostaðir og kópaldir af almanna-
fé , þurfa nú að fá það þrifabað,
sem dugir þeim að minnsta kosti
einn áratug. Islendingar munu
minnast okkar 1100 ára byggðar
bezt með þvi að láta „hjarðfjós”
ihalds og krata vera fáliðað þann
30. júni næstkomandi.
Breiðfirðingur.
Vinnuvélar
árg. ’67 Hy Mac beltagrafa
árg. ’65 Broyt X2 hjólskófla
árg. ’65 John Deere 2010
traktorsgrafa.
föJ7öö
SlMAR 81518 - 85162
SIGTÚNI 7 - REYKJAVÍK
SIG. S. GUNNARSSON
Heilsurækt Atlas,
æfingatimi 10-15 min. á dag.
Arangurinn sýnir sig eftir
viku tima.
Likamsrækt Jowetts heims-
frægt þjálfunarkerfi sem
þarfnast engra áhalda eftir
George F. Jowett heims-
meistara i lyftingum og
glimu. Bækurnar kosta 300
kr. hvor. Vinsamlegast send-
ið gjaldið i ábyrgðarbréfi.
Likamsrækt, pósthólf 1115,
Reykjavik.
Til sölu
Heyvagn
ný smiðaður
Upplýsingar
i sima 83351.
Vönduð úr
í úrvali
PÓSTSENDUM
MAGNÚS
ÁSMUNDSSON
Úra- og
skartgripaverzlun
Sími 17884
Ingólfsstræti 3.
liiili'sll
Urval af girðingarefni frá
BYGGINGAVORUR
SUÐURLANDSBRAUT 32
i?aifA3ÍtÍB