Tíminn - 09.06.1974, Side 9

Tíminn - 09.06.1974, Side 9
Sunnudagur 9. júni 1974. TÍMINN 9 — Þetta byrjaði með matar- eitrun vorið, sem Janne var þriggja ára gömul. Ekki er ómögulegt, að hún hafi orsakazt af virus, sem siðan hafi orðið upphafið að þessum banvæna sjúkdómi. Ýmsir bandariskir sérfræðingar telja, að hvitblæði stafi af virusum. Nú vona menn i Bandarikjunum, að ekki muni liða á löngu þar til fundið verði upp bóluefni, sem geti komið i veg fyrir sjúkdóminn. Janne náði sér ekki eftir magaveikina. Hún var send á Rikisspitalann til rannsóknar nokkrum sinnum_. Siðan var hinn skelfilegi dómur kveðinn upp og foreldrarnir fengu að heyra hann: Hin þriggja ára gamla dóttir þeirra var með hvitblæði. Foreldrarnir urðu að horfa upp á ráðleysi læknanna gagn- vart þessum óttalega sjúkdómi. Telpunni hrakaði stöðugt. Það var ekkert eftir nema biða dauðans. Faðirinn segir: — Við björguðum lifi Janne daginn, sem við tókum hana af sjúkrahúsinu, það var vorið 1972, og við gerðum það i trássi við læknana. Við vitum nú, að það bjargaði henni! Þá lét sam- vizkan okkur ekki i friði. Við Dorthe töluðum saman nótt eftir nótt og dag eftir dag, við sváfum ekki á næturnar. Áttum við að þora að taka þessa miklu ákvörðun og taka á okkur ábyrgðina á þvi að taka hana af sjúkrahúsinu og fara að ráðum náttúrulæknanna? Við höfðum komizt i samband við 28 ára gamlan mann, sem hafði þjáðst af hvitblæði sem barn og hafði náð heilsunni aftur, með þvi að neyta náttúrulyfja. Hvers vegna ekki að reyna þetta? Janne hor- aðist niður, hún var hvort eð er dauðadæmd. Við urðum að reyna allt, sem hugsazt gat, til þess að bjarga barninu okkar, sem við gátum ekki hugsað okk- ur að sjá á bak. Fram til þess tima hafði ég aldrei trúað á lækningalyf þessara náttúru- lækna. Ég hafði eiginlega gert gys að þeim, án þess þó að vita, um hvað þeir voru að tala — rétt eins og svo margir aðrir gera. Læknarnir urðu mjög æstir, þegar foreldrarnir tóku Janne heim af sjúkrahúsinu. Þeir kærðu Grau-hjónin fyrir Barna- verndarnefnd. Þess var krafizt, að leyfi _yrði gefið til þess að barnið yrði tekið af foreldrunum og sagt var, að hún fengi ekki að koma aftur á sjúkrahúsið, þótt henni versnaði, ef hún kæmi ekki strax. Foreldrarnir fengu að heyra það viða að, að þeir myndu myrða barnið sitt, með þvi að hætta að gefa henni lyf eins og t.d. Puru-Netholm og Methotrexate. — Við vorum tilbúin að flýja með Janne, ef einhvern birtist, sem ætlaði að taka hana af okk- ur með valdi, segir faðirinn. Á meðan skrifstofubáknið var að velta málinu fyrir sér með hraða snigilsins, rannsakaði þekktur náttúrulæknir og lif- efnafræðingur Otto Ballin, Janne. Hann lagði siðan til, að hún væri látin fá lyf frá Viggo Berthelsen i Hellerup. — Við þorðum i fyrstu ekki að taka öll lyf af Janne, segir Mogens, sem sýnir blaðamann- inum þær tegundir lyfja, sem Janne hafði verið ætlað að taka á sjúkrahúsinu. — Við minnkuð- um þó skammtinn um helming og siðan hættum við alveg að gefa henni lyfin. Samkvæmt forskrift náttúru- læknisins fékk Janne nú stóra skammta af Scanalka—stein- efnatöflum auk C-vitamin efnis- ins Hycetamin. I Scanalka eru lifsnauðsynleg steinefni, m.a. kalium, kopar, kobolt, mangan, zink, joð. Hycentamin er fram- leitt úr þurrkuðum berjum (nypon) en þessi berjategund er þekkt fyrir það að vera mjög auðug af vitaminum, sér i lagi askrobinsýru. Janne var nú lát- ’in borða — og gerir reyndar enn 45töflur daglega af