Tíminn - 09.06.1974, Qupperneq 6

Tíminn - 09.06.1974, Qupperneq 6
6 Sunnudagur 9. júnl 1974. margir Reykvikingar muna járnbrautarferð frá öskjuhlið og niður til hafnarinnar? Saga járnbrautar á íslandi varð ekki lengri, — billinn sigraði, og svo kom flugvélin. Myndin af Austurstræti i Reykjavik er frá svipuðum tima og járnbrautin, að ég hygg. Otgefendur póstkorts- ins Egill Jacobsen og Björn Kristjánsson. Menn geta borið myndina saman við hið nýja Austurstræti. t Reykjavik má enn sjá furðumiklar andstæður, gamalt og nýtt. Litið á myndina frá 23. júli 1969. Þið sjáið gamalt býli við Suður- landsbraut. Kýrnar liggja jórtrandi i grasinu, alifuglar hlaupa heim úr baldursbráar- breiðunni, hey sést á túninu og i baksýn er nýtizkuleg byggð og jafnvel háhýsi efst á hæð- inni. Þau bera við loft og Esjuna! Kannast einhverjir við myndina af útisamkomunni undir Bjólfi á Seyðisfirði? Búningar fólksins geta e.t.v. gefið bendingu um aldur myndarinnar. Félag, Bjólfur að nafni, mun um skeið hafa starfað á Seyðisfirði. Seyð- firðingur, Einar Björnsson skrifstofumaður i Reykjavik, léði undirrituðum þessa mynd, og gullborunarmynd- ina. Ég man fyrst eftir Einari sem hávöxnum knattspyrnu- kappa I liði Gagnfræðaskólans á Akureyri. Gull i Vatnsmýrinni! — Vorið 1905 var borað eftir vatni vestan undir öskjuhlið- inni i Reykjavik. Þegar járn- smiður var að hreinsa jarð- borinn, fundust á honum gul korn og gylltar rákir frá 119 feta dýpi. Islendingur, sem unnið hafði að gullgreftri vestur i Klondyke, fullyrti að þetta væri gull. Nú varð uppi fótur og fit, sagan flaug um allt. Stofnað var hiutafélagið Málmur til gullleitar og gull- vinnslu. Margir lofuðu hluta- fé, en eitthvað gekk innheimta þess misjafnlega, þegar mesti móðurinn rann af mönnum. Hið gyllta, sem upp kom á bornum, reyndist vera verð- laus brennisteinskis og smá vegis kopar. Talið var þó að einhver vottur hafi fundizt af gulli i sumum sýnishornum, en fljótt þótti sýnt, að alls ekki mundi borga sig að vinna það. Búið var að kaupa alldýrar borvélar. — Sjá mynd Magnúsar Ólafssonar ljós- myndara frá gullborunar- timanum. — Engan grunaði vist 1905, að flugvöllur ætti eftir að mala gull á þessum slóðum. Önnur mynd Magnúsar sýnir grjótnám i öskjuhlið, liklega árið 1912 eða 1913. Grjótið var notað i hafnar- gerðina i Reykjavik og var flutt á járnbrautarvögnum. Það þótti mikið sport að aka i járnbrautarvagni. Skyldu Ausfcqretrœti. Reykjavik Austurstræti 1912 Ingólfur Davíðsson Byggt og búið í gamla daga XXV Gamalt býli við Suðuriandsbraut i Reykjavlk 23. júll 1969. Há hýsi á Laugarásnum. Esja I baksýn Gullfundurinn I Vatnsmýrinni 1905 Samkoma undir Bjólfi á Seyðisfirði Grjóttekja I öskjuhiið 1912 eða 1913. Grjótið flutt á járnbrautar-

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.