Tíminn - 09.06.1974, Síða 11

Tíminn - 09.06.1974, Síða 11
TÍMINN '' 11 Surinudagur 9. jfinl ^1974. Sigríður E. AAagnúsdóttir og Jónas Ingimundarson: Ætla að enda velheppnaða hljómleikaferð um landið — með hljómleikum í Stúdentaheimilinu Miðasala að Laufósvegi 8 kl. 14 — 18 sími 28055 KAUPFÉLAGVestur-Húnvetninga HVAMMSTANGA ö Gsal-Reykjavik — Sigriður E. Magnúsdóttir, söngkona og Jónas Ingimundarson, pianóleikari eru i þann mund að ljúka hijómieika- ferð sinni um landið, að þessu sinni. Hafa þau ákveðið siðustu hljómleikana, sem verða i Stú- dentaheimilinu við Hringbraut á sunnudaginn 9. júni kiukkan fimm. Meðal efnis á þessum hljómieikum, verða tvö lög eftir Jórunni Viðar og Skúla Halldórs- son við þjóðvisur, og hafa þau ckki verið flutt áður opinberlega. Á blaðamannafundi með tón- listarfólkinu kom fram, að hljóm- leikaferð þeirra um landið þvert og endilangt væri talsvert seinna búin, en þau hefðti ætlað i fyrstu. Þau hófu ferð sina um mánaða- mótin febrúar/marz og héldu alls sjö hljómleika, auk þess sem þau heimsóttu skólafólk á Akureyri og skemmtu þeim. Fóru Sigriður og Jónas þessa hljómleikaferð mest á eigin veg- um, og aðeins að takmörkuðu leyti á vegum tónlistarfélaga. Hins vegar sagði Jónas, að kveikjan að hljómleikum kæmi oft frá tónlistarfélögum. — Tónlistarfélögin úti á landi, eru það fátæk, sagði Jónas og hafa oftast nóg á sinni könnu með að halda starfandi tónlistarskóla, þó hér séu undantekningar á, eins og t.d. á Akureyri og tsafirði. Þá kom fram á fundinum, að brýna nauðsyn ber til að skipu- leggja hljómleikaferðir og raunar alla list um landið, og vonuðust Sigriður og Jónas að slik skipu- lagning liti dagsins ljós fyrr en seinna. — Það er i rauninni fásinna, að flytja mikið æfða og vel undir- búna dagskrá aðeins einu sinni, eins og algengt er með okkar ágæta listafólk, sagði Jónas. Það þyrfti að skipuleggja alla list gegnum skólakerfið, ef vel ætti að vera. Þá sagði Jónas, að það gæti ekki talizt gróðavon að ferðast s^ona um landið, enda væru pen- ingarnir ekki neitt keppikefli i sjálfu sér. — Ánægjan er mikil okkar meg- in og það er engin lausn, að gefast upp, sagði Jónas. Sigriður sagði, að þeim Jónasi hefði hvarvetna verið vel tekið og ekki væri annað hægt að segja, en að ferðin hefði heppnazt mjög vel. Góður hljómieikasalur Fulltrúar félagsstofnunar stú- denta og háskólans hafa sam- eiginlega skipulagt tónlistar- starfsemi innan háskólans á næsta skólaári. Fyrirhugaðir eru allt að tiu hljómleikar og verða þeir haldnir i sal stúdentaheimilisins, en hann hefur fengið á sig einkar gott orð fyrir góðan hljómburð. — Það er mjög ánægjulegt, að VÖRUFLUTNINGAR: REYKJAVÍK — HVAMMSTANGI Afgreiðsla á Vöruflutningamiðstöðinni, Borg- artúni 21 Listahótíð í Reykjavík Tónleikar í Hóskólabíói mdnudaginn 10. júní kl. 21.00. Sinfóníuhljómsveit Islands Stjórnandi: Alain Lombard Einleikari: Jean Bernard Pommier f Kaupfélagið útvegar félagsmönnum sinum nauðsynjavörur eftir þvi, sem ástæður leyfa á hverjum tima, og tekur framleiðsluvörur þeirra i umboðs- sölu. svona góður hljómburður er hér innan veggja skólans, sagði Þor- steinn Gylfason, sem á sæti i undirbúningsnefnd þessa máls. Hátiðarsalur háskólans hefur nefnilega verið alræmdur fyrir lélegan hljómburð, sagði Þor- steinn. Sagði Ingólfur Hjartarson, sem einnig hefur unnið að framvindu þessa máls, að háskólinn mundi leggja til hljóðfæri. — Það er stefnan, að í þessum sal fari fram viðtækari menn- ingarstarfsemi, en að snæða mat, sagði Ingólfur og brosti. Sigriður E. Magnúsdóttir og Jónas Ingimundarson ætla að halda hljómléika i þessum sal á sunnudaginn klukkan fimm, en salurinn mun rúma um tvöhundr- uð manns i sæti. — Stærðin á þessum sal er mjög hrifandi, sagði Sigriður þvi mér finnst þessi hljómleikasalir, sem Reykjavik býður upp á, annað hvort of stórir eða litlir. — Með þessum hljómleikum þeirra Sigriðar og Jónasar, fáum við um leið tækifæri til að gera betrumbætur, sagði Ingólfur, og lagfæra það sem miður fer. Það skal tekið fram, að hljóm- leikar Sigriðar og Jónasar eru opnir öllum almenningi, og að þvi leyti óviðkomandi starfsemi stúdenta og háskólans en þeirra hljómleikar á komandi vetri, verða aðeins auglýstir innan veggja skólans. Miðar á hljómleika Sigriðar E. Magnúsdóttur og Jónasar Ingi- mundarsonar, verða seldir við innganginn. Sigríður E. Magnúsdóttir söngkona og Jónas Ingimundarson, pianó- leikari, Timamynd: Róbert. Það er alkunnugt i Vestur-Húnavatnssýslu, og raunar viðar, að söluverð á aðfluttum vörum er v, lægra hjá KVH en viðast annars staðar. Þó fá (, félagsmenn endurgreitt nokkuð af Vöruverðinu * * um hver áramót i viðskiptareikninga og st$fn- > sjóðsreikninga. Fró Sjúkrasamlagi Reykjavíkur Guðsteinn Þengilsson læknir hættir störf- um sem heimilislæknir hinn 1. júli 1974. Samlagsmenn sem hafa hann sem heimilislækni, snúi sér til afgreiðslu samlagsins, hafi með sér samlagsskirteini sin og velji lækni i hans tað. Sjúkrasamlag Reykjavikur.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.