Tíminn - 09.06.1974, Síða 10
10
TÍMINN rr
Sunnudagur 9. júnl 1974.
— myndir frá heimsókn hans tii Akureyrar 1947
ÞEGAR OLAFUR V
VAR KRÓNPRINS
Ólafur Noregskonung-
ur er góður gestur, sem
öll islenzka þjóðin fagn-
ar af heilum huga, þegar
hann sækir okkur heim,
og fáir þjóðhöfðingjar
hafa unnið sér slikan
sess i hjörtum þjóðar-
innar sem hann.
Skömmu eftir striðs-
lok, eða i júlimánuði ár-
ið 1947, meðan hann var
krónprins Noregs, heim-
sótti hann Island, af sér-
stöku tilefni. Þá færðu
Norðmenn íslendingum
styttu af Snorra Sturlu-
syni, sem stendur i
Reykholti, og Ólafur
krónprins afhjúpaði
styttuna við vegleg
hátiðahöld, sem þúsund-
ir íslendinga sóttu.
Flutti krónprinsinn
snjallt ávarp við það
tækifæri, og þótti at-
höfnin og hátiðin öll hin
virðulegasta.
í það sinn heimsótti
Ólfur krónprins Akur-
eyri, og var honum tekið
með miklum virktum af
bæjarstjórn og bæjarbú-
um.
í gær barst Timanum
safn mynda, sem teknar
voru við það tækifæri og
sýna ólaf krónprins á
Akureyri árið 1947.
Myndirnar tók Edvard
Sigurgeirsson, ljós-
myndari, og veitti hann
Timanum góðfúslega
leyfi sitt til birtingar
þeirra. Þessar myndir
eru skemmtileg upprifj-
un fyrri tima, og skal nú
gerð tilraun til að þekkja
þá, sem þar sjást.
Við veizluborðið sitja
Ólafi krónprins á vinstri
hönd Steinn Steinsen,
bæjarstjóri, norski
sendiherrann, Torgeir
Anderssen-Rysst, og
Þorsteinn M. Jónsson,
forseti bæjarstjórnar.
Hægra megin við krón-
prinsinn situr Guð-
mundur Eggerz , sýslu-
maður. Andspænis krón-
prinsinum sitja þeir Jón
Sveinsson, fyrrverandi
bæjarstjóri, og Axel
Schiöth. Við þekkjum
ekki manninn, sem snýr
baki i okkur og situr
innst en fremst á mynd-
inni sjáum við ekki bet-
ur en sitji Bernharð
Stefánsson, alþingis-
maður.
Sitjandi á bekk i Lysti-
garðinum eru Steinn
Steinsen, Ólafur krón-
prins, Guðmundur
Eggerz og Torgeir
Anderssen-Rysst, en
mennina tvo yzt til
hægri þekkjum við ekki.
Á myndunum tveim af
Ólafi krónprins einum er
hann að flytja ávarp i
Lystigarðinum og að
skrifa nafn sitt i gesta-
bók, að likindum i Akur-
eyrarkirkju.
BH
r / w'i'í'