þessum lyfj- um. Mikil breyting var gerð á mataræði hennar. Hún fékk eggjahvituauðuga fæðu, en hins vegar var dregið úr fitu og sykurinnihaldinu, og hún fékk hrásaftir og grænmeti. — Við áttum við mikla fjár- hagsörðugleika að etja fyrst eftir að Janne kom heim af sjúkrahúsinu. Við þurftum Formannaráðstefna Læknafélags Islands 1974 stundum að kaupa náttúrulyf, ávexti og grænmeti fyrir um 1000 danskar krónuf (milli tiu og tuttugu þúsund ísl. krónur) á mánuði. Þess vegna höfum við nú fenguð okkur garðland og ræktum sjálf grænmetið. Mogens vinnur tvöfalda vinnu, hefur fengið peningalán hjá móður sinni (hún á krá, sem nefnist Stenlöse Kro) þegar fjárhagurinn hefur verið hvað erfiðastur. Dorthe varð hins vegar að hætta að vinna úti, en hún hafði unnið i skóbúð, til þess að geta hugsað um Janne litlu. Lyf læknanna fær maður ókeyp- is, en náttúrulæknalyfin eru á engan hátt greidd niður. Á meðan pappirshaugarnir um ,,mál Janne” hækkuðu stöð- ugt tokst foreldrum hennar að hætta við að nota læknalyfin handa dóttur sinni. Þau voru i sjöunda himni yfir þvi að sjá barn sitt, sem hafði verið dauðadæmt, snúa aftur til lifs- ins, ef svo má að orði komast. Þau segjast aldrei muni gleyma þeim degi, þegar Janne eftir að- eins eins mánaðar kúr gat sjálf komizt út úr rúmi sinu. Hún þurfti ekki lengur á hjálp að halda við að standa eða ganga. Fljótlega fór hún að vilja fá að fara út og leika sér eins og önn- ur börn. Hárið fór að vaxa og það kom glampi i augun. Siðast liðið haust fóru foreldr- arnir með Janne til Frankfurt til þess að láta færustu sérfræð- inga i Evrópu á sviði hvitblæðis rannsaka hana. Eftir rannsóknina sagði hinn þýzki læknir: — Þetta er sannkallað krafta- verk. Janne er einasta barnið, sem ég hef rannsakað, sem er algjörlega læknað af hvitblæði. Fjölmargir ungir læknar i Danmörku hafa fylgzt með Janne af áhuga. Þeir standa ál- gjörlega með Grau-fjölskyld- unni, en þora ekki að koma fram opinberlega og segja skoðun sina á málinu, af ótta við, að þeir eigi þá á hættu að missa at- vinnuna, eða verða visað úr læknafélögunum. Einn þessara lækna hefur eindregið ráðlagt Mogens að halda áfram með steinefnatöflurnar. — Hvers vegna geta læknar ekki unnið saman, venjulegir læknar og náttúrulæknar og reyna að læra hvor af öðrum? Þess spyr Mogens. Hvers vegna eiga læknar að hafa einhvern einkarétt á sjúkdómunum? Þegar ég fór og sótti Janne á sjúkrahúsið sögðu læknarnir: Fái hún ekki lyfin sin getur hún i lengsta lagi lifað i tvo til þrjá mánuði. Nú er hún búin að lifa i tvö ár og er heilbrigð. Við erum þrátt fyrir það ekki róleg. Við erum stöðugt á verði. Það verð- ur að rannsaka blóð hennar reglulega, og við reynum að sjá til þess að hún fái ekki um- gangsprestir, eftir þvi sem hægt er. Það er alltaf hætta á að hún veikist aftur. Foreldrarnir hafa krafizt þess að fá að sjá allar skýrslur, sem til eru um sjúkdómssögu Janne. Læknarnir neita að láta af hendi allar skýrslurnar. Dönsk lög heimila þeim, að halda eftir þvi, sem þeir vilja — en þvi mun vera öðru visi farið t.d. um lög i Sviþjóð. Jörgen Jacobsen lögfræðing- ur Mogens Grau 'hefur stefnt innanrikisráðuneytinu, sjúkra- hússtjórn og yfirlækninum Erik Ryssing, sem fulltrúa barna- deildar Rikisspitalans, i þeim tilgangi að fá öll þau plögg, sem til eru varðandi Janne. Málið var fyrst tekið fyrir 27. marz s.l., en þvi var siðan frestað um nokkrar vikur. — Við viljum fá að sjá sjúkra- skýrslurnar um Janne til þess að fá úr þvi skorið, hvort um nokkur mistök hefur verið að ræða af hálfu læknanna á sjúkrahúsinu. Fari svo að slikt yrði uppvist, myndi ég ekki hika við að ákæra læknana, og fara i skaðabótamál segir faðirinn. Janna er eina hvitblæðibarnið i Danmörku, sem hefur hlotið meðferð náttúrulækna. Hún er einnig sú eina, sem er orðin algjörlega heilbrigð af þeim tuttugu börnum, sem lágu sam- timis henni á deildinni 1972. Sextán þeirra eru dáin. Foreldr- ar þeirra þorðu ekki að brjóta i bága við fyrirmæli læknanna og fylgja forskrift náttúrulækn- anna. Það var talið ólöglegt. Á meðan foreldrarnir i Stén- löse gleðjast yfir batnandi heilsu dóttur sinnar heldur striðið áfram milli löglegra lækna og náttúrulækna. Hinn þekkti lifefnafræðingur Otto Ballin hefur verið dæmdur af dönskum dómstólum fyrir að nota hómópatalyf. Hann hefur ekki látið þetta á sig fá, heldur höfðað mál á hendur formanni danska læknafélagsins fyrir ærumeiðingar. Hann vill ekki liða það, að vera kallaður „svindlari, hættulegur kukklari, fjárplógsmaður, sem reynir að græða á dauða og sjúkdómum”. Mogens segir: — Við foreldrar hvitblæði- barna höfum myndað með okk- ur samtök til þess að mótmæla meðferð læknanna, sem ekki hafa aðeins sýnt sig að vera til- gangslausa heldur hreint og beint skaðlega. Það höfum við Dorthe séð með eigin augum. Við vonumst til þess að geta hjálpað mörgum börnum, sem að óþörfu hafa verið dauða- dæmd i Danmörku. 1 dag erum við glöð yfir þvi, að við skyldum hafa kjark til þess að rjúfa hring eiturlyfj- anna i tlma. Annars hefðum við ekki átt annað eftir i dag en sorgina og litið leiði til þess að hugsa um........ (Þýtt og endursagt FB) 18. MAl s.l. var haldin i Domus Medica ráðstefna formanna svæðafélaga L.t. Aðild að L.i eiga samtals 9 svæðafélög. Eitt þeirra liefur heimili á erlendri grund, en það er Félag isl. lækna i Bret- iandi. Formaður L.Í., Snorri Páll Snorrason, stýrði ráðstefnunni. Helztu mál, sem fyrir ráðstefn- unni lágu, voru framkvæmd laga um heilbrigðisþjónustu, hlutverk göngudeilda i heilbrigðiskerfinu, kjaramál og samningar, sam- skipti rikis og sveitarfélaga á sviði heilbrigðisþjónustu og ný- gerðar breytingar á almanna- tryggingalögum. Fyrir fundinum lá álit nefndar læknafélagsins um hlutverk göngudeilda, en þar kemur fram, að æskilegt sé, að þessi þáttur i starfsemi sjúkrahúsanna skuli leysa eftirmeðferð sjúklinga eftir legu á sjúkrahúsum og e.t.v. starfa við forrannsóknir á þeim sjúklingum, sem biða eftir sjúkrahúsplássi. Ekki er talið æskilegt, að göngudeildir sjúkra- húsa verði opnar, þannig að þær veiti öllum almenningi alhliða sérfræðiþjónustu. Lög um heil- brigbisþjónustu gera ráð fyrir, að sérfræðiþjónusta, utan sjúkra- húsa, fari fram á heilsugæzlu- stöbvum eða hjá sérfræðingum, sem starfa sjálfstætt á eigin lækningastofum. Um s.l. áramót tóku gildi, að mestu leyti,ný lög um heilbrigðis- þjónustu, sem samþykkt voru á alþingi i april 1973. Um leið og hafin er framkvæmd laga þess- ara, breytist að miklu leyti upp- bygging læknisþjónustunnar i landinu, og i stað læknishéraða, sem áður voru, eíu komin heilsu- gæzluumdæmi, þar sem reka skal almenna heilsugæzlu frá heilsu- gæzlustöð. Verulegir erfiðleikar hafa komið fram i sambandi við framkvæmd hins nýja skipulags, og er það m.a. þvi að kenna, að lögin tóku ekki gildi að öllu leyti, þvi að II kafli þeirra, sem fjallar um hin nýju læknishéruð, stjórn- unarumdæmi heilbrigðisþjónust- unnar i landinu, öðlast ekki gildi fyrr en með sérstakri samþykkt alþingis. Einnig kom fram, að verulega skorti á, að nægur timi hefði verið til að undirbúa fram- kvæmd hinna mörgu nýmæla, sem lögin gera ráð fyrir. Þá voru kjaramál og samning- ar lækna til umræðu, og kom fram, að kjör lækna, sem starfa við sjúkrastofnanir eingöngu, hafa farið mjög versnandi miðað við aðrar stéttir á undanförnum árum, en þó sérstaklega vegna hinnar miklu kauphækkunaröldu frá s.l. vetri, en kjör þessara lækna höfðu þá verið ákveðin með kjaradómi að fullu með 3% hækk- un launa. Einnig kom fram, að rekstrargrundvöllur sérfræði- legrar læknisþjónustu er varla fyrir hendi lengur. L.t. hefur nú til sérstakrar at- hugunar við samningagerð að af- létta hinu óhóflega vinnuálagi, sem hvilir á læknum, ekki sizt héraðslæknum (læknum á heilsu- gæzlustöbvum), og voru ákveðn- ar sérstakar aðgerðir I sambandi við yfirstandandi samningagerð til að afla þessum læknum að- stoðarfólks. 1 umræðum um samskipti rikis og sveitarfélaga á sviði heil- brigðisþjónustu kom greinilega fram, að skortur á samvinnu og eðlilegri verkefnaskiptingu milli þessara abila hefur staðið þróun heilbrigðisþjónustunnar i landinu verulega fyrir þrifum. Fjárhag flestra sveitarfélaga væri þannig háttað, að tilgangslaust væri að gera ráð fyrir verulegum útgjöld- um vegna heilbrigðisþjónustu af þeirra hálfu, nema til kæmi endurskoðun á tekjustofni þeirra. Talið var æskilegt, að svæða- félög L.l. vinni með landshluta- samtökum sveitarfélaga að þvi að byggja upp forgangsröðun framkvæmda innan kjördæm- anna, á sviði heilbrigðismála. Samþykkt var að sénda sér- stakt dreifibréf til allra sveitar- félaga i landinu varðandi þetta mál. Að siðustu var rætt um nýgerð- ar breytingar á almannatrygg- ingalögum, sem stjórn lækna- félagsins hafði fengið til umsagn- ar nokkru fyrir þinglok. 1 hinum nýju lögum er að finna merk ný- mæli, s.s. þátttöku I tannlækna- þjónustu. Þar er hins vegar gert ráð fyrir breytingum i sambandi við greiðsluform fyrir lyf og læknisþjónustu, sem læknafélagið hafði varað við og telur að geti verkað til rýrnunar á gæðum læknisþjónustunnar i heild. Sér- staklega átaldi læknafélagið þá aðferð, sem hér er við höfð, að veita stórkostlegum fjárfúlgum til aukinnar þátttöku hins opin- bera i útgjöldum almennings .vegna heilbrigðisþjónustu, á sama tima sem þessi þjónustu- grein er að flestu leyti vanbúin sakir skorts á fjármagni til upp,- byggingar og sakir skorts á sér- menntuðu starfsliði. Þá var • i þessu sambandi lögð á það rik áherzla, að þrátt fyrir mjög aukna hlutdeild rikisvaldsins i stofnkostnaði heilbrigðisstofnana með lögum frá i april 1973. hafa ekki fylgt auknar fjárveitingar til nýbygginga i núgildandi fjárlög- um. RAUÐ SOKKAR ÞINGA AÐ, SKOGUM Dagana 15.-17. júni 1974 halda rauðsokkar ráðstefnu að Skógum undir Eyjafjöllum. Aðalmál ráð- stefnunnar verður skipulag hreyfingarinnar, undangengið starf, framtiðaráætlanir, o. fl. Nákvæmri dagskrá veröur út- hlutað við brottför. Vegna skipulagningar er nauðsynlegt að tilkynna þátttöku sem allra fyrst, eða i siðasta lagi sunnudaginn 9. júni i sima 16972, Hjördis, eða 10153, Steinunn á milli klukkan 20 og 24 daglega. Þeir sem vilja og þurfa, eiga kost á barnagæzlu á meðan á fundi stendur. Nú er Janne Grau, sem er sex ára gömul, heilbrigð aftur. Hér er hún með fjölskyldu sinni heima I Stenlóse.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